Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 28 Oskar Helgason, Höfn — Minning Fæddur 14. september 1917 Dáinn 2. júní 1993 Heiðursborgari Hafnar í Horna- flrði, Óskar Helgason, verður jarð- sunginn frá Hafnarkirkju í dag, laugardaginn 12. júní. Óskar lést á sjúkrahúsi 2. júní síðastliðinn eftir erfið veikindi og heilsuleysi síðustu misseri. _ Óskar fæddist 14. september árið 1917 á Háreksstöðum í Norð- urárdal. Foreldar hans voru Helgi Þórðarson bóndi og smiður þar og Ingibjörg Skarphéðinsdóttir. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum við leiki og sveitastörf þess tíma. Óskar stundaði nám í Héraðs- skólanum Reykjum árin 1934-36 og lauk kennaraprófí frá Kennara- skóla íslands 1941. Eftir kennaraprófið kynnti hann sér síma- og radíótækni hjá Land- síma íslands og tók við starfi stöðv- arstjóra landsímastöðvarinnar á Höfn árið 1945. Því starfí gegndi hann þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Jafnframt starfi stöðvarstóra sinnti hann um tíma flugradíóinu fyrir Flugráð og endurvarpsstöð Ríkisútvarpsins á Höfn. Sömuleiðis stundaði hann kennslu um skeið og var prófdóm- ari í samræmdum prófum grunn- skójans. Á Höfn kynntist Óskar eftirlif- andi konu sinni Guðbjörgu Gísla- dóttur frá Breiðdalsvík. Hún er dóttir Ingibjargar Guðmundsdóttur og Gísla Guðnasonar póst- og sím- stjóra þar. Þau giftu sig á tví- -ffflgsafmæli Guðbjargar 14. janúar 1947. Óskar og Guðbjörg eignuð- ust fimm börn og eru fjögur á lífi. Elst er Ingibjörg, gift Auðuni Kl. Sveinbjörnssyni lækni. Þau búa á Álftanesi og eiga þijár dætur. Helgi Óskar framkvæmdastjóri, giftur Kristínu Þorkelsdóttur. Heimili þeirra er í Kópavogi og eiga þau þijár dætur. Þröstur skrifstofu- maður á ísafírði, kona hans er Guðrún Karlsdóttir. Yngst er Svala í sambúð með Bjarna Sævari Geirs- syni húsasmíðameistara og verk- taka á Höfn og eiga þau eina dótt- ur. Næstelstur var Gísli sem lést aðeins tíu ára gamall úr krabba- meini árið 1960. Gísli var hraustur "TTg efnilegur drengur þar til hinn illvígi sjúkdómur lagði hann að velli. Þau læknavísindi, sem þá voru þekkt bæði innanlands og utan, megnuðu ekki að bjarga hon- um. Það var þungbært fyrir for- eldra, systkini, aðstandendur og vini að sjá á eftir þessum bjarta og fallega dreng. Það var og er þeim Óskari og Guðbjörgu huggun harmi gegn að eiga barnaláni að fagna. Öll böm þeirra hjóna bera þess vitni að hafa fengið hollt vega- nesti í uppeldinu. Ég var svo lánsamur að eiga meira og minna samleið með Ósk- ari allt frá því ég man fyrst eftir -mér og fram á síðustu ár. Símstöð- in og heimili hans stóðu gegnt æskuheimili mínu. Á þeim tíma var heil kynslóð fólks á aldur við Óskar og Guðbjörgu, nýbúin að stofna heimili' í Nátthaganum sem við kölluðum alltaf Höfðann. Þarna var barnafjöldi á nánast, hveiju heimili og samgangur milli fjölskyldna mikill. Helsti leikvöllur okkar fyrir utan fjörurnar var Póstlóðin. Eins og með aðra túnbletti fengu fjár- eigendur að nýta Póstlóðina til beit- ar í sauðburðinum og sláttar að sumri. Það leyndi sér ekki að Ósk- ari fannst erfítt og var jafnan treg- ur að stöðva leiki okkar og vikja okkur af túninu. Þessi viðbrögð Óskars komu ekki á óvart því upp- eldismál og aðstæður barna og unglinga voru honum sérstaklega hugleikin. Hann var gæslumaður bamastúkunnar Rósarinnar til márgra ára. Starfsemi stúkunnar var um tíma nánast eina tóm- stunda- og félagsstarfið fyrir börn og unglinga á Höfn. Ég á góðar minningar frá þátttöku minni í stúkunni og minnist fjölmargra fræðslu- og skemmtifunda og ekki síður tjald- og útileguferða upp í Lón og inn að Þveit. Þá voru þau hjón bæði með í för og fyrir okkur krakkana voru það ævintýraferðir og kærkomin tilbreyting. í mínum huga sneri þetta starf Öskars ekki eingöngu um bindindisfræðslu heldur einnig að almennu uppeldis- starfi og sýndu þau hjón í verki áhuga og umhyggju fyrir æskú- fólkinu. Ég hef alla tíð borið mikla virðingu fyrir þessum störfum Ósk- ars. Þetta voru ekki einu afskipti Óskars af málefnum æskunnar. Hann tók virkan þátt í starfi Ung- mennafélagsins Sindra og Ung- mennasambandsins Úlfljóts og gegndi formennsku í þeim um tíma. Öskar var mikill reglumaður og samviskusamur. Þessir mannkostir hans urðu til þess að til hans var leitað með liðveislu og forystu á mörgum sviðum. Hann var þannig gerður að vilja leggja öllum góðum málum lið. Þrátt fyrir að vera þátt- takandi í fjölmörgum tímafrekum og erfiðum verkefnum leysti hann þau ávallt vel af hendi og af þeirri trúmennsku sem var áberandi í fari hans. Ómögulegt er að gera tæmandi skil öllum þeim málum sem Óskar kom að en hér verður getið þeirra helstu. I stjórn Kaupfélags Austur- Skaftfellinga var Óskar kosinn 1949 og átti þar sæti í 30 ár. Fyrst sem varaformaður stjórnar og síðar sem stjómarformaður. Hann var fulltrúi kaupfélagsins í ýmsum nefndum, stofnunum og fyrirtækj- um, m.a. sat hann í stjórn SÍS. Formaður Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga var Óskar um árabil og skipaði efsta sæti á lista þeirra í fernum hreppsnefndar- kosningum á Höfn. Hann var odd- viti í öll þessi ár eða frá 1966-82. Jafnframt setu í hreppsnefnd vald- ist Óskar í ýmsar nefndir og ráð fyrir sveitarfélagið, svo og í stjórn- ir fjölmargra stofnana og fyrir- tækja, m.a. í stjórn Sambands sveitarfélaga í Áusturlandskjör- dæmi og byggingarnefndir Heiísu- gæslustöðvarinnar og Heppuskóla. Það var lærdómsríkt fyrir mig, hálfgerðan ungling, að setjast í hreppsnefnd undir stjórn Óskars o g með öðrum góðum mönnum sem þar sátu. Það var dýrmætur félags- málaskóli sem ég minnist alltaf með þakklæti. I ágreiningsmálum reyndi Óskar ávallt að fínna samningaleiðir. Ég held að honum hafi liðið illa ef ekki náðist samkomulag og niður- staða, sem allir gátu unað við. Samt gat hann verið fastur fyrir þegar honum þótti það viðeigandi en fór afskaplega vel með það að ná fram sínum vilja. Hann var vel máli farinn, rökfastur og skipu- lagður í umræðum og góður ræðu- maður. í eðli sínu var Óskar mikill jafn- aðarmaður og sannur samvinnu- maður. Hann hafði ríka samúð með þeim sem minna máttu sín og voru undir í lífsbaráttunni og vildi rétta hlut þeirra eftir mætti. Skömmu eftir að Höfn varð sveitarfélag var stofnaður sérstak- ur söfnuður þar. Á fyrsta fundi safnaðarins var Óskar kjörinn safn- aðarfulltrúi og gegndi því starfi til síðasta dags eða í 40 ár. Jafnframt sat hann í sóknarnefnd um tíma. Nýr söfnuður þurfti kirkju og að- stöðu fyrir safnaðarstarfíð og hafði Óskar forystu í þeim málum. Hann var formaður byggingarnefndar Hafnarkirkju, sem vígð var 1966. Ég er sannfærður um að í þessum störfum leið Óskari vel því hann sótti styrk í trúna og boðskapur meistarans átti sterk ítök í hugar- þeli hans eins og finna mátti í sam- skiptum og umgengni hans við náungann. Óskar var áhugamaður um nor- ræna samvinnu og var konsúll Dana hér um nokkurt skeið. Fyrir þau störf var hann sæmdur ridd- arakrossi Dannebrogsorðunnar. Áhugamaður um íþróttir og úti- vist var Óskar alla tíð og á seinni árum hafði hann mikla ánægju af að spila golf. í Golfklúbbnum eins og annars staðar var hann kallaður til starfa og var þar meðal annars formaður í tvö ár. Ótalin er þátttaka hans í Lions- hreyfíngunni um langt árabil. Á þeim vettvangi starfaði hann dyggilega og gegndi þar helstu trúnaðarstörfum í hreyfingunni. Með víðtækri þátttöku sinni í félagsmálum héraðsins hefur Ósk- ar haft ómæld áhrif á þróun og framtíð þess. Á þessum tíma hefur Höfn vaxið úr þorpi í myndarlegan bæ. Hann hafði mikinn metnað gagnvart uppgangi og framtíð byggðalagsins og ég veit að honum leið vel að sjá og fínna að fólk vildi setjast hér að. Það var staðfesting þess að ekki hafði verið til einskis unnið. í pólitík og félagsmálum fer ekki hjá því að fólk sé gagnrýnt og fund- ið að ákvörðunum þess og störfum. Það er með ólíkindum að maður með afskipti af öllum þeim málum sem Óskar hafði, skuli ekki hafa verið umdeildari en raun ber vitni. Ég hygg að þar vegi þyngst að allir treystu heiðarleika hans og trúmennsku og að öll störf sín, smá og stór, vann hann af einstakri prúðmennsku og tillitssemi við samferðafólkið. Sömuleiðis var hann afskaplega hlý manneskja og mér fannst alltaf bjart yfír honum. Það á vel við að segja um Óskar að hann var drengur góður. í mín- um huga var hann sannur heims- borgari. Allt frá því að ég man fyrst eft- ir Óskari fannst mér hann lítið eld- ast. Hann bar aldurinn einstaklega vel. Það var aðeins nú á allra síð- ustu árum að maður sá honum brugðið vegna sjúkleika. Alla tíð naut Óskar mikils stuðn- ings frá Guðbjörgu og fjölskyld- unni. Það fór ekki framhjá okkur samferðafólki þeirra að þau voru samrýnd og samtaka í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur og nutu þess að vera samvistum við öll tækifæri. Á sjötugsafmæli Óskars 14. september 1987 var hann sæmdur nafnbótinni heiðursborgari Hafnar. Á þann hátt var honum sýnd viðeig- andi virðing og þakklæti fyrir mik- il og heilladrjúg störf í þágu byggð- arlagsins. Á kveðjustund stöndum við Hafnarbúar og Austur-Skaftfell- ingar allir í þakkarskuld við Óskar Helgason. Um leið og honum eru þökkuð mikil og fórnfús störf send- um við Guðbjörgu, börnum, fjöl- skyldum þeirra og öðrum aðstand- endum innilegar samúðarkveðjur á sorgarstundu. Guð blessi minningu Óskars Helgasonar. Albert Eymundsson, forseti bæjarstjórnar Hafnar. Elsku afi minn er dáinn! Ég trúði því varla að hann afi væri dáinn þegar mamma tilkynnti mér þegar ,ég kom heim úr vinn- unni 2. júni að afi minn hefði látist á Borgarspítalanum fyrr um dag- inn. Afi, af hverju hann? Af hveiju strax? Það er svo margt sem kem- ur upp í hugann á stund sem þess- ari og margt sem mér finnst ég eiga eftir að segja við afa og gera með honum og ömmu sem voru óijúfanleg. Sárast þykir mér að hafa aldrei náð að þakka afa fyrir allt sem hann hefur gert fyrir mig og gefið mér í lífinu, þessi yndis- legi maður sem öllum líkaði svo vel við og elskuðu. Ég á erfítt með að trúa því að þegar ég fer næst til Hafnar þá sé ég ekki að fara í heirr,3Ókn til afa og ömmu á Hóla- brautinni, heldur bara til ömmu. Ég minnist svo margs, allra golf- ferðanna með afa þegar ég var yngri og dró golfkerruna fyrir hann, en afí hafði mjög gaman af því að spila golf og var einn af stofnendum golfklúbbsins á Höfn. Ég má heldur ekki gleyma ótelj- andi ferðum upp í Lón þar sem afi og amma eiga sumarbústað. Þar hef ég mikið verið og fórum við oft út á aurana að leita að steinum eins og margir steinaáhugamenn. Ég gæti talið endalaust upp skemmtilegar minningar sem eru óteljandi og komast alls ekki allar á pappír. Ég vil þakka þér, elsku afi minn, fyrir allan þann tíma sem ég fékk að njóta með þér. Ég vildi alls ekki trúa því að þú gætir dáið þegar þú varst lagður inn á Borgarspítal- ann á sl. þriðjudag en það fór sem fór. Þinn tími var greinilega kom- inn. Ég veit að þér líður vel núna og ert staddur hjá syni þínum og öðrum ástmennum sem hugsa vel um þig. Mér þykir leitt að hafa ekki getað kvatt þig og líka þakkað þér fyrir lánið á bókunum sem þú varst svo góður að lána mér fyrir íslenskuna í vetur. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa mér ef ég þurfti einhvers með og ekkert mun verða eins þegar öll fjölskyldan verður næst saman komin því djúpt skarð hefur verið höggvið í raðir okkar. Elsku amma mín, Guð styrki þig á þessari sorgarstundu. Þetta er erfiður tími og ég veit að mikill hluti af þér er horfinn með honum afa sem þú elskaðir mjög heitt. Þar sem afí var varst þú. Ég minnist hverrar stundar með afa og geymi í hjarta mínu sem enginn getur tekið frá mér. Guðbjörg Auðunsdóttir. Ég vil í fáeinum orðum minnast látins vinar og félaga, Óskars Helgasonar, Hólabraut 12 á Höfn í Hornafirði. Hann hafði um margra ára skeið háð hetjulega baráttu við erfiðan sjúkdóm, en fráfall hans bar þó skjótar að en nokkurn uggði. Veröld okkar er fátækari á eftir. Þegar ég fluttist til Hafnar fyrir um tuttugu árum og hóf störf hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga var Óskar einn af fyrstu mönnum til að bjóða mig velkominn til starfa og æ síðan hélst okkar kunnings- skapur og bar hvergi skugga á. Fyrst áttum við samleið innan kaupfélagsins, þar sem Óskar gegndi um fjölda ára stjómarstörf- um, lengst af sem formaður stjórn- ar. Síðar á vettvangi Framsóknar- félags Austur-Skaftfellinga, en Óskar var einn af burðarásum þess félags um margra ára skeið, starf- aði fyrir flokkinn í sveitarstjórn sem oddviti og tók virkan þátt í starfí félagsins allt til síðustu stundar. Óskar var einn þeirra rnanna sem óhjákvæmilega veljast til forystu, gefi þeir kost á sér til slíkra starfa. Hann vann ekki með fyrirgangi og hávaða, en af nákvæmni og með jákvæðu hugarfari. Hann hafði glöggt auga fyrir farsælustu lausn- inni á hveijum vanda, lagði málefn- in skýrt fyrir og skýrði mál sitt á hógværan hátt en með óhagganleg- um rökum. Það er einkenni fæddra forystu- manna, að þeir sjá betur fyrir af- leiðingar og hliðarverkanir ákvarð- ana en aðrir. Eldmóður augnabliks- ins getur villt okkur hinum sýn á hinn raunverulega kjama viðfangs- efnisins. Á slíkum stundum er ómetanlegt að eiga innan sinna raða menn sem skilið geta kjarnann frá hisminu. Menn eins og Óskar Helgason. Þó má enginn skilja orð mín svo að Óskar hafí skort eidmóð þegar um hugsjónir félaga og málefna sem honum vom hjartfólgin var að ræða. En eðlislægir forystuhæfi- leikar og áratugalöng reynsla, auk velvildar í garð allra samferða- manna sinna, gáfu honum þá yfir- sýn sem þurfti og þegar Óskar tal- aði þá hlustuðu menn. Ekki var það vegna þess að hávaði fylgdi máli hans, heldur vegna innihalds þess. Félagar í Framsóknarfélagi Austur-Skaftfellinga sakna nú vin- ar í stað. Auk þeirra trúnaðarstarfa Óskars sem nefnd hafa verið lagði hann hönd á plóginn miklu víðar. Má þar nefna kirkjulegt starf á Höfn og í héraðinu öllu, störf á vettvangi ungmennahreyfíngarinn- ar og bindindisfélaga. Hann vann við kennslustörf, sat um tíma í stjórn Sambands íslenskra sam- vinnufélaga og tók á vettvangi sveitarstjórnar virkan þátt í sam- starfi sveitarfélaga á Austurlandi og á landsvísu. Hann var virkur félagi í Lionsklúbbi Hornafjarðar og Golfklúbbi Hornaljarðar og þá fátt eitt talið. Þrátt fyrir að líkamlegir kraftar Óskars væm farnir að gefa sig síð- ustu árin var hinn andlegi eldmóð- ur óskertur allt til hinstu stundar. Ég minnist þess er við áttum sam- starf á liðnum vetri um útgáfu ljóðasafns Aðalsteins heitins Aðal- steinssonar, svila Óskars. Þar var Óskar driffjöðrin og lagði allt það lið sem hann gat. Ég minnist fund- ar sem við sem að útgáfunni unnum áttum á heimili hans og konu hans, Guðbjargar Gísladóttur, ljúfrar stundar sem gott er að eiga í endur- minningunni. Við sem áttum Óskar að vini og félaga í hinni daglegu baráttu höf- um misst mikið við fráfall hans. Mestur er þó missir eiginkonu og ljölskyldur. Óskar var kvæntur hinni mætustu konu, Guðbjörgu Gísladóttur frá Selnesi i Breiðdals- vík, og lifir hún mann sinn. Þau eiga fjögur börn á lífi, ágætisfólk eins og þau eiga kyn til. Oskar bar hag bama sinna og fjölskyldna þeirra mjög fyrir bijósti og sam- heldni þeirra var mikil og góð. Óskar og Guðbjörg urðu fyrir því mikla áfalli að missa elsta son sinn, Gísla, ungan. Slík sár gróa aldrei, en þau hjón styrktu hvort annað á þessum erfíða tíma eins og jafnan endranær. Heimili Óskars og Guð- bjargar var lengst af á Hafnar- braut 21 á Höfn, á pósthúsinu, en Óskar gegndi starfí símstöðvar- stjóra á Höfn í áratugi, allt til þess að hann lét af starfi vegna aldurs. Eftir það áttu þau heimili á Hóla- braut 12 á Höfn. Óskar Helgason valdist í fram- varðarsveit Hornfirðinga á mesta uppbyggingar- og framkvæmda- tíma í sögu byggðarlagsins. Ásamt fleiri stórhuga mönnum lagði hann grundvöllinn að Hornafirði nútím- ans. Fyrir nokkrum árum sýndi bæjarstjórnin á Höfn hug sinn til þessara starfa Óskars með þvi að velja hann heiðursborgara sveitar- félagsins. Þá viðurkenningu átti Óskar fyllilega skilið, enda hafa fáir lagt slíkt af mörkum sem hann til framfaramála hér. Ég vil að leiðarlokum færa Ósk- ari Helgasyni þakkir félagsmanna í Framsóknarfélagi Austur-Skaft- fellinga fyrir ómetanleg störf hans fyrir félagið og fyrir Hornfirðinga alla. Heiðríkja er yfír minningu þessa mæta manns. Við vottum eiginkonu hans, börnum og fjöl- skyldum þeirra samúð okkar og biðjum þeim Guðs blessunar. Guðbjartur Ossurarson. Það liðna, það sem var og vann, er vorum tíma yfir; því aldur deyðir engan mann,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.