Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JUNI 1993 5 Y egaframkvæmdir á Austurlandi Nýr vegur og brú yfir Breiðdalsós VINNUFLOKKUR Vegagerðarinnar er að byggja brú á Breiðdals- ós þar sem ákveðið er að leggja veginn í stað gamla vegarins um núverandi brú á Breiðdalsá. Nýi vegurinn verður boðinn út á næstunni og er fyrirhugað að tengja hann til bráðabirgða fyrir árslok og ljúka honum næsta sumar. Umræður um nýja veglínu á Austurlandsvegi sem koma átti í stað vegar um núverandi brú á Breiðdalsá í Breiðdal hafa staðið yfir í meira en áratug. Brúin er meira en hálfrar aldar gömul og fullnægir ekki nútímakröfum, að því er fram kemur í Framkvæmda- fréttum Vegagerðarinnar. Niður- staða athugunar á þeim kostum sem til greina þóttu koma sýndi að vegur um Meleyri og brú á Breiðdalsós gaf langmesta arð- semi, 11%., og var þessi lausn valin. Styttir það leiðina um Suð- urfirði um 9,7 km en lengir Aust- urlandsveg og þar með hringveg- inn um 2,7 km. Eftir breytinguna verður Breiðdalsvík við hringveg- inn. Kostnaður 150 milljónir Brúin á Breiðdalsós verður 90 m löng í þremur höfum með 7 metra breiðri akbraut. Haukur Karlsson brúarsmiður stjórnar byggingu hennar. Nýi vegurinn verður 7 km langur og verður lagning hans að líkindum boðin út í lok þessa mánaðar. Kostnaður við framkvæmdina er áætlaður um 150 milljónir kr. Eftirspurnin eflir eldri Honda er það mikil, að við lítum á notaöa Honda sem gdða greiðslu uppf nýja. Okkur vantar yfirleitt eldri Honda til að geta sinnt eftirspurn. Ef þú átt Honda og hefur hug á að skipta og fá þér nýja, þá metum við eldri bílinn á sanngjörnu verði og þú eignast nýjan Honda fyrirhafnarlítið. (0 HONDA VATNAGÖRÐUM - SÍMI 689900 -góð fjárfesting WOODEX VIÐARVÖRN FYRIR ftUGAÐ-FYRIR VIÐINN WOODEX viðarvörnin frá Hygæa er frábærlega endingargóð og áferðarfalleg auk þess sem hún fellur vel að íslenskum aðstæðum. Woodex fæst bæði sem grunn- og yfirborðsefni úr acryl- eða olíuefnum. WOODEX MULTITRÉGRUNNUR er vatnsblendin grunnviðar- vörn á allt tréverk. Hann gengur vel inn í viðinn og eykur stöðugleika hans og endingu. WOODEX HYDRA er hálfþekjandi, vatnsblendin, lyktarlítil viðar- vörn með Ijósþolnum litarefnum sem nota má úti sem inni. WOODEX ACRYL er yfirborðsefni á allt tréverk. Það myndar þunna en seiga og mjög veðrunarþolna húð. WOODEX ACRYL þekur mjög vel og er létt að vinna með. WOODEX INTRA smýgur djúpt í viðinn og veitir góða vörn gegn fúa, sveppum og raka. Góð grunnvörn. WOODEX ULTRA er lituð en gagnsæ viðaravörn úr olíuefnum sem nota má innanhúss sem utan. Fæst í flestum málninga- og byggingavöruverslunum um allt land. SKAGFJORÐ ■i 'i Ö D J j'J 15 i\ 'J D 11 'J D í J i 2) Krisljón Ó. Skagfjörð hf. Umboðs- og heildverslun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.