Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 Strætisvögnum Reykjavíkur breytt í hlutafélag Sterkara fyrirtæki, til hagsbóta fyrir viðskiptavini o g starfsmenn eftir Svein Andra Sveinsson í borgarráði þriðjudaginn 15. júní 1993 verður lögð fram tillaga full- trúa Sjálfstæðisflokksins um að breyta Strætisvögnum Reykjavíkur í hlutafélag. Breyting þessi getur orðið öllum tii hagsbóta; hún getur gert SVR að öflugra fyrirtæki, eflt þjónustu í almenningssamgöngum, leitt til minni útgjalda borgarsjóðs vegna þessa málaflokks og síðast en ekki síst komið starfsmönnum fyrirtækisins til góða. Aðskilnaður pólitíkur og rekstrar Tillagan um að breyta SVR í hlutafélag gengur út á það að skipta fyrirtækinu í tvo hluta; annars veg- ar það sem lýtur að ákvörðunum um hvers eðlis þjónustan skuli vera og hins vegar að framkvæmd sjálfr- ar þjónustunnar. Fyrra atriðið er nú á verksviði stjórnar SVR, sem gerir tillögur til borgarráðs um hvaða þjónustu skuli veita borg- arbúum. Gert er ráð fyrir því að við þessu hlutverki taki sérstök nefnd er heyri beint undir borgar- ráð; stjórnamefnd um almennings- samgöngur. Sú nefnd mun móta stefnu varðandi fargjöld, ferðatíðni, leiðakerfi o.s.frv. Öll pólitísk stefnu- mótun verður því sem fyrr áfram í höndum borgarinnar. Varðandi reksturinn sjálfan eða framkvæmd þjónustunnar er lagt til að stofnað verði sérstakt hlutafélag, Strætis- vagnar Reykjavíkur hf. Félagið mun annast almenningsvagnaþjón- ustu sem verktaki fyrir Reykjavík- urborg; verkkaupann í þessu tilviki. Aðskilnaður þessi er í raun mjög rökréttur, því þótt það sé skylda borgaryfirvalda að tryggja góðar almenningssamgöngur í borginni er ekkert sem segir að borgin þurfi að framkvæma sjálfa þjónustuna. Yfirburðir hluta- félagsrekstursins Það er vafalaust í mínum huga, að breyting SVR í hlutafélag á eft- ir að styrkja innviði fyrirtækisins. Með þessari breytingu lýtur rekstur SVR allt öðrum lögmálum, enda á sér stað breyting úr stofnun í fyrir- tæki. Stjórnendur öðlast meira sjálfstæði og bera meiri ábyrgð, starfsfólk tekur aukinn þátt í rekstrinum og stjórn fyrirtækisins, gegnir lykilhlutverki í stjórnun og rekstri. í dag er SVR miðstýrt að mjög miklu leyti af borgarskrifstofum. Starfsfólk hefur mun minni áhrif á rekstur fyrirtækisins en skyldi og stjórn SVR hefur sáralítil afskipti af rekstri fyrirtækisins. Mestu máli skiptir að í stjóm hlutafélagsins veljist menn með þekkingu og reynslu á sviði fyrir- tækjastjórnunar; slíkir aðilar gætu hleypt nýju blóði í reksturinn og virkað sem bæði stoð og aðhald á stjórnendurna. í þessu skyni stígur núverandi stjórn SVR af stalli og hleypir nýjum mönnum að. Lækkun tilkostnaðar borgarsjóðs Undanfarin ár hefur náðst góður árangur við að bæta afkomu SVR og minnka greiðslur úr borgarsjóði. Hafa þær greiðslur sveiflast úr tæplega 350 milljónum niður í rúm- lega 250 milljónir. Á sama tíma og þjónusta var löguð að eftirspurn jókst farþegafjöldi og tekjur af far- þegum. Breytingar þær sem lagðar eru til á rekstrarforminu eru í beinu framhaldi af aðgerðum undanfar- inna ára; einn megintilgangurinn er sá að ná fram minni tilkostnaði borgarsjóðs með bættri stjórnun, hagræðingu og markaðssókn. í til- lögunum er gert ráð fyrir fastri lækkun á árlegri greiðslu borgar- innar til SVR hf., en náist enn betri í HJARTA SKAGAFJARÐAR HótelVARMAHIÐ, Skagafirði, verður fíófd opnað formlega 18. júní í nýju og VARMA^^.. endurbættu húsnæði. Rúmgóð björt jyyj|| herbergi og glæsilegur í 10 manna vá\ Athugið bre/tt og nýtt símanúmer hótelsins: I Varmahlíd: sundlaug Vegna mikillar aðsóknar bendum við viðskiptavinum okkar á að staðfesta pantanir sem allra fyrst. p ó s thú Njótið lífsins í Skagafirði! verslanir v eiðileyfi hestaleiga Velkomin á Hótel Varmahlíð! $60 Varmahllð s: 95-38170 fax: 95-38870 árangur myndast hagnaður sem greiddur er út sem arður til eina eigandans, Reykjavíkurborgar. Pólitískt er þetta því skynsamleg ákvörðun. Leiðir til bættrar þjónustu Minni kostnaður af rekstri al- menningsvagnakerfisins hefur þær afleiðingar, að auðveldara verður að brydda upp á nýjungum í starfi, fyrr má taka upp þjónustu við ný hverfi og almennt skapast fjárhags- legt svigrúm til þess að á einhvern annan hátt að bæta þjónustuna við borgarbúa. Það liggur í augum uppi að með bættum rekstri og betri afkomu má á ýmsan hátt koma betur til móts við þarfir og óskir viðskipta- vinanna; farþeganna. Aukin áhrif starfsfólks Það er grundvallarforsenda fyrir þessum breytingum að þær komi ekki niður starfsfólki, heldur þvert á móti komi því til góða. Gagnvart hluta starfsmanna SVR breytir hið nýja rekstrarform engu um aðild þeirra að stéttarfé- lagi og lífeyrissjóði, en það eru þeir sem ekki eru í Starfsmannafélagi Reykj avíkurborgar. Um þá starfsmenn sem í dag eru í Starfsmannafélaginu gildir, að þeir verða félagar í því stéttarfélagi sem nær til starfsgreinar þeirra og gagnvart þeim ganga í gildi kjara- samningar nýs félags. Þeim verða hins vegar tryggð sömu réttindi fyrir og eftir breytingu, þannig að í persónulegum ráðningarsamningi verði tryggð þau launakjör og önn- ur starfskjör sem viðkomandi hafði sem borgarstarfsmaður. Þeir starfsmenn sem greitt hafa iðgjöld í Lífeyrissjóð starfsmanna Reykjavíkur (LSR) hætta við breyt- inguna að greiða í þann sjóð, en greiða þess í stað í almennan sjóð. Að sjálfsögðu munu starfsmenn í engu glata réttindum sem þeir hafa þegar áunnið sér og samhliða því að viðkomandi hefja greiðslu í nýjan sjóð mun borgarsjóður greiða upp- bót með lífeyrissjóðsiðgjöldum frá SVR hf., þannig að þeir halda áfram að safna svipuðum réttindum, a.m.k. um eitthvert árabil. Við þetta bætist það mikla hagræði fyrir starfsfólk, sem greitt hefur til LSR, að það gætu hafið töku lífeyris 65 ára, þó samhliða vinni það fullt starf hjá SVR hf. Einnig skiptir það máli hér að lífeyrissjóðsiðgjöld starfsmanna til hinna nýju sjóða, hvaða sjóðir sem það verða, verður reiknað af heildarlaunum, en ekki Sveinn Andri Sveinsson „Það er grundvallar- forsenda fyrir þessum breytingum að þær komi ekki niður á starfsfólki, heldur þvert á móti komi því til góða.“ bara fastalaunum og álagi eins og nú. Þannig verður um meiri söfnun að ræða en ella. Sú breyting sem varðar alla starfsmenn er sá möguleiki sem opnast á því að tengja launagreiðsl- ur einstakra starfsmanna við frammistöðu, þannig að starfsmenn sem að einhvetju leyti skara fram úr eða hafa sannanlega sýnt góða frammistöðu sjái þess merki í launaumslaginu. Undirritaður hefur gegnt starfi stjórnarformanns SVR í þrjú. ár. Á þeim tíma hefur stjórn SVR beitt sér fyrir breytingum, sem orðið hafa til þess að minnka verulega meðgreiðslur borgarinnar með rekstrinum. Hafa stjórnendur og almennir starfsmenn með frábærri frammistöðu komið því til leiðar að breytingarnar náðu tilætluðum árangri. Það er sannfæring mín að í starfsfólki SVR búi mun meiri kraftur og geta til þess að standa sig enn betur í þjónustu og rekstri fyrirtækisins. En til þess að geta kallað fram þennan kraft og nýtt þessa getu til fullnustu þarf fyrir- tækið að starfa í breyttu rekstrar- umhverfí, þar sem almenn lögmál á sviði rekstrar eru í hávegum höfð. Einnig þarf það að vera tryggt að í stjóm hlutafélagsins veljist aðilar með þekkingu og reynslu á sviði fyrirtækjastjórnunar. Aðeins þann- ig getur hámarksárangur náðst. Höfundur er borgarfulltrúi og stjórnarformaður Strætisvagna- Reykjavíkur. A Alyktun ungra jafnaðarmanna Forsætísráð- herra taki sig á Á FUNDI sínum laugardaginn 5. júní samþykkti framkvæmda- stjórn Sambands ungra jafnaðar- manna eftirfarandi ályktun: „Á undanförnum missemm hefur verið mikil umræða um þjóðarbúið og stöðu þess. í kjölfar svartrar skýrslu Hafrannsóknarstofnunar um stöðu fiskistofnanna hafa menn velt því fyrir sér hvað skuli til bragðs taka, hvernig yfirvöld taki á þessum málum. Verkstjóra ríkisstjómarinnar, Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, hefur tekist með eindæmum illa að meðhöndla þessi erfiðu og vand- meðförnu mál. Fyrst gefur hann út þá stórfurðulegu yfirlýsingu að öll völd skuli færð í hendur sjávarút- vegsráðherra, hans sé mátturinn og dýrðin. Eftir þessi afglöp hefur hvert asnastrikið fylgt öðru af hendi forsætisráðherra. Hann slær úr og í, virðist flöktandi og ráðalaus. Hjá standa ráðherrar og þingmenn Al- þýðuflokksins, agndofa og orðlaus- ir. Eina leiðin til að ríkisstjórninni takist farsællega að vinna þjóðina út úr þeim vanda sem við blasir er að forsætisráðherrann taki sig sam- an í andlitinu en kikni ekki undan landsstjórninni líkt og sigraður maður. Að öðrum kosti ber honum að víkja úr embætti." (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.