Morgunblaðið - 28.04.1993, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 28.04.1993, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993 „Lánið sæta“ frá LÍN FJÖLÐI NÁMSMANNA í FORELDRAHÚSUM og reglur um námslán Bert&r r«flur MÁNAÐARLEG NÁMSAÐSTOÐ Á NORÐURLÖNDUM Samanburður eftir fjölskylduaðstæðum >úb. bl. kr. 120 - lsl&nd 103.625 Miðað er við einstakling í leiguhúsnœði. eftir Gunnar Birgisson Eins og fram kemur í Stakstein- um Morgunblaðsins 26. sl. hafa málefni Lánasjóðs íslenskra náms- manna orðið tilefni til lærðra um- ræðna árum saman. í nýjasta hefti Stúdentablaðsins bæta tveir há- skólastúdentar, Ármann Jakobsson og Flosi Eiríksson, nokkrum orðum við þessa mikilvægu og lærðu um- ræðu. í grein þeirra félaga kveður við nýjan tón í umræðunni enda vekur Morgunblaðið athygli á þess- um skrifum með verðugum hætti. Ég vil því biðja Morgunblaðið að birta örstuttar hugleiðingar mínar vegna þessara skrifa. Orðið lán þýðir bæði happ og skuld Það er athyglisvert og hressilegt fyrir þá sem stjóma Lánasjóði ís- lenskra námsmanna að því skuli haldið að námsmönnum af hálfu fulltrúa þeirra sjálfra að lán, hversu hagstætt sem það er, sé ekki bara happ. Orðið lán þýði bæði happ og skuld. Námslán þurfi að greiða til baka ef til vill á erfiðum tíma fyrir viðkomandi lánþega. Hafi því láninu verið eytt í óþarfa eins og minnt er á f greininni t.d. brennivínskaup, sem mönnum finnst að vísu misjafn- lega mikil óþarfi, getur þetta gamla lán komið þeim námsmönnum sem það tóku, illa í koll síðar á lífsleið- inni. Til hvers á að veita námsmönnum hagstæð lán? Greinarhöfundar varpa ýmsum spumingum fram. Þunginn er mik- ill í þessari: „Til hvers er ríkisvald- ið að veita námsmönnum í foreldra- húsum afar hagstæð lán?“ Af því tilefni vaknar samstundis sú spum- ing eins og mér er sagt að kennari við háskólann hafí fyrir nokkru spurt á fundi: „Til hvers er ríkis- valdið yfírleitt að veita námsmönn- um lán?“ Báðar þessar spumingar eiga sjálfsagt rétt á sér. Hinni síðari er þó auðsvarað. Það er stefna núver- andi og fyrrverandi stjómvalda að gefa öllum kost á að afla ser fram- haldsmenntunar án tillits til efna- hags. í því skyni hefur verið bmgð- ið á það ráð að veita mönnum hag- stæð lán með lágum niðurgreiddum vöxtum af skattpeningum borgar- anna. Lán til námsmanna í foreldrahúsum Þá vaknar ný spuming: Er sann- gjamt að veita manni, t.d. í læknis- fræði, námslán, ef hann býr hjá ömmu sinni eða ættingja í „leigu- húsnæði", en synja jafnframt náms- manni sem stundar sama nám vegna þess að hann býr hjá foreldr- um sínum? Ætla má að í einhveijum tilfellum séu foreldrar fátækir og kunni frekast það ráð að styðja börn sín með því að veita þeim húsaskjól og ennfremur getur oft staðið svo á að námsmenn greiði foreldrum sínum fyrir húsaleigu og uppihald. Þetta leiðir hugann að enn einni spumingunni: Verður ekki að ganga út frá þeirri jafnræðis- og sanngimisreglu að menn sem stunda sama nám séu annaðhvort allir lánshæfír eða enginn? Enn um „lán til brennivínskaupa“ Stjórn LÍN hefur nokkra reynslu, sem vert er að minna á, þegar hug- myndir eru ræddar um að ákveða með tilskipun að námsmönnum sem búa í foreldrahúsum sé ekki veitt lán „til brennivínskaupa". Verulega var saumað að foreldrahúsafólki með reglum LIN skólaárið 1990-91. Þá var ákveðið að náms- menn í foreldrahúsum fengju aðeins 50% Ián miðað við einstaklinga í leiguhúsnæði í stað þeirrar reglu sem áður gilti um að þetta fóik fengi 70% lán. Námsmenn í for- eldrahúsum fengu einnig þess kon- ar meðhöndlun að lán þeirra skert- ust um 75% af tekjum þeirra við helmingi lægra tekjumark en ann- arra námsmanna. í kjölfarið varð veruleg breyting á heimilisfestu námsmanna. Námsmönnum í for- eldrahúsum fækkaði um 36% milli skólaára eða úr 1.052 árið 1989-90 niður í 670 manns árið 1990-91. Breyta reglur heimilisfesti fólks? Horfið var til fyrri reglu skólaár- ið 1991-92. Námsmönnum í for- eldrahúsum var þá einnig sem fyrr veitt 70% lán miðað við fólk í leigu- húsnæði. Regliir voru einnig hertar um að menn sýni fram á að þeir búi raunverulega í leiguhúsnæði. Upplýsingar úr gagnagrunni LÍN leiða í ljós að námsmönnum í for- eldrahúsnæði fjölgaði úr 670 manns, eins og áður sagði, í 1.220 skólaárið 1991-92 og í 4.600- 1.700 manns á yfirstandandi skóla- ári 1992-93 (Sjá mynd nr. 1) Námsmönnum, sem hafa heimilis- festi í foreldrahúsum, fjölgaði því á einungis tveimur árum um nálægt 1000 manns eða tala þeirra nær þrefaldaðist. Nú kostar það LÍN nálægt því sama að veita þessari fjölgun fólks í foreldrahúsum 70% lán eftir nú- gildandi reglum og það hefði kostað að veita 600 manns 50% lán og 1000 manns 100% lán, eins og fyrri reglur hefðu væntanlega haft í för með sér. Fjárhagslega skiptir 70% reglan því ekki máli en allar líkur eru á að námsmenn fylgi betur regl- unum um lögheimili sitt en áður. í ljósi framangreindra stað- reynda er ekki úr vegi að þeir félag- 75 ára Hallgrímur Jónasson frkvstj., Reyðarfirði 75 ára er í dag, 28. apríl, Hall- grímur Jónasson. Hallgrímur er sonur heiðurshjónanna Valgerðar Bjamadóttur og Jónasar Bóassonar frá Stuðlum í Reyðarfírði og erum við Hallgrímur systkinaböm. Hall- grímur er sá besti og heilbrigðasti maður sem ég hef kynnst um ævina. Alltaf þessi góði drengur, ábyggi- legur og orðheldinn. Hallgrímur er kvæntur Evu Vilhjálmsdóttur frá Meiri-Tungu í Rangárvallasýslu, mestu dugnaðarkonu. Eiga þau sex böm, mesta myndar- og hæfíleika- fólk, sem allir geta treyst í orð- heldni, skemmtileg og fjölhæf í allri vinnu. Eva er mikilhæf kona og það kemur oftast á móðurina að miklu leyti að kenna og móta börnin, því feður voru að vinna fyrir heimilinu og þá dugði ein fyrirvinna, og í þá daga þekktust engin lyklabörn í okkar þjóðfélagi. Árið 1962, þegar við fluttumst frá Ströndum á Eskifjörð, var sonur minn, Hilmar, nýútskrifaður úr Samvinnuskólanum og var hann ráðinn til Bóasar Emilssonar sem var framkvæmdastjóri Snæfells sem var byggingarfélag nokkurra athafnamanna á Eskifírði. Þá bauð Eva Hilmari að taka dóttur okkar 15 ára í fæði og húsnæði til að hún gæti farið að salta síld á Eskifirði. Já, Eva var þá móðir með öll böm- in heima og Ketill ekki orðinn tveggja ára. Auk þess var hún með menn í fæði, þá sem unnu hjá Snæ- felli. Hallgrímur var einn af eigend- um og stjómaði fyrirtækinu. Ég dáist alltaf að Evu, þessari mikil- hæfu konu, að bjóða mér að taka dótturina í húsnæði og fæði með sitt stóra heimili, geri aðrir betur. Eva vissi ekki alltaf hvenær kost- gangararnir kæmu í matinn, stund- um kom enginn, en oftast tveir eða þrír og annað slagið 8-10 manns og alltaf hafði Eva nógan mat og tók vel á móti kostgöngurum sínum. Ég er alltaf heilluð að sjá Evu og Hallgrím, þau eru svo samtaka með allt, og hef ég ekki kynnst betra og skilningsríkara hjónabandi. Þau vildu allt fyrir alla gera og létu allt- af gott af sér leiða. Hallgrímur útskrifaðist úr Sam- vinnuskólanum í Reykjavík 1939. Ég hef oft óskað þess að íslenska þjóðin ætti jafn fjölhæft fólk á Al- þingi, og sérstaklega í ríkisstjóm, og Hallgrímur er. Eftir að hann útskrifaðist úr Samvinnuskólanum fór hann austur á Rauðalæk í Rang- árvallasýslu og starfaði þar sem kaupfélagsstjóri. 1954 fluttist hann til kaupfélagsins á Hvolsvelli og var lagerstjóri hjá bílaverkstæðinu sem var þá nýtekið til starfa. Alls staðar var Hallgrímur vel liðinn, bæði sem kaupfélagsstjóri og sem fram- kvæmdastjóri. Hann þótti svo fjöl- hæfur við bílalagerinn, og þó þar væru lærðir menn, þá vissi Hall- grímur alltaf mest. Eins og áður segir áttu þau Eva og Hallgrímur sex börn, fimm fædd í Rangárvallasýslu en Ketill á Eski- firði. Bömin heita, talin hér í aldurs- röð: Valgerður, Vigdís, Jónas, Guð- rún, Bóel og Lára Birna og eru þær tvíburar og Ketill er yngstur. Éiga þau Eva og Hallgrímur ellefu bamaböm. Hallgrímur starfar mik- ið í félagsmálum. Var mörg ár í stjóm LÍU, SÍF, FSNA (Félag síld- arsaltenda.), Skreiðarsamlaginu auk ýmissa annarra, og alls staðar hefur líkað vel við hann. Eva og Hallgrímur fluttust aust- ur á Eskifjörð 1956 og var Hall- grímur hægri hönd Bóasar Emils- sonar sem var framkvæmdastjóri byggingarfélagsins á Eskifírði. Sá Hallgrímur um bókhaldið hjá Snæ- felli og að halda félaginu vel gang- andi, því Bóas sá um stórfram- kvæmdir á Suðurlandi og einnig sá Hallgrímur um allt bókhald hjá ættarskipunum Gunnari SU 139 og Snæfugli SU 20 frá Reyðarfirði. Árið 1965 flyst Hallgrímur frá Eskifirði til Reyðarfjarðar. Þar tók hann við framkvæmdastjórastörf- um áðurgreindra ættarskipa og er framkvæmdastjóri þar enn þann dag í dag. Árið 1981 seldu þeir ættarskipin Gunnar og Snæfugl og keyptu sex hundruð tonna ístogara sem heitir Snæfugl, en félagið heit- ir Skipaklettur. Eg vildi óska þess að núverandi ríkisstjórn væri eins fjölhæf í öllum störfum og Hall- grímur Jónasson er, þá væri ekki eins mikill bakkabræðrabragur á henni og raun ber vitni dagsdaglega því miður. Við hjónin þökkum Evu og Hall- grími fyrir góð og ógleymanleg kynni frá því fyrst er við kynnt- umst þeim heiðurshjónum sem alls staðar hafa látið gott af sér leiða og gert þjóðfélagið betra. Ég bið að guðsblessun fylgi ykkur og niðj- um ykkar í nútíð og framtíð og heilsa ykkar fari batnandi. En þess má geta að þau hjónin slösuðust mikið í bílslysi 28. október sl. Eftir góða meðhöndlun lækna á Borgar- spítalanum komu þau heim 20. jan- úar sl. Hallgrímur var á leið á fiski- þing þegar slysið varð og hefur kona hans oftast farið með honum hin síðari ár að hitta börn sín og skyldfólk á Suðurlandi. Lifíð heil og lengi. Þess óskar Regína Thorarensen. Gunnar Birgisson . „Sem betur fer er hægt að gleðja þá félaga og alla íslenska námsmenn með Jjví að lög og regl- ur LIN eru ekki verri en svo að sjóðurinn er mesti félagslegi jöfnun- arsjóður að því er varð- ar fjölskyldufólk í námi sem um getur á Norð- urlöndum. Eflaust má í samræmi við þá stað- reynd álykta, sem svo að hann sé mesti félags- legi námsaðstoðarsjóð- ur meðal ríkja heims.“. ar, Ármann og Flosi, velti því fyrir sér hvort áðurnefnd hugmynd þeirra um að banna lán til náms- manna í foreldrahúsum með tilskip- un sé í raun framkvæmanleg þótt öllum vangaveltum um réttlæti sé sleppt. Eru íslenskir námsmenn með fjölskyldu á framfæri best settir í heiminum? Þeir félagar segja í grein sinni: „Lánasjóður íslenskra námsmanna þykist vera félagslegur jöfnunar- sjóður. Það á hann líka að vera.“ Jafnframt gera þeir því skóna að svo sé ekki og hvetja til þess að „félagshyggjumenn á hátíðastund- um stuðli að því að sjóðurinn verði slíkt tæki. Sem betur fer er hægt að gleðja þá félaga og alla íslenska náms- menn með því að lög og reglur LIN eru ekki verri en svo að sjóðurinn er mesti félagslegi jöfnunarsjóður að því er varðar fjölskyldufólk í námi sem um getur á Norðurlönd- um. Eflaust má í samræmi við þá staðreynd álykta, sem svo að hann sé mesti félagslegi námsaðstoðar- sjóður meðal ríkja heims. Svíar, Danir og Norðmenn taka t.d. ekk- ert tillit til fjölskylduaðstæðna. Þeir veita námsmanni nákvæmlega sömu upphæð í lán og styrk hvort sem um er að ræða mann eða konu sem á eitt eða fleiri böm, maka eða ekki maka. Norðmenn taka örlítið tillit til fjölskylduaðstæðna í náms- aðstoðarkerfinu en það er ekkert í líkingu við reglur LIN. Þetta má glöggt sjá á meðfylgj- andi mynd nr. 2 þar sem fram kem- ur hversu mikil hámarksaðstoð til námsmanns með maka og tvö börn á framfæri getur orðið skv. reglum LIN í samanburði við hámarksað- stoð annars staðar á Norðurlöndum. Í því sambandi skal tekið fram að á hinum Norðurlöndum eru styrírir hluti af námsaðstoðinni og vextir af lánum á hinn bóginn yfírleitt markaðsvextir en á íslandi er styrk- ur fyrst og fremst fólginn í niður- greiðslu vaxta, en menn greiða nú 1% vexti af námslánum skv. nýjum lögum sem kunnugt er. Sá áróður sem oft heyrist innan Alþingis og utan að reglur LÍN séu sérlega óhagstæðar foreldrum, einstæðum eða í sambúð, er því algjörlega út í hött. Höfundur er formaður stíórnar LÍN.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.