Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 41 I I I ) ) I ) ) I ) I ) ) ) Vegasamband milli Reykjavíkur og Isafjarðar Frá Guðvarði Jónssyni Nú virðast menn vera famir að átta sig á því, að tenging Djúpaveg- ar við Hólmavík sé ekki framtíðar- lausn fyrir vegasamband milli Reykjavíkur og Isafjarðar. Nú er svo komið að menn eru aftur famir að tala um veg yfir Þorskaijarðar- heiði eða Kollafjarðarheiði og þriðja leiðin er komin á blað: Barðastrand- Frá Albert Jensen: Það hefur sýnt sig, að veiti Stöð 2 máli stuðning þá vekur það at- hygli. Stöð 2 hefur skarað framar öðmm fjölmiðlum í liðveislu við góð málefni eins og dæmin sanna. Ég mun ekki §ölyrða um það gagn sem hún hefur gert sjálfri sér og öðmm, því aukin virðing og áskrift tala sínu máli. Því er ekki með öllu fráleitt áhugamönnum um Tónlistarhús að leita stuðnings svo voldugs fjölmið- ils sem Stöð 2 er, hún aftur á móti með liðveislu aflaði sér og Bylgj- unni mikils efnis utan þess sem mest er um ver, þakklæti þjóðarinn- ar. A íslandi er tónlistaráhugi svo mikill að íþróttir em þar langt að baki, þó em íþróttahallir um allar jarðir, sém er gott út af fyrir sig, en ekkert tónlistarhús. Tónlistin, sú listgrein sem flestir njóta, er hornreka stjórnvalda og verður að gera sér að góðu íþróttahallir þegar mikið stendur til, nú síðast við opn- un listahátíðar í Hafnafírði. Þar sannaðist eins og svo oft hvað tón- listarhús er nauðsynlegur hlekkur í menningu okkar. Að þennan hlekk skuli vanta er grátbroslegt, því stjómmálamenn í valdastöðu eru í sífeldri leit að minnisvarða um afrek sín og skiptir þá ekki öllu hver gagnsemin er eins og dæmin sanna. Sá er flýtti fyrir tónlistarhúsi aflaði sér virðingar um leið og hann eða hún gerði þjóðinni kleift að njóta síns mikla fjölda framúrskarandi listafólks við réttar aðstæður. Það arleið með jarðgöngum úr Dýrafirði í Borgarfjörð. Mér finnst sú leið vart koma til greina, vegna þess að ekki er hægt að ná fram jafn mikilli styttingu á Barðastrandar- vegi og á Djúpvegi, en jarðgöngin milli Dýrafjarðar og Borgarfjarðar em sjálfsögð lausn til að losna við erfíðan fjallveg. En ef verið er að tala í alvöm er verið að borga milljarða í vexti til útlendinga, vegna vanhugsaðra fjárfestinga í stórbyggingum og skipum, en það virðist sama hveijir komast til valda úr gömlu flokkaf- emunni, allt er betra en tónlistar- hús. Bölmóður stjómvalda leyfir enga bjartsýni. Samkvæmt þeirra kokkabókum eigum við að búa okk- ur undir mikið viðvarandi atvinnu- leysi. Þó em byggðakjamar sem vilja reka af sér slyðmorðið en þá kemur í ljós að eitt er gæfa og annað gjörvileiki. í Hafnarfírði á að byggja um- hverfísspillandi stórhýsi undir versl- unar og skrifstofustarfsemi, hús- næði sem nóg er af, ástæðan, at- vinnusköpun og afleiðingin þarflaus skuldaaukning vegna álíka gáfu- legs verkefnis og Borgarkringlan. Á Egilsstöðum em svipaðar fram- kvæmdir en minni í sniðum. Mörg síðustu ár er eins og þjóðin í einu og öllu hafí ekki borið gæfu til að lq'ósa þá bestu í forsvar, þá sem úr erfiðri stöðu ynnu sem þjóðhags- legast, hvar sem þeir væm. Fáum Stöð 2 og Bylgjuna til að vinna gegn gagnlausum ljárfestingum með því að heQa áróður fyrir Tón- listarhúsi, húsi sem væri til gagn og gamans allri þjóðinni og veitti mörgum vinnu, húsi sem skilaði öllum stórkostlegum menningarleg- um arði til framtíðar. Uppeldislegt gildi Tónlistarhúss fyrir böm og unglinga er mikið. í Tónlistarhúsi gæfi öll vinnan af sér. ALBERT JENSEN Háaleitisbraut 129, Reykjavík um flutningaleið milli Reykjavíkur, ísafjarðar og annarra byggða Vest- fjarða, þá er Þorskafjarðarheiði og Djúpleiðin besti kosturinn. í framtíðinni verða jarðgöng gerð í staðinn fýrir fjallvegi. Það er þess vegna sem Djúpvegurinn er hag- kvæmari og býður upp á meiri stytt- ingu, heldur en hægt er að ná fram á Barðastrandarvegi. Sú leið sem ég tel að ætti að fara yfír Þorskaijarðarheði er í námunda við gömlu póstleiðina að Gedduvatni, en þaðan niður Torfdal o g yfir Lámbatunguá, eftir áreyrun- um, niður með Bráksfjalli eða Efra Bóli, þaðan yfir Kirlqubólsháls og niður Laugabólsdal, jarðgöng í gegn um Hestakleif (Eyrarfjall) og jarðgöng úr Heydal í Mjóafirði í Skötufjarðarbotn. Sumir hafa talað um brú yfir Hestfjörð en ég teldi hagkvæmara að gera jarðgöng úr Hestfjarðarbotni yfir í Hattadal, þar sem verið er að gera jarðgöng í gegnum Breiðadalsheiði og það er komin brú á Önundafjörð, er jarð- göng úr Álftafirði í Engidal betri leið, en úr Álftafírði í Önundafjörð. Það mun sumum finnast þetta ævintýralega framsett, en ég er viss um að þetta verður framtíðar- leððin, ef einhverjir landflutningar verða á þessari leið í framtíðinni. En þar sem Hólmavíkurleiðin er orðin staðreynd, búið að eyða í hana miklu fé, er rétt að nota hana á meðan Djúpvegur er styttur með jarðgöngum, þá fyrst og fremst göngum úr Heydal í Skötufjarðar- botn. Síðan veg yfír Þorskafjarðar- heiði í tengslum við brú á Gilsfriði og þá eru jarðgöng í staðinn fyrir veginn yfir Bröttubrekku orðin sjálfsögð. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Hamraberg 5, Rvík. LEIÐRÉTTINGAR Nafn féll niður í minningargrein Magneu Sigrúnar og Agnars Þórs Hjartar um Margréti Björnsdóttur í Morgunblaðinu í gær féll niður í upptalningu á systkinum Margrétar nafn eins þeirra og heimil- isfangs annars vantaði. Birtist hér á eftir í heild efnisgreinin, sem upptaln- ingin var í: „Margrét Bjömsdóttir var móðursystir okkar, og er hún sú fyrsta af sjö systkinum sem kveður þennan heim. Foreldrar hennar voru Ágústa H. Hjartar og Bjöm M. Bjömsson, sem bæði em látin, en böm þeirra em í aldursröð: Áróra, húsmóðir, búsett í Bandaríkjunum; Ástráður, bókbind- ari, búsettur í Kópavogi; Jónína, hús- móðir, búsett í Bandaríkjunum; Birna Ágústa húsmóðir, búsett í Reykjavík; Margrét sem hér er minnst; Óddný Þóra, húsmóðir, búsett í Bandaríkjun- um; og Bjöm Helgi, prentari, búsettur I Hafnarfirði. Systkinahópurinn hefur alla tíð verið mjög samheldinn, þrátt fyrir að þijár systurnar hafi um ára- bil verið búsettar í Bandaríkjunum. Ófáar ferðirnar hafa verið famar yfír Atlantshafið á liðnum ámm og bréfa- skriftir verið tíðar.“ Hlutaðeigandi em innilega beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Hollustuvernd, ekki Heilbrigðis eftirlit Reykjavíkur í frétt á miðsíðu Morgunblaðsins í gær segir að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi ítrekað lagt til að sett yrði reglugerð um leyfilegt magn PCP-efnasambanda í vamingi, sem fluttur væri til landsins. Hér átti að standa Hollustuvemd ríkisins og hef- ur hún tvisvar sinnum lagt til að þessi reglugerð yrði sett, fyrst við heilbrigð- isráðuneytið og síðar við umhverfís- ráðuneytið, eftir að það tók við þess- um málaflokki. Þá er missagt að um PCP-efnasam- bönd sé að ræða, heldur em þetta PCB-efnasambönd. í fréttinni er jafn: framt vitnað í Ólaf Pétursson, sem er starfsmaður Hollustuverndar ríkis- ins. VELVAKANDI TAPAÐ/FUNDH) Svart fjallahjól fannst SVART Mongoose fjallahjól, 21 gíra, fannst í vikunni. Upp- lýsingar gefur Stefanía í síma 10039. Ullarjakki tapaðist FALLEGUR brúnn ullarjakki týndist á skemmtistaðnum Ing- ólfscafé laugardagskvöldið 5. júní sl. Finnandi er vinsamlega beðinn að hafa samband við Hrafnhildi í síma 77001. Veski glataðist SVART veski glataðist nýverið á leið eiganda þess frá Bónus- verslun á Smiðjuvegi í verslun í Mjóddinni, Breiðholti. í því vom bæði peningar og skírteini og er finnandi vinsamlega beð- inn um að hafa samband við Karlottu eða Leó í síma 26309. Hjól fannst við Umferðarmiðstöð FJÓRLITT Giant Escaper reið- hjól, blágrænt, bleikt og gult, fannst við Umferðarmiðstöðina í Reykjavík 9. júní sl. Upplýs- ingar veitir Guðlaug í síma 46162. GÆLUDÝR Kisa í óskilum LÍTIL læða sem er um 4-6 mánaða gömul fannst og er í óskilum á Álfaskeiði 42 í Hafn- arfirði. Hún er svört með brún- um flekkjum og er mjög sér- kennileg. Hún þyrfti sárlega að komast heim til sín. Upplýs- ingar í símum 52691 eða 653398. Angórublandaðir kettlingar GULLFALLEGIR angóru- blandaðir kettlingar fást gefíns á gott heimili. Kassavanir. Upplýsingar í síma 44301. Kettlingar fást gefins ÞRÍR kettlingar fást gefins á gott heimili. Kassavanir. Upp- lýsingar í símum 650899 eða 652285. Tónlistarhús, Stöð 2 og Bylgjan GfíAFlSK HÖNNUN: tfERKISMENN HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.