Morgunblaðið - 23.03.1993, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1993
37
i básnnm hjá Herberti „Kóka“ Ólasyni var beina-
p’ind af íslenskum hesti sem hann hafði látið setja
UPP og að sjálfsögðu var grindin í töltstellingu.
Fæðingarvari var eitt af þeim nýjungum sem gat
að líta, en hann er festur við gjörð sem látin er á
hryssu sem komin er að köstun og þegar stundin
rennur upp sendir tækið frá sér merki þannig að
eigandi getur fylgst með fæðingunni.
hliðinni. Það hefur oft gengið erfið-
lega að fá bæði hesta og menn til
að taka þátt í þessum sýningum, sem
er skiljanlegt, því sjálf sýningin
stendur yfir í níu daga og ef æft er
í þijá daga og tveir dagar fara í ferð-
ir til og frá Essen fara í þetta tvær
vikur. Fyrir þá sem ekki hafa neina
hagsmuni af því að vera á sýning-
unni er þetta langur og dýr tími.
Félag hrossabænda lagði mikla pen-
inga í þetta fýrir tveimur árum og
var jafnvel talað um bruðl eða
óskynsamlega fjárfestingu. Á árum
áður lagði Sambandið óhemju pen-
inga í þetta og nú hafði Félag hrossa-
bænda vaðið fyrir neðan sig og lagði
fram fyrirfram ákveðna upphæð sem
styrk til þeirra sem lögðu hönd á
plóginn.
Equitana til Frankfurt?
Að síðustu má geta þess að radd-
ir eru nú uppi um að Equitana verði
flutt frá Essen þar sem sýningarhall-
irnar þar þykja orðið of litlar og
verði þá farið með sýninguna til
Frankfurt. Tuttugu ár eru nú liðin
síðan fyrsta sýningin var haldin og
hafa þær allar verið haldnar í Essen.
arhöfundur á nýstárlega gerð af
hestakerru, það er að segja kerru
sem hestur dregur. í stað tveggja
arma sem koma sinn hvorum megin
við hestinn var aðeins einn armur
sem liggur upp aftan við hestinn og
fram eftir baki hans og endar við
herðakamb. Á hestinum er gjörð með
dráttarkúlu samskonar og menn eru
með á fólksbílum og jeppum. Er ker-
rubeislið tengt við kúluna og þar
með um leið við hestinn. Með þessum
búnaði getur hesturinn tekið mun
krappari beygjur og reyndar getur
hann mjög auðveldlega gengið í
kringum kerruna þannig að hún snú-
ist um sjálfa sig.
Skipulagning, æfingar
og peningar
Töluverður fjöldi Íslendinga ér far-
inn að sækja Equitana heim og svo
var einnig nú enda um að ræða góða
skemmtun og mikinn fróðleik fyrir
þá sem áhuga hafa á hestamennsku.
Viðbrögð þeirra sem koma þarna í
fyrsta sinn eru yfirleitt á þá leið að
þarna séu miklir auglýsinga- og
kynningarmöguleikar fyrir íslenska
hrossarækt, hestaferðir um hálendið
og jafnvel alla þá sem selja ferða-
mannaþjónustu i einhverri mynd.
Engum sem á Equitana kemur dylst
hversu áhrifaríkt sölutæki íslenski
hesturinn er og hafa sannast þar
hvað eftir annað orð Gunnars Bjarna-
sonar er hann fullyrti að íslenski
hesturinn væri besti ambassador ís-
lands hvað varðar sölu á ýmsum
varningi og þjónustu. En það er ekki
bara nóg að mæta á sýninguna og
halda svo að þetta seljist bara allt
af sjálfu sér. Oft hefur verið um það
rætt meðan á fyrri sýningum hefur
staðið að menn hafa uppgötvað ýms-
ar brotalamir sem þurfi að laga. Svo
virðist sem básamálin hafi verið í
mjög góðu lagi að þessu sinni en
einhver skipulagsleg mistök virðast
hafa átt sér stað varðandi sýningu
íslensku hestanna. Það var látið í
veðri vaka fyrir sýninguna að nú
yrði aðeins um úrvals hesta og knapa
að ræða á sýningunni, en það eitt
dugar ekki til mikilla afreka því jafn-
vel snillingarnir þurfa að æfa saman.
Það er stór spurning hvort nota eigi
fyrsta „Hop Top Show“-ið og fyrstu
dagsýningar undir æfingar. Vissu-
lega þarf að samæfa hópinn tvo,
þijá daga áður en til alvörunnar kem-
ur. Og þar með er komið að peninga-
Bakshi í baksi
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbió:
Svalur heimur - Cool World
Leikstjóri og handritshöfundur
Ralph Bakshi. Aðalhlutverk
Gabriel Byrne, Kim Basinger,
Brad Pitt. Bandarísk. Para-
mount 1992.
Það hefur hvorki gengið né rek-
ið hjá leikstjóranum Ralph Bakshi
eftir að hann gerði hinar frum-
legu, fyndnu og umtöluðu Frítz the
Cat og Heavy Traffic. Þá átti
Hríngadróttinssaga - Lord of the
Ring sín augnablik en síðan hefur
hallað undan fæti. Maður spyr sig
eftir að hafa setið hátt í tvo tíma
í hreinum og klárum leiðindum
yfir Svölum heimi, hvar er kald-
hæðnin, frábærar fígúrurnar og
frumlega hugmyndaflugið sem
einkenndi fyrstu teiknimyndir
Bakshis? Ekki örlar á þeim hér
því sekúnduvísarnir á úrinu manns
stela senunni.
Ekki er það leikstjóranum til
framdráttar að feta í fótspor Ro-
berts Zemekcis ag krydda þessa
nýjustu teiknimynd sína með
leikurum af holdi og blóði. Þetta
gekk eftirminnilega vel upp í Hver
skellti skuldinni á Kalla kanínu en
hér vantar allt sem með . þarf.
Söguþráðurinn er óljós og illa
dreginn. Piltungur (Pitt) lendir í
bílslysi ásamt móður sinni og rank-
ar hann við sér í teiknimyndaheim-
inum Svalheimi þar sem hann
annast síðan löggæslu. (Kerling
hverfur hinsvegar sporlaust). Sú
veröld er einhversstaðar í „ljósa-
skiptunum“ og er Pitt eina mann-
veran þar um slóðir, aðrir teiknað-
ir eins og umhverfíð. Byrne leikur
teiknimyndahöfund, nýsloppinn úr
fangelsi en uppáhalds hugarfóstur
hans, kynbomban Holli (Basin-
ger), er jafnframt ein aðalpersón-
an í Svalheimi. Vippar hún skap-
ara sínum inní teiknimyndaveröld-
ina og verður álappalegur efnis-
þráðurinn ekki rakinn frekar.
En það er ekki nóg með að efn-
ið sé þunnt heldur eru samræðum-
ar, sem eiga að vera „töff“ og
meinfyndnar í. anda Bakshis,
dæmalaust óskemmtilegar. 111-
skárri eru þó teiknifígúrurnar en
þeir leikarar sem eiga að teljast
með lífsmarki. Byme er afleitur,
Pitt verri, Basinger verst. Leik-
hæfileikar hennar koma ekki á
óvart en Byrne getur betur og
Pitt var eftirminnilegur í Thelmu
og Louise. Teikningarnar eru þó
mun slakari en maður hefur átt
að venjast frá hendi Bakshis til
þessa og myndin hlýtur að flokk-
ast undir slæm mistök.
Uppi á ystu nöf
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó: Hrakfallabálkur-
inn — („Out on a Limb“). Leik-
stjóri Francis Weber. Aðalleik-
endur Matthew Broderick, Jef-
frey Jones, Hedy Kling, John
C. Riley. Bandarísk. Universal
1992.
Það er komið haust, nýbúið að
setja barnaskólann í bænum og
kennslukona spyr nemendur sína
hvað hafi markverðast gerst yfir
sumarmánuðina. Það er ósköp fátt
uns komið er að telpukomi, sögu-
manni myndarinnar. Sú þurfti ekki
að kvarta yfír lognmollunni.
Kemst að því óvart að fóstri henn-
ar (Jones) er ótínt hrakmenni og
ekki nóg með það, heldur á hann
enn verri tvíburabróður. Er kauði
nýsloppinn úr tugthúsi, á ýmislegt
óuppgert við fóstra hennar og
hyggst nú koma og drepa hann.
En enginn trúir þeirri stuttu svo
hún hringir í stóra bróður (Brod-
erick), uppann í stórborginni, sem
er heldur vantrúaður á söguna en
kemur þó askvaðandi á vettvang.
Upphefst nú eitt allsheijar húll-
umhæ þar sem m.a. koma við sögu
verðbréfaviðskipti, stúlkukind
(Kling) á flótta (engin veit undan
hveiju), tveir kexmglaðir bræður,
sauðheimskir löreglumenn, morð
og önnur óáran.
Með talsvert meiri yfirlegu og
útgjöldum hefði Hrakfallabálkur-
inn getað orðið þokkalegasta
skemmtun. Það örlar nefnilega
oftar en einu sinni á skopskyni sem
kemur þægilega á óvart því yfir
höfuð er það á skjön við annars
heldur andlaust handrit myndar-
innar. Annað sem má segja mynd-
inni til hróss eru leikararnir sem
flestir eru í vænu meðallagi. Brod-
erick á reyndar skilið betri rullu
og töltir í gegnum hlutverkið án
þess að að depla auga. Jones er
hressilegur í tvöföldu hlutverki og
þeir sem leika aulabræðuma eru
með eðlilegustu fáráðum sem sést
hafa lengi á tjaldinu. En það bráð-
vantar meiri metnað til að hægt
sé að taka þessa framleiðslu á
nokkurn hátt alvarlega. Engu að
síður má þó hafa nokkurt gaman
af þessari makalausu upprifjun
telpukornsins.
Baríst á bannsvæði
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Á bannsvæði („Trespass"). Sýnd
í Háskólabíói. Leikstjóri: Walter
Hill. Handrit: Bob Gale og Rob-
ert Zemeckis. Aðalhlutverk:
William Sadler, Ice T, Bill Paxt-
on, Ice Cube.
ínýjustu hasarmynd Walters
Hills, Á bannsvæði, komast tveir
slökkviliðsmenn yfir kort sem vísar
á fornan ránsfeng í yfirgefinni
byggingu í fjarlægri borg. Þegar
þeir ætla að sækja hann í bygging-
una verður svertingjaklíka á vegi
þeirra og brátt eru þeir lentir í
hinni verstu aðstöðu með fjársjóð-
inn í höndunum, lokaðir inni í ein-
um hluta hússins umkringdir
þungvopnuðum svertingjum.
Ekkert svo slæmt efni í mynd
sem gæti gert eitthvað fyrir heldur
aumlegan feril Walters Hills í
seinni tíð. En allt kemur fyrir ekki.
Úrvinnslan er spennu- og andlaus
með öllu og elur grimmilega á
kynþáttafordómum í garð svert-
ingja sem allir eru hér skot- og
sprengjuglaðir íkveikjumenn og
morðingjar, melludólgar, vopnasal-
ar og dópistar.
Veruleikinn er fluttur okkur að
mestu leyti á myndböndum í gegn-
um sjónvarpsstöðvar og Hill, minn-
ugur Rodney King málsins, reynir
að fást við þann veruleika með því
að láta einn úr svertingjaklíkunni
hafa það hlutverk að taka allt upp
á myndband. Þannig er talsverður
hluti myndarinnar leikinn af mynd-
bandi, svart/hvítu af einhveijum
ástæðum. Það á líklega að gefa
myndinni einhvem raunsæisvott
eða flytja okkur inní kviku atburð-
anna. Heila málið er bara svo yfír-
máta tilgerðarlegt og truflandi fyr-
ir atburðarásina að það virkar
þveröfugt, pirrandi og leiðinlegt.
Handritið er eftir þá Bob Gale
og Robert Zemeckis, sem skrifuðu
líka saman Aftur til framtíðar
myndirnar. Þeir hafa fengið þessa
ágætu hugmynd um fjársjóðsleit-
ina en líklega ekki vitað hvernig
þeir ættu að þróa hana áfram.
Myndin spólar mjög í sama farinu
eftir að búið er að kynna persónur
og aðstæður og rennur svo ein-
hvern veginn út í sandinn í lokin.
Það litla innihald eða inntak sem
finna má í sögunni er lítið frum-
legt en myndin er enn ein dæmi-
sagan um hvernig ásóknin eftir
gulli og grænum skógum getur
eyðilagt gjörvilegustu og skynsö-
mustu menn af hinum þekkilega
hvíta kynstofni.
Hill gerir lítið annað en bæta
við þetta þungarokki og skot-
krafti. Myndin hans virkar eins og
langur „trailer" eða hraðklipptur
úrdráttur sem er sífellt að reyna
að hanka athygli áhorfandans og
þarf afar mikið að hafa fyrir því.
Skólaostur
Skólaostur í sérmerktum
kílóapakkningum á einstöku
tilboðsverði í næstu verslun.
VERÐ NU:
658 kr.
kílóið.
VERÐ AÐUR:
kílóið.
ÞU SPARAR:
116 kr
Ænosiaog
\J/SNflÖRSALANSE
■ á hvert kíló.