Morgunblaðið - 28.04.1993, Síða 7

Morgunblaðið - 28.04.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1993 7 Höfóar til .fólks í öllum starfsgreinum! Kínareiðin mikla Christen- sen hættir þátttöku Varamaður kem- ur í hans stað STEEN Gees Christensen sem lagði upp í Kínareiðina miklu ásamt félaga sínum Paul Rask 20 mars sl. hefur hætt þátttöku í leiðangrinum tU Kína. í hans stað hefur Jöm Vestergaard, 26 ára liðþjálfi í lífverði Mar- grétar Danadrottningar, komið inn í leiðangurinn. Steen Gees i—■ mun hafa séð fram á að þetta í væri of erfitt fyrir sig og því | ákveðið að hætta áður en | lengra væri haldið. 5 Kemur úr danska hernum Þeir Paul og Steen voru komnir =j að gömlu landamærum Austur- og Vestur-Þýskalands þegar Jörn tók sæti Steens. Reið hann fyrsta áfangann 22. apríl sl. Jöm kom með einn nýjan hest með sér en tekur við tveimur af hestum Steen Gees sem aftur fór heim með einn af sínum hestum þannig að hest- arnir verða áfram sex. Jörn Vestergaard, sem er frá Álaborg, hefur verið í danska hernum í átta ár og fær nú leyfi frá herþjónustu til að taka þátt. í Kínaleiðangrinum. Að þessu frá- töldu hefur allt gengið að óskum samkvæmt Jieimildum Morgun- blaðsins. Hestamir eru við góða heilsu og tímaáætlun hefur staðist fyllilega enn sem komið er. ----♦ ♦ ♦---- Framkvæmd- ir við nýja íþróttahúsið í Kópavogi að hefjast FRAMKVÆMDIR við nýja íþróttahúsið í Kópavogi eru að hefjast en það er Ármannsfell sem byggir húsið. íþróttafélag- ið Breiðablik fær húsið til af- nota en það er teiknað af sömu arkitektum og teiknuðu íþróttahús það sem hætt var við að byggja í Kópavogi árið 1990. Þetta er stofan Arkitektar sf. en hún hefur unnið töluvert fyrir verktakann Ármannsfell. Samkvæmt upplýsingum frá Sigurði Geirdal bæjarstjóra er kostnaðaráætlun fyrir hið nýja hús 240 milljónir króna og þar er gert ráð fyrir um 1.000 áhorfendum með stækkunarmöguleikum fyrir aðra 1.000 áhorfendur. Taka á húsið í notkun haustið 1994 en það verður staðsett á íþróttasvæði Breiðabliks í Kópavogsdal sunnan við gamla Kópavogsvöllinn. íþróttahús það sem mikið var deilt um í Kópavogi árið 1990 átti að kosta um 1.300 milljónir króna og rúma um 7.000 áhorfendur. Stærð hússins var mikið gagnrýnd og fór svo að lokum að bæjaryfir- völd hættu við byggingu þess. Framkvæmdum við Miðbakka miðar vel Morgunblaðið/ÓI.K.M. FRAMKVÆMDUM við Miðbakkann framan við Geirsgötu miðar vel, að sögn Stefáns Hermannssonar borgar- verkfræðings og á þeim að vera lokið í júní. Þá er fyrirhugað að rífa niður timburbrúna að bílastæðum í Toll- stöðvarhúsinu í sumar. Verða stæðin lögð niður um tíma en gert er ráð fyrir að í vesturhluta nýrrar skipti- stöðvar fyrir SVR, sem verður reist við Tryggvagötu, verði rampi fyrir bíla sem leggja í húsinu. „Náðu þér í Víkingalottóseðil og framvísaðu honum á næsta sölustað íslenskrar getspár fyrirkl. 16ídag! Röðin kostar aðeins 20 krónur." Dregið verður í Víkingalottói, stærsta lottópotti á Norðurlöndum, í sameiginlegri útsendingu á báðum sjónvarpsstöðvunum kl. 19.50 íkvöld. ÉgsémilLjón 99 mögiúeikaá vmningi í’VikingEdottói í kvöld!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.