Morgunblaðið - 28.04.1993, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
fclk í
fréttum
HðPUR ‘93
Kl. 13.15
Setning ráöstefnunnor
Gunnar Birgisson, formaður bæjarróðs,
flytur óvarp og setur ráðstefnuna
Nýir straumar - ný tsekifæri
Ráðstefna um atvinnumál í Kópavogi
Miðvikudaginn 28. april
Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2, 1. hœ&
I. 15.30
Bætt gæði, aukin verðmæti
Magnús Pálsson, framkvæmdastjóri
þjóðarsóknar í gæðamálum
George Best, Maria Shatal og Layla
Shatal á innfelldu myndinni.
BEST
Baríst um barnið
Knattspymustórlaxinn fyrr-
verandi George Best hefur
nú helgað alla krafta sína baráttu
sambýliskonu sinnar fyrir því að
endurheimta 9 ára dóttur sína,
en þar er á ferðinni erfitt forræð-
ismál.
Sambýliskonan er líbönsk og
heitir Maria Shatal, en hún var
áður gift þarlendum auðkýfingi
að nafni Mohamad Shatila. Þau
bjuggu í Beirut uns dóttirin, La-
yla, var þriggja ára, en þá gafst
Maria upp á hjónabandinu og
Beirut þar sem allt logaði í víga-
ferlum og öðrum hryðjuverkum.
Flutti hún til Lundúna og þar bar
fundum hennar saman við norður-
írska knattspyrnusnillinginn.
Hófu þau búskap, en Layla heim-
sótti föður sinn af og til. Stundum
var Maria meira að segja í förum
með henni.
Nú eru fimm ár síðan þau
Maria og Best fylgdu Laylu á
Heathrowflugvöll til að senda
barnið í heimsókn til föður síns.
Þau hafa ekki séð barnið síðan
né heyrt af því. Bæði Maria og
Best segja að ítrekað hafi verið
reynt að hafa uppi á feðginunum,
en án árangurs.
Blaðamaður einn í Bretlandi
stóð sig betur og hafði upp á
Mohameð og heyrði þá allt aðra
hlið á málinu. Faðirinn sagði þá
sögu að þegar hann hafi síðast
tekið á móti dóttur sinni hafi fylgt
beiðni móður hennar að sjá um
barnið um óákveðinn tíma. Það
væri vilji Mariu og hann hefði
aldrei verið í felum. Móðirin hefði
getað haft samband og hitt dóttur
sína hvenær sem hana lysti. Þetta
segja þau Maria og Best vera fjar-
stæðu og haugalygi og ekki vita
á gott um framhaldið.
Morgunblaðið/Kristinn
„Ég frétti af keppninni þremur
dögum áður en hún fór fram,“
segir rokkkóngurinn Héðinn
Valdimarsson.
— Og hvað gerðist þá?
„Ég hummaði mig bara í gegnum
þetta einhvern veginn."
— Þannig að það hefur kannski
komið þér á óvart að hafa unnið?
„Já, ég kom satt að segja ekki
þangað til þess. Ég fékk þær upplýs-
ingar að það ætti að líkjast Presley
og það var það sem ég reyndi.“
— Ertu mikill Presley-aðdáandi,
átt kannski allar plöturnar hans?
„Nei, ég á nú ekki allar.“
— Hvar fékkstu fötin?
„Ég átti hvítan smóking og mundi
eftir því að ég hafði séð Presley ein-
hvern tímann í hvítum fötum. Það
vantaði bara glimmerið, en konan
mín bjargaði því og síðan fór ég
með smókinginn til saumakvenna,
sem löguðu kragann og víkkuðu
buxurnar. Ég leitaði mikið að gler-
augunum, fór nánast í allar gler-
augnaverslanir í bænum en fann
ekkert. Svo fór ég á útsölumarkað-
inn uppi á Bíldshöfða og fann þar
þessi fínu gleraugu á 590 krónur.
Hringa og annað glingur fékk ég
lánað auk hárkollunnar.
Það er nú svolítið fyndið, að ég
var með mikið sítt hár, en það eru
Þorsteinn Eggertsson lagahöf-
undur stytti fólki stundir með
söng meðan beðið var eftir úrslit-
um. Hér sjást þeir Ómar Ragn-
arsson, sem var Elli prestsins,
og Þorsteinn.
Morgunblaðið/Kristinn
SKEMMTUN
Héðinn Valdimarsson, 38 ára
gamall leigubílstjóri, er hinn
óumdeilanlegi Elvis Presley íslands,
samkvæmt niðurstöðum fímm
manna dómnefndar, sem sat að
störfum á Tveimur vinum að kvöldi
sumardagsins fyrsta. Fimmtán El-
visar frá hinum ýmsu tímaskeiðum
komu fram og var klæðnaður þeirra
í samræmi við þau. Héðinn var í
hvítum, skreyttum fötum með háum
kraga. „Ég er með bijósklos og sá
það eftir á á myndbandinu, að líkleg-
ast hefur það verið undir lok ævi
Presleys sem ég líktist honum mest,“
sagði Héðinn hlæjandi um leið og
hann gerir grín að sjálfum sér.
Þrátt fyrir að hafa náð þessum
árangri segist hann hvorki syngja
lög rokkkóngsins fyrir farþega né
aðra, hann syngi lögin hans bara í
baði. „Ég frétti af keppninni þremur
dögum áður en hún fór fram og
ákvað að skrá mig. Undirbúningur-
inn fór aðallega í að finna föt og
gleraugu. Ég ætlaði reyndar að fá
myndband af Elvis á tónleikum en
fann ekkert, þannig að ég varð að
treysta á minnið.
Eg stóð lengi framan af í þeirri
meiningu að ég ætti að syngja eitt
lag og hafði valið „Can’t help falling
in love“. Þegar ég fór að grennslast
fyrir um hvernig keppnin ætti að
fara fram — aðeins nokkrum klukku-
stundum áður — komst ég að því
að ég átti að syngja tvö lög en ekki
eitt. Ég ákvað því að fara niður á
Tvo vini og prófa að syngja í þeirra
karaoke. Það gekk ágætléga og ég
gat stuðst við textann á skjánum. I
keppninni var hins vegar komin
mynd af sviðinu á bak við textann,
þannig að ég sá hann ekki.“
„Ég var með sítt hár, en það eru
ekki nema nokkrir dagar síðan
ég snoðaði mig,“ segir leigubíl-
stjórinn Héðinn Valdimarsson.
ekki nema nokkrir dagar síðan ég
snoðaði mig.“
Fékk samfesting frá
Graceland í verðlaun
Héðinn hlaut í verðlaun bláan
glimmersamfesting með breiðu belti
og keðjum, sem var sérpantaður frá
Graceland í Bandaríkjunum. Hann
reyndist of lítill og rifnaði þegar
hann mátaði hann.
— Þú treður á ekki upp í honum?
„Nei, ef það verður þá nokkuð
úr því. Ég á reyndar nokkuð öflugar
karaoke-græjur, 2000 watta, sem
ég ferðaðist með um landið í fyrra-
sumar og leigði út, hélt heilu böllin,
var með diskótek og leyfði fólki að
syngja. Það er aldrei að vita hvað
verður í sumar.“
Á þriðja hundrað manns sóttu
Elviskeppnina. Kynnar voru Radíus-
bræðumir Steinn Ármann og Davíð
Þór, að sjálfsögðu í Elvisbúningum.
Einnig þandi Bjarni Arason Elvislög
við hrifningu allra og var klappaður
upp og Ómar Ragnarsson kom fram
sem Elli prestsins. Þá sýndu Jói
Bachmann og Rósa rokkdans í anda
Elvis.
Elvis íslands fundinn
Kl. 13.30
Nýir möguleikar í fjórmagnsstýringu
fyrirtækja
Tryggvi Pólsson, bankastjóri Islandsbanko
Kl. 13.50
Utflutningur vöru og verkefna
Póll Gíslason, framkvæmdastjóri lcecon
Kl. 14.10
Aðlögun fyrirtækja að nýjum aðstæðum
Reynir Kristinsson, rekstrarróðgjofi hjó Hagvangi
Kl. 14.30
Aðgangur íslendinga að rannsóknum
og þróun innan EB
Dr. Þorsteinn Gunnarsson, deildarsérfræðingur
í menntamólaróðuneytinu
Kl. 15.50
Hvernig geta sveitarfélög unnið betur að
atvinnumólum?
Sigurður Geirdal, bæjorstjóri
Kl. 16.10
Skólar og nýsköpun í atvinnumólum §
Heimir Pólsson, formaður skólanefnda M.K. *
og Hótel- og veitingaskóla Íslands
Kl. 16.30
Mikitvægi upplýsingasöfnunar i atvinnuþróun
Jón Erlendsson, yfirverkfræðingur upplýsingaþjónustu
Hóskóla Islands
Kl. 17.00
Rúðstefnunni slitið
Sveinn Hjörtur Hjurtorson, hagfræðingur UU
COSPER
Borgaðirðu 3.000 krónur fyrir þennan bol? Það væri nær
að þér væru borgaðar 3.000 krónur fyrir að ganga í honum.
Róðstefnugjald kr. 2.000. Þótttaka tilkynnist í síma 641015 milli kl. 13 og 16.