Morgunblaðið - 23.03.1993, Síða 16

Morgunblaðið - 23.03.1993, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1993 Oflugnr sjávarútvegs- skólí, forsenda framfara eftir Finn Ingólfsson í Morgunblaðinu þriðjudaginn 16. mars sl. birtist grein sem bar yfir- skriftina „Ráðgert að leggja niður þijá höfuðskóla sjávarútvegsins". Höfundar hennar voru skólameistar- ar Vélskóla íslands, Stýrimannaskól- ans í Reykjavík og Fiskvinnslusköl- ans i Hafnarfirði. Tilefni greinarinn- ar er að undirritaður ásamt Halldóri Ásgrímssyni, fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra, hafa lagt fram á Al- þingi tillögu til þingsályktunar, sem gerir ráð fyrir því að fela mennta- málaráðherra að undirbúa samein- ingu Fiskvinnsluskólans í Hafnar- firði, Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla íslands í einn sjávarút- vegsskóla á framhaldsskólastigi. Eg mun ekki elta ólar við ýmis þau stóryrði sem fram koma í grein- inni og dæma sig sjálf, heldur fyrst og fremst reyna að rökstyðja enn frekar en gert er í þingsályktunartil- lögunni mikilvægi þess að skóiarnir verði sameinaðir en ekki lagðir nið- ur, eins og höfundar halda fram að sé tilgangurinn með tillögunni. Tilgangur flutningsmanna Ekki leikur vafí á að þeir skólar sem nú eru starfandi og annast kennslu og fræðslu á framhalds- skólastigi fyrir íslenskan sjávarútveg hafa gegnt og gegna mikilvægu hlut- verki í að fræða og mennta fólk sem síðan hefur komið til starfa í sjávar- útveginum. Frá þessum skólum, eins og fram kemur í grein skólameistar- anna, hafa útskrifast margir góðir menn og gengið til mikilvægra starfa í íslenskum sjávarútvegi. Það er svo sannarlega rétt, en góða skóla og góða menn má gera betri. Tilgangur flutningsmanna með þessari þingsályktunartillögu er sá- aðefla og styrkja fræðslu á fram- haldsskólastigi fyrir íslenskan sjáv- arútveg. Það er mikilvægt að búa vel að menntunarskilyrðum þeirra sem stunda nám á þessu sviði, því vaxandi alþjóðleg samkeppni krefst vel menntaðs fólks til starfa, fólks með breiða þekkingu á öllum þáttum sjávarútvegs allt frá veiðum að markaðs- og sölustarfi. Með samein- ingu þessara skóla gefst kostur á að tvinna saman í heildsteypt sjáv- arútvegsnám á framhaldsskólastigi þá miklu þekkingu og reynslu, sem fyrir er í þeim skólum, er nú starfa á þessu sviði. Upphaf málsins í janúar 1986 komu þáverandi menntamálaráðherra og sjávarút- vegsráðherra sér saman um skipun starfshóps um sjávarútvegsskóla. Hópurinn skilaði áliti sínu í október sama ár og voru helstu niðurstöður hans eftirfarandi: * Stofnaður verði sjávarútvegsskóli í Reykjavík er taki við hlutverkum Stýrimannaskólans í Reykjavík, Vélskóla íslands og Fiskvinnslu- skólans í Hafnarfirði. * Stofnað verði fræðsluráð sjávar- útvegsins skipað fulltrúum hags- munasamtaka, rannsóknastofn- ana og ráðuneyta, sem verði stefnumarkandi í fræðslumálum sjávarútvegsins. * Sjávarútvegsskólinn fái til umráða húsnæði Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla íslands í Reykjavík og hið nýja verknáms- hús Fiskvinnsluskólans í Hafnar- firði. í upphafi árs 1992 skipaði núver- andi menntamálaráðherra nefnd til þess að gera tillögur um hagræðingu í framhaldsskólanum. Nefndin skil- aði af sér áliti í mars 1992 og komst að sömu niðurstöðu, þ.e. að Stýri- mannaskólinn í Reykjavík, Vélskóli íslands og Fiskvinnsluskólinn skyldu sameinaðir í einn skóla, sjávarút- vegsskóla. Það er því ekki rétt, sem fram kemur í grein skólameistar- anna, að tillögur nefndarinnar frá 1986 hafí að athuguðu máli verið vísað frá. Samstarf og samráð var haft... Við undirbúning tillagna starfs- hópsins sem vann að málinu 1986 var leitað samstarfs og samvinnu við þáverandi skólameistara áður- nefndra skóla, sem enn í dag eru þeir sömu, nema skólamejstaraskipti hafa orðið hjá Vélskóla íslands. Til undirbúnings tillögum nefndarinnar voru m.a. heimsóttir skólar í Noregi, Danmörku og Saint John á Ný- fundnalandi þar sem þekkingar og upplýsinga var leitað um hvemig sjávarútvegsskólar í þessum löndum störfuðu. Með í flestum ef ekki öllum þessum kynnisferðum voru allir skólameistarar skólanna. Ef ég man rétt, minnir mig að eftir þessar heim- sóknir hafi nefndarmennimir, sem skfpuðu starfshópinn, en undirritaður var einn þeirra, og skólameistaramir verið sammála um að ýmislegt mætti betur fara í starfí skóianna hér á landi og margt mætti gera til þess að efla og styrkja menntun á fram- haldsskólastigi fyrir íslenskan sjáv- arútveg. Við lokaundirbúning og frágang skýrslunnar frá 1986 var haldin á vegum starfshópsins ráðstefna í Reykjavík, þar sem hugmyndir hans vom kynntar. Nefndarmenn og skólameistararnir sátu fyrir svörum á ráðstefnunni. Niðurstaða ráðstefn- unnar var sú að skynsamlegt væri að auka samstarf, jafnvel að sameina þá skóla sem störfuðu á sviði sjávar- útvegs. Mörg hagsmunasamtök sjáv- arútvegsins lýstu yfír eindregnum stuðningi við tillögur starfshópsins, eins og þær komu síðan fram í skýrslu starfshópsins, en sú skýrsla er fylgiskjal með þingsályktunartil- lögunni. Það er því tæpast hægt að halda því fram að aldrei hafí verið haft samráð við stjórnendur þessara skóla um þá leið er þingsályktunartil- lagan gerir ráð fyrir. Það er hins vegar rétt að það var ekki gert við undirbúning og framlagningu þing- sályktunartillögunnar sem slíkrar, en hún byggir að öllu leyti á skýrslu starfshópsins frá 1986. Sameiningin mun styrkja menntunina í grein skólameistaranna er sagt að fullyrðingin um samruna skólanna þriggja í einn sjávarútvegsskóla þurfí ekki að styrkja nám í fyrrgreindum skólum. í skýrslu starfshópsins frá 1986 eru færð rök fyrir því að með sameiningu skólanna sé hægt að stórefla og styrkja námið í þeim. Lagt er til að sjávarútvegsskólinn heyri undir menntamálaráðuneytið og hann verði sérskóli á framhalds- skólastigi og því hluti af hinu al-» menna skólakerfí í landinu. Til að tryggja tengsl skólans við sjávarút- veginn verði stofnað fræðsluráð sjáv- arútvegsins, sem verði faglegur tengiliður milli skólans, atvinnulífs- ins, rannsóknastofnana sjávarút- vegsins, sjávarútvegsráðuneytisins og menntamálaráðuneytisins. Hlut- verk þess verði að móta heildarstefnu og skipulag sjávarútvegsfræðslunn- ar._ í skýrslu starfshópsins er gert ráð fyrir því hvernig starfsemi og stjórn- skipulag skólans skuli vera, þar sem skólanefnd og skólastjóri fari með yfirstjórn skólans. Hann starfi í véi- stjórnardeild, fiskvinnsludeild, skip- stjórnardeild, fiskeldisdeild og endur- menntunardeild, sem m.a. geti tekið við því mikla fræðslustarfi sem nú fer fram í gegnum starfsfræðslu- nefnd sjávarútvegsins. Hins vegar er gert ráð fyrir því, að aðeins verði starfandi einn skólastjóri við þennan nýja skóla. Það kann hins vegar ein- hverjum að þykja slæmt, en óþarfi samt að láta liggja að því í greininni í Morgunblaðinu, að slíkur maður yrði annaðhvort hagfræðingur eða Finnur Ingólfsson „Tilgangur flutnings- manna með þessari þingsályktunartillögu er sá að efla og styrkja fræðslu á framhalds- skólastigi fyrir íslensk- an sjávarútveg.“ rekstrarfræðimenntaður, því hvergi er í þingsályktuninni eða skýrslu hópsins frá 1986 gert ráð fyrir néinu slíku. Gert er ráð fyrir því að sjávarút- vegsskólinnverði ávallt opinn fyrir nýjungum sem fram koma og því sveigjanlegur þannig að hægt sé að taka upp kennslu í nýjum námsgrein- um á nýjum námsbrautum eða með stofnun nýrra deilda. Gert er ráð fyrir að umtalsverð skörun geti orðið á námsefni milli deilda og því mikil- vægt að samnýta kennslukrafta, kennslutæki og kennslubúnað í þeim tilfellum. Það kom fram á sínum tíma í samtölum við menn í sjávarútvegi, að sjávarútvegurinn hefði þörf fyrir nýjar námsgreinar og voru þá helst nefnd stjórnunar- og rekstrarfræði, sölu- og markaðsfræði, haffræði, líf- fræði sjávar, auðlindanýting, um- hverfisfræði, veiðarfærafræði og veiðitækni. Sjávarútvegsskóli sem ein stofnun verður að mati okkar sterkari eining til að takast á við þessi verkefni en þrír minni skólar. Þar að auki má ætla að betur verði séð fyrir fjárveit- ingum til skólans njóti hann óskipts stuðnings allra hagsmunaaðila enda kemur það fram í áðurnefndri grein skólameistaranna, að fjárveitingar til skólanna hafa dregist mjög veru- lega saman á undanförnum árum og undan því er kvartað. Fækkun nemenda í þingsályktunartillögunni er full- yrt að nemendum áðurnefndra þriggja skóla hafi á undanförnum árum fækkað. Þessu mótmæla skóla- meistararnir sem rangri staðhæf- ingu. Samkvæmt nýjustu upplýsing- um sem ég hef frá menntamálaráðu- neytinu þá hefur nemendum Stýri- mannaskólans fækkað úr 138 árið 1980 í 76 árið 1992. Nemendum Vélskóla íslands hafa á sama tíma fækkað úr 331 í 195. Nemendum Fiskvinnsluskólans í Hafnarfírði hef- ur á þessum sama tíma einnig fækk- að úr 55 í 37. Fyrir þessa þijá skóla er þetta 41% fækkun samkvæmt upplýsingum menntamálaráðuneyt- isins. Þetta gerist á sama tíma og fjölgun nemenda í framhaldsskólan- um hefur orðið um 45% eða úr 11.147 í 16.060. Þetta staðfesta meðfylgj- andi töflur og línurit. Ég held að þessar tölur yfírvalda menntamála í landinu segi allt sem segja þarf og því óþarfi að ræða um réttar eða rangar staðhæfingar í þeim efnum. Húsnæðisaðstaða í þingsályktuninni er fullyrt að húsnæði Sjómannaskólans þar sem Vélskólinn og Stýrimannaskólinn eru til húsa sé illa nýtt. Þetta segja skóla- meistararnir að sé rangt. Hafí verið hægt að kenna öllum þeim fjölda nemenda, sem voru í Vélskólanum og Stýrimannaskólanum árin sem nemendafjöldinn var mestur og skil- aði góðum mönnum út í íslenskan sjávarútveg, má fullyrða að þegar nemendafjöldinn hefur dregist sam- an um 40% sé skólahúsnæðið van- nýtt. Ég held að tölurnar um nem- endafjöldann hér að framan staðfesti það. Nokkru öðru máli gegnir um Fisk- vinnsluskólann í Hafnarfírði, sem til skamms tíma bjó við mjög þröngan húsakost. Þegar verknámshúsið var byggt fyrir Fiskvinnsluskólann í Hafnarfirði, fékk sá skóli verulega góða aðstöðu til verknáms, enda gert ráð fyrir því í þingsályktuninni að verknám sjávarútvegsskólans fari áfram fram í því húsi. Fiskvinnslu- skólinn hefur aftur á móti alltaf ver- ið á hrakhólum í leiguhúsnæði hingað og þangað um höfuðborgarsvæðið og nú er bóknámið í færanlegri kennslustofu við endann á verknáms- húsi Fiskvinnsluskólans. Sumir kunna að telja þetta viðunandi húsa- kost, en metnaður flutningsmanna þingsályktunartillögunnar er hins vegar meiri. Lokaorð Þingsályktunártillögunni um stofnun sjávarútvegsskóla er ekki beint gegn stjórnendum Vélskóla ís- lands, Stýrimannaskólans í Reykja- vík eða Fiskvinnsluskólans í Hafnar- firði, heldur er þvert á móti leið til að efla og styrkja það starf sem þar fer fram nú. Eins og fram kemur í grein skólameistaranna í Morgun- blaðinu hefur mikið verið að gerast í samstarfi þessara þriggja skóla á undanförnum árum og er það af hinu góða. Það rennir hins vegar stoðum undir það, að starfsemi þeirra sé að mörgu leyti svo nátengd að skynsam- legt sé og hagkvæmt að reka skól- ana sem einn skóla, þannig að spara megi í yfirstjóm, auka námsframboð, styrkja og efla menntunina og gefa með því nemendum skólans fleiri og ljölbreyttari tækifæri til áframhald- andi náms. Þannig mun skólinn skila betur menntaðri starfsmönnum til starfa í íslenskum sjávarútvegi til hagsbóta fyrir íslenska þjóð. Höfundur cr alþingismnöur Framsóknarflokksins í Reykjavík og 1. flutningsmaður að tillögu til þingsályktunar um stofnun sjá varútvcgsskóla. Fjöldi nemenda í framhaldsskólum 20 Þúsund Tómstundaslcólinn: Vorönn *93 NÝ NÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST... ★ Páskaskreytingar Kristján Ingi Jónsson ★ Bútasaumur Ásdís Ósk Jóelsdóttir Ásta Kristín Siggadóttir ★ Fatasaumur Ásta Kristín Siggadóttir ★ Hattagerð Helga Rún Pálsdóttir ★ Kryddjurtir Hafsteinn Hafliðason ★ Að gera við bílinn Elías Arnlaugsson ★ Trjáklippingar Vilmundur Hansen ★ Skrautritun Þorvaldur Jónasson ★ Fjölgun trjáplantna Vilmundur Hansen ★ Glerskurður Björg Hauksdóttir ★ Sumarbústaðalandið Hafsteinn Hafliðason ★ Garðaskipulagning Fríöa Björg Eðvarðsdóttir Kolbrún Oddsdóttir HAFIÐ SAMBAND!! Innritun daglega kl. 10-18 Greiöslukortaþiónusta Ný spennandi námskeió TOMSTUNM SKOLINN Grensásvegi 16a Sunl 67 72 22 Nemendafjöldi í Vélskóla íslands, Stýrimannaskólanum í Reykjavík og Fiskvinnsluskólanum á árunum 1980-1993 Ýélskóli Stýrimanna- Fiskv.- Breyting Frh.sk. Ár Islands skólinn skólinn Samtals fj. % alls 1980 331 138 55 524 11.147 1981 283 121 55 459 -65 -12 11.552 1982 305 90 60 455 -4 -0,9 12.134 1983 259 84 60 403 -52 -11 12.274 1984 190 76 60 326 -77 -19 13.042 1985 194 91 60 345 19 5,8 13.020 1986 192 107 60 359 14 4,1 13.138 1987 232 127 60 419 60 17 13.292 1988 161 80 60 301 -118 -28 13.939 1989 178 91 60 329 28 9,3 14.777 1990 174 133 60 367 38 12 15.248 1991 173 121 46 340 -27 -7,4 15.851 1992 195 76 37 308 -32 -9,4 16.060 -216 -41 Fjöldatölur Fiskvinnsluskólans fram til 1990 eru áætlaðar og í sumum tilvikum lítið eitt of háar heildartölur framhaldsskólans byggjast 4 upp- lýsingum nemendaskrár Hagstofunnar en í þær vantar tölur um fjölda í framhaldsdeildum grunnskóla, héraðsskólum og öldungadeildum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.