Morgunblaðið - 30.05.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.05.1993, Blaðsíða 11
M'ORGIÍWBMÐIÐ M ANNLÍFSSTRAUWIARiifWíiÁtK 301; maí nosa b n TÆKNlÆr stundhinna „snyrtilegu“ drápsvéla runnin uppf DRÁPSVÉLAR FRAMTÍÐARINNAR ÞEIM sem hafa minni áhyggjur af heimsfriðinum eftir hrun járntjaldsins og lok kalda stríðsins ber að endurskoða afstöðu sína. Hvað sem mátti segja um ógnarjafnvægi aust- urs og vesturs, sem ríkti um áratugi, mátti hæla því fyrir að það myndaði einfalt valdamynstur heims miðað við það sem nú er orðið, og menn vissu hvar þeir höfðu mótaðil- ann. Ástandið sem nú blasir við er margfalt flóknara og breytist hraðar en hitt, sem var afar stöðugt þar til það fór að breytast upp úr 1985. Annað nýtt er að nú er með æ meiri hátækniheimi ekki lengur hægt að skipta vopnum í gereyðingarvopn og önnur, heldur eru allar gerðir þar á milli orðnar mögulegar. Tækniþróunin og hið gerbreytta valdamynstur leiða til þess að öll möguleg vopn breiðast út jafnt meðal ríkra þjóða og fátækra. Tomahawk-eldflaugin ameríska var ásamt „sködd“-eldflaug íraka einn aðalleikari hins furðu- lega reksturs sláturfjár, sem eftir á gengur undir nafninu Persaflóa- stríðið, eða Flóa- bardagi. Toma- hawk er dæmi um drápsvélar fram- tíðarinnar. Það má skipa henni að drepa, 400.000 manns annars- vegar eða einn til engan hins vegar, ef eigandanum þóknast svo. Með samhæfingu margs konar tækni má fá hana til að hitta nákvæm- lega áætlaðan stað með sekúndu nákvæmni. Herfræðingar kalla svona vopn snyrtileg vegna ná- kvæmninnar. Þar með má stýra Hiroshi Nakajima Nakajima í janúar og þingið stað- festi þá kosningu nú þrátt fyrir and- stöðu allra þeirra ríkja, að Japan undanskildu, sem mestan fjárhags- legan straum standa af rekstrinum. Vestrænir fulltrúar segjast hafa ör- uggar heimildir fyrir því að áður en kosið var í janúar hafi japanska stjórnin hótað ýmsum fátækum ríkj- um að viðskiptasamningar við þau og vilyrði um efnahagsaðstoð stæðu og féllu með atkvæðum þeirra í Genf. Helsta skýringin á því fram- ferði er hið mikla þjóðarstolt Japana sem ekki skirrist við að heimta sinn mann í háa sætið, þótt orðstír hans hafi jafnt og þétt farið hrakandi. Jafnvel landar hans sumir hverjir sem starfa á vegum stofnunarinnar bera honum illa söguna; einn þeirra skrifaði japanska utanríkisráðuneyt- inu bréf og í því stóðu orð eins og „martröð" og „stórslys“ sem af end- urkjöri hans mundi hljótast. E.S. Vaskur og hugmyndaríkur hópur sem heitir Orðanefnd lækna- félaganna hefur beðið um tillögur til breytingar íslenska nafnsins á þeirri stofnun sem um er fjallað hér og nú. Nefndinni eins og fleirum þykir of langt og viðamikið það heiti sem til þessa hefur veríð í brúki. Alþjóðaheilbrigðis(mála)stofnunin er 9 (eða 11) atkvæði en minna mætti gagn gera. Líta má á fyrirsögn þessa pistils sem tillögu. henni að hernaðarmannvirkjum eingöngu, og hlífa mannslífum borgaranna. Spurningin er hins vegar hvort það yrði alltaf gert og á öllum tímum. Setjum svona vopn í hendur einhverra verðugra aftaka Serba í framtíðinni. Eld-. flaugin ber auðvitað jafnt kjarn- orkusprengjur sem venjulegar sprengjur. Hugsið ykkur litla sjálfsmorðs- flugvél, sem kemst örugglega inn að marki sínu með að fljúga undir radarsjónsvið óvnarins, en án þess að fóma lífi flugmannsins. Hugsið ykkur sveim slíkra elflauga í al- geru stríði. Fjöldinn er gerlegur vegna þass að slík flaug kostar aðeins örlítið brot af því sem þarf til að framleiða orustuflugvél. Með heila sem þarf ekki að fórna á altari herguðs, því að hann er ekki af holdi, heldur þráða- og samlokuflækja tölvunnar, en skilar öllu jafn vel og við stýrið væri sjálfsmorðsflugmaður. Slíkt er gerlegt vegna þess að með loft- myndum úr flugvélum og gervi- tunglum er búið að kortleggja t.d. ísland miklu nákvæmar en á þeim herforingjaráðskortum sem við ís- lenskir túristar erum að kaupa á sumarferðum um landið. Landslag þeirrar leiðar sem flaugin ætlar um er sett inn í heila flaugarinn- ar, sem tekur sífellt radarmyndir og vídeómyndir af landinu á leið- inni, og ber saman við upplýs- ingarnar í tölvunni um landslagið, reiknar síðan nákvæmlega út hvar flaugin sé, og tekur loks vídeó- myndir af skotmarkinu þegar hún nálgast það, hagræðir flugvængj- um og stýrisuggum sekúndubrot- um áður en hún siglir inn í eilífð- ina, boðberi endaloka sjálfs síns og þess er verður fyrir henni. Með samhæfingu upplýsinga um lands- lag, veður, mannvirki og e.t.v. fleira næst fullkomnun, sem höfð- ar til „fegurðarskyns" herfræð- inga, þeirrar gerðar sem að ein- hverju leyti fagna „smástríði“ eins og Falklandseyjastríðinu eða Fló- afjárrekstrinum fyrrnefnda, til þess eins að þeir geti prófað vopn- in við raunhæfari kringumstæður en við einhvern NATO-dátaleik úti á Atlantshafi, þar sem óvinurinn er svo ímyndaður að hann fyrir- finnst ekki lengur, því að Rússinn ir fjallið". er samasem horfinn, klofinn í marga ótútreiknanlega smáparta, óútreiknanlegri en þann sem setti litlutána á strönd Kúbu forðum, með næstum því óútreiknanlegum afleiðingum fyrir okkur öll sem vorum þá til, en fyrirfram afskrift á tilvonandi lífí þeirra sem áttu eftir að fæðast. Það var hætta hins tiltölulega einfalda heims kalda stríðsins með, að því er her- fræðingar segja, allt að 20-30% líkum á voðalegum endalokum. Heimur framtíðarinnar er heimur hins flókna valdamynsturs, þar sem annar hver kotkarl á heims- þúfunum, geðtruflaður, valdasjúk- ur eða í besta falli normal, situr uppi með nákvæm drápsvopn, stýrð af tiltölulega ódýrri tækni rafeinda- og tölvuiðnaðarins. Tomahawk-eldflaugin, sem við horfðum á í CNN-sjónvarpsstöð- inni undir sjónhorni hennar sjálfr- ar, siglandi inn að markmiðinu, er aðeins dæmi um það sem koma skal í framtíðinni, verði ekki málin um útbreiðslu vopna og afvopnun almennt tekin föstum tökum. ARGOS LISTINN Ótrúlegt verð - þekkt vörumerki 20 stk. matarstell, kr. 1.751. Hillustæður, kr. 2.481. Sængur, kr. 1.430. Barnabílstólar, matarstólar kr. 4.379. Vönduð kristalsglös, 6 í ks., 3.350,- Úrval gjafavara Golfkerrur frá kr. 2.847. Tjöld frá kr. 4.379. Ferðatöskur m/hjólum frá kr. 2.918. Gull trúlofunarhringir frá kr. 1.459. Videospólur kr. 330 kasettur kr. 85. Garðáhöld, húsgögn, leikföng. KAYS ER ÓDÝRARA Pöntunar- Kays og Argos listarnir Herraúlpur, kr. 3.460 m/þykku fóðri kr. 5.326. Undirfötin, yfirhafn- irnar, íþróttafötin og fl. Mikið úrval barnafatnaðar. Barnabolir, verð frá kr. 931. 2 í pk. Barnaleggings frá kr. 1.064. 2 í pk. B.MAGNUSSON HF. HÓLSHRAUNI2 - SÍMI 52866 - P.H.410 - HAFNARFIRÐI Sumarlistinn ókeypis eftir Egil Egilsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.