Morgunblaðið - 23.03.1993, Side 22

Morgunblaðið - 23.03.1993, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1993 Velheppnað opið hús hjá Háskóla íslands og sérskólum á sunnudag Morgunblaðið/Svemr Dansinn kynntur Nemendur Listdansskólans kynntu starfsemi skólans með sýningu í húsakynnum Kennaraháskólans. Áhorfendur fylgdust með af áhuga. Þúsundir kynntu sér starfsemina „AÐSÓKNIN var með ágætum og fólk kunni greinilega að meta að við kynntum starfsemina hjá hverri deild um sig, í stað þess að vera með kynningarbása í Þjóðarbókhlöðunni, eins og við höfum gert undan- farin ár. Það vakti til dæmis ánægju margra að geta spreytt sig á tanniækningum,“ sagði Magnús Guðmundsson, deildarstjóri upplýsinga- deildar Háskóla íslands. Á sunnudag var opið hús hjá Há- skólanum og rúmiega 20 öðrum sér- skólum og skólum á háskólastigi, undir yfirskriftinni þekking, mennt- un, kraftur - hornsteinar gróandi þjóðlífs. Magnús sagði að erfitt væri að segja til um hversu margir hefðu sótt Háskólann heim. „Á kynningu okkar í Þjóðarbókhlöðuni í fyrra komu 6-8 þúsund manns og það hafa örugglega ekki komið færri núna.“ Þegar Háskóli Islands hefur kynnt námið undanfarin ár hefur hann boð- ið sérskólunum að kynna sitt nám á sama stað, þ.e. í Þjóðarbókhlöðunni. „Núna voru nánast allar deildir Há- skólans með opið hús og sérskólam- ir kynntu sína starfsemi í eigin húsa- kynnum," sagði hann. „Smærri skól- ar tóku sig saman, til dæmis voru sjö skólar með kynningu í Kennara- háskólanum, þ.e. sá skóli, íþrótta- kennaraskólinn, Leiklistarskólinn, Listdansskólinn, Myndlista- og hand- íðaskólinn, Tónlistarskóli Reykjavík- ur og Þroskaþjálfaskólinn." Ekki aðeins nemar Magnús sagði að kynningin hefði verið miðuð við að tilvonandi nem- endur skólanna gætu fræðst um hvað biði þeirra. „Við lögðum hins vegar áherslu á að almenningur, skattborg- aramir sem eiga þessa skóla, gæti kynnt sér starfsemina og margir tóku þeirri áskorun. Þannig var til dæmis mun fleira fullorðið fólk en nemar sem sóttu Háskólabókasafnið heim og læknadeildin naut mikilla vin- sælda. Þar gat fólk spreytt sig við þrekmælingar, blóðsykursmælingar og tannlækningar. Þá sýndi verk- fræðideildin ýmis tæki.“ Morgunblaðið/Ingvar Borinn á lofti Áhugamaður um tannlækningar fær að spreyta sig með borinn hjá tannlæknadeild HI. Víkinga- ferðir í skemmti- ferðaskipi Boston. Frá Karli Biöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. BANDARÍSK ferðaskrifstofa kynnir um þessar mundir sjö ferðir um Norður-Atlantshaf um borð í skemmtiferðaskipi og er Island í brennidepli auglýsingaherferðarinnar. í fréttatilkynningu frá ferða- skrifstofunni MarQuest segir að ætlunin sé að skemmtiferðaskip- inu Columbus Caravelle, sem rekið er af skipafélagi í Bremen í Þýska- landi, verði siglt eftir „sömu leið- um og sagan segir að víkingar hafí siglt“. Stutt er síðan hafist var handa við að auglýsa þessar ferðir í Bandaríkjunum, en Oscar Kolb, talsmaður ferðaskrifstofunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að undirtektir hefðu verið góðar. „Þessar ferðir hafa vakið áhuga og það hefur verið hringt talsvert í okkur,“ sagði Kolb. Columbus Caravelle mun hafa bækistöðvar á íslandi meðan á þessum ferðum stendur frá lokum júní fram í miðjan september og segir í fréttatilkynningu að þetta sé „fyrsta skemmtiferðaskipið, sem siglt er frá íslandi". Auk íslands verður siglt til Nordkapp, Svalbarða, Grænlands, Bretlands, Skosku eyjanna og norðurhluta Kanada í sumar og verða sérfræðingar í sögu og nátt- úru með í för til að upplýsa far- þega. Skemmtiferðaskipið er 7.560 tonn, tekur 250 farþega og var smíðað í Finnlandi árið 1990. Það er einnig í ferðum til Suður- heimskautslandsins, um Amazon- fljótið og Eystrasalt, svo eitthvað sé talið. Sjúkrasjóðirnir eru sterkustu sjóðir stærri stéttarfélaganna SJÓÐIR stærri stéttarfélaganna eru margir og margvíslegir, en þeirra sterk- astir eru sjúkrasjóðirnir. Sem dæmi má nefna, að í sjúkrasjóði Verslunarmanna- félags Reykjavíkur voru rúmlega 556 milljónir um síðustu áramót. Ársreikning- ar Dagsbrúnar fyrir síðasta ár liggja ekki fyrir, en í ársbyijun 1992 voru eignir sjúkrasjóðs félagsins 290 milljónir króna. Hjá minna félagi, verkalýðsfélaginu Baldri á ísafirði, voru eignir sjúkrasjóðs- ins bundnar við fasteignir. í sjúkrasjóðina renna um einn milljarður króna á ári. Félagsgjöld hjá stéttarfélögum eru yfírleitt 1% af launum. Félagsgjöldin fjármagna sjóði stéttarfélagsins, nema sjúkrasjóði og orlofs- sjóði, sem atvinnurekendur greiða í, 1% af upphæð launa í sjúkrasjóði og 0,25% í orlofs- sjóði. Fjöldi sjóða Til að kanna nánar hvaða sjóði er að fínna hjá stéttarfélagi má til dæmis miða við verka- mannafélagið Dagsbrún, sem hefur um 4.000 félagsmenn: Félagssjóður Dagsbrúnar stendur undir rekstrarkostnaði félagsins og var skuldlaus eign hans í ársbyrjun 1992 rúmar 67,4 millj- ónir króna. Rekstrargjöldin á árinu 1991 námu rúmum 34 milljónum króna. Orlofssjóður á orlofshús og stendur einnig fyrir ferðum, til dæmis fyrir aldraða félags- menn. Eignir hans í ársbyijun 1992 námu tæpum 69 milljónum króna. Styrktarsjóður sterkastur Styrktarsjóður Dagsbrúnarmanna, sjúk- rasjóðurinn, greiðir mönnum dagpeninga AF INNLENDUM VETTVANGI RAGNHILDUR SVERRISDÓTTIR vegna alvarlegra veikinda eða slysa og er hámarksupphæð yfírleitt rúmar 350 þúsund krónur á mann. Sú upphæð brúar t.d. þann tíma, sem tekur að bíða eftir örorkumati. Þá eiga margir verkamenn, til dæmis bygg- ingarverkamenn, stuttan eða engan veikinda- rétt og sjóðurinn tekur þá strax við. Þá greið- ir sjóðurinn einnig út dánarbætur. Styrktarsjóðurinn hefur lagt fram styrki til Krabbameinsfélagsins, Hjartavemdar, Kvennaathvarfsins, Stígamóta, Krýsuvíkur- samtakanna og stærsti einstaki styrkurinn, 2,8 milljónir, rann til Hjúkrunarheimilisins Skjóls. Þá hefur mikið fé verið veitt til starf- semi SÁÁ. Fyrir utan beina styrki til SÁÁ fá Dagsbrúnarmenn sem fara í meðferð fulla dagpeninga, missi þeir laun, sem oftast er. Utgjöld styrktarsjóðs árið 1991 námu tæpum 50 milljónum króna, en heildartekjur hans á því ári námu rúmum 87,5 milljónum. Sjóðurinn greiðir fjórðung af rekstrarkostn- aði félagsins, þar með talið 25% af húsaleigu til sjálfs sín. Eignir sjóðsins í ársbyijun 1992 voru um 290 milljónir, en þar inni eru hús- eignir, til dæmis á sjóðurinn hálft húsið að Lindargötu 9, þar sem skrifstofur Dagsbrún- ar eru. Samkvæmt upplýsingum frá Dagsbrún er reiknað með að útgjöld úr sjúkrasjóði hækki verulega á þessu ári, vegna atvinnuleysisins, þar sem það er segin saga að veikindatilfell- um stórfjölgar í slæmu árferði. Kvíði og áhyggjur auka þannig á sjúkdóma. Fræðslusjóður greiðir skólavist í Félags- málaskóla alþýðu og greiðir hluta af kostn- aði við alls konar námskeið. Fé er veitt í fræðslusjóð úr félagssjóði og var eign sjóðs- ins í árslok 1991 um 3 milljónir króna. Til Vinnudeilusjóðs er aðeins gripið í verk- föllum og er félagsmönnum þá greitt úr hon- um. Eignir hans námu tæpum 129 milljónum í árslok 1991 og hefur sjóðurinn eflst síðan, til dæmis rann stærsti hluti að verðinu, sem Dagsbrún fékk fyrir hlutabréf sín í Alþýðu- bankanum, í sjóðinn. Hálfur mllljarður í sjúkrasjóði verslunarmanna Sjúkrasjóðir stéttarfélaganna eru margir gífurlega sterkir, en öflugastur er vafalaust sjúkrasjóður VR. Iðgjöld til hans námu rúm- lega 131 milljón í fyrra og hrein eign sjóðsins í árslok nam rúmlega 556,5 milljónum króna. Útgjöld á síðasta ári námu tæpum 96 milljón- um, þar af voru bætur og styrkir tæplega 53,5 milljónir, framlag til hjúkrunarheimilis- ins Eirar tæpar 22 milljónir og skrifstofu- og stjórnunarkostnaður tæpar 11 milljónir. Til samanburðar má geta þess að til félags- sjóðs runnu rúmlega 106,5 milljónir í félags- gjöldum á árinu, en rekstrargjöld voru rúm- um þremur milljónum hærri. Stærsti rekstr- arliðurinn er rúmar 48 milljónir í skrifstofu- og stjórnunarkostnað. Eigið fé félagssjóðs í árslok nam tæplega 182 milljónum króna. Iðgjöld í orlofssjóð verslunarmanna námu rúmum 32 milljónum í fyrra og leiga orlofs- húsa skilaði rúmum 10 milljónum til viðbót- ar. Rekstrargjöldin námu tæpum 42 milljón- um. Eigið fé sjóðsins um síðustu áramót nam rúmum 205 milljónum króna. Sjúkrasjóðurinn fasteign Hjá minni verkalýðsfélögum virðast hlut- föll eigna sjóðanna svipuð, þ.e. sjúkrasjóðirn- ir eru sterkastir, a.m.k. á pappírnum. Sem dæmi má taka verkalýðsfélagið Baldur á ísafírði, um 550 manna félag. Þar runnu 5,8 milljónir í félagssjóðinn á árinu 1991 og rúm- lega 5,2 milljónir út. Eign sjóðsins í árslok nam rúmum 800 þúsund krónum. Verkfalls- sjóðurinn átti rúmlega 1,3 milljónir og orlofs- sjóðurinn 13,5 milljónir, þegar húseignir eru taldar með. í styrktarsjóð Baldurs runnu á árinu 6,3 milljónir, en greiddar voru út 6,4 milljónir. Eignir í árslok 1991 voru tæpar 18 milljón- ir, en þær eru eingöngu bundnar við 50% af Alþýðuhúsinu á Isafírði, sem er komið til ára sinna, og hluta af húsinu, þar sem skrif- stofa verkalýðsfélagsins er til húsa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.