Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 Tryggingastofnun setur kvóta á þjálfun spastískra barna Greiðslum hætt þegar ákveðnu hámarki er náð TRYGGINGASTOFNUN rikisins hefur ákveðið að aðilar í þjálfun hjá Æflngarstöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra fái úthlutað ákveðnum fjölda þjálfunartíma árlega en að þeim tímum loknum fái þeir ekki frekari þjálfun greidda af Tryggingastofnun. í síðast- liðinni viku var Æfingarstöðinni tilkynnt um þessa ákvörðun Tryggingastofnunar og nú þegar hefur m.a. verið lokað fyrir þjálf- un hjá nokkurum spastískum börnum. Að sögn Hrafnhildar Ingu Halldórsdóttur, sem er móðir spastískrar stúlku, Ólafar Ingu Halldórsdóttur, er þetta mjög alvarlegt fyrir þessi börn þar sem nyög mikilvægt er fyrir spastískt fólk að fá reglulega þjálfun þar sem annars stirðni allir liðir og viðkomandi verður algerlega ósjálfbjarga. Hrafnhildi var tilkynnt að Ólöf Inga fengi ekki áframhaldandi sjúkraþjálfun næstu mánuði þar sem hún hefði farið í ákveðið marga þjálfunartíma undanfarna mánuði. Óvíst er hvenær þjálfunin getur hafist aftur. Ólöf Inga Halldórsdóttir fæddist 'spastísk og er hún nú 14 ára. Sjúk- dómurinn lýsir sér m.a. þannig að liðir hennar eru mjög stirðir og geta stirðnað algerlega. Til að spoma við því hefur Ólöf Inga verið í þjálfun 3-4 sinnum í viku. Þjálfunin fer almennt eftir þjálfun- arkerfum sem gera ráð fyrir sam- felldri reglulegri þjálfun og að sögn Hrafnhildar er það mjög slæmt þegar þjálfunin er rofin fyrirvara- laust. Það leiði til stöðnunar og fljótlega afturfarar þar sem liðim- ir stirðni, hreyfmgar verði erfiðari og jafnvel ómögulegar. Skammtímasjónarmið Hrafnhildur segir að Trygginga- stofnun hafi ákveðið að hver ein- staklingur fái ákveðinn fjölda þjálfunartíma án þess að fötlunin sé metin eða tekið sé tillit til að- stæðna hveiju sinni. „Það skiptir engu máli hvort viðkomandi er að æfa sig eftir beinbrot eða hvort um sé að ræða varanlega fötlun frá fæðingu líkt og hjá Ólöfu Ingu. Svona niðurskurður er ekki varanlegur sparnaður vegna þess að ef litið er til lengri tíma leiðir þjálfunarleysi til þess að allir liðir stirðna, viðkomandi þarfnast meiri umönnunar, jafnvel gæslu allan sólarhringinn eða þá að dvöl á sambýli er nauðsynleg. Það hlýtur að vera betra að foreldramir ann- ist bömin heima sjálfír en það er útilokað ef þau fá ekki þjálfun nokkmm sinnum í viku. Þjálfunin er fyrirbyggjandi og kemur í veg fyrir aukinn kostnað síðar.meir. Ólöf Inga er mjög dugleg í skóla og stendur sig vel að öllu leyti. Ef hún fer að versna eyðileggur það allt fyrir henni og gerir hana ósjálfbjarga." Foreldrar Ólafar TaJkraörkuð þjálfun Morgunblaðið/Kristinn TRYGGINGASTOFNUN hefur ákveðið að sjúklingar í þjálfun þjá Æfíngarstöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra fái árlega fyrir- fram ákveðinn fjölda þjálfunartíma. Þetta hefur leitt til þess að Ólöf Inga Halldórsdóttir, 14 ára gömul spastísk stúlka, fær næstu mánuði ekki frekari þjálfun þar sem hún hefur notað sinn „kvóta“. Hún er á myndinni ásamt móður sinni Hrafnhildi Ingu Halldórs- dóttur. Ingu segja útilokað að þau geti sjálf greitt fyrir þjálfun hennar en þau gera ráð fyrir að þjálfunin kosti um 40 þúsund krónur á mán- uði. Ekki náðist í forstöðumann sjúkratryggingadeildar Trygg- ingastofnunar vegna þess máls í gær. Flugleiðir í áætlun til Barcelona \ í DAG verður fyrsta áætlunar- flug íslensks flugfélags til Spán- ar þegar Flugleiðir hefja áætl- anaferðir til Barcelona. Fram yfir miðjan september verður flogið á nýjum Boeing 737-400 vélum milli Keflavíkur og Barcelona á hveijum laugardegi. Flugið tekur u.þ.b. fjóra tíma. Halldór Blöndal samgönguráð- herra opnar flugleiðina formlega við athöfn á flugvellinum í Barcel- ona í dag. 'mUning^ Tekur húsið bittlitísumar? Aukablað frá Málningu hf. MÁLNING hf. kynnir vörur sínar í aukablaði, sem fylgir Morgun- blaðinu í dag. Meðal annars er fjallað um notk- un viðarvarnarefna, rannsóknir, vemdun steinsteypu, umhverfis- væna málningu og innimálun. Konurnar teflabetur en gömlu kempurnar FRIÐRIK Ólafsson gerði jafn- tefli við Arakhamiu i 4. um- ferð Valsaskákmótsins í Vín- arborg í gær. Hann tapaði fyrir Sofíu Polgar í 3. umferð. Á mótinu keppa sex af fremstu skákkonum heims gegn liði eldri meistara. Eftir fjórar umferðir höfðu konurnar fengið 13‘/2 vinning gegn ÍO'A vinningi karlanna. Xie Lin hafði fengið 3 'h vinning, Zsuzsa Polgar 3 vinninga og Sofia Polgar 2 Vi vinning. Geller hafði 2Vi vinning og Larsen 2 vinninga. Friðrik var í sjötta sæti með 1 vinning. Samningur undirritaður um kaup Ósvarar hf. á togurum þrotabús EG Heiðrún getur farið aftur á veiðar fljótlega í næstu viku Bolungarvík. SKRIFAÐ var undir kaupsamning á togur- um þrotabús Einars Guðfinnssonar I Bol- ungarvík í gær. Kaupandi er almennings- hlutafélagið Ósvör hf., en Bolungarvíkur- kaupstaður framseldi forkaupsrétt sinn til félagsins fyrir skömmu. Að sögn Biörgvins Bjarnasonar, framkvæmdastjóra Ösvarar, eru næstu skref þau að ganga frá ýmsum formsatriðum varðandi tryggingar skip- anna o.fl., auk þess að ganga frá ráðningu áhafnar á mb. Heiðrúnu. Að þessu verður unnið nú um helgina og er vonast til þess að skipið geti hafið veiðar í næstu viku. Togarinn Dagrún hefur ekki haffærisskír- teini og munu skoðunarmenn meta það sem þarf að gera við skipið strax í næstu viku, en til að ljúka því verki þarf skipið að fara í slipp. Björgvin Bjarnason ságði það alveg óvíst hve- nær skipið gæti farið til veiða, en það færi eftir því hver kostnaðurinn yrði við að gera skipið haffært. Óvíst hvað verður um aflann voru í húsið fyrir nokkrum vikum, og mun það ætla að auglýsa frystihúsið til sölu á næst- unni. Stjóm Osvarar mun stefna að því að félagið eignist húsið, og náist það eru atvinnu- horfur hér í Bolungarvík með vænlegri hætti en verið hefur um nokkurt skeið. Ekki er ákveðið hvað gert verður við væntan- legan afla skipanna. Frystihúsið er ekki starf- rækt, en þrotabúið hafnaði tilboðum sem gerð Bæjarsjóður teflir djarft Almenningi í Bolungarvík er ljóst að bæjar- sjóður teflir djarft í þessu máli hvað fjárhags- skuldbindingar varðar, og verður fjárhagur bæjarins bágur eftir. Mikilvægi málsins er hins í dag Körfuboltaæði Þeir vagga letilega um göturnar og biðja um broddaklippingu 16 Kafbátar Okkar stafar engin hætta af rúss- neska kafbátnum 21 ft,Æ,v_________________________ Lesbók Fylkur vann óvæntan sigur & KR Lifandi fortíð; Árbæjarsafnið ^ kynnt - Er lægð og andleg kreppa /j’iðnrl * myndlist?- Veðurhorfun Mun ------------------------------- hlýna hér á næstu öld? - Að kenna Velferðin, vísindin og tæknin 22 með tölvum- Mannleg- málefni. IttorgtmMftMb Menning/Listir ► Óháð listahátíð - Fiskar á þurru landi, Streymi ’93 og reiði- rokk á Listahátíð í Hafnarfirði - íslensk listahátíð í Bonn - Ný persónudýrkun o.fl. Góð aðsókn að lista- hátíð í Hafnarfirði AÐSÓKN á atriði á Listahátíð Hafnarfjarðar hefur verið góð það sem af er og oft betri en búist var við. I gær seldist upp á tónleika bandarísku rokkhljómsveitarinnar Rage Against the Machine. 1 verða í Kaplakrika í kvöld en alls voru seldir um 3.600 miðar Hann L sagði ásókn í miða á tónleikana mikla, en ekki væri unnt að koma á öðrum tónleikum því hljómsveit- j in væri tímabundin. Amór sagði að miðasala á aðra viðburði gengi vel og að sala á tónleika Nigels Kennedys, sem verða í Kaplakrika 30. júní, hefði gengið afar vel. Að sögn Arnórs Benónýssonar hjá Listahátíð Hafnarfjarðar hefur aðsókn verið meiri en menn þorðu að vona, og nefndi hann sem dæmi að færri en vildu hefðu komist inn á fyrirlestur um mexíkóska bygg- ingarlist í Staumi. Amór sagði einnig að uppselt væri á tónleika bandarísku rokkhljómsveitarinnar Rage Against the Machine, sem

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.