Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 fclk f fréttum Morgunblaðið/Árni Helgason Lárus Kristinn Jónsson setur niður í kartöflugarðinn. ATORKA Áttræður fjörkálfur Lárus Kristinn Jónsson í Stykkishólmi lætur ekki aldurinn á sig fá. Nýverið hélt hann upp á áttatíu ára afmælið og nú hefur hann hafist handa við að stinga upp kartöflugarðinn og sá. Þetta hefur hann gert í íj'ölmörg ár og sér enga ástæðu til að breyta því. NÁMSKEH) - Veist þú að við búum öll yfir stórkostiegum eiginleikum til að lækna okkur sjálf? - Veist þú að með því að nýta okkur þessa eigin- leika getum við einnig hjálpað öðrum? - Vilt þú nýta þér þessa eiginleika? - Reikinámskeið er ein af mörgum leiðum til þess. Námskeið í Reykjavík: 22.-24. júní 1. stig, kvöldnámskeið. 27.-29. juní 2. stig, kvöldnámskeið. Upplýsingar í síma 33934 á kvöldin eftir 14. júní. Guðrún Oladóttir, reikimeistari, s. 33934. í tilefni af góðum árangri var bor- in fram dýrindis terta og á mynd- inni má sjá yfirmann flotastöðvar- innar Charles T. Butler kaftein, lengst til vinstri, Harald Stefáns- son slökkviliðsstjóra og Michael D. Haskins flotaforingja skera tertu með öxi sem oft er notuð sem tákn siökkviliðsmanna. Hin lágvaxna fjölskylda, Sharon og Stacy Bowen með Brittany á milli sín. ÆTTLEIÐING Dvergvaxin fjölskylda Hin smávöxnu hjón, Sharon og Stacy Bowen, gátu ekki eignast böm á venjulegan hátt og höfðu sætt sig við að lifa barn- lausu hjónabandi. En maður skyldi aldrei tapa voninni fyrr en í fulla hnefana. Dag einn var haft samband við þau frá Samtökum dvergvaxins fólks í Bandaríkjunum, sem sjá um að koma dvergvöxnum börnum sem hafa ekki aðstæður til að búa hjá foreldrum sínum í fóstur. Þau hjónin tóku því fegins hendi þegar þau voru beðin að taka sér stúlkuna Brittany, sem nú er tveggja ára. „Hún verður kannski aldrei stór í eiginlegri merkingu, en hún verður örugglega stór á annan hátt,“ segja stoltir foreldr- arnir. I Bandaríkjunum er fjöldinn all- ur af dvergvöxnum bömum sem búa á munaðarleysingjaheimilum, en að sögn þeirra Sharon og Stacy telja þau börnunum fyrir bestu að búa hjá foreldrum sem eru í sömu aðstæðu og þau. VEÐREIÐAR Mikið lagt undir Veðreiðar eru fyrir nokkru hafn- ar á ný bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum með öllu sínu tildri og fínheitum. Það vekur alltaf for- vitni hver var hvar og með hveijum. í síðasta mánuði var fjöldi fólks saman kominn í Bandarílg'unum við slíka athöfn og meðal gesta voru fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, George Bush, söngvarinn Rod Steward og hinir ýmsu leikarar. Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tækifæri. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Yfirmaður varnarliðsins, Michael D. Haskins flotaforingi af- hendir Haraldi Stefánssyni slökkviliðsstjóra viðurkenningar- skjöld við þetta tækifæri. VIÐURKENNING Unnu til verðlauna þnðja arið 1 roð Michael D. Haskins flotafor- ingi afhenti nýlega Haraldi Stefánssyni yfirmanni flotastöðv- arinnar og slökkviliðinu á Kefla- víkurflugvelli verðlaun sem liðið vann nú þriðja árið í röð. Hér var um samkeppni á vegum samtaka um brunavarnir milli allra slökkviliða bandaríska flotans og landgönguliðs og kennd er við stofnanda samtakanna, Allen G. Ogden. Keppt var um besta viðbúnað og árangur í brunavörnum mann- virkja í flotastöðvum og á skips- fjöl. Var slökkviliðið á Keflavíkur- flugvelli valið það þriðja besta í sínum flokki. Slökkviliðið á Kefla- víkurflugvelli annast brunavamir allra fasteigna á varnarsvæðinu að meðtalinni flugstöð Leifs Eiríks- sonar, svo og allra flugvéla sem leið eiga um flugvöllinn. Auk þess sjá starfsmenn þess um hreinsun hættulegra efna. Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli er skipað ís- lenskum starfsmönnum og veitir Haraldur Stefánsson slökkviliðs- stjóri verðlaununum viðtöku fyrir hönd sinna manna. Rachel Hunter eiginkona Rods Stewarts hvíslar einhverju í eyra bónda síns á veð- reiðunum. John Goodman söng „Blue Suede Shoes“ með mikl- um tilþrifum ásamt George Strait. „Ég ætla að veðja hárri upphæð og tapa þar af leiðandi hárri upphæð,“ var yfirlýsing Johns og bætti við að það væri bandaríska aðferðin. Bush hef- 1 vill meiri • tíma nú en áður til að sækja veð- reiðar. Af mynd- unum að dæma á hann enn fjölda aðdáenda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.