Morgunblaðið - 23.03.1993, Síða 32

Morgunblaðið - 23.03.1993, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1993 Ríkisendurskoðun svarar Guðrúnu Helgadóttur Deilt um 4.000 milljóna færslu til s veitarfélaga á fj árlögum FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra og Guðrún Helgadóttir (Ab- Rv) fulltrúi Alþýðubandalagsins í fjárlaganefnd eru mjög á öndverðu máli um hvort færa eigi 4.00p milljónir króna til sveitarfélaganna brúttó eða nettó á fjárlögin. Á föstudaginn sendi Ríkisendurskoðun frá sér greinargerð til fjárlaganefndar um færslu fjárlaga. Ríkisendur- skoðun tekur undir sjónarmið Guðrúnar. Fjármálaráðherra sýnist fátt nýtt í bréfi Ríkisendurskoðunar um þetta umdeilda mál. Hann bendir og á að Bókhaldsnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga styðji sín sjónarmið. Með lögum nr. 111 um „breyting- ar í skattamálum" var gerð nokkur tilfærsla á skattbyrði frá atvinnufyr- irtækjum til einstaklinga. Af at- vinnufyrirtækjum var létt aðstöðu- gjaldinu en sveitarfélögum skyldi bættur þessi missir, þannig að í stað aðstöðugjalds skyldi til þeirra renna, af innheimtum tekjuskatti, íjárhæð sem svaraði til 80% af álögðu að- stöðugjaldi fyrra árs. Til að koma til móts við þann fjárskaða sem ríkis- sjóður hefði orðið að þola vegna þessa, var kveðið á um fáeinar laga- breytingar sem varða skatta ein- staklinga, svo sem ótímabundna hækkun á tekjuskattshlutfalli, 5% hátekjuskatt, einnig má þess geta að persónuafsláttur lækkaði nokkuð. Samkvæmt áætlun fjárlaga fyrir þetta ár eiga þessar lagabreytingar að skila ríkissjóði rúmum 4.000 millj- ónum króna á þessu ári. Brúttó og nettó í framhaldi af þessum lagabreyt- ingum hafa vaknað nokkrar spum- ingar um hvernig færa skildi viðbót- artekjur af tekjuskatti einstaklinga til bókar í fjárlögum. Hvort tekju- færa skuli viðbótartekjurnar af tekjuskatti einstaklinga hjá ríkis- sjóði og gjaldfæra síðan fjárhæð jafnháa umræddum 80% af álögðu aðstöðugjaldi sem framlag til sveit- arfélaganna, svonefnd brúttófærsla, ellegar hvort færa beri hinar auknu tekjur af tekjuskatti einstaklinga sem innheimtu fyrir aðra, þ.e.a.s. sveitarfélögin. I því tilviki myndi þessi hluti tekjuskattsinnheimtunnar ekki færast sem tekjur ríkissjóðs heldur sem skatttekjur sveitarfélag- anna, svonefnd nettófærsla. Fulltrúi Alþýðubandalagsins í fjárlaganefnd, Guðrún Helgadóttir, hefur hins vegar verið mjög eindreg- ið þeirrar skoðunar að umræddir fjórir milljarðar væru skatttekjur ríkisins. Þær færu hins vegar að hluta sem greiðslur úr ríkissjóði til þess að mæta niðurfelldu aðstöðu- gjaldi hjá sveitarfélögunum. Hafa Guðrún og fjármálaráðherra nokkr- um sinnum skipst á skoðunum eða allhvössum orðaskeytum um þessi reikningsatriði. Fjármálaráðherra og hans ráðu- neyti hafa heldur en ekki hallast að því að líta á þessar greiðslur eins og skatttekjur sveitarfélaga svipað og útsvarið; nettófærslu, en ekki eins og bein framlög frá ríki til sveit- arfélaga sem bókfæra ætti gjalda- megin. Fjármálaráðherra hefur í umræðum í þingræðum sagt að sér sér þyki þessi umræða nokkuð þvæld. Og einnig vísað til þess að hann hafi margoft bent á að þessi færsla væri umdeilanleg. Hann hefur jafnframt bent á að þetta fyrirkomu- lag um hlutdeild sveitarfélaganna í tekj uskattstekj um, aðstöðugjaldsí- gildið, væri til bráðabirgða og óeðli- legt væri að færa það fyrst sem skatttekjur ríkisins en síðan sem skatttekjur sveitarfélaganna. Álit Ríkisendurskoðunar Að áeggjan Guðrúnar Helgadótt- ur leitaði fjárlaganefnd Alþingis eft- ir áliti Ríkisendurskoðunar. Síðasta föstudag sendi Ríkisendurskoðun frá sér greinargerð um þetta mál. Eru þar rök með og móti metin og vegin og vísað til laga um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga. Þar segir m.a: „Þegar litið er heildstætt á málið, en með því er átt við að þegar orðalag bráðabirgðaákvæðis VII og yfirskrift þess í nefndum lög- um nr. 111/1992 og með hliðsjón af orðalagi bráðabirgðaákvæðis I í lögum nr. 113/1992 verður að mati Ríkisendurskoðunar að líta svo á að með aðgerðum þessum sé verið að ráðstafa innheimtum tekjum ríkis- sjóðs en ekki að tryggja sveitarfélög- unum riýjan skattstofn." Ennfremur: „Ríkisendurskoðun telur að líta verði svo á að ákvæðið tryggi sveitarfélög- unum einungis tiltekið framlag úr ríkissjóði á árinu 1993 en ekki tiltek- inn skattstofn eða hlutdeild í slíkum stofni á því ári. Þetta verður t.d. ljóst þegar litið er til yfirskriftar ákvæðis- ins og til orðalags 4. mgr. ákvæðis- ins, en þar er hugtakið „framlag“ úr ríkissjóði beinlínis notað." Einnig segir í greinargerð Ríkisendurskoð- unar: „Sú staðreynd að sveitarfélög- in hafa andstætt því sem t.d. gildir um aðstöðugjöld og útsvar, ekkert forræði á skattheimtunni eða mögu- leika til þess að hafa áhrif á hana í framkvæmd þykir og mæla gegn þeirri niðurstöðu að hér sé um skatt- stofn þeirra að ræða.“ Niðurstaða Ríkisendurskoðunar var því: „Þegar málið er skoðað heildstætt og með vísan til þeirra sjónarmiða sem hér að ofan eru rak- in er að mati Ríkisendurskoðunar ekki hægt að fallast á röksemdir fjármálaráðuneytisins í þessu máli.“ Bókhaldsnefnd sveitarfélaga Morgunblaðið leitaði álits fjár- málaráðherra á greinargerð Ríkis- endurskoðunar. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra sagðist ekki í fljótu bragði sjá neitt nýtt í þessu áliti Ríkisendurskoðunar. Það hefði legið fyrir við afgreiðslu fjárlaganna 1993 að málið væri umdeilanlegt. Það kæmi reyndar skýrt fram í áliti Rík- isendurskoðunar á bls. 3: „Áður en lengra er haldið þykir rétt að taka fram til þess að girða fyrir allan misskilning að sérstök grein var gerð fyrir þessum breytingum við lokaafgreiðslu íjárlagafrumvarpsins fyrir árið 1993 svo og í fylgiriti með fjárlögum 1993. Því er ekki á neinn hátt hægt að halda því fram að upplýsingum hafi verið leynt eða að reynt hafi verið að blekkja með þeirri framsetningu sem varð ofan á við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1993.“ Fjármálaráðherra ítrekaði að hér væri um bráðabirgðaaðgerð að ræða sem væri ætlað að gilda í eitt ár. Þótt aðstöðugjaldið væri ekki inn- heimt í ár, væru ákvæði 5. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga að öðru leyti í gildi. Fjármálaráðherra taldi það enn frekar undirstrika sinn málflutning og nettófærslu á umræddum fjórum milljörðum bréf sem Samband ís- lenskra sveitarfélaga hefði sent öll- um sveitarfélögum landsins 15. febr- úar: „Bókhaldsnefnd Sambands ís- lenskra sveitarfélaga leggur til að framlag úr ríkissjóði í stað aðstöðu- gjaids 1993 verði fært undir mála- flokkinn skatttekjur. Þar verði það fært á bókhaldslykil 00.04.002.1, með lykilheiti „greiðsla ríkissjóðs vegna niðurfellingar aðstöðugjalds á árinu 1993“.“ Fjármálaráðherra sagði að allir hlytu að sjá að það væri alrangt að færa þessa fjóra milljarða bæði sem skatttekjur hjá ríkinu og síðan hjá sveitarfélögunum. Slíkt gæfi að sjálfsögðu mjög villandi mynd af heildarskatttekjum hins opinbera. Og ef menn vildu kynna sér enn frekar réttmæti sjónarmiða fjár- málaráðuneytisins gætu þeir lesið leiðbeiningar Alþjóða gjaldeyris- sjóðsins um uppsetningu fjárlaga, hvernig færa skyldi skatttekjur, eins og þessar, hjá því stjórnvaldi sem nyti góðs af. Frumvarp umatvinnu- leysisbætur FRUMVARP um rétt þeirra sem ekki hafa atvinnu hefur verið Iagt fram á Alþingi og felur það í sér tillögur um heildarendurskoðun á þjón- ustukerfi við atvinnulausa hér á landi. Frumvarpið flylja þingmenn Alþýðubandalags- ins en fyrsti flutningsmaður er Svavar Gestsson. Frumvarpið byggir á þeim lögum sem fyrir eru um atvinnu- leysi og vinnumiðlun en gert er ráð fyrir verulegum breytinum. Fimm meginbreytingar Eftirtalin fimm atriði eru veigamest: Gert er ráð fyrir því að allir þeir sem ekki hafa vinnu fái atvinnuleysisbætur hvort sem þeir hafa verið í stéttarfé- lögum eða ekki. Gert er ráð fyrir því að þjónusta við atvinnu- lausa geti verið á einum stað í hveiju umdæmi, en hún er víða á þremur stöðum nú. Gert er ráð fyrir landssamstarfi vinn- umiðlunarskrifstofa í einni mið- stöð, sem hafi heildaryfirlit yfir vinnumarkaðinn á hveijum tíma. Gerð er tillaga um að bætur fyrir hvert barn á framfæri þess sem er atvinnu- laus hækki og að biðtími falli niður. Gerð er tillaga um að opna frekar en nú er gert rétt atvinnulausra til að stunda reglulegt nám á atvinnuleysis- bótum. Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra Viðræður í gangi um opnun Fæðingarheimilis Reykjavíkur SIGHVATUR Björgvinsson heilbrigðisráðherra er nú að ræða við stjórnendur Landspítala um hvort hægt verði að opna Fæðingarheim- ili Reykjavíkur, tímabundið a.m.k., til þess að forða fyrirsjáanlegu neyðarástandi á Kvennadeild Landspítalans. Lára Margrét Ragnars- dóttir (S-Rv) fór fram á utandagsskrárumræðu um málefni deildarinn- ar og spurði ráðherrann hver væri stefna stjórnvalda varðandi fæðing- arþjónustu og aðbúnað fæðandi kvenna í landinu. Málshefjandi, Lára Margrét Ragnarsdóttir vildi benda á nokkr- ar staðreyndir, m.a. að þegar Kvennadeildin var stækkuð og end- urbætt 1975-6 hefði verið gert ráð fyrir 2.200 fæðingum á ári í því húsnæði að meðaltali. Frá 1987 hefði fjöldi fæðinga farið langt fram úr þessum áætlaða fjölda og í fyrra hefði fjöldinn verið 2.913 eða 32% fleiri en deildinni væri ætlað að ann- ast. Á þessu ári mætti og búast við að fæðingum fjölgaði enn miðað við áætlun fyrir fyrri helming þessa árs. Lára Margrét sagði að þegar Kvennadeildin hefði tekið við starf- semi Fæðingarheimilisins, hefðu fylgt með 7 stöðuheimildir ljós- mæðra. Engin önnur viðbót hefði fengist við mönnun deildarinnar. Ræðumaður taldi þau þrengsli sem deildin byggi við í dag til vitnis um virðingarleysi fyrir konum, ný- fæddum borgurum og aðstandend- um. Og ekki síður ætti þetta við aðra sjúklinga sem leituðu til deild- arinnar, s.s. krabbameinssjúkar kon- ur og konur sem kæmu vegna beiðni um fóstureyðingu. Lára Margrét vildi því inna heil- brigðisráðherrann eftir því hvort til væri stefna um fæðingarþjónustu og aðbúnað fæðandi kvenna í land- inu? Og einnig vildi hún spyija hvaða ráðstafanir hefðu verið gerðar til að mæta nær 300 væntanlegum fæð- ingum á Kvennadeild Landspítalans nú í maí. Ekki undir öryggismörkum Jafnvel undir öryggismörkum Málshefjandi sagði: „Nú er svo komið að þjónusta við sjúklinga er komin að öryggismörkum og jafnvel niður fyrir þau. Álag er svo mikið að það annar iðulega ekki lágmarks- vinnu sem fullnægja á nútímakröf- um. Dæmi eru um það að konur komnar fast að fæðingu verði að bíða utan fæðingarstofu, nánast í biðröð, til að komast að.“ Málshefjandi sagði þá ákvörðun að loka Fæðingarheimili Reykjavík- ur í sparnaðarskyni umdeilda. Þrátt fyrir fulian vilja frábærs starfsfólks Kvennadeildar að mæta óskum kvenna sem vildu heldur fæða og liggja með börn sín í öðru umhverfí en spítalaumhverfi, hefði slíkt ekki tekist vegna þrengsla og manneklu. En reynslan sýndi að þörf fyrir slíka þjónustu væri mikil. Sighvatur Björvinsson heil- brigðisráðherra sagði rétt vera að lokun Fæðingarheimilis Reykjavíkur hefði verið umdeild en það hefði verið ákvörðun sem hefði verið til- kynnt við fjárlagaafgreiðslu og sam- þykkt af öllum stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar. Þá hefðu aðeins 10 legurúm verið í notkun og kostn- aður við legurúm verið orðinn helm- ingi meiri en á Landsspítalanum. Hugmyndin hefði verið sú að byggja upp samsvarandi aðstöðu á Land- spítalanum en það hefði ekki verið gert af ýmsum ástæðum. Heilbrigðisráðherra vildi mót- mæla því að þjónusta Kvennadeild- arinnar væri fyrir neðan öryggis- mörk. Hann sagði að starfsfólk deildarinnar og stjórnendur myndu ekki bjóða upp á þjónustu sem væri fyrir neðan öryggismörk, þótt vissu- lega væri erfítt um vik og mikið álag á starfsfólki. Sighvati var ljóst að apríl og maí og júlímánuðir yrðu mjög þungir og erfíðir á deildinni en þá er fyrirsjáan- legt að margar konur verða léttari. Tvennt kæmi til greina. Annars veg- ar að flytja göngudeild krabbameins- sjúklinga úr núverandi húsnæði í annað og fá húsnæði göngudeildar undir fæðingardeild. Heilbrigðisráð- herra sagði að þetta væri ekki lausn sem gæti komist mjög hratt til fram- kvæmda. Hinn möguleikinn væri sá að opna fæðingarheimilið að nýju, ,;og þá um takmarkaðan tíma og þá sem sæng- urkvennadeild". Heilbrigðisráðherra kvaðst hafa rætt þetta við stjórnend- ur Landspítala og þær viðræður stæðu enn yfir. Heilbrigðisráðherra var þó Ijóst að þetta væri ekki fram- búðarlausn; menn yrðu að hugleiða hver hún yrði með fæðingarheimili Reykjavíkur, 10-rúma deild væri afskaplega óhentug og óhagkvæm í rekstri. Ef eitthvað vit ætti að vera í þeirri starfsemi þyrfti þar að vera helmingi stærri stofnun eða 20 rúm. Ráðherra sagði að rætt yrði á þessu ári við stjórnendur ríkisspítalanna hvort slík lausn væri finnanleg. Þingmenn töldu nú á daginn kom- ið sem spáð hefði verið þegar Fæð- ingarheimili Reykjavíkur hefði verið lokað. . Voru stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir virðingarleysi gagn- vart konum og einnig fyrirhyggju- leysi, bæði til lengri og skemmri tíma litið. Nokkrir þingmenn bentu á að fæðingar hefðu 9 mánaða fyrirvara þannig að ráðherra væri heldur seinn að ræða um lausnir vegna fyrirsjáan- legra barneigna. Ingibjörgu Pálmadóttur (F-Vl) undraði ekki væri hægt að bjóða uppá fæðingar- rými í borg sem hefði trúlega heims- met í vannýttu húsnæði. Féleysi Sighvati Björgvinssyni heil- brigðisráðherra þótti sem gagnrýn- endur sneru útúr sínum orðum. Heil- brigðisráðherra sagði að hér væri ekki á ferðinni spurning um hús- næði heldur spurning um fjármuni til rekstrar. Það væri nóg húsnæði í sjúkrahúsakerfi Reykjavíkur en það vantaði fé til að reka það.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.