Morgunblaðið - 28.04.1993, Side 30

Morgunblaðið - 28.04.1993, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993 Hafstemn Knstms- son - Minning Fæddur 11. ágúst 1933 Dáinn 18. apríl 1993 Hafsteinn Kristinsson var einn þeirra athafnamanna sem kunni ekki annað en að hugsa stórt og framkvæma í takt við það eins og tækifærið bauð upp á. Hafsteinn var sérstæður maður, víðlesinn, at- hugull og áræðinn og það voru hlunnindi að hitta hann, skiptast á skoðunum við hann og heyra álit hans sem byggðist oft á því að hann kom að málum á nokkuð ann- an hátt en almennt gerðist. Gaman- semi hans var einnig sérstök, því glaðlyndi var honum í blóð borið og maðurinn laus við allar tegundir af hégóma. Mikilsvirts samtíðarmanns er sárt saknað, svo langt fyrir aldur fram sem kallið kom, manns sem hafði mikinn metnað fyrir íslands hönd, hvort sem það var á sviði félagsmála eða atvinnumála og Hveragerði var reiturinn sem hann lagði sérstaka rækt við. Hafsteinn Kristinsson var maður mikilla sæva og þannig verður hann leiðarljós þeim sem nutu þess að kynnast honum og hinum miklu mannkostum hans. Hann var -»traustur málsvari Sjálfstæðis- flokksins, sannur og samfcvæmur sjálfum sér, sanngjarn og skilnings- ríkur maður sem vildi öllum vel og naut virðingar óháð öllum hvers- dagslegum fordómum. Honum eru þökkuð sérstaklega störf og liðsinni við stefnu sjálfstæðismana og fram- gangur góðra mála til allra átta. Megi góður Guð varðveita eftir- lifandi vini og vandamenn í mikilli sorg, megi minningin um fánabera mannlegrar reisnar, athafna og Jk áræðis, létta sorgina og auðvelda leiðina að birtu framtíðarinnar. Arni Johnsen. Vinur minn Hafsteinn Kristins- son er látinn. Fyrirvaralaust og óvænt hefur hann verið hrifinn burt úr þessum heimi, dáinn inn í vorið sem hann, rétt þegar kallið kom, var að búa sig undir að lifa. Það er svo bágt að trúa því að þessi trausti og sterki maður sé látinn, í mínum huga var það bjargfast að hann Hafsteinn gæti ekki dáið. En sá sem öllu ræður hefur ákveðið að nú hafí stundin verið uppi og fyrir því liggja sjálf- sagt einhver rök hjá almættinu að kalla hann á braut þó við meðbræð- ur Hafsteins og vinir eigum erfitt með að skilja og sætta okkur við þann ráðahag. Hafsteinn Kristinsson var fædd- ur á Selfossi fyrir hartnær sextíu árum, sonur þeirra vildishjóna Kristins Vigfússonar, húsasmíða- meistara á Selfossi um langan ald- ur, og Aldísar Guðmundsdóttur frá Litlu-Sanvík í Flóa. Hafsteinn ólst upp í þessum bæ þar sem landið er flatt, en óx fljótt allmjög upp úr flatanum og varð með hærri mönnum. Á þrítugsaldri sigldi Haf- steinn til náms í Danmörku og á löngu liðinni tíð hitti ég Hafstein fyrst á varinhellu frókoststofu Landbúnaðarháskólans í Kaup- mannahöfn þar sem við báðir vorum þá að hefja nám, Hafsteinn í mjólk- urfræði og við fórum inn í matstof- una og skáluðum í mjólk. Og þó á þeim dýrðardögum í Höfn við nám og leik hafí ekki alltaf veirð mjólk á borðum var starf Hafsteins alla tíð tengt þeirri vöru. Að námi loknu hóf Hafsteinn fljótlega störf hjá Osta- og smjörsölunni sf. og stofn- setti þar rannsóknastofu og mótaði þar gæðamat á þeim mjólkurvörum er fyrirtækið hafði til sölu. Seinna varð Hafsteinn um tíma ráðunautur + Faðir okkar, BJÖRN GUÐMUNDSSON, kaupmaður í versluninni Brynju, Hverfisgötu 46, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 29. apríl kl. 13.30. Anna Margrét Björnsdóttir, Brynjóifur Björnsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG ÞÓRÓLFSDÓTTIR, Blönduhlíð 4, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 30. apríl' kl. 13.30. Ólafur Ingvarsson, Þórólfur Ólafsson, Sigrún Aðalbjarnardóttir, Ingvar Ólafsson, Björg Benediktsdóttir, Brynhildur Ólafsdóttir, Þór Ottesen, barnabörn og barnabarnabörn. Adalfundur Rauðakrossdeildar Kópavogs verður haldinn í borðsal Sunnuhlíðar fimmtudaginn 29. apríl 1993 kl. 20.30. Dagskrá: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf og önnur mál. 2. Þór Halldórsson, yfirlæknir, flytur erindi um heilsugæslu aldraðra. Fundarseta er öllum heimil. Stjórnin. Rauðakrossdeild Kópavogs í mjólkurfræðum hjá Búnaðarfélagi íslands og vann á þeim vettvangi hið merkasta starf. En gömul hugmynd sem Haf- steinn hafði oft rætt um á námsár- unum varð í höndum hans að veru- leika. Hann reisti lítið ostabú þar sem hann fór að gera ýmsa sér- osta, osta sem ekki höfðu verið á borðum á íslandi nema þegar ein- hver kom heim úr útlöndum. Með þessari frumraun í gerð osta var Islendingum komið á ostabragðið og þegar Hafsteinn hætti ostagerð sinni tóku önnur samlög við og héldu því merki hátt sem hann hafði hafið á loft. En þannig var það, einn góðan veðurdag hætti Haf- steinn að framleiða ost og sagði nú er sól og nú skal ég selja ykkur ís. Og síðan þann dag hefur Haf- steinn rekið ísgerðina Kjörís við mikinn og góðan orðstír og vinsæld- ir: Æviferil Hafsteins ætla ég ekki að rekja mikið frekar, veit að hann starfaði mikið að margvíslegum félagsmálum bæði fyrir sína heima- byggð og fyrir landsmenn alla. Það urðu mér og fjölskyldu minni miklar sorgarfréttir að heyra að svo snöggur endir væri bundinn á líf þessa mæta manns, Hafsteins Kristinssonar, en við breytum ekki þeim dómi sem hver og einn verður að hlíta, en við viljum, þó með fá- tæklegum orðum sé, þakka þér, Hafsteinn, samfylgdina og þær gleði- og ánægjustundir sem við höfum átt saman á þessari jörð. Laufeyju, bömum ykkar og öðrum ástvinum sendum við ástarkveðjur og biðjum Drottin að hugga ykkur í sorginni á dögum komandi. Jóhannes Sigvaldason. Sumir kveðja og síðan ekki söguna meir. - Aðrir með söng, er aldrei deyr. (Þ.V.) Á sorgarstundu eru minningarn- ar dýrmætasta eignin. Minningar mínar um Hafstein Kristinsson eru hlýjar og gleðiríkar. Hann var einn uppáhalds frændinn minn, við vor- um systkinabörn og ég 20 árum yngri. Þar sem ég missti foreldra mína á unglingsárum fann Hafsteinn þörf fyrir að fræða mig um liðna atburði enda hafði hann ríka frá- sagnargáfu. Hann vissi hvað var mikilvæg- ast. Það er oft „ósýnilegt augunum, en maður fínnur það með hjart-' anu“, eins og segir í bókinni Litli prinsinn eftir Antoine De Saint- Exupéry. Hafsteinn gekk að eiga Laufeyju S. Valdimarsdóttur árið 1963. Þau voru mjög samrýnd og elskuleg hjón sem báru mikla virðingu hvort fyrir öðru. Á heimili þeirra var gott að koma. Þau eignuðust alls fimm börn en urðu fyrir þeirri sorg að missa fyrsta barnið sitt nýfætt. Bömin fjögur eru mannkostafólk og barnabörnin fjögur sannir gleði- gjafar. Ég ætla ekki að rekja æviágrip Hafsteins heldur þakka þá uppörv- un og umhyggju sem hann og Lauf- ey veittu mér, sérstaklega á ung- lingsárum mínum og reyndar ætíð síðan. Fyrsta veturinn minn í MA hafði ég vanrækt efnafræðina, mér fannst hún hundleiðinleg og vildi ekkert með hana hafa. Hafsteinn komst á snoðir um vanda minn. „Komdu, ég reikna með þér dæmin, ég hef bara gaman af því.“ Saman reiknuðum við dæmin og ég náði ágætisárangri sem ég þakkaði hon- um. Þannig var Hafsteinn alltaf reiðubúinn að hjálpa ef þörf var á. Það eru aðeins þijár vikur síðan ég hitti Hafstein síðast. Það var á gleðistundu því að Guðrún og Jói voru að gifta sig. Það var stoltur faðir sem leiddi dóttur sína upp að altarinu í Hveragerðiskirkju. Hafsteinn var hár maður vexti og höfðinglegur. Hann var léttur í lund, barngóður og veglyndur mað- ur og samferðamenn hans fengu að njóta þess. Ég hefði kosið að samverustund- irnar yrðu fleiri. En þær góðu stundir sem ég átti með honum eru nú sem dýrmætar perlur. Ég óska mínum kæra frænda guðs blessunar í nýjum heimkynnum. Élsku Laufey og fjölskylda, ég + GUÐRÚN ALDA SIGMUNDSDÓTTIR, Hjallavegi 42, Reykjavík, sem lést 20. apríl sl., verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn 29. apríl kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeir, sem vildu minnast hennar, eru beðnir að láta líknarfélög njóta þess. Sigmundur Örn Arngrímsson, Vilborg Þórarinsdóttir, Baldur Már Arngrímsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Haraldur Arngrímsson, Dóra Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ÍDU G. ÞORGEIRSDÓTTUR, Laxárbakka. Árni Gislason, Gísli Árnason, Inga Árnadóttir, Stefán Tryggvason, Jóhanna Þóroddsdóttir, Tryggvi S. Stefánsson, Arni S. Stefánsson, Þórir S. Stefánsson. Lokað Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keld- um verður lokuð eftir hádegi í dag, miðvikudag, vegna jarðarfarar JÓNS GUÐMUNDSSONAR. Forstöðumaður. sendi ykkur mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Sigríður Haraldsdóttir. Drottinn allsherjar tók hann frá okkur vinum hans — óvænt. Það er erfítt að sætta sig við það, að Hafsteinn sé horfínn — farinn. Enn- þá átti hann eftir að skila miklu af lífshlutverki sínu. Hann var einn þeirra manna, sem sífellt eru að koma góðu til leiðar. Það er sárt að missa slíka menn, ekki hvað sízt þegar allt fer harðnandi í mannlegu félagi og meiri og meiri óvissa ríkir í samskiptum manna. Hafsteinn Kristinsson var mátt- arstólpi í kaupstaðnum Hveragerði, gaf staðnum sjálfsvirðingu. Hann var ákveðinn persónuleiki sem haggaðist ekki á hverju sem gekk. Gæddur var hann frekjulausri reisn eins og enskur fyrirmaður með ræktaða skaphöfn. Ógleymanleg er framkoma hans á stórafmæli Hveragerðis 1986 sem haldið var upp á með hátíðarhöldum í íþrótta- höll staðarins. Ræða hans setti tign- arblæ á samkomuna. Það var glaða- sólskin og heitt í veðri og bjart yfir öllu eins og alltaf í kringum Haf- stein. Að heilsa upp á Hafstein á kontór hans í Kjörís var heilsusam- legt. Þar ríkti jákvætt viðmót og framkvæmdastemmning. Um margt var spjallað, meðal annars gamal-sunnlenska sálfræði sem móðir undirskráðs og faðir hins látna voru gædd í ríkum mæli. Á útmánuðum 1978 og þá um vorið var hart í ári hjá atvinnulistmálara en Hafsteinn tók þá upp á því að bjóða kúnstmálaranum er þá hafð- ist við í Olfusborgum vinnuaðstöðu á loftinu fyrir ofan ísgerðina. Þar var málað og málað og notið góðs anda sem ríkti alltaf í kringum Hafstein vin vorn. Hafsteinn var dæmigerður íhaldsmaður af gamla skólanum, dugnaðarforkur, einka- framtaksmaður, gæddur meiri sjálfsvirðingu en gengur og gerist, enda alizt upp við vinnusiðgæði í foreldrahúsum. Hann var sonur hjónanna Kristins Vigfússonar, húsasmíðameistara frá Eyrar- bakka, sem hafði um skeið í ofaná- lag verið formaður á bát, hörkudug- legur maður eins og synir hans Hafsteinn heitinn forstjóri, Guð- mundur bankamaður og Sigfús byggingameistari. Móðir þeirra var Aldís Guðmundsdóttir frá Litlu- Sandvík, glæsileg sunnlensk donna. Hafsteinn var vel menntaður í sinni grein frá Landbúnaðarháskóla Kaupmannahafnar, auk þess sem hann hafði stundað framhaldsnám við Landbúnaðarháskólann í Ási í Noregi. Fluttist til Hveragerðis 1966, hóf þar rekstur ostagerðar sem hann ’68 breytti í ísgerð Kjör- ís hf. Hafsteinn var pólitískur maður, sýndi ekkert undandrag í stefnu sjálfstæðismanna, fyrirleit af hjarta vinstri öflin í landinu sem hann taldi réttilega spilla og valda bölvun á alla lund. Hann var aristókrat út í fingurgóma, setti fyrir- mennskublæ á allt sem hann kom nálægt ekki hvað sízt Hveragerði, þann þjóðfræga stað, sem býður upp á ótrúlega möguleika fyrir hug- kvæma menn eins og Hafsteinn var. Þegar Jón hótelstjóri á Örkinni sagði þeim, er þetta skrifar, lát Hafsteins, sortnaði yfír öllu. Ein- mitt þennan dag þá um morguninn hafði verið ákveðið að heilsa upp á Hafstein. Var haldið af stað, en á miðri leið þangað var hætt við allt og snúið við til baka, að öllum lík- indum um svipað leyti og dauða hans bar að. Og nú er ekki lengur hægt að hitta Hafstein, blanda geði við hann eins og gegnum tíðina allar götur frá því 1978, en þá varð lífíð allt í einu léttara vegna þeirrar stál- heppni að kynnast Hafsteini og fleira réttsýnu jákvæðu fólki þar undir Kambabrún, í þessari vin, þar sem vatnið er heitara en víða 'ann- arsstaðar, vatnið, sem sprettur upp úr iðrum jarðar jafnt og þétt og gefur orku framkvæmda og stór- hugs, sem maður eins og Hafsteinn var gæddur. _ p.t. Hótel Örk, Hvg. Steingrímur St. Th. Sigurðsson. i r i i i i i i i i i i i i i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.