Morgunblaðið - 28.04.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1993
21
Sjö ár liðin frá Tsjernobyl-slysinu
Hroðaverk í Bosníu
BRESKUR hermaður gengur að húsi sem stendur í ljósum logum í bænum Pocurica í Mið-Bosníu. Húsið var
í eigu Króata og grunur lék á að múslimar hefðu kveikt í því. Tugir manna hafa beðið bana í átökum
milli Króata og múslima í Mið-Bosníu undanfarna daga.
Talsmaður Khasbúlatovs þingforseta í samtali við Morgunblaðið
Stj órnlagaáform Jeltsíns
ættu við í bananalýðveldi
KONSTANTÍN Zlobín, talsmaður Rúslans Khasbúlatovs, forseta rúss-
neska þingsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að áform Bo-
rísar Jeltsíns, Rússlandsforseta, um að koma á nýrri stjórnarskrá ættu
betur við í bananalýðveldi, en í Rússlandi, sem hefði að markmiði að
verða lýðræðisríki.
Zlobín sagði úrslit þjóðaratkvæða-
greiðslunnar um helgina jafngilda
jafntefli. Annars vegar hefði Jeltsín
forseti hlotið yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða, sem gerði honum kleift að
stjórna landinu, en hins vegar hefði
ekki nægilegur meirihluti krafist
þess að kosið yrði til fulltrúaþingsins
á ný. „Yfirlýsingar Jeltsíns og að-
stoðarmanna hans benda til að for-
setinn ætli að reyna að knýja nýja
stjórnarskrá í gegn. Samkvæmt þeim
fregnum sem við höfum af þeim
áformum þá ættu þau betur við i
bananalýðveldi en í Rússlandi, þar
sem verið er að koma á lýðræði,"
sagði Zlobín og bætti við að ef til
þess kæmi myndu fulltrúaþing og
Æðstaráð Rússlands grípa til „sinna
ráða“ til að vernda núgildandi stjórn-
arskrá.
„Ég sé ekki fyrir mér að löggjaf-
arsamkundurnar samþykki áætlanir
Jeltsíns. Lang besta lausnin til að
binda enda á valdabaráttuna væri
hins vegar að efna til sameiginlegra
þing- og forsetakosninga."
Zlobín sagði aðspurður að ef Jelts-
ín myndi reyna að hefta starfsemi
þinganna þá væri það brot á stjórnar-
Reuter
Á þingfundi
Rúslan Khasbúlatov, forseti Æðsta ráðs Rússlands (t.h.), ræðir við
ráðgjafa sinn, Júrí Voronín, á fundi þingsins í gær.
skrá Rússlands, þrátt fyrir stuðning
hans í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
„Það er frekar kyndugt að lýðræðis-
legasti stjórnmálamaður Rússlands
hyggist gerast brotlegur við stjórnar-
skrána," sagði Zlobín.
Samkvæmt opinberum tölum, sem
gefnar voru út í gær, þegar búið var
að telja nánast öll atkvæði, studdu
58,05% þeirra sem greiddu atkvæði
Jeltsín í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Þá sögðust 52,88% vera hlynnt um-
bótastefnu hans.
Einnig var spurt hvort efna bæri
til forsetakosninga annars vegar og
þingkosninga hins vegar áður en
kjörtímabil forseta og þings rennur
út. Sögðust 32,64% allra þeirra sem
eru á kjörskrá vilja forsetakosningar
sem fyrst og 41,40% þingkosningar.
Þá reyndist kjörsókn vera 64,58%.
Reuter
Ennþá stórhættulegt
RÚSSNESK móðir grætur við
leiði sonar síns, slökkviliðsmanns,
sem varð eitt af fyrstu fórn-
arlömbum slyssins í kjarnorku-
verinu í Tsjernobyl í apríl 1986.
Geislamengunin krefst nýrra
fórnarlamba á degi hveijum og
samkvæmt opinberum tölum hef-
ur slysið kostað 8.000 manns lífið.
komin í gegnum tveggja metra þykkt
gólfið í kjarnakljúfnum. Er talið, að
þá hafi krafturinn í henni minnkað
vegna efnahvarfa og vegna þess, að
bræðslumarkið hafí hækkað með
breyttri efnasamsetningu. Segja þeir,
að af þessu megi draga þann mikil-
væga lærdóm, að unnt sé að beijast
gegn bráðnun í kjarnorkuveri með
efnafræðina að vopni.
Mengast jarðvatnið?
Þegar kjarnorkuverið í Tsjernobyl
var reist var gerður 10 km langur
neðanjarðarveggur milli þess og
fljótsins Prípjats og hefur hann sömu
áhrif á jarðvatnið og stífla. Vegna
hans hefur það hækkað um 75 metra
og hækki það enn um 25 metra
mengast það af geislavirkninni með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þá er
einnig hætta á, að sá hluti versins,
sem skemmdist, hrynji og þyrli
geislavirku ryki hátt í loft upp.
Geislamengunin krefst nýrra fórn-
arlamba á degi hverjum og nú er
Vladímír Karasjov, yfirmaður
Tsjernobyl-rannsóknastofunnar,
kominn með skjaldkirtilskrabba.
„Menn veikjast hver um annan þver-
an og stundum furða ég mig á því,
að ég skuli vera á lífi,“ segir Borovoj.
Bylting á bankakortum
Geislamengun-
in miklu meiri
en upplýst var
Kjarnavopn gegn geimvá?
Gígur eftir stóran loftstein í Arizona í Bandaríkjunum, 1,7 km í
þvermál og 170 m á dýpt. Vísindamenn ræða nú hvemig afstýra
megi því að slíkir loftsteinar eða smástirni falli til jarðar og valdi
miklum skaða. Hugmyndir eru um að beita til þess nifteinda- eða
kjarnorkusprengjum.
„Flestir eru sammála um að hægt
er að afstýra hættunni með þeirri
tækni sem við ráðum nú þegar yfir,“
sagði bandaríski vísindamaðurinn
dr. Greg Canavan. Vísindamennirnir
þurfa þó einnig að leita svara við
spurningunni um hvernig þeir geti
fengið stjórnmálamennina til að taka
hættuna alvarlega og verja meira
fjármagni til rannsókna á þessu
sviði. „Ef til vill væri annað Tung-
uska-slys það besta sem gæti komið
fyrir,“ sagði Brian Marsden, sér-
fræðingur í halastjörnum við Har-
vard-háskóla.
Svik minnka
vegna mynda
Edinborg. Reuter.
TILRAUN, sem fólst í því að selja
mynd af handhafa á bankakortið,
hafði þau áhrif í 39 útibúum
Konunglega bankans í Skotlandi,
að útgjöld vegna ávísanasvika
minnkuðu um 99,9%
í útibúunum 39 minnkaði tapið
úr 4,5 milljónum króna í 50.000
kr. og hefur nú verið ákveðið að
taka upp þennan hátt í öllum 800
útibúum Konunglega bankans á
Bretlandi. Áætlað er að svik tengd
bankakortum kosti breska banka
rúmlega 14 milljarða króna á ári
hveiju.
Kfev. Daily Telegraph.
SJÖ ár eru liðin frá Tsjernobyl-slysinu og flest virðist nú benda til,
að geislamengunin, sem það olli, hafi verið miklu meiri en opinber-
lega var skýrt frá.
Alexander Sich, vísindamaður við
Tækniháskólann í Massachusetts,
hefur verið við rannsóknir í Tsjemo-
byl í hálft annað ár og í nýútkom-
inni skýrslu segir hann, að bráðið
kjarnorkueldsneytið hafí kraumað í
10 daga við allt að 2.000 stiga hita
á celsíus. Áætlar hann, að geisla-
mengunin af þessum sökum hafi
verið íjórum sinnum meiri en opin-
berar tölur gáfu til kynna.
Mikilvægur lærdómur
Sich og Alexander Borovoj við
Kúrtsjatov-stofnunina í Moskvu
segja, að bráðnunin hafi stöðvast
eftir tíu daga þegar bráðin hafi verið
Fákskonur
athugiö!
Föstudagskvöldió 30. apríl verður ríðandi í heimsókn
til Gustskvenna.
Mæting við félagsheimilið, Víðivöllum kl. 19.
Kvennadeild.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu
mig með kveöjum og gjöfum á 80 ára afmœli
mínu 15. apríl síðastliöinn.
GuÖ blessi ykkur öll.
Lárus Kr. Jónsson,
Stykkishólmi.