Morgunblaðið - 28.04.1993, Page 29
. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
29
Risi á brauðfótum
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Bíóborgin:
Hoffa
Leikstjóri Danny DeVito.
Handrit David Mamet. Kvik-
myndatökustjóri Stephen H.
Burum. Tónlist David New-
man. Aðalleikendur Jack Nic-
holson, Danny DeVito, Armand
Assante, J.T. Walsh, Robert
Prosky, John P. Ryan, Bruno
Kirby. Bandarísk. 20th Cent-
ury Fox 1992.
Verkalýðsleiðtoginn og mafíós-
inn Jimmy Hoffa setti svo sannar-
lega svip á samtíð sína. í trássi
við yfirvöld og atvinnurekendur
kom hann á laggirnar einum
fyrstu og með tímanum öflugustu
verkalýðssamtökum Bandaríkj-
anna, Sambandi vörubílstjóra og
flutningaverkamanna, Teamst-
ers. En hugsjónamaðurinn var
aðeins ein hliðin á útsmoginni
persónu því gegndarlaus valda-
fíkn og fjárgræðgi urðu þess vald-
andi að Hoffa ofurseldi sig maf-
íunni. Og eftir að hún (að því
best er vitað, og fullyrt hér) að
lokum kom karli fyrir kattarnef
er hans ekki fyrst og fremst
minnst sem byltingarmanns sem
bætti kjör almennings og var í
fylkingarbijósti verkalýðsbarátt-
unnar vestan hafs, heldur glæpa-
manns sem sveifst einskis í valda-
tafli sínu og hefndist fyrir það.
Því mafíutengslin gerðu hann að
risa á brauðfótum.
Sú lýsing á einnig ágætlega
við myndina. Viðfangsefnið er
stórt í sniðum, margir af bestu
kvikmyndagerðarmönnum
Bandaríkjanna standa að baki
hennar og margt afar vel gert. Á
hinn bóginn gengur hún ekki
viðsættanlega upp og skilur lítið
eftir. Áhorfandinn jafnnær um
hvað það var sem knúði Hoffa
áfram. Hugsjónir, bróðurþel, pen-
ingar eða ósvalandi þorsti eftir
völdum. Sjálfsagt þetta allt og
einkum það síðasttalda en það
kemur ekki skýrt fram því hand-
ritshöfundurinn Mamet er of upp-
tekinn við að slétta úr hrukkunum
á kalli. Myndin leitast við að gera
hann að engli sem gleymdi að
bursta í sér tennurnar. Hún er
hæpin söguskoðun og frásögnin
einskorðast við titilpersónuna og
hægri hönd hans, vin og félaga,
sem leikin er af De Vito og er
tilbúinn karakter. Þá er farið afar
hratt yfír sögu þannig að lítið
pláss er fyrir smáatriði, persónur
koma og fara, nánast óútskýrðar.
En Hoffa á engu síður sínar
sterku hliðar. Mörg samtala og
tilsvara Mamets, leikritaskáldsins
góðkunna sem í æ ríkari mæli
er farinn að helga sig kvikmynd-
inni, eru afbragð þó þráðurinn sé
Gervið er gott á Jack Nicholson
í titilhlutverkinu í Hoffa.
upp og ofan. Ekki gefur að líta
betur tekna mynd og auðsætt
hversvegna Burum var valinn
besti kvikmyndatökustjórinn af
starfsbræðrum sínum í fyrra.
Yfírbragð myndarinnar er hrá-
slagalegt, ósjaldan snjókoma,
slabb og sveljandi. Ekkert pláss
fyrir kvenfólk. Þetta andrúmsloft
undirstrikar vel hvaða menn per-
sónumar hafa að geyma og þeir
leika með prýði, Nicholson, De-
Vito og Assante. En lendingin
hefði orðið farsælli ef Mamet
hefði haft rýmri tíma til að fín-
pússa og kafteinn á borð við
Coppola stjórnað skipinu.
Lög’legl en siðlaust
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Siðleysi („Damage"). Sýnd í
Regnboganum. Leikstjóri og
framleiðandi: Louis Malle.
Handrit: David Hare eftir sögu
Josephine Hart. Aðalhlutverk:
Jeremy Irons, Juliette Binoche,
Miranda Richardson, Rupert
Graves, Ian Bannen og Leslie
Caron.
Jeremy Irons er ráðherra
breska Ihaldsflokksins, höfðing-
legur miðaldra maður með glæsi-
legan feril að baki og enn glæst-
ari framtíð á næsta leyti. Miranda
Richardson er eiginkona hans í
erilsömu en dauflegu hjónabandi
stjórnmálamannsins þar sem allt
er löngu fallið í skorður vanans.
Rupert Graves er sonur þeirra,
geðþekkur piltur sem virðist kom-
inn í alvarlegt ástarsamband.
Juliette Binoche er nýja kærastan
hans, gullfalleg frönsk og leynd-
ardómsfull stúlka. Það gæti ekki
verið betra. Heiðarlegt breskt
efrimillistéttarlíf, sem prýtt gæti
hvaða fjölskyldualbúm sem er.
Þar til ástin tekur að blinda.
Þingmaðurinn og nýja kærast-
an smella saman eins og hundar
á lóðaríi, aðeins brennandi lostinn
er heitari en ást þeirra, hvílu-
brögð þeirra eru hömlulaus og
ástríðufull, samfundir þeirra
markast af óseðjandi löngun.
Engan „móra“ hafa þau út af
synininum eða eiginkonunni,
engar áhyggjur hefur hann af
stöðu sinni í samfélaginu ef
spyrst út hann sofi hjá væntan-
legri eiginkonu sonar síns, engar
áhyggjur hafa þau af svikunum
sem þau beita sínum nánustu,
blekkingarvefnum sem þau neyð-
ast til að spinna. Aðeins ástin
kemst að og ástin, þetta óskiljan-
lega kvikindi, er blind.
Hin frábæra bíómynd Siðleysi
eða „Damage“ eftir franska leik-
stjórann Louis Malle er ekkert
síður um þessa blindu en eitthvað
annað og þá hryllilegu atburði
sem hún hefur í för með sér.
Þótt myndin sé að öðru leyti nán-
ast óútreiknanleg er eins og vomi
einhver bölvun yfír henni frá
upphafí því áhorfandinn getur
ekki séð hvemig vel á að fara
eftir að Malle, uppúr bráðgóðu
handriti David Hares, hefur
byggt upp kringumstæðurnar á
sinn fínlega og lágstemmda hátt.
Líkt og ekkert getur hindrað
samdrátt þingmannsins og stúlk-
unnar getur ekkert hindað að
hann skilji eftir sig svöðusár og
óbætanlega eyðileggingu á lífi
allra sem að málinu koma.
Malle, sem bæði er fjölhæfur
og vís leikstjóri, býr hinni
bragðmiklu ástarsögu umgjörð
og frásöguhátt sem er spennandi
og kítlandi í senn og heldur sí-
fellt athyglinni með stigmagnandi
flækju þar til maður situr sem
nelgdur í sætinu í hápunktinum.
Hann veltir upp athyglisverðum
spurningum um framhjáhald, sið-
leysi þess, tilfinningum þátttak-
endanna og tilfinningaleysi gagn-
vart þeim sem eru nákomnir,
sársaukafullum skaðanum sem
það getur valdið og jafnvel heim-
speki framhjáhaldsins sem felst
í orðum Binoche þegar Irons talar
um að gefa heimilislífið frá sér
til að kvænast henni. En þá ertu
komin í sama hjónabandsferlið
og þú ert fastur í núna, segir
hún, og það viltu ekki.
Malle dregur upp í smáatriðum
dramatíkina í kringumstæðunum
hvort sem það er í bersöglislegum
ástarsenum Irons og Binoche eða
ástríðulausum snertingum hjóna-
lífsins. Hann hefur úrvalshóp
leikara til að vinna með. Irons
er hreinasta afbragð sem svikuli
heimilisfaðirinn sem á engan hátt
fær ráðið við örlög sín, hin seið-
andi og dapra fegurð Binoche
svífur yfír myndinni eins og illur
fyrirboði, Miranda er frábær sem
hin grunlausa eiginkona er lifir í
blekkingu og Rupert Graves er
þessi líka sárasaklausi og geð-
þekki kokkálaði sonur. Þú gleym
ir þessu liði ekki í bráð.
___________Brids______________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Islandsmót í parakeppni
íslandsmótið í parakeppni verður
haldið í Sigtúni 9, helgina 8.-9. maí
nk. Spilaður er Barometer, tvö spil á
milli para. Skráning er hafin á skrif-
stofu Bridssambands íslands í síma
91-689360. Síðasti skráningardagur
er miðvikudaginn 5. maí. Keppnisgjald
er 6.500 kr. á parið.
Útboð á sumarbrids 1993
Eins og áður hefur komið fram er
verið að leita eftir tilboðum í sum-
arbrids 1993. Frestur til að skila til-
boðum er til mánudagsins 3. maí nk.
Sumarbrids hefst að loknu vetrar-
starfi félaganna og stendur fram í
byijun september. Nánari upplýsingar
eru á skrifstofu Bridssambands ís-
lands í síma 91-689360.
Bikarkeppnin 1993
Bikarkeppni Bridssambands íslands
fer af stað upp úr miðjum maí. Hún
verður með sama sniði og síðasta ár,
þannig að hver sveit borgar aðeins
eitt keppnisgjald fyrir þær umferðir
sem hún spilár og það greiðist áður
en leikur fer fram. Spilaðir eru 40
spila leikir og sú sveit sem á heima-
leik sér um að koma leiknum á og
taka á móti útisveitinni. Sú sveit sein
vinnur leikinn tilkynnir síðan til BSÍ
hvernig leikurinn fór og hveijir spil-
uðu. Keppnisgjald er 3.000 kr. á um-
ferð og spilað er um gullstig í hverri
umferð. Skráning er á skrifstofu
Bridssambands íslands í síma 91-
689360.
Bridsdeild
Barðstrendingafélagsins
Eftir 2 umferðir í Monrad-sveita-
keppni deildarinnar en staða efstu
sveita eftirfarandi:
Sveit
Guðmundar Samúelssonar 43
Priðgerðar Friðgeirsdóttur 41
Ragnars Björnssonar 37
Björns Björnssonar 35
Þórarins Árnasonar 35
ArnarAmgrimsson-SturlaugurÓIafsson 28
Garðar Garðarsson - Guðný Guðjónsdóttir 28
Mót þetta var jafnframt spilað sem
forgjafarmót og tókst það með ágæt-
um. Þar háðu tvö pör harða keppni
um sigurinn en lokastaðan varð þessi:
Ingimundur Eirikss. - Randver Ragnarsson 278
Gísli Halldórsson - Guðjón Jónasson 256
Guðný Guðjónsdóttir - Garðar Garðarsson 219
Guðjón Jensen - Kjartan Sævarsson 202
Pétur Júlíusson - Eysteinn Eyjólfsson 198
Garðar og Guðný eru þar með verð-
launahafar bæði með og án forgjafar.
Ferðaskrifstofan Samvinnuferð-
ir/Landsýn gaf verðlaunin í þetta mót
og þakkar stjóm félagsins velviljann.
Síðasta mót vetrarins verður 2-3
kvölda vortvímenningur. Spilað er í
Stapanum kiukkan 19.45 á mánu-
dagskvöldum.
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Bræðurnir Tryggvi Tryggvason og
Heimir Tryggvason sigruðu í 24 para
barometer sem nýlega er lokið hjá
deildinni.
Lokastaðan:
Tryggvi - Heimir 194
Kári Siguqónsson - Eysteinn Einarsson 176
Guðlaugur Nielsen - Leifur Kristjánsson 174
Friðjón Margeirsson - V aldimar Sveinsson 83
Jóngeir Hlynason - Gunnar Birgisson 61
í kvöld, miðvikudagskvöld, verður
spilaður eins kvölds tvímenningur.
Spilað er í Skeifunni 17 kl. 19.30.
Bridsdeild Sjálfsbjargar
Nýlega lauk vortvímenningi félags-
ins. Átján pör spiluðu í tveimur riðlum
og urðu úrslit þessi:
Norður/suður-riðill.
Páll Vermundsson - Þorvaldur Axelsson 802
Karl Karlsson - Sigurður Rúnar Steingrimss. 789
SigurðurBjömsson-SævarHauksson 711
Sigurrós Siguijónsdóttir- Gunnar Guðmundsson -
Rafn Benediktsson 700
Austur/vestur-riðill.
JónEgilsson-GunnarHrafnsson 757
RúnarHauksson-GuðjónJónsson 734
Halldór Aðalsteinsson - Kristján Albertsson 715
Rut Pálsdóttir - Guðmundur Þorbjömsson 711
Einmenningskeppni hófst 19. apríl og
eru 32 þátttakendur.
Bridsfélag Suðurnesja
Guðný Guðjónsdóttir og Garðar
Garðarsson sigruðu í Samvinnu-
ferða/Landsýn-mótinu sem lauk sl.
mánudagskvöld. Þetta var ijögurra
kvölda meistaratvímenningur félags-
ins, barometer, þar sem spiluð voru 5
spil milli para.
Lokastaðan:
Guðný-Garðar 74
Pétur Júlíusson - Eysteinn Eyjólfsson 66
Gísli Torfason - Jóhannes Sigurðsson
- Logi Þormóðsson 64
Karl Karlsson - Karl Einarsson 61
Gunnar Guðbjömsson - Stefán Jónsson 40
Gísli R. ísleifss. - Guðmundur Siguijónss. 24
Hæstu skor síðasta spilakvöld fengu
eftirtalin pör:
GunnarGuðbjömsson-StefánJónsson 40
IngimundurÉiriksson-RandverRagnarsson 34
HARÐVIÐARVAL
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
Paraklúbburinn
Þriðjudaginn 20. apríl var spilað
þriðja og síðasta kvöld Hraðsveita-
keppninnar. Sigurvegari varð sv. Guð-
rúnar Jóhannsdóttir. Spilarar í sveit-
inni voru ásamt fyrirliðanum, Jón H.
Elíasson, Erla Siguijónsdóttir og
Sveinn R. Eiríksson. Lokastaðan varð
annars þessi:
Sveit
Guðrúnar Jóhannsdóttir 1390
Ólafar Jónsdóttur 1357
Berglindar Oddgeirsdóttur 1342
Dúu Ólafsdóttur 1316
Gunnlaugar og Helgu 1312
Þann 1. maí verður aðalfundur
klúbbsins haldinn á Hótel Borg og
hefst hann stundvíslega kl. 18.
lÓPFERÐU
1ÖFUM GÆÐA HÓPBIFREIÐA
FRÁ12 TIL65 FARÞEGA
1EITIÐ UPPLÝSINGA
HOPFERÐAMIÐSTC
.................—-7
Bíldshöfða 2a,
sími 685055, Fax 674969
WtÆKMÞAUGL ÝSINGAR
ÝMISLEGT TIL SÖLU BÁTAR-SKIP
Sumarhús óskast Starfsmannafélag óskar eftir sumarhúsi til leigu í júlí og ágúst. Húsið þarf að vera á Suður- eða Suðausturlandi. Örugg greiðsla fyrir gott hús. Tilboð sendist til auglýsingadeildar Mbl. í síðasta lagi fyrir 7. maí, merkt: „Sumarhús - 531 Til sölu Til sölu eru eignir þrotabús Sess hf., Faxa- feni 9, Reykjavík. Um er að ræða ný og not- uð skrifstofuhúsgögn m.a. skrifborð, stólar, fundaborð o.fl. Eignir þrotabúsins verða til sýnis og sölu í Faxafeni 9, Reykjavík (hús- gagnaverslunin Sess) 28.-29. apríl nk. Sigurður G. Guðjónsson hrl., skiptastjóri, Suðurlandsbraut 4A, Reykjavík. Til sölu Sómi-600, vél Volvo Penta 130 HP, vel búinn bátur. 5,6 tonna plastbátur (Selfabot), mjög vel útbúinn bátur, góð kjör. KVÓTASALA - KVÓTALEIGA Skipasalan Bátar og búnaður, sími 622554, sölum. heima 78116.