Morgunblaðið - 28.04.1993, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.04.1993, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993 Sj ávarútvegnrinn Erlendar skuldir juk- ust um 4 milljarða ÁÆTLAÐ er að um 70% af skuld- um sjávarútvegsins séu í erlendum myntum, þannig að erlendar skuldir sjávarútvegsins losa 70 milljarða króna, þar sem heildar- skuldir sjávarútvegsins eru ná- lægt 105 milljörðum króna. Við 6% gengisfellingu í nóvember síð- astliðnum má samkvæmt þessu áætla að skuldir sjávarútvegsins í heild hafi aukist um 4,5%, eða um rúma 4 milljarða króna. Af þessu er ijóst að greiðslubyrði íslenskra skuldara í sjávarútvegi af erlendum lánum vegna gengisbreyt- inga á liðnu ári hlýtur að aukast töluvert, eða um 6,4%, þótt vissulega fái sjávarútvegsfyrirtækin auknar tekjur fyrir útflutning sinn á móti, en engan veginn þó þær sem gert hafði verið ráð fyrir, vegna verðlækk- unar á erlendum mörkuðum okkar. Greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins til sjávarútvegsfyrir- tækja á liðnu ári námu liðlega 2,5 milljörðum króna, þannig að þær greiðslur jafna að vissu marki út gengistap fyrirtækjanna, auk þess sem talið er eðlilegt að dreifa gengis- tapi fyrirtækjanna á sama árabil og erlend lán fyrirtækjanna ná til, þann- ig að þótt tapið hafi allt verið fært til bókar í ársreikningum fyrirtækj- anna á síðastliðnu ári, þá dregur dreifing lánanna úr áfalli tapsins sem slíks. Flutningabíll með vín og tóbak valt fyrir norðan Hólmavík „Viskílegin ýsuflök“ frá Hólmavík Hólmavík. FLUTNINGABÍLL sem var á leið frá Reylqavík til ísafjarðar valt og lokaði veginum um það bil 5 km fyrir norðan Hólmavík í svo- nefndum Tröllkonudal kl. 9.30 í gærmorgun. Svo virðist sem aft- anívagn bílsins hafi farið á hlið- ina þegar billinn kom út úr beygju og við það hafi billinn lagst á hliðina. Engin slys urðu á fólki en vegur- inn lokaðist í nokkra tíma. Farmur- inn, sem var aðallega vín og tóbak fyrir Áfengisverslunina á Isafirði, dreifðist um nágrennið. Vatnsból Hólmvíkinga eru þama stutt frá og höfðu gárungamir á orði að best væri að drífa sig heim og at- huga hvort bragðið af vatninu hefði eitthvað breyst og eins mætti fara að huga að markaðssetningu á viskílegnum ýsuflökum. - m.h.m. » * Akveðið hefuip verið að gera breytingar á yfirstjórn Islandsbanka Valur Valsson verður einn bankastjóri næstu þijú árin sjábis i8:„Míkiargreiðsiur. Framkvæmdastjórar Islandsbanka verða fimm talsins ^ip“!egs|>ffiórn,íjafn.flóru f-vr- irt.æki op- s annshanki er “ Vildi laga fjárhaginn með smygli á skartínu TOLLVERÐIR á Keflavíkurflug- velli handtóku á mánudagsmorg- un mann, sem reyndist hafa verð- mæta skartgripi í fórum sínum. Þá var maðurinn einnig með um 30 þúsund Bandaríkjadali, eða um 1,8 miiyónir króna. Tollverðir stöðvuðu manninn, sem er íslenskur ríkisborgari en ættaður frá Suður-Ameríku, þegar hann var að koma frá Bandaríkjunum. Þorgeir Þorsteinsson, lögreglustjóri á Kefla- víkurflugvelli, sagði að ekki væri bannað að flytja gjaldeyri til lands- ins, en öðru máli gegndi um innflutn- ing skartgripa án þess að greiða af þeim tilskilinn toll. Þorgeir sagði að greinilega væri um verðmæta skart- gripi að ræða. Maðurinn gaf þá skýringu að hann hefði verið orðinn fjárþurfi og því ákveðið að sækja gripina til heima- lands síns og selja þá hér. VALUR VALSSON bankasljóri íslandsbanka var á fundi banka- ráðs í gær ráðinn bankastjóri ís- landsbanka til næstu þriggja ára, og á honum mun hvíla höfuð- ábyrgð um rekstur bánkans. Þ Björn Björnsson og Tryggvi Pi son, sem verið hafa bankastjói íslandsbanka frá stofnun bank- ans, verða nú framkvæmdastjórar við íslandsbanka, ásamt þeim Ás- mundi Stefánssyni, Kristjáni Oddssyni og Ragnari Önundar- syni. Bankastjóri verður jafn- framt formaður bankastjórnar, sem hann og framkvæmdastjór- arnir fimm mynda. Morgunblaðið hefur upplýsingar um að á fundi bankaráðsins í gær hafí það verið bókað að ráðning Vals Valssonar sem bankastjóra ís- landsbanka væri bundin til þriggja ára. Kristján Ragnarsson, formaður bankaráðs íslandsbanka, sagði samtali við Morgunblaðið í gær, þessi ákvörðun hafí verið tekin þess að gera stjómskipulag bankans skilvirkara. „Við höfum. búið við skipuiag, sem var arfur frá því að bankamir fjórir vom sameinaðir, þar sem allir bankastjóramir þrír voru jafnsettir í yfirstjóminni. Við ráðum nú einn þeirra sem bankastjóra fyrir íslandsbanka og á honum hvílir höf- uðábyrgð um rekstur bankans," sagði Kristján. „Honum til aðstoðar eru ráðnir fímm framkvæmdastjórar, sem deila þessari ábyrgð með honum, en þeir heyra undir bankastjórann, þótt þeir séu ráðnir af bankaráði. Þannig mynda framkvæmdastjóram- ir bankastjóm með bankastjóran- Tímanna tákn Kristján kvaðst telja þetta breytta stjómskipulag vera tímanna tákn, jafnframt því sem þessi ákvörðun væri framhald umræðna á aðalfundi ,, bankans, þar sem hugmyndir í þessa ' yeru komu fram. „Þetta er náttúrlega líka afleiðing þess að afkomari á síð- astliðnu ári var engan veginn nægi- lega góð. Þrátt fyrir að við höfum náð spamaði í rekstri með fækkun útibúa og samruna útibúa og fækkun á starfsfólki, sem nam 200 milljónum króna, þá skiluðum við bankanum samt með halla vegna gífurlega hárra framlegða í afskrjftareikning, ivar við teljum að við höfum verið taka á hverju einasta útlána- vandamáli og eigum ekkert undir teppinu í þeim efnum fram í tímann." Kristján sagði jafnframt: „Nú reynir á nýtt skipulag, þar sem einn aðili stendur og fellur með rekstri bankans. Hann fær þama tækifæri, sem við vonum að nýtist vel, til að bæta afkomu íslandsbankæ .Ég tel að rekstur íslandsbanka skipti meg- inmáli fyrir framtíð einkarekstrar í þessu landi og að þar megi ekki illa til takast. Við verðum því, sem höfum verið kjörnir til þess að stjóma bank- anum, að takast á við þau erfiðu mál, sem alltaf fylgir því að endur- irtæki og íslandsbanki er.“ Aðspurður um það hvort eining hefði verið í bankaráðinu um þessa afgreiðslu, svaraði formaður banka- ráðs: „Niðurstaða þessa máls er með fullu samkomulagi aðila:“ Sjá fréttatilkynningu banka- ráðs íslandsbanka á bls. 26. í dag anka.,Eg Söngvakeppni Lokaundirbúningur Islendinga fyr- ir Evrópusöngvakeppnina 5 Atvinnulausir 62% atvinnuiausra er með minni menntun en grunnskóiapróf 17 Veitingar Flugleiðir semja við einkaaðila um veitingarekstur á Loftleiðum 19 Myndosögur | Þurrt regn - Pennavinir- * • Leiðari „Harðari stefna“ gegn þjóðemis- hatri 22 Úr verinu ► Coldwater selur fyrir Frios-“J “^' Þurrt regn - ur - Fiskkaup keyptu 6.000 t Hoppandi kanínur - Kartöflu- af þorski í fyrra - Mikið afla- kapphlaup - Randaspil - Þrautir verðmæti á rækju - Möguleg - Litaspil - Teiknimyndasögur - aflaaukning í Perú millj. tonna Dratthagi blýanturinn íslendingnr skotínn tíl bana í S-Afríku Gekk í flasið á sex vopnuðum blökku- mönnum sem voru að ræna bensínstöð GUNNAR Pétursson, 34 ára gamall íslendingur búsettur i Suður-Afríku, var skotinn til bana í Jóhannesarborg á mánu- dagsmorguninn. Gunnar mun hafa ekið bíl sínum inn á bensín- stöð um klukkan 7 um morgun- inn og gengið þar beint í flasið á sex vopnuðum blökkumönnum sem voru að ræna stöðina, sem staðsett er í Brixton-hverfinu. Þeir skutu úr skammbyssu á Gunnar og mun hann hafa látist samstundis en ræningjamir komust undan á flótta. Lögregl- an í Jóhannesarborg hefur málið nú til meðferðar. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst voru hinir vopnuðu blökkumenn á leið út úr bensínstöð- inni er Gunnar kom þar að. Þeir höfðu skömmu áður ráðist inn í stöðina og skipað öllum starfs- mönnum að leggjast á gólfið meðan ránið fór fram. Myndbandsupptök- ur munu til af ráninu sjálfu en ekki morði Gunnars. Hinsvegar heyrðu starfsmennimir, og læknir sem lenti einnig í ráninu, skothvell um það bil sem blökkumennimir flúðu. Gunnar var skotinn til bana í bíl sínum fyrir utan bensínstöðina. Búsettur í S-Afríku frá 1968 Samkvæmt upplýsingum frá ættingjum Gunnars hefur hann verið búsettur í Suður-Afríku frá árinu 1968 er foreldrar hans fluttu þangað. Gunnar var fæddur 1959 og hann var giftur suður-afrískri konu en bamlaus. Hann var með- eigandi í byggingarfyrirtæki sem starfað hafði um nokkurra ára skeið. Gunnar var sonur hjónanna Pét- urs Erlendssonar og Önnu Lísu Gunnarsdóttur. Fjölskyldan tók upp ættamafnið Erlendson og hafði Gunnar ríkisborgararétt bæði hér á landi og í Suður-Afríku. Hann gekk í skóla ytra og lauk stúdents- prófi en að því loknu kom hann til Islands og dvaldi hér í tæpt ár. Eftir að skólagöngu lauk vann Gunnar hjá ýmsum byggingarfyrir- tækjum í Suður-Afríku þar til hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki, ásamt tveimur öðrum. Ættingjar Gunnars hér á landi hafa snúið sér til utanríkisráðu- neytisins og beðið það um að afla frekari upplýsinga um örlög Gunn- ars. Að sögn Stefáns Skjaldarsonar fulltrúa í ráðuneytinu var haft sam- band við sænska sendiráðið og það beðið að annast milligöngu í málinu þar sem ísland hefur ekki ræðis- mann í Suður-Afríku sem stendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.