Morgunblaðið - 28.04.1993, Side 4

Morgunblaðið - 28.04.1993, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993 Skráning í sumarvinnu framhaldsskólanema er nú víða hafin Atvinnuhorfur eru svip- aðar eða dekkri en í fyrra ATVINNUHORFUR framhaldsskólanema, einstaklinga fædda 1977 og fyrr, virðast svipaðar eða heldur dekkri í sumar en í fyrra, ef marka viðbrögð hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og At- vinnumiðlun námsmanna. Upp úr miðjum maí leita yfir 4-5 þúsund háskólastúdentar inn á vinnumarkaðinn. Þá eru ótaldir hátt í níu þúsund framhaldsskólanemendur. Hjá Atvinnumiðlun námsmanna hafa þegar um 700 manns skráð sig, en í fyrra voru heildarskráning- ar rúmlega 1.570. í fyrrasumar tókst atvinnumiðluninni að útvega 500 manns vinnu. „Reynsla okkur frá síðasta ári kennir okkur að flest störfin koma inn til okkar í maí og byrjun júní, kannski hátt í 50 störf í viku,“ sagði Auðunn Guðmundsson fram- kvæmdastjóri atvinnumiðlunarinn- ar. VEÐUR Vilja síður auglýsa Hann kvaðst verða var við að atvinnurekendur leituðu frekar til atvinnumiðlunarinnar en að auglýsa í blöðum vegna annríkis sem fyrir- tækin hafa af því að svara umsækj- endum. Skráning framhaldsskólanema hjá Ráðningarstofu Reykjavíkur- borgar hófst J. apríl og eru 2.717 komnir á skrá, þar af 1.476 piltar og 1.241 stúlka. 24. apríl á síðasta ári voru 2.457 komnir á skrá. Að sögn Önnu Helgadóttur hjá ráðn- ingarstofunni er ekki ljóst hve mörg störf verða í boði í bæjarvinnu hjá Reykjavíkurborg. í fyrra bárust í heild rúmlega 3 þúsund umsóknir og fengu um 2.300 manns þá vinnu. Margir um hituna í Mosfellsbæ bárust 80 umsóknir um 30 flokkstjórastöður hjá bænum sem er u.þ.b. sá heildarfjöldi sem bærinn hyggst ráða í sumar í þess- um aldursflokki. Róbert Agnarsson bæjarstjóri sagði að þessi mál væru þó öll í endurskoðun. Hann benti á að á vegum ríkisins væri ráðgert að hefja vegaframkvæmdir sem hugsanlega hefði áhrif á atvinnu- IDAGkl. 12.00 Heimitó: Veðurstofa tslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 (gær) VEÐURHORFUR I DAG, 28. APRIL YFIRLIT: Á Grænlandssundi er smálægð og önnur djúp og víðáttumikil skammt suður af Hvarfi, báðar á norðausturleið. SPÁ: Allhvöss suðvestanátt með skúrum sunnan- og vestanlands, en heldur hægari og úrkomulaust í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIR/IMTUDAG: Suðvestan strekkingur og fremur svalt. SJcúr- ir eða slydduél um vestanvert landið en annars þurrt að mestu. HORFUR Á FÖSTUDAG: Breytileg átt, gola eða kaldi og él eða skúrir víða um land. Hiti 0-5 stig. HORFUR Á LAUGARDAG. Allhvöss norðlæg átt og frost um allt land. Snjókoma norðanlands en víða þurrt syðra. Nýir veðurfregnatímar: 1.30,,4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30 og 22.30. Svarsimi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. o •B •ö o Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindslefnu og fjaðrimar vindstyik, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.. / / / * / * * * * • J. Jt, 10° Hitastig / / / / / * / / * / * * * * * V v V V Súld I Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka ^ FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Víðast á landinu er nú ágæt færð og er greiðfært um Suðurland til Austfjarða og þar eru flestir vegir færir. Ve! fært er um Vesturland og f Reykhólasveit og fært er milli Brjánslækjar, Patreksfjarðar og Bíldu- dals. Þá er fært norður um Holtavörðuheiði til Hólmavíkur og áfram til (safjarðar. Fært er um Norður- og Norðausturland en Möðrudalsöræfi eru ófær. Víða hefur öxulþungi verið takmarkaður vegna aurbleytu. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni Ifnu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma tiitl veður Akureyri 3 skýjað Reykjavlk 7 þokumóða Bergen 17 heiðskfrt Helsinkl 21 skýjað Kaupmannahöfn 18 skýjað Narssarssuaq snjókoma Nuuk -(■3 snjókoma Osló 22 léttskýjað Stokkhóimur 26 skýjað Þórshöfn 8 hálfskýjað Algarve 16 skýjað Amsterdam 21 léttskýjað Barcelona 14 skýjað Berlín 27 skýjað Chicago 6 léttskýjað Feneyjar 23 þokumóða Frankfurt 26 léttskýjað Glasgow 11 mistur Hamborg 23 hálfskýjað London 18 mistur LosAngeles 15 heiðskírt Lúxemborg 25 hálfskýjað Madrid 13 skýjað Malaga 18 skýjað Mallorca 16 skýjað Montreal 2 heiðskfrt NewYork vantar Oriando 19 skýjað Parfs 20 skýjað Madeira 17 léttskýjað Róm 22 alskýjað Vín 23 léttskýjað Washington vantar Winnipeg 8 ekúrir ástand skólafólks í sumar. „Útlitið er ekki dökkt ef farið verður í þessi verkefni," sagði Róbert. Skráning var ekki formlega hafin hjá æskulýðsráði Hafnarfjarðar- bæjar. Þó voru þar komnir um 30 manns á skrá án þess að skráning hafi verið auglýst. Þar er búist við meiri fjölda á skrá en áður, einkum vegna gjaldþrota verktakafyrir- tækja þar í bæ. Hátt í 500 manns voru komnir á skrá hjá ráðningarstofu Kópvogs- bæjar. Þar sýndist mönnum að ástandið væri svipað í ár og í fyrra. Ráðgert væri að hleypa af stokkun- um sérstökum verkefnum með styrk úr Atvinnuleysistrygginga- sjóði. Staflinn ÁRNI Ibsen við handritin 55, sem borist hafa Þjóðleikhúsinu. Metár í leikritun UM 55 ný íslensk leikrit hafa borist til Þjóðleikhússins í vetur. Að sögn Árna Ibsen, leiklistarfulltrúa hússins, er þetta algert met. „Þetta hefur aldrei gerst þau ár sem ég hef starfað við húsið og mér finnst ólíklegt að fleiri leikrit hafi borist inn á einu leikári, hér á árum áður,“ sagði Árni. Um 40 verk í fyrra „í fyrra bárust inn tæplega fjöru- tíu verk og þá töluðum við um að það væri óvenju mikið. Ég ímynda mér að samdráttur á bókamarkaði eigi einhveija skýringu á þessu, auk þess sem greiðslur til höfunda frá leikhúsi eru mun hagktæðari heldur en samningar við útgefendur bjóða upp á. Hluti af skýringunni er líka örugglega vaxandi vinsældir leik- hússins, sem við höfum fundið mjög mikið á tveimur seinustu árum. Leik- húsið hefur fengið meiri athygli en oft áður og ég býst við að höfundar sjái þetta sem raunhæfari möguleika en oft áður. Hluti af þessari góðu aðsókn held ég svo að sé vegna þess að yngra fólk fer í auknum mæli í leikhús." Á næstu dögum verður gengið frá skipulagi næsta leikárs og í því sam- bandi mun verkefnavalsnefnd Þjóð- leikhússins taka ákvörðun um hvaða íslensk verk verða fyrir valinu í nán- ustu framtíð. Til gamans má þó geta þess að tvö fyrstu verkin sem fara á svið í Þjóðleikhúsinu í haust eru íslensk. Það eru Ferðalok eftir Steinunni Jóhannesdóttur og Þrett- ánda krossferðin eftir Odd Björns- son. Auk þess að vera í verkefnavals- nefnd Þjóðleikhússins, hefur Árni starfað í dómnefnd á vegum Lands- nefndar um alnæmisvarnir, sem stendur fyrir samkeppni um gerð einþáttungs um alnæmisvarnir. Til keppninnar bárust 23 leikrit og eru það ekki sömu leikritin og bárust Þjóðleikhúsinu. Dómnefndin mun á næstunni fjalla um þessi verk og verður ákvörðun um vinningsverkið tekin fljótlega. Varningur af Keflavíkurflugvelli > Islenskur lögreglu- maður og varnarliðs- menn stóðu að smygli ÍSLENSKUR lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli hefur viðurkennt að hafa staðið að smygli á ýmsum varningi út fyrir varnarsvæðið, til að sejja hann. Þrír varnarliðsmenn, sem starfa við löggæslu, voru í vitorði með maninum, en upp um smyglið komst þegar fjórði varn- arliðsmaðurinn var stöðvaður í hliðinu og fannst smyglvamingur í bifreið hans. íslenski lögreglumaðurinn hefur hætt störfum, en Rann- sóknarlögreglu ríkisins var falið að rannsaka málið nánar. Á mánudag í síðustu viku gerðu lögreglumenn leit í bifreið vamar- liðsmanns, sem var að fara út af svæðinu. I bifreiðinni fannst ýmiss vamingur, sem maðurinn viður- kenndi við yfirheyrslur að hafa ætlað að selja utan svæðisins. Hann benti á íslenskan lögreglumann og þijá bandaríska, sem hefðu staðið að smyglinu. íslendingurinn, sem hefur starfað í lögreglunni á varnar- svæðinu í 7 ár, játaði brot sitt strax og sagði upp störfum. Matur og myndbandstæki Þorgeir Þorsteinsson, lögreglu- stjóri á Keflavíkurflugvelli, sagði að mennirnir hefðu smyglað ýmiss konar auðseljanlegum vamingi út af svæðinu, svo sem matvælum, varahlutum, áfengi og myndbands- tækjum. Vörumar hefðu þeir ýmist keypt í verslunum vamarliðsins eða pantað beint frá útlöndum, en selt síðan út af svæðinu. Aðspurður um hvort komið hefði fram hveijir kaupendurnir hefðu verið sagði hann, að rannsókn málsins væri skammt á veg komin og hann hefði í gær falið RLR að vinna að frek- ari rannsókn málsins. Hann sagði þó ljóst, að smyglið hefði staðið í nokkurn tíma, en ekki væri unnt að tilgreina nánar á þessu stigi máls, hve lengi mennirnir hefðu stundað þetta. Vamarliðsmenn stæðu þó yfirleitt fremur stutt við á Keflavíkurflugvelli, 1-2 ár. Búast mætti við að varnarliðsmennimir fengju þungar refsingar fyrir aðild sína að málinu, þar sem þeir hefðu brotið herreglur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.