Morgunblaðið - 28.04.1993, Side 10

Morgunblaðið - 28.04.1993, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993 EIGNASALAN REYKJAVIK SAMTENGD SÖLUSKRÁ ÁSBYRGI IIGNASAL AIV fLAlTASj [ J Simar 19540-19191 Yfir 35 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar HVERAGERÐI - RVÍK SKIPTI ÓSKAST Okkur vantar lítið einb., raðh. eða íb. (3ja-4ra herb.) í skiptum f. 116 fm góða íb. í miðb. Rvíkur. HÖFUM KAUPANOA að góðrí húsaign i Vesturb. eða á Seltjn. Má kosta um og yfir 20,0 míllj. HÖFUM KAUPANDA að góðri 4ra-5 herb. íb. á Seltj- nesi. Bílsk. æskil. Góö útb. í boði f. rétta eign. HÖFUM KAUPANDA Vamar 3ja herb. íb. í nágranni Laugameaskólans. Góð útb. f. rétta eign. HÖFUM KAUPANDA að góðri sórhæð. Má kosta allt að 11,5 millj. Góð útb. í boði fyr- ir rétta eign. HÖFUM KAUPENDUR að 2ja-5 herb. ri$- og kjíb. Mega þarfn. standsetn. Góðar útb. geta verið i boði. SELJENDUR ATH. Okkur vantar allar geröir fast- eigna á söluskrá. Skoöum og verðmetum samdægurs. EIGNASALAIM REYKJAVIK Ingólfsstræti 8 Simi 19540 og 19191 Magnús Einarsson, lögg. fastsall, Eggert Elíasson, hs. 77789, Svavar Jónsson, hs. 657596. V^terkur og kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! Barna- söngur Tónlist Jón Ásgeirsson Landsmót íslenskra barnakóra var haldið í Laugardalshöll sl. laug- ardag og mættu þar til leiks yfír 30 barnakórar víðs vegar af land- inu. Kórarnir sungu í þremur hóp- um og allir saman undir lokin. Það sem gerði tónleikana um margt sérstæða var_ þátttaka Sinfóníu- hljómsveitar íslands undir stjórn Jóns Stefánssonar. Útvarpsstjóri, Heimir Steinsson, setti hátíðina en tónleikarnir hófust á forleiknum að Carmen eftir Bizet og þar var sunginn söngur götu- strákanna úr sama verki. Tvö lög eftir Atla Heimi Sveinsson, Söngur Dimmalimm og perlan Snert hörpu mína himinborna dís, voru mjög fallega sungin. Fyrsti hópur lauk sínum hluta með dýravísunum eins og Jón Leifs útbjó þær. A meðan skipt var um kóra flutti Sinfóníuhljómsveitin forleikinn að Vilhjálmi Tell eftir Rossini. Annar hópur söng Sprengisand eftir Sig- valda Kaldalóns og þar eftir tvö lög eftir Skúla Halldórsson, Smala- drengurinn og Smalastúlkan og voru þessi fallegu lög mjög vel sungin, þar sem Sigrún Norðdahl og Halldór Guðnason komu fram uppáklædd eins og gerðist tii sveita áður fyrr og sungu einsöng með fagurri hijóman og bamslegri ein- lægni. Annar hópur lauk sínu verk- efni með þjóðlaginu Vera mátt góð- ur. Þriðji hópurinn söng tvær krummavísur og Vorvindur eftir Sigvalda Kaldalóns. Coro di Zinga- relle úr La Traviata og upphafskór- inn (O. Fortuna) úr Carmina Bur- ana eftir Orff, var glæsilega sung- inn en hápunktur tónleikanna var samsöngur allra kóranna og þar voru viðfangsefnin Ó blessuð vertu sumarsól eftify Inga T. Lárusson, Úr útsæ rísa íslandsijöll eftir Pál Isólfsson, Maístjaman og síðast þjóðsöngurinn eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um uppeldislegt gildi slíkra tónleika eða þá vinnu sem þarna liggur að baki. Það sem áheyrendur upplifðu var fallegur söngur, vel æfður og mennilega framfærður. Öryggi barnanna var einstakt og er rétt að geta þess sérstaklega að framkoma þeirra var óaðfinnanleg svo og frammistaða Dagrúnar Leifsdóttur, ungrar stúlku er kynnti öll atriði tónleikanna. Það má bæta því við, að margir uppeldisfræðing- ar hafa talið mikla samvirkni vera á milli hegðunareinkenna manna og iðkun tónlistar, þ.e.a.s. að merkja megi gangvirk áhrif tón- rænna áhrifa og hegðunar, sem séu sérstaklega sterk á vissum aldurs- skeiðum. Það mátti glögglega finna, að hegðan bamanna í Laug- ardalshöllinni hafði verið stillt inn á fíngerðari blæbrigðin. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur með þátttöku í þessum tónleikum gefíð tóninn og vonandi verður þessu samstarfi við bamakórana í landinu haldið áfram. Það var auð- heyrt að hljómsveitin tók hlutverk sitt alvarlega og lék mjög vel með börnunum undir lifandi og öruggri stjórn Jóns Stefánssonar. Samkór Kópavogs Tónlist Ragnar-Björnsson Kórinn hélt vortónleika sína laugardaginn 24. apríl í Kópavogs- kirkju undir stjórn Stefáns Guð- mundssonar. Til aðstoðar kórnum voru tilkallaðir söngvararnir Katr- ín Sigurðardóttir, sópran, og Tóm- as Tómasson, bassi, og píanóleik- ari var Ólafur Vignir Albertsson. Prentuð efnisskrá tónleikanna var að því leyti afleit að engar upplýs- ingar var þar að finna um ein- söngvara, né heldur þýðingar á þeim ótal mörgu erlendu lagatext- um, sem sungnir voru. Þetta er vafasamur sparnaður, því ekki er hægt að ætlast til að áheyrendur allir skilji hið útlenda mál alltaf og enn síður þegar framburðurinn er ekki alltaf á fínustu nótunum. Katrín söng nokkur lög á efnis- skránni og fyrst skal telja laglegt lag eftir Fjölni Stefánsson, Litla barn með lokkinn bjarta. Katrín er vel músíkölsk og það sýndi hún t.d. í tveimur lögum sem hún söng síðar á tónleikunum, með píanóinu einu svo og síðasta laginu á efnis- skránni Dögun sem kannske var best flutta lagið á efnisskránni, í það heila tekið. Rödd Katrínar hefur breikkað og þroskast, en dálítið vaklandi ennþá, breytir um of um staðsetningu. Tómas Tóm- asson er nýtt nafn í söngdeildinni og virðist mega spá honum fram- tíðarsessi í þeim hóp. Tómas hefur djúpan bassa og hæðin er einnig fyrir hendi. Textameðferð hans er mjög til fyrirmyndar og fijálsleg framkoma hans á palli. Eitt verður hann þó að taka til athugunar strax, að ofgera ekki röddinni, leyfa henni að þroskast innan eig- in lögmála. Eins og er ætlar hann röddinni um of, sem gæti orðið röddinni hættulegt, en það tekur tíma að verða stór, en hér er um spennandi efnivið að ræða. Tómas söng einsöng með kórnum, svo og einn með píanóinu. Saman sungu þau Katrín og Tómas tvísöng úr Don Giovanni og fróðlegt væri að vita hvort Mozart hefði þótt þau ofgera, en mörkin eru viðkvæm. Kórinn á enn langt í land með að teljast konserthæfur, ef líta skal á hlutina frá því sjónarmiði. Radd- beitingu er mjög ábótavant og því allur hljómur kórsins mattur, sem er ein ástæða fyrir því að flutning- urinn er spennulaus. Fyrsta lag kórsins var Glad sásum fágeln, sem var allt of hægt sungið og þunglamalega og líkt verður því miður að segjast um önnur lög á söngskránni. Ólafur Vignir var traustur á píanóið, en hvers vegna ekki flygil í stað píanós, það hefði t.d. breytt því að hljóðfæraleikar- inn hefði sést, en hljóðfærið ekki verið sem sjálfspilandi væri. Sýnishorn úr söluskrá • Arðbær sælgætisverslun. Mikil brauðsala. • Útgáfa á vasabókum, ritsöfnum o.fl. • Prentgylling og framleiðsla á minjagripum. • Þekktur pöntunarlisti. Gott heimastarf. • Auglýsingastofa. Mikil verkefni. Góð sambönd. • Bílasala á besta stað. Ýmis skipti. • Framköllunarfyrirtæki. Góðurtímiframundan. • Sjálfsalar fyrir leikföng og sælgæti. • Ritfangaverslun. Mjög gott verð. • Sportvöruverslun við Laugaveg. • Ritföng, leikföng, garn og lopi. • Eróbikstaður. Góð aðstaða. • Blómaverslun sem allir þekkja. • Barna- og unglingafataverslun í Hafnarfirði. • Einn glæsilegasti kaffi- og matsölustaður borgarinnar. • Mjög góður pizzustaður. Aðallega heimsendingar. • Skyndibitastaður á góðum stað. • Myndbandaleiga. Sælgætisverslun. • Gott umboð með sokkabuxur. Margir útsölustaðir. • 30% eignaraðild í tölvufyrirtæki. Vinna fylgir. • ísbúð á góðum stað. nmTTTTTtmrernw SUÐURVERI SI'MAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. 011 KH 01 07fl L^RUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri Cm I Ivv'hlO/v KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggilturfasteignasali Nýjar á söluskrá meðal annarra eigna: í nágrenni Háskólans Mikið endurn. 4ra herb. 3. haeð/rishæð. Svalir á suðvesturhlið, mikið útsýni. 40 ára húsnæðislán kr. 3,1 millj. Gott verð. Skammt frá Hagskóla Stór og góð 4ra herb. kjallaraíb. i suðurenda. 3 rúmg. svefnherb. Innb. skápar. Nýtt parket. Sér hiti. Langtímalán kr. 4 millj. Rétt við Álftamýrarskóla Nýendurbyggð 4ra herb. íb. á 3. hæð, öll ný endurbyggð. Góðir ofn- ar, Danfosskerfi. Bílskúrsréttur. Ákv. sala. Parhús - tvær íbúðir - eignaskipti í Suðurhliðum Kópavogs parhús m. 5 herb. íb. á 1. og 2. hæð og 4ra herb. íb. í kjallara. Stór og góður bílskúr. Frábært útsýni. Margskonar eignaskipti mögul. Tilb. óskast. Við Fellsmúla - laus nú þegar Stór og góð 3ja herb. íb. á 3. hæð, sérhiti. Rúmgóðar sólsvalir. Vel með farin sameign. Sanngjarnt verð. Skammt frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Glæsileg sérhæð í þríbýlishúsi um 140 fm. Öll eins og ný. Allt sér. Góður bílskúr, ágæt sameign. Tilboð óskast. Helst við Smiðju- eða Skemmuveg Leitum að góðu atvinnuhúsnæði f. vélaverkstæði. Æskileg stærð um 200 fm. Lofthæð 3,5 fm. Traustur kaupandi. Góðar greiðslur. • • • Þjónustuíbúð óskast við Bólstaðarhlíð. Fjársterkir kaupendur. Opið á laugardag AIMENNA FASTEIGNASAIAN LAUGWEGM8ISÍMAR2ÍÍ5^2Í370 Kvikmyndahátí ðir Tvær íslensk- ar í Cannes TVÆR íslenskar kvikmyndir, Só- dóma Reykjavík eftir Óskar Jón- asson og stuttmyndin Ævintýri á okkar tímum eftir Ingu Lísu Midd- leton, hafa verið valdar til þátt- töku á Kvikmyndahátíðinni í Can- nes, dagana 13. til 24. maí næst- komandi. Er þetta í fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd er með í aðalhluta hátíðarinnar. Óskar sagði að val á Sódómu Reykjavík á hátíðinni kæmi til með að auka sölumöguleika myndarinnar. í Bandaríkjunum er verið að dreifa myndinni í samstarfi við annað fyrir- tæki. Verið er að útbúa nýtt vegg- spjald og stutta kynningarmynd, þar sem athygli er vakin á einangrun Islands og að þrátt fyrir það blómstri fjörugt næturlíf. „Þetta kom verulega á óvart,“ sagði Óskar. „Ég hafði aldr- ei ímyndað mér að myndin fengi náð fyrir augum nokkurrar kvikmynda- hátíðar. Hún var ekki gerð með hátíð- ir í huga.“ Árið 1984 var Atómstöðin valin á hliðarhátíð á vegum Leikstjórafélags Frakklands og í fyrra var Svo á jörðu sem á himni, framlag íslands, á sér- stakri sýningu norrænna kvikmynda. Þá var kvikmyndin Ingaló sýnd á svokallaðri Gagnrýnendaviku. 1 f i I I I i f I < í i í i l

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.