Morgunblaðið - 28.04.1993, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1993
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) W*
Það fer ekki allt eins og þú
ætlaðir og upplýsingar geta
verið villandi. Sumir leita á
ný mið í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Breyting getur orðið á ferða-
áætlun. Þú átt auðvelt með
að semja við aðra. Hugsaðu
um fjölskylduna í kvöld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér miðar vel að settu marki.
Þú hefur í mörgu að snúast
í dag, en í kvöid nýtur þú
lífsins í hópi góðra vina.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HB8
Misskilningur getur komið
upp milli vina, og mikilvægt
er að þeir geri sér grein fyrir
því til hvers þeir ætlast.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dagdraumar geta truflað þig
við vinnuna. Þú tekur þig á
þegar á daginn líður og af-
kastar miklu. Kvöldið verður
ánægjulegt.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) <3tA
Ástvinir þurfa næði til að
gefa rómantíkinni lausan
tauminn. Þú lýkur verkefni í
vinnunni og þiggur heimboð
í kvöld.
V°g
(23. sept. - 22. október) &
Óleyst verkefni bíður þín
heima. Þróun mála á vinnu-
stað er þér hagstæð. Kvöldið
býður upp á ánægjulegan
vinafund.
Sporödreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú getur átt erfitt með að
einbeita þér í dag, en framtak
þitt skilar þó hagstæðum
árangri. Ferðalag í undirbún-
ingi.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Kannaðu málið betur áður
en þú tekur mikilvæga
ákvörðun varðandi fjármálin.
Kvöldið býður upp á afþrey-
ingu,
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Stuðningur vinar kemur þér
vel í dag. Þú ert með hugann
við íjármálin, en í kvöld
slappar þú af með góðum
gestum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Einhver orðrómur er á kreiki
í dag. Þú finnur réttu lausn-
ina á verkefni í vinnunni.
Félagar og ástvinir njóta
kvöldsins.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) %£é
Ekki lána ókunnugum pen-
inga. Persónuleiki þinn kem-
ur þér til góða í starfi. Þú
ert að íhuga helgarferð.
Stjörnusþána á að lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DYRAGLENS
ÚH-HÖ, ÞetTA QETUR VAfZLA
0KAGPBÆ.TT SOPUNA
I7AV?í> 2-20
1
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
FERDINAND
z//m /// M
SMÁFÓLK
Y0U LEAPA B0RIN6 LIFE,
PIP Y0U KNOWTI4AT7 VOU
MEV/EK. PO ANVTHIN6 EXCITING
Þú lifir leiðinlegu lífi, vissirðu það? Svei!!
Þú gerir aldrei neitt spennandi.
Þetta var spennandi ...
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Slemmutækni hefur fleygt
stórlega fram síðan Roman-lyk-
ilspilaspurningin kom til sög-
unnar og leysti hefðbundna ása-
spurningu af hólmi. Þegar búið
er að fallast á tromplit, spyr
sögnin 4 grönd ekki aðeins um
fjölda ása, heldur einnig um
trompkóng og drottningu.
Spurningin er þó jafnan gagns-
laus og venjuleg ásaspurning
þegar eyáa er í spilunum. Til
að leysa slíkar slemmuþrautir
hafa menn ræktað sérstakt af-
brigði sem heitir því yndislega
nafni „Exclusion-Roman-Key-
Card-Blackwood“ á ensku. Án
þess að reyna að þýða heitið,
er hugsunin sú að ekki beri að
svara ás í eyðulitnum. Svona
virkar hún:
Norður
♦ 9
VÁK32
♦ DG108
♦ Á843
Suður
♦ Á103
¥ D98654
Vestur * KD109 Norður Austur Suður
— 1 tígull 1 spaði 2 hjörtu
Pass 3 spaðar' Pass 5 tíglar'*
Pass 5 grönd**‘Pass 7 hjörtu
Pass Pass pass
' hjartasamþykkt, einspil eða
eyða (splinter)
" spumingin með langa nafnið
þrjú lykilspil fyrir utan tíg-
ulinn
í stuttu máli: stökk upp á 5.
þrep í nýjum lit, sýnir eyáu þar
og spyr um lykilspil í öðrum lit-
um. Það veltur á fyrri þróun
sagna, hvað svar á fyrsta þrepi
sýnir. (Og þar liggur hundurinn
grafinn, því hér þarf sérstakar
viðbótarreglur, sem leggja þarf
á minnið.) í þessu tilfelli hefur
norður boðið upp á slemmu án
þess að suður hafi krafið í geim,
svo hann hlýtur að eiga a.m.k.
tvö lykilspil (tígulás og annað)
og því sýnir svar á fyrsta þrepi
eitt fyrir utan tígulinn.
Lítum á annað dæmi:
Norður
4Á72
¥ G105
♦ 53
♦ D10843
Suður
♦ K8
¥ ÁKD974
♦ KD986
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 hjarta
Pass 2 hjörtu 3 lauf 5 lauf
Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass pass Pass
Eftir veika hækkun í 2 hjörtu
getur suður ekki búist við neinu,
svo fyrsta þrep norðurs hlýtur
að neita lykilspili. Hann svarar
á öðru þrepi, sem sýnir þá ás í
spaða eða tígli.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á svæðamóti Frakklands, Hol-
lands, Belgiu og Lúxemborgar í
Brussel, sem nú stendur yfir, kom
þessi staða upp í viðureign ungs
og efnilegs Frakka, Elois Re-
lange (2.285), og hollenska stór-
meistarans Johns Van der Wiels
(2.545), sem hafði svart og átti
leik. Hvítur lék síðast 17. Rd2-f3?
17. - Bxf2+!, 18. Hxf2 - Hdl+
og hvítur gafst upp, því eftir 19.
Hfl - Dc5+ er hann óveijandi
mát.