Morgunblaðið - 28.04.1993, Page 11

Morgunblaðið - 28.04.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993 11 Kammer- tónleikar Tónlist Jón Ásgeirsson I Kammermúsíkklúbburinn stóð fyrir tónleikum í Bústaðakirkju sl. k sunnudag og þar var á efnisskrá " tónlist eftir Schubert, Hummel og Mozart. Flytjendur voru Zheng-Rong Wang, fiðluleikari, Helga Þórarins- dóttir, lágfiðluleikari, Richard Talkowsky, sellóleikari og Einar Jó- hannesson, klarinettuleikari. Fiðlu- leikarinn Wang lék með Sinfóníu- hljómsveit íslands í nóvember sl. og sýndi þá að hún er frábær fiðluleik- ari. Fyrsta verkið var tríó eftir Schu- bert en það mun vera eina strengja- tríóið sem hann lauk við að fullu. Þetta er yndislegt verk og þar getur að heyra ýmis þau hljómbrigði og tóntegundatilfærslur, sem urðu síðar sérlega einkennandi fyrir tónstíl | Schuberts. Verkið var mjög fallega * leikið og sama má segja um næsta verk en það var klarinettukvartett t. eftir Johann Nepomuk Hummel. Klarinettukvartettinn ber mjög sterkan svip af ýmsu er heyrist hjá . Beethoven en er mjög vel samið verk w og var það í heild vel leikið og á engan hallað, þó glæsilegur leikur Einars Jóhannessonar sé sérstaklega tilgreindur. Snilldarverk tónleikanna var Dvertimento, K. 563, eftir Mozart. Þetta undurfagra og erfíða verk var glæsilega leikið og þar fór fyrir hópn- um Zheng-Rong Wang með stórglæsilegum leik sínum. Þrátt fyr- ir að verkið allt sé erfítt í flutningi, er hlutverk fiðlunnar sérlega erfitt og það var ekkert minna en snilldar- handbragð á öllu er Wang gerði. Helga og Richard léku mjög vel og það var aðeins á einum stað í „uni- sono“-tónhendingu, þar sem intóna- | sjónin var ekki alveg fullkomlega " samstilit. Að pðru leyti var samleikur þeirra frábærlega vel útfærður. Fimm aðilar hljóta viðurkenningu AÐ LOKNUM sýningum á söngleiknum My Fair Lady og Dýrunum í Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu um helgina voru veittar viðurkenning- ar úr tveimur sjóðum hússins; Menningarsjóði Þjóðleikhússins og Egnersjóði. Pálmi Gestsson leikari og Kristín Hauksdóttir sýningar- stjóri fengu styrk úr fyrrnefnda sjóðnum en leikararnir Sigurður Siguijónsson, Orn Ámason og Herdís Þorvaldsdóttir úr hinum síðar- nefnda. Menningarsjóður Þjóðleikhússins var stofnaður á vígsludegi leikhúss- ins hinn 20. apríl árið 1950 af þá- verandi þjóðleikhússtjóra, Guðlaugi Rósinkranz, með framlögum 38 ein- staklinga. Alls 29 sinnum hafa styrkir verið veittir úr sjóðnum til rúmlega 50 leikara og annarra starfsmanna Þjóðleikhússins. Egner-sjóðurinn var hins vegar stofnaður á 25 ára afmæli Þjóðleik- hússins 20. apríl 1975 með gjöf norska rithöfundarins Thorbjörns Egners til Þjóðleikhússins. Gaf hann leikhúsinu sýningarrétt og höfundarlaun allra verka sinna á íslandi. Stofnframlag voru höfund- arlaun vegna sýninga leikhússins á Kardimommubænum leikárið 1974-1975. Síðan hefur verið veitt sjö sinnum úr sjóðnum til 13 ein- staklinga og er veitingin í ár sú áttunda í röðinni. Fjórir ungir einleikarar ljúka prófi með Sinfóníuhljómsveitinni á morgun Menningarsjóður Þjóðleikhúsins og Egnersjóður „Heimsfrægð að minnsta kosti“ Mikki refur (Sigurður Siguijónsson) og Lilli klifurmús (Örn Ama- son) smella kossi á músarömmu (Herdísi Þorvaldsdóttur) við afhend- ingu viðurkenningar úr Egner-sjóði. Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri afhenti Pálma Gestssyni og Krist- ínu Hauksdóttur viðurkenningu úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins. „FERLEGT kikk.“ Að spila á tónleikum. Eftir margar vikur af æfing- um, stressi og kvíða. Þá gengur einleikari skjálfandi inn á sviðið, kemur sér fyrir og byijar. Þá kemur það. Kikkið. Það segir að minnsta kosti einn þeirra ungu tónlistarmanna sem leika einieik með Sinfóní- hljómsveit Islands í Háskólabíói á morgun, fimmtudag. Jón Guðmunds- son, Anna Snæbjörnsdóttir, Ingunn Hildur Hauksdóttir og Rúnar Ósk- arsson ljúka með þessum tónleikum einleikaraprófi á h(jóðfæri sín; gítar, píanó og kiarinett. Hljómsveitarstjóri á tónleikunum, sem hefjast klukkan átta annað kvöld, verður Bernharður Wilkinson. Á efnisskránni eru konsertar eftir Ponce, Beethoven, Copland og Grieg. Verkin eru ólík, einleikararnir völdu þau sjálfír og í samvinnu við kennar- ana sína í Tónlistarskólanum í Reykjavík og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Tónlistarfólkið er á aldrinum 22 til 25 ára, öll hafa þau kennarapróf á hljóðfærin sín, hafa kennt talsvert og ætla sum að halda því eitthvað áfram. Þau segjast glöð í bragði vera fulltrúar landsbyggðarinnar, frá Hafnarfírði, Akranesi og Vopnafírði, eða Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu, eins og Rúnar bendir á. „Það verða sagð- ir brandarar í hléinu,“ bætir hann við. „Ég ætla að spila konsert eftir Manuel M. Ponce," segir gítarleikar- inn Jón Guðmundsson. „Hann var svona síðrómantíker á fyrri hluta aldaririnar og samdi þessa tónlist fyrir Segovia. Mér fínnst það mjög vel gert hjá honum, efniviðurinn er ekki of mikiil, engu ofaukið og mótí- vin afar vel nýtt. Konsertinn er svo- lítið rómantískur og væminn." Jón á vetur eftir af tónsmíðanámi í Reykja- vík og hyggur á framhaldsnám í Frakklandi eða á Ítalíu. Þær Anna Snæbjömsdóttir og Ing- unn Hauksdóttir eru píanóleikarar. Þær völdu sígild verk fyrir tónleikana á morgun. Anna ætlar að leika kon- sert eftir Beethoven og Ingunn leikur Jón, Anna, Ingunn og Rúnar þekktan konsert eftir Edvard Grieg. Þær segjast báðar hafa valið þessa tónlist vegna þess hve falleg hún er, en neita þvi ekki að líklega sé erfið- ara að spila svo vel þekkt verk á tónleikum heldur en eitthvað sem færri þekkja. Anna segir að samt þýði ekkert að hugsa um hvað áheyr- endum þyki, maður setjist bara við píanóið og njóti þess að spila. Næsta vetur ætla Ingunn og Anna að kenna á píanó og hugsa sinn gang. Þær segja vel geta verið að leiðin liggi til útlanda í frekara nám, en ber saman um að það sé gaman að kenna og allt í lagi að gefa sér tíma til að spá í framtíðina. Rúnar Óskarsson klarínettuleikari ákvað að spila nútímaverk eftir Aar- on Copland. „Hann var Ameríkani sem lærði í Evrópu og í tónsmíðum hans gætir áhrifa víða að,“ segir Rúnar. „Hann samdi þetta verk fyrir Benny Goodman um miðja öldina en þetta er frumflutningur á tónleikum hér á íslandi." Rúnar ætlaði að læra á saxafón, en átti ekki fyrir hljóðfær- inu á sínum tíma. Nú er hann búinn að eignast eitt slíkt, en ætlar að Morgunblaðið/Árni Sæberg halda tryggð við klarinettið og lang- ar í framhaldsnám í Hollandi næsta haust. Maður tekur ekki ákvörðun um að verða tónlistarmaður. Það gerist, segja fjórmenningarnir. „Það er ekki hægri að hætta vegna þess að þá fer manni aftur og það er hundleiðinlegt að geta ekki lengur spilað verk sem lék í höndunum á manni mánuði fyrr,“ bætir Rúnar við. Þijú úr hópn- um byijuðu sjö ára í músíknámi, en Jón var orðinn sextán ára þegar hann fór að læra á gítar í alvöru. „Ég stefni að því að tvöfalda íslensk- an efnivið fyrir gítarleikara næstu misserin," segir hann, „tónsmíða- námið hefur víkkað minn sjóndeildar- hring alveg gífurlega." Þótt maður sveiji að gera þetta aldrei aftur, svona rétt áður en tón- leikar hefjast, eins og einn einleikar- anna orðar það, eiga þau framtíðina fyrir sér, fólkið sem kemur fram í Háskólabíói annað kvöld. Tónsmíðar, kennsla, meira músíknám, og eitt þeirra segir að auki: Heimsfrægð að minnsta kosti. Þ.Þ. UM HELGINA Tónlist Lokatónleikar Drengjakórs Laugarneskirkju DRENGJAKÓR Laugarneskirkju mun halda lokatónleika starfsárs- ins í Laugarneskirkju fimmtudag- inn 29. apríl nk. og hefjast þeir klukkan 20. Á hveiju ári lýkur kórinn form- legu vetrarstarfí sínu á þennan hátt. Kórinn mun flytja ýmis verk, bæði andleg og veraldleg, þeirra á meðal negrasálma. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Þann 1. maí nk. mun kórinn fara í skemmti- og söngferð til Vest- mannaeyja. Þar mun kórinn syngja við messu í Landakirkju, sunnudag- inn 2. maí og að auki endurflytja lokatónleika sína þar klukkan 14.30. Starfsár kórsins hefur verið við- burðarríkt, þar sem hæst ber jólatón- leika hans ásamt Sigrúnu Hjálmtýs- dóttur og hljóðfæraleikurum, svo og móttaka á Florida Boychoir, sem kom á hans vegum í viku heimsókn til íslands sl. vetur. Á næsta starfs- ári mun kórinn taka öðru sinni þátt í alþjóðlegu drengjakóramóti sem haldið verður í borginni Tampa í Flórída, sem skipulagt er af Sir David Willcocks. Á næstu dögum fara fram radd- prófanir í Laugarneskirkju og í ýms- um skólum borgarinnar vegna inn- töku drengja í kórinn og undirbún- ingsdeild hans, Schola Cantorum. Stjórnandi Drengjakórs Laugarnes- kirkju er Ronald W. Turner og undir- leikari hans er David Knowles. Drengjakór Laugarneskirkju er eini starfandi drengjakórinn á íslandi. (Fréttatilkynning) Burtfarartónleikar Mag’neu Tómasdóttur Burtfarartónleikar Magneu Tómasdóttur verða haldnir í Nor- ræna húsinu, fimmtudaginn 23. april klukkan 20.30. Magnea er nemandi í Tónlistar- skólanum á Seltjarnamesi og er kenari hennar Unnur Jensdóttir. Magnea hefur þegar hlotið inntöku í Trinity Collage of Music í London og mun hefja þar nám næsta haust. Á efnisskránni eru aríur og ljóð frá ýmsum löndum og ýmsum tímum tónlistarsögunnar, auk nokkurra af perlum íslenskra söngbókmennta. Vilhelmína Ólafsdóttir píanóleikari er meðleikari Magneu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Ballett Síðustu sýningar á Coppelíu AÐEINS eru tvær sýningar eftir á Coppelíu, sýningu Isienska dansflokksins og Listdansskóla íslands, sunnudaginn 2. maí klukkan 20 og laugardaginn 8. maí klukkan 14. Á fyrri sýning- unni mun Lára Stefánsdóttir og Eldar Valiev dansa aðalhlutverk- in og í hlutverki Dr. Coppelíusar verður Björn Ingi Hilmarsson, en á siðustu sýningunni dansa Lára og Hany Hadaya, en Þröstur Leo Gunnarsson leikur Dr. Coppelíus. Coppelía er stærsta uppfærsla Islenska dansflokksins um langt skeið og taka auk dansara flokksins um 30 nemendur þátt í Coppelíu. Uppfærslan er í höndum Evu Evdok- imovu og hefur hún fengið einróma lof gagnrýnenda fyrir sýninguna. Hljómsveitarstjóri er Örn Oskarsson, en búninga og leikmynd hannaði Hlín Gunnarsdóttir. Miðasalan er í Borgarleikhúsinu, Listabraut 3, 103 Reykjavík, sími 91-680680. Miðasalan er opin klukk- an 14-20 alla virka daga, nema mánudaga kiukkan 13-17. Símaupp- lýsingar og pantanir einnig klukkan 10-12 virka daga. - (Fréttatilkynning) r ^ Orbsendingfrá Skemmunni Nýkomin stórglæsileg gluggatjaldasending frá /. Rosenthal. Allt ný mynstur. Verð aðeins kr. 360, br. 122 cm. Verð aðeins kr. 490, br. 173 cm. Póstsendum. Verslunin Skemmany Reykjavíkurvegi 5, Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.