Morgunblaðið - 28.04.1993, Page 26

Morgunblaðið - 28.04.1993, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1993 ■»: *> Utanríkismálanefnd fylgist með viðræðum um landbúnaðarmál MEIRIHLUTI utanríkismálanefndar leggur til að frumvarp til laga um nauðsynlegar breytingar á lögum um aðild íslands að Evrópsku efna- hagssvæði, EES, verði samþykkt. En jafnframt telur meirihlutinn nauð- synlegt að Alþingi fylgist vel með viðræðum um landbúnaðarþátt EES. STUTTAR ÞINGFRETTIR Lög og ályktanir Síðdegis í gær voru þrjú frum- vörp samþykkt og send ríkisstjórn sem lög frá Alþingi. Sljómsýslu- lög. Lög um breytingu á lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breyt- ingum. Lög um brottfall laga nr. 67/1988 um bann gegn viðskipt- um við Suður-Afríku, sbr. lög nr. 30/1990. Á mánudaginn síðasta voru fimm frumvörp samþykkt sem lög frá Alþingi. Lög um heimild til þess að fullgilda Norðurlanda- samning um almannatrygging- ar. Lög um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febr- úar 1940. Lög um breyting á lög- um um ávana- og fíkniefni, nr. 65 25. maí 1974. Lög breyting á lögum um meðferð opinberra mála, nr. 19. 26. mars 1991, með síðari breytingum. Lög um kirkjugarða, greftrun líka og líkbrennslu. í síðustu viku voru tvö frumvörp samþykkt sem lög. Lög leiðsögu skipa og tollalög. Tvær tillögur til þingsályktunar voru samþykkt- ar í sömu viku. Tillaga um fullgild- ingu samnings um fríverslun milli íslands og Færeyja og til- laga um fullgildingu Montreal- bókunarinnar um efni sem valda rýmun ósonlagsins. Breyting á tollalögum Efnahags- og viðskiptanefnd skilaði fyrir nokkru álitum og breytingartillögum við frumvarp um breytingu á tollalögum nr. 55/1987, og lögum nr. 97/1987, um vörugjald með síðarf breyt- ingum. Frumvarp þetta er lagt fram í tengslum við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, EES, og er ætlað að tryggja að álagning gjalda á upprunavörur frá ríkjum EES verði í samræmi við ákvæði samningsins. Efnahags- og viðskiptanefnd klofnaði í áliti sínu. Minnihlutinn segir að stjómarmeirihlutinn hafi kosið að nota þetta tækifæri til að koma á ytri tollum gagnvart iðnað- arframleiðslu frá löndum utan EES. Vörur frá Evrópu lækki í verði á meðan vörur annarsstaðar frá hækki. Hér sé um að ræða pólitíska ákvörðun sem ekki sé krafist í EES-samningnum. Minni- hluta þyki rétt að ríkisstjórnin beri ábyrgð á þeirri pólitísku stefnumót- un sem felist í frumvarpinu og mun sitja hjá við afgreiðslu málsins. . Meirihluti efnahags- og við- skiptanefndar leggur til að frum- varpið verði samþykkt með nokkr- um breytingum sem gerðar eru til- lögur um, m.a. má nefna tillögu um ákvæði til bráðabirgða sem feli í sér að vörugjald af byggingarvör- um falli niður. Einnig má geta um nokkrar breytingar á tollskrá í við- auka I við tollalög s.s. að ráðherra verði heimilt til að taka af öll tví- mæli að lækka almennan ytri toll á þeim vöruflokkum sem samning- urinn um EES tekur til. Einnig er lagt til að bæta við nokkrum toll- skrárnúmerum, m.a. er lagt til að bæta við 4. tölulið tollnúmerum skriðdreka og bifhjóla til þess að gera upptalninguna tæmandi. Útlán og afskriftir ríkisbanka Viðskiptaráðherra hefur svarað skriflega fyrirspum frá Össuri Skarphéðinssyni (A-Rv) um útlán og afskriftir ríkisbankanna á árinu 1992. Fyrirspyijandi óskaði eftir upplýsingum um hvemig útlán og afskriftir skiptust hlutfallslega eft- ir atvinnugreinum og hversu mikill hluti þeirra væri til einstaklinga? Það kemur fram í talnafróðleik viðskiptaráðherra að útlán Lands- bankans og ráðstöfun endurlánaðs erlends iá.iUijár nema samtals 85.624.695 þúsundum króna. Þar af lánaði bankinn til sjávarútvegs- ins 26.318.759 þúsundir króna, eða 30,7%. Til landbúnaðar lánaði bankinn 3.633.545 þús. króna, 4,2%. Til verslunar, þ.e. kaup- manna, olíufélaga og samvinnufé- laga, 15.129.620 þús. króna, 17,7%. Til einstaklinga var lánað 15.236.132 þús. kr„ 17,8% Útlán og ráðstöfun endurlánaðs erlends lánsfjár hjá Búnaðarbank- anum nema samtals 35.839.393 þús. króna. Þar af lánaði bankinn til sjávarútvegsins 3.701.504 þús- und krónur eða 10,3%. Til landbún- aðar lánaði bankinn 3.885.074 þús. krónur, 10,8%. Til verslunar, þ.e. kaupmanna, olíufélaga og sam- vinnufélaga, 7.057.028 þús. króna, 19,7%. Til einstaklinga var lánað 5.450.614 þús. króna, 15,2%. Það kemur einnig fram í svari viðskiptaráðherra að framlag Landsbankans á afskriftarreikning var á síðasta ári 3.856 milljónir króna. Framlag Búnaðarbankans á afskriftarreikning var á síðasta ári 636,5 milljónir króna. En viðskipta- ráðherra gat ekki svarað spurningu um nánari flokkun afskrifta því ekki lægi fyrir sundurliðun á af- skriftum bankanna fyrir árið 1992. Áliti meirihluta utanríkismála- nefndar var dreift í gær um frum- varp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993. Með frumvarpinu er leitað heimilda til að fullgilda bókanir sem gera þurfti við EES-samninginn og fylgisamninga hans, vegna þess að Sviss verður ekki aðili að EES. Meirihluti utanríkismálanefndar er skipaður fulltrúum stuðnings- flokka ríkisstjórnarinnar; Sjálfstæð- isflokks og Alþýðuflokks. Meirihlut- inn leggur til að frumvarpið verði samþykkt. í nefndaráliti er minnt á að Alþingi hafi samþykkt lögin um aðild að EES 12. janúar sl. Þær breytingar sem verði að gera Vegna ákvörðunar Svisslendinga um að gerast ekki aðilar og frumvarpið kveður á um séu fyrst og fremst tæknilegs eðlis fremur en efnislegar. Það kemur fram í nefndarálitinu að við meðferð málsins í nefndinni hefur jafnframt verið Ijallað á nýjan leik um bókun 3 við EES-samning- inn. Sú bókun varðar landbúnaðar- mál og samningaviðræðum um end- anlegan frágang hennar enn ólokið. I nefndarálitinu segir að endingu: „Meirihluti nefndarinnar telur nauð- synlegt að Alþingi fái eins og hingað til nákvæmar upplýsingar um fram- vindu mála í þeim samningaviðræð- um þannig að þingmenn eigi þess kost að taka afstöðu til málsins þar til endanlegar niðurstöður viðræðna liggja fyrir." Tímabundin lögræðis- svipting' verði möguleg Lagt hefur verið fram sljórnarfrumvarp um breytingu á lögræðis- lögum. í frumvarpinu er það nýmæli að heimilt verður að ákveða að lögræðissvipting skuli standa tiltekinn tíma. Þó er gert ráð fyrir að lögræðissvipting verði ekki ákveðin styttri en sex mánuði í senn. um að: „Heimilt verði að ákveða í Um miðjan síðasta mánuð skip- aði dómsmálaráðherra nefnd til að endurskoða lögræðislög. Nefndina skipa Drífa Pálsdóttir, skrifstofu- stjóri í dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu, sem er formaður, Davíð Þór Björgvinssonj dósent við laga- deild Háskóla Islands, og Páll Hreinsson aðstoðarmaður umboðs- manns Alþingis. Hlutverk nefndar- innar er að endurskoða gildandi lögræðislög. Þar sem heildarendur- skoðun mun fyrirsjáanlega taka nokkum tíma var nefndinni falið að semja frumvarp um þær laga- breytingar sem brýnastar voru tald- ar. Og í gær var lagt fram frum- varpið um breytingu á lögræðislög- um, nr. 68/1984. 1. grein frumvarpsins kveður á úrskurði að lögræðissvipting skuli tímabundin. Þó skal ekki ákveða hana styttri en sex mánuði.“ í nú- gildandi lögræðislögum er á því byggt að ,lögræðissvipting, hvort sem það er eingöngu fjárræðissvipt- ing, eingöngu fjárræðisvipting eða hvort tveggja, sé ávallt ótímabund- in. í samræmi við það fá lögræðis- sviptir einstaklingar ekki lögræði aftur nema dómari felli lögræði- sviptingu niður samkvæmt beiðni. I athugasemdum með frumvarp- inu er á það bent að ótímabundin svipting lögræðis feli í sér mjög afdrifaríka skerðingu á grundvall- arrétti fulltíða einstaklings til að ráða sér og málefnum sínum sjálf- ur. Ákvæði um tímabundna svipt- ingu lögræðis sé mildara úrræði en svipting til frambúðar og auki réttaröryggi hins lögræðissvipta. Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að skipa megi félagsmálanefnd sveitarfélags til þess að fara með lögráð manns sem sviptur hefur verið lögráði þegar yfirlögráðandi telur fullreynt að ekki fáist hæfur maður til þess að fara með lögráð hans. í athugasemdum kemur fram að á síðustu misserum hefur það nokkrum sinnum gerst að ekki hef- ur tekist að finna hæfa lögráða- menn fyrir þá sem sviptir hafa ver- ið lögræði sökum geðsjúkdóms, of- drykkju eða misnokunar á ávana- og fíkniefnum. Þar sem engin ákvæði eru í lögræðilögum til þess að taka á slíkum tilvikum er talin brýn nauðsyn til þess að sett verði lagaákvæði til að leysa þennan vanda. Breytingar á yfirstjórn íslandsbanka HÉR FER á eftir fréttatilkynning íslandsbanka um þær breytingar sem gerðár hafa verið á yfirstjórn bankans: „Á fundi sínum í dag, þriðjudag- inn 27. apríl, ákvað bankaráð Is- landsbanka nokkrar breytingar á yfirstjóm bankans. Þessar breyt- ingar eru að mati bankaráðs eðli- legt framhald af samruna bank- anna fjögurra og miða að því að aðlaga bankann að breyttum ytri og innri aðstæðum. Þær munu ennfremur styrkja yfírstjórn bank- ans og einfalda ákvarðanatöku. Eftirfarandi bókun var samþykkt: „Bankastjórn íslandsbanka hf. fer með daglega framkvæmda- stjóm bankans, en í henni sitja bankastjóri, sem er formaður bankastjórnar, og framkvæmda- stjórar. Bankastjóri er ráðinn af banka- ráði og er ábyrgur gagnvart því. Hann gefur bankaráði skýrslu um störf sín. Þá skal ráðinn staðgeng- ill bankastjóra samkvæmt ákvörð- un bankaráðs. Framkvæmdastjórar eru ráðnir af bankaráði að fengnum tillögum bankastjóra og ákveður bankaráð fjölda þeirra. Framkvæmdastjórar eru ábyrgir gagnvart bankaráði og bankastjóra og gefa banka- stjóra skýrslu um störf sín. Bankaráð ákveður laun og önn- ur ráðningarkjör bankastjóra og framkvæmdastjóra og setur þeim erindisbréf. Bankaráð ákveður einnig verkaskiptingu þeirra að fengnum tillögum bankastjómar." í kjölfarið ákvað bankaráð að ráða Val Valsson bankastjóra ís- landsbanka. Hann fer með æðsta framkvæmdavald íslandsbanka- sveitarinnar, þ.e. bankans og dótt- urfélaga. Valur mun jafnframt bera ábyrgð á reikningshaldi og áætlanagerð. Þá var ákveðið að eftirtaldir gegni störfum framkvæmdastjóra við bankann: Ásmundur Stefánsson, sem ber ábyrgð á rekstrardeild og fjárfest- ingarlánum. Björn Bjömsson, sem ber ábyrgð á útibúaþjónustu og markaðsdeild. Hann verður jafnframt staðgengill bankastjóra. Kristján Oddsson, sem ber ábyrgð á starfsmannaþjónustu og tölvu- og upplýsingadeild. Ragnar Önundarson, sem ber ábyrgð á lánaeftirliti og lögfræði- deild. Tryggvi Pálsson, sem ber ábyrgð á alþjóðadeild og fjarstýr- ingu. Þeir sem ráðnir hafa verið í stöðu bankastjóra og fram- kvæmdastjóra hafa allir langa reynslu við störf að bankamálum og atvinnu- og vinnumarkaðsmál- um. Þeir em jafnframt gjörkunn- ugir málum Islandsbanka. Ákvörðun bankaráðs um breyt- ingar á yfirstjórn tekur gildi frá og með deginum í dag.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.