Morgunblaðið - 28.04.1993, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1993
35
BARÞJÓNAMÓT
„Gullið Tár“ lenti í fyrsta sæti
Bárður Guðlaugsson barþjónn í
Perlunni sigraði á íslands-
meistaramóti barþjóna sem haldið
var á Hótel Sögu á sunnudaginn,
en verðlaunadrykkur hans heitir
„Gullið tár“. Alls kepptu 32 bar-
þjónar í gerð fordrykkja á íslands-
meistaramótinu að þessu sinni, og
lenti Guðmundur Sigtryggsson á
Café Amsterdam í öðru sæti, og
í þriðja sæti á mótinu lenti Vilhelm
Norðfjörð á Gauki á Stöng.
Bárður Guðlaugsson hefur
starfað sem barþjónn síðan 1982
og er þetta í þnðja skipti sem
hann tekur þátt í íslandsmeistara-
mótinu, en hann lenti í öðru sæti
á mótinu í fyrra. Bárður mun taka
þátt í Heimsmeistaramóti bar-
þjóna sem haldið verður í Vín í
Austurríki í nóvember næstkom-
andi, en ásamt honum taka þátt
í mótinu þau Margrét Gunnars-
dóttir og Þorkell Ericsson sem
sigruðu á íslandsmeistaramóti
barþjóna 1991 og 1992.
Sérstök verðlaun ungra bar-
þjóna hlaut að þessu sinni Ólafía
Hreiðarsdóttir, og mun hún keppa
á Heimsmóti ungra barþjóna, sem
haldið verður í Búdapest í júlí.
„Gullið tár“
Hér á eftir fer uppskriftin að
Gamlar kempur heiðraðar
Heiðursfélagar Barþjónaklúbbs Islands fengu sérstaka viðurkenn-
ingu, en þeir voru einir stofnenda klúbbsins sem mættu á íslands-
meistaramótið að þessu sinni. Á myndinn eru talið frá vinstri: Hörð-
ur Sigurjónsson, formaður Barþjónaklúbbs íslands, Bjarni Guðjóns-
son Loftleiðum, Daníel Stefánsson Sögu og Símon Siguijónsson
Naustinu.
íslandsmeistarinn
krýndur
Hörður Sigurjónsson formaður
Barþjónaklúbbs íslands krýnir
Bárð Guðlaugsson sigurvegara á
íslandsmeistaramóti barþjóna
1993.
Litadýrð
Drykkirnir í keppninni voru í
öllum regnbogans litum.
fordrykknum sem færði Bárði
Guðlaugssyni íslandsmeistaratitil-
inn í ár:
4 cl Absolut sítrónuvodka
1 cl Dry Martini
1 cl Bols Gold líkjör
Drykkurinn er lagaður í hræri-
glasi og yfír það kreist 1 stk.
dvergappelsína. Síðan er skreytt
með dvergappelsínu og sítrónu-
berki ásamt laufi af sítrónumelisu.
SAMDRATTUR
MÍSS'8. fj$,£ru
Julia Roberts komin í hring
Fregnir herma að leikkonan
Julia Roberts sé nú komin f
hring í karlamálum sínum og nýj-
asta ástin í lífi hennar sé ekki svo
ný af nálinni eftir allt saman.
Nefnilega leikarinn Kiefer Suther-
land, en frægt var í Hollywood
um árið er Roberts lét sig hverfa
nokkrum dögum áður, en hún átti
að giftast umræddum Kiefer. Og
ekki nóg með það, heldur tók hún
saman við besta vin Kiefers, Jason
Patric, en það samband er raunar
löngu gengið sér til húðar.
Endurtekið samband þeirra fór
leynt framan af, en einn góðan
veðurdag kenndi Kiefer sér meins
í maga og var lagður inn á sjúkra-
hús til rannsókna. Árvökulir
sjúkraliðar létu það ekki fram hjá
sér fara að hann tilgreindi Juliu
Roberts sem nánasta aðstand-
anda. Samkrullinu var þar með
slegið upp í blöðum og er Kiefer
var útskrifaður var það engin önn-
ur en Julia sem tók á móti honum
í anddyri spítalans. Þau vippuðu
sér inn í leigubíl sem ók þeim á
lítið, nett og rokdýrt strandhótel
þar sem þau eyddu saman íjórum
dögum. Sögðu kaldrifjaðar tungur
að þar hefðu verið hveitibrauðs-
dagarnir sem stóðu fyrir dyrum
um árið. Það hefur ekki spurst
hvemig málin standa á milli þeirra
Kiefers Sutherland og Jasons
Patric.
LADDI & VINIR
imasnn^
pegar aorir fara ao «ofc
pantanir í síma 91 -29900
-lofar góðu!
Julia Roberts virðist hafa kom-
ist að því að Kiefer var sá rétti
eftir allt.
BARATTA
Whitney gildnar ört
Vinir og velunnarar
söngfuglsins Whitn-
ey Houston hafa af því
stórar áhyggjur þessa
dagana að henni hefur
ekki tekist að megra sig
eftir að hafa fætt sitt
fyrsta barn á dögunum.
Whitney, sem er fremur
lágvaxin og nett að jafn-
aði vó mest 65 kg er
meðgangan stóð sem
hæst og þótt hún léttist
óhjákvæmilega nokkuð
við fæðinguna, hefur
henni ekki lánast að
fylgja því eftir sem
skyldi.
Hermt er að Whitney sé dauf
í dáikinn vegna þessa, en ýmis
vandamál í einkalífinu hafi ekki
orðið til að herða hana í barátt-
unni við kílógrömmin. Sem
dæmi er eftirlætismatur hennar
þessa dagana stærsta tegund
af ostborgara með öllu. „Með
öllu“ á bandaríska vísu er ekk-
Whitney fitnar og fitnar.
ert smáræði og öllu þessu torg-
ar Whitney og gildnar fremur
en hitt. Eiginmaðurinn, Bobby
Brown, er lítil stoð og engin
stytta. Hann hefur ekki aflagt
villt næturlíferni sitt og sést
með hinar ýmsu fegurðardísir
og kynbombur upp á arminn.
BESTA
VERÐIÐ
I BÆNUM
J. Rosenthal efni
173 cm breið, 430 kr. pr. meter
122 cm breið, 330 kr. pr. meter
Látið þetta ekki framhjá ykkur fara!
Suðurveri, sími 679440.