Morgunblaðið - 28.04.1993, Side 18

Morgunblaðið - 28.04.1993, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993 Miklar greiðslur inntar af hendi úr Verðjöfnunarsjóði sj ávarútvegsins 2,9 milljarðar greiddir í fyrra GREIÐSLUR úr Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins á síð- astliðnu ári námu samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins tæpum 2,9 milljörðum króna. Þar af voru greiðslur til lífeyrissjóða tæplega 350 milljónir króna, en til útgerð- arfyrirtækja runnu liðlega 2,5 milljarðar króna. Úr Verð- jöfnunarsjóði humars voru til ráðstöfunar um 300 milljón- ir og af þeirri upphæð voru greiddar út um 215 miHjón- ir króna, sem skiptust niður á tiltölulega fá fyrirtæki. Til þess að fá raunverulega mynd af því hvert rekstrar- umhverfi sjávarútvegsfyrirtækja var á liðnu ári, er lík- ast til réttast að draga þessar greiðslur frá afkomutölum fyrirtækjanna á liðnu ári, þar sem um eingreiðslur var að ræða, en jafnframt ætti þá að draga frá þær upphæð- ir sem fyrirtækin telja sig hafa tapað á gengisbreytingum síðastliðið ár, vegna skulda sinna í erlendum myntum, sem er raunar tap sem dreifist á allan lánstíma lánanna. Samtals mun gengistap sjávarútvegsfyrirtækja á liðnu ári hafa verið rúmir 4 milljarðar króna, en til sanns vegar má færa að einungis hefði átt að færa til bókar sem gengistap á liðnu ári þá upphæð sem svarar auk- inni greiðslubyrði í afborgunum erlendu lánanna vegna gengisbreytinganna. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins eru þessar greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði bókfærðar með mismunandi hætti í ársreikningum sjávarútvegsfyrirtækja. Sam- kvæmt mati margra endurskoð- enda þykir eðlilegt að bókfæra þessar greiðslur undir óreglulegar tekjur, en ekki reglulegar, en það er þó ekki algilt að greiðslurnar hafí verið færðar sem slíkar. Grandi hf., ÚA (Útgerðarfélag Akureyringa) og fleiri fyrirtæki færðu til dæmis þessar greiðsiur sem reglulegar tekjur og gáfu þar af leiðandi aðra og betri mynd af rekstri síðastliðins árs í ársreikn- ingum, en tilefni var til, þar sem þessar greiðslur úr sjóðnum heyra ekki undir reglulegar tekjur. Hér er ekki um það að ræða að niðurstöðutala rekstrarreiknings- ins breytist, heldur hitt að færslan fyrir ofan strik, gefur aðra mynd af hagnaði eða tapi af reglulegri starfsemi ársins. Grandi fékk 88 milljónir á liðnu ári úr Verðjöfnun- arsjóði, en gengistap fyrirtækisins á árinu var 195 milljónir króna. Sjávarútvegsfyrirtæki skulda mörg hver í erlendri mynt, beint í gegnum sinn viðskiptabanka og geta þar með verið með allt aðra skuldasamsetningu á erlendum lánum sínum, en gengið verður út frá hér á eftir, þegar reynt verður að nálgast það hveijar erlendar skuldir þeirra eru. Að því gefnu að erlend lán Granda hafi hækkað um 6,4%, sem er meðalhækkun gjaldmiðla við gengisfellinguna í nóvember, samkvæmt þeirri með- altalskörfu gjaldmiðla sem Seðla- bankinn notar við gengisbreyting- ar sínar, þá eru erlendar skuldir Granda nú rétt rúmir 3 milljarðar króna. Tap Granda á liðnu ári var 156 milljónir, þegar tekið hefur verið tillit til afkomu dótturfyrirtækja Granda, en tap af reglulegri starf- semi Granda var 98 milljónir króna. Þannig má til sanns vegar færa að tap Granda af reglulegri starfsemi hafi verið 186 milljónir króna, en ekki 98 milljónir króna og sömuleiðis má halda því fram að hagnaður Granda í fyrra, þ.e. fyrir árið 1991, hafi verið 75 millj- ónum króna minni en hann var gefinn upp í ársreikningi, vegna 75 milljóna króna greiðslna úr Verðjöfnunarsjóði á því ári. Samræming æskileg Brynjólfur Bjamason forstjóri Granda segir að mikil umræða hafi verið um þessar færslur meðal endurskoðenda. Farin hafi verið sú leið að bókfæra greiðslurnar sem tekjur fyrir ofan, undir sérlið sem heitir Verðjöfnunarsjóður, en árið 1991 sé leiðrétt við hliðina og dregið frá reglulegum tekjum. „Ég tel það afar æskilegt að bókfærsla þessara reikninga sjávarútvegsfyr- irtækjanna verði samræmd sem mest og tel reyndar að gífurlegt starf hafí verið unnið í þá veru á undanfömum árum meðal endur- skoðenda. Þessir reikningar eru mun sambærilegri í dag en fyrir nokkrum árum,“ sagði Brynjólfur. Hjá ÚA var sami hátturinn hafð- ur á og hjá Granda. ÚA fékk 92,8 milljónir úr Verðjöfnunarsjóði, sem voru bókfærðar sem reglulegar tekjur fyrir ofan strik, en þessar greiðslur voru einnig færðar sem sérstakur tekjuliður eins og hjá Granda og á móti voru dregnar frá greiðslur úr sjóðnum vegna ársins 1991, að sögn Gunnars Ragnars forstjóra ÚA. Gengistap ÚA nam 142,5 milljónum króna. Sam- kvæmt því að erlend lán ÚA hafí hækkað að meðaltali um 6,4%, þá skuldar ÚA um 2,2 milljarða króna í erlendum lánum eftir gengis- breytinguna í nóvember. Hefði greiðslan úr Verðjöfnunarsjóði ver- ið færð sem óreglulegar tekjur fyrir neðan strik hjá ÚA, þá hefði niðurstöðutalan af reglulegri starf- semi fyrirtækisins í fyrra ekki ver- ið 10 milljóna króna hagnaður, heldur 83 milljóna króna tap. ísfélag Vestmannaeyja fékk rúmar 62 milljónir króna úr Verð- jöfnunarsjóði á sl. ári. Sigurður Einarsson forstjóri ísfélagsins seg- ir að fyrirtækið bókfæri þessar greiðslur sem óreglulegar tekjur fyrir neðan strik og gengistap fyrirtækisins sem nam um 180 milljónum króna var fært sem hluti fjármagnskostnaðar á árinu. Er- lendar skuldir ísfélags Vestmanna- eyja eru samkvæmt þessu um 2,8 milljarðar króna. Sighvatur Bjamason, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, sagði frá því hér í Morgunblaðinu fyrir réttri viku að gengistap Vinnslustöðvar- innar á liðnu ári hefði numið 211 milljónum króna. Það jafngildir því, að því gefnu að erlendar skuld- ir fyrirtækisins hafí hækkað að meðaltali um 6,4%, að Vinnslustöð- in skuldi um 3,3 milljarða króna. Pétur Reimarsson, fram- kvæmdastjóri Ámess í Þorláks- höfn, greindi frá því hér í Morgun- blaðinu í síðustu viku að gengistap Árness á liðnu ári hefði numið 85 milljónum króna. Samkvæmt myntkörfu Seðlabankans jafngildir þetta gengistap því að erlendar skuldir Árness séu um 1,3 milljarð- ar króna. Meira áhyggjuefni fyrir Ámes er að tap af reglulegri starf- semi fyrirtækisins nam 139 millj- ónum króna, sem er um 10% af veltu liðins árs og til sanns vegar má færa að það hafi verið enn hærri tala, eða 187 milljónir króna, þar sem Pétur segir að Árnes hafi fært til bókar 48,2 milljóna króna greiðslu úr Verðjöfnunarsjóði sem tekjur. Að vísu hafí það verið gert undir sérstökum lið: Greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði, rétt eins og Grandi og ÚA gerðu, en engu að síður kemur þessi tala inn í niður- stöðutölu af rekstri fyrirtækisins í fyrra og minnkar tap ársins sem henni nemur. HB bókfærir sem óreglulegar tekjur Haraldur Böðvarsson hf. á Akranesi, HB, hafði sama háttinn sjóði undir óreglulegar tekjur, því þær heyra ekki undir reglulegar tekjur. Þetta voru bara 2,2 milljón- ir króna, sem við fengum vegna útflutnings á gámafíski. Mér fínnst það alrangt og gefa villandi mynd af rekstri fyrirtækja að færa greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði undir reglulegar tekjur," segir Halldór. Hvort sem greiðslurnar úr sjóðn- um eru færðar sem reglulegar eða óreglulegar tekjur, þá hefur það ekki áhrif á endanlega rekstrarnið- urstöðu, en það er þó mat manna að með því að færa greiðslurnar sem óreglulegar tekjur, sem þær óvefengjanlega eru, þá sé þar með gefin réttari mynd af rekstrinum sem slíkum. Raunar er það einnig mat við- mælenda að tvennt verði sérstak- lega að taka til athugunar þegar AF ÍNNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Samtals mun gengistap sjávarútvegsfyrirtækja á liðnu ári hafa verið rúmir 4 milljarðar króna. á og ísfélag Vestmannaeyja og bókfærði greiðslur síðasta árs úr Verðjöfnunarsjóði sem óreglulegar tekjur, en þær greiðslur námu 48,3 milljónum króna. Sömuleiðis var gengistap liðins árs fært undir aðrar tekjur og gjöld, en gengistap fyrirtækisins á liðnu ári var 156,2 milljónir króna, sem jafngildir því að HB skuldi eftir gengisbreytingu rúmlega 2,4 milljarða króna. Borgey hf. á Höfn í Hornafírði tapaði í fyrra rúmum 182 milljón- um króna á reglulegri starfsemi sinni og rúmum 12 milljónum á óreglulegri, þannig að samtals tap- aði fyrirtækið 195 milljónum króna. Halldór Ámason fram- kvæmdastjóri Borgeyjar segir að einungis 2,2 milljónir króna hafi komið í hlut Borgeyjar úr Verðjöfn- unarsjóði sjávarútvegsins á liðnu ári, þar sem greiðslumar úr sjóðn- um komu til útborgunar fyrir sam- einingu sjávarútvegshluta KASK og Borgeyjar og því komu 90 millj- ónir króna úr Verðjöfnunarsjóði í hlut KASK. Halldór segir að gengi- stap Borgeyjar á liðnu ári hafi verið um 35 milljónir króna. „Við færam greiðslur úr Verðjöfnunar- ársreikningar sjávarútvegsfyrir- tækjanna era skoðaðir til þess að sjá hver raunveruleg rekstraraf- koma innan ársins er: Það séu greiðslumar úr Verðjöfnunarsjóðn- um, þar sem ekki er um varanleg- ar tekjur að ræða; og afborgunar- byrði af hækkun á gengisbreyting- um á lánum, en ekki að færa til gjalda alla skuldina eða gengistap- ið á sama árinu, vegna þess að lánað er til framhaldsgreiðslna. Þannig er rætt um að eðlilegt væri að færa einungis 6,4% hækk- un erlendra lána á síðstliðnu ári til gjalda, en ekki allt gengistapið sem varð við gengisfellinguna. Reikna þurfí þessar stærðir sér- staklega og draga frá rekstrar- reikningnum og þá sjáist hvert rekstrarumhverfið er sem sjávarút- vegurinn býr við nú. Skuldasamsetning Fiskveiðasjóðs gagnrýnd Viðmælendur mínir hafa bent á að vissan hluta gengistaps þeirra vegna gengisfellingarinnar í nóv- ember síðastliðnum, megi beinlínis rekja til þess að ýmsir í sjávarút- vegi skuldi í erlendum myntum sem hækkað hafi mest á síðast- liðnu ári, eins og Bandaríkjadollar og japönsku jeni. Er ekki hvað síst vísað til myntkörfu Fiskveiðasjóðs í þeim efnum. Samsetning skulda Fiskveiðasjóðs er þannig uni þessar mundir að um 40% eru í bandarísk- um dollurum og um 35% í japönsk- um jenum, en þessir tveir gjald- miðlar hækkuðu hvað mest á liðnu ári. Þannig hafa skuldarar Fisk- veiðasjóðs lítið sem ekkert val haft um það í hvaða mynt þeir skulda lán sín hjá Fiskveiðasjóði. Að vísu breyttist þetta nú um síðustu ára- mót, því þá var tekin upp sú regla að stærri skuldarar sjóðsins fengju að velja sér þá myntkörfu sem þeir vildu skulda í. Ymsum finnst sem lánasamsetn- ing hjá Fiskveiðasjóði sé ekki ákjósanleg, þegar horft er til þess hvert hlutfall útflutnings íslend- inga er í ákveðnum myntum. Eink- um eru efasemdir uppi um ágæti þess að hafa hlutfall japanskajens- ins svo hátt, þar sem útflutningur okkar til Japans er hvergi nærri því að vera 35% af útflutningi landsmanna. Til dæmis er 25% alls útflutnings íslendinga til Bret- lands, en vægi breska pundsins er óverulegt hlutfall lána hjá Fisk- veiðasjóði. Gjarnan er litið á það sem góða reglu að hlutfall erlendra lána íslendinga sé sem næst því að vera það sama og hlutfall út- flutnings íslendinga nemur í tiltek- inni mynt. Þannig er talið að lág- marka megi áhættu og forðast spákaupmennsku. Flest fyrirtæki sem era í erlendum lánaviðskiptum munu leitast við að láta þessi hlut- föll standast á eins og unnt er. Meira hugsað um vexti en gengissveiflur Á móti kemur sú röksemd að lán í bandarískum dolluram og jap- önskum jenum era með mun lægri vöxtum en Evrópugjaldmiðlamir, en ólíklegt er þó að lág vaxtapró- senta lána í þessum myntum vegi upp þá miklu gengissveiflu sem orðið hefur. Fiskveiðasjóður hefur það val að breyta um mynt lána sinna á gjalddögum, en efasemdir eru uppi um ágæti þess að breyta lánum í þeim gjaldmiðlum, sem þegar hafa hækkað verulega og hafa að líkind- um náð hámarksgengishækkun, yfír í aðra sem hugsanlega eiga eftir að hækka. Væri það gert, kæmi upp sú staða að tapið á geng- isbreytingum gæti tvöfaldast. Það er stjórn Fiskveiðasjóðs sem tekur ákvarðanir í þessum efnum hveiju sinni, og mun það nú vera til um- fjöllunar innan stjórnarinnar að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.