Morgunblaðið - 23.03.1993, Síða 7

Morgunblaðið - 23.03.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1993 Ríkissaksóknari kærir til Hæstaréttar Dómari greiði sekt vegna dráttar á máli ÁKÆRUVALDIÐ hefur gert kröfu um að Hæstiréttur dæmi Finnboga Alexandersson héraðsdómara til að greiða sekt fyrir óhæfilegar tafir á meðferð sakamáls sem hann hafði til meðferðar. Sex ár liðu frá því að ákæra var gefin út þar til dómarinn birti hinum dæmda nið- urstöður sínar, en þá voru liðin u.þ.b. þrjú ár frá því að dómur hafði gengið. Mál þetta var flutt í Hæstarétti á föstudag. Um er að ræða mál vegna fjár- dráttar sem höfðað var á hendur manni árið 1986. Dómur var kveðinn upp árið 1989 og maðurinn dæmdur í eins árs fangelsi, óskilorðsbundið. Dómurinn var hvorki birtur hinum dæmda né ákæruvaldinu fyrr en árið 1992. Hinn dæmdi óskaði eftir að málinu yrði áfrýjað og þar var fyrir hans hönd gerð krafa um að málið yrði ómerkt eða vísað til meðferðar í héraðsdómi að nýju. Hæstiréttur fjallar aðeins um form málsins Málið var tekið fyrir í Hæstarétti á föstudag og var þá að ákvörðun Hæstaréttar fjallað um hina formlegu hlið málsins, þ.e.a.s. meðferð dómar- ans á því, en ekki fjalla að svo stöddu um sakargiftimar í fjárdráttarmálinu. Hreindýr- infallin BÚIÐ er að fella hreindýrin tvö skammt frá Höfn í Hornafirði, sem fest höfðu netadræsu og raf- magnsvír í hornin. Reyndist annað vera tarfur á öðrum vetri en hitt var miðaldra kýr. Annað dýrið náðist síðastliðinn fimmtudag en hitt á sunnudag. Að sögn Páls Hersteinssonar veiðistjóra hefur áður þurft að fella dýr sem eru illa á sig komin af völdum sjúkdóma eða af öðrum ástæðum en full ástæða er til að brýna fyrir sveitarfélögum að sjá til þess fjörur séu hreinsaðar og að gæta að lausamunum sem gætu skaðað dýrin. í ijós kom að annað dýranna hafði til dæmis kom- ist í rúllu af nýjum rafmagnsvír, sem líklega hefur iegið á glámbekk við byggingastað. „Það var eina leiðin að fella dýrin,“ sagði Páll. „Það var nokkuð ljóst að þau hefðu aldrei getað losað sig við þessar dræsur." ----------♦ ♦ ♦---- Hallvarður Einvarðsson ríkissak- sóknari sagðist í samtali við Morg- unblaðið ekki þekkja dæmi þess frá seinni árum að gerð væri krafa af þessu tagi á hendur dómara en sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru þess allmörg frá fyrri árum að dómara sé gerð sekt vegna dráttar á máli. Að lokinni leitaræfingu BJÖRGUNARSVEITIN Kyndill efndi til æfingar á laugardag og tóku fjórar slysavarnasveitir þátt í henni. Leitað var að „sjúklingi", sem björgunarsveitin Kyndill lagði til, á svæði fyrir neðan Langjök- ul. Haldið var af stað kl. 9 á laug- ardagsmorgun og framkvæmd breiðleit á 5 snjóbílum og um 30 snjósleðum. Um fjörutíu manns tóku þátt í leitinni sem lauk kl. 15. Sotheby’s í London Uppboð á íslenskum frímerkjum ÍSLENSK frímerki verða boðin upp þjá Sotheby’s i Lundúnum, föstudaginn 26. mars næstkom- andi. Þar verður einnig boðin upp 49 síðna bók með frímerkjum sem gefin voru út til að minnast þess að 1000 ár voru Iiðin frá stofnun Alþingis. Að sögn Sigríðar Ingvarsdóttur fulltrúa hjá Sotheby’s, var bókin gefin út í mjög litlu upplagi. Fengu þeir sem áttu sáeti í Alþingishátíðar- nefnd auk helstu ráðamanna landsins eitt eintak. Bók af sömu gerð var seld á uppboði hjá fyrirtækinu síð- astliði haust á 5.000 pund og er bókin sem nú verður boðin upp met- in á 5 til 6 þús. pund eða um 465 til 552 þúsund krónur. Þá verður einnig boðið upp lítið frímerkjasafn frá 1873 til 1977 sem metið er á um 112 til 140 þúsund krónur og sjaldgæf frímerki frá 1873 sem metin eru á um 140 til 186 þúsund krónur. Auk þess verða boð- in upp frímerki til ársins 1944. og sýningin heldur áfram MICRA SLÆR HINA ÚT Þegar gerður er gæðasamanburður hefur Micran öll trcmp á hendi, því hún er... ÖRUGGARI LIPRARI RÚMBETRI SKEMMTILEGRI SPARNEYTNARI □G ODÝRARI BILL ARSIIMS 1993 500 manns reynsluóku Nissan Micru um síðustu helgi og lýstu ánægju sinni með bílinn. Þið hin sem ekki hafið komið, séð og reynsluekið Nissan Micru er velkomið að sannreyna gæði Micrunnar, bíl ársins 1993. Verðdæmi: MICRA LX 3ja dyra, með VÖKVASTÝRI beinni innspýtingu, 1300cc, 16 ventla vél, hituð sæti. VERÐ AÐEINS 799.000- Stgr. Ingvar HeKgason hf. Sævarhöföi 2, 112 Reykjavík P.O. Box 8036, Sími 674000 NIS5AN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.