Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 11 Frítekjumark hækkar og tekj utryggingaraukar greiddir HEILBRIGÐIS- og trygginga- málaráðuneytið hefur tilkynnt hækkun frítekjumarks vegna tekjutryggingar almannatrygg- inga um 3%. Einnig verður greiddur tekjutryggingarauki til elli- og örorkulífeyrisþega og uppbót á atvinnuleysisbætur vegna ákvæða í kjarasamningum um eingreiðslur til launamanna. Morgunblaðið/Einar Falur Selt á sunnudegi JÓN fisksali selur harðfisk flesta sunnudaga fyrir utan krambúðina í Arbæjarsafni. Þar fást bolsíur og kandís. dagsettri 7. júní sl., segir, að hinn 1. júlí ár hvert skuli frítekjumark tekjutryggingar almannatrygg- inga hækka og skal hækkunin vera í samræmi við almennar breytingar á bótum og annarra tekna milli ára. Einnig hefur verið ákveðið að hækka tekjumark vegna skerðingar á grunnlífeyri um 3% frá og með næstu mánaða- mótum. ■— Uppbætur tengdar eingreiðslum brigðis- og tryggingaráðuneytinu, Síðustu þijú ár hafa elli- og 3%.hækkun frítekjumarks I fréttatilkynningu frá heil- Nýbreytni í kynningii gamalla lífshátta ÁRBÆJARSAFN var opnað al- menningi í byrjun þessa mánað- ar. Safngestir geta kynnst forn- um atvinnuháttum, m.a. mjólkur- vinnu, netanýtingu, gerð roð- skinnsskóa og gullsmíði. Þeir geta líka skoðað íslensk hænsni. Að venju var Árbæjarsafn opnað almenningi 1. júní. Unnur Lárus- dóttir safnvörður sagði að nú í sum- ar yrðu í fyrsta skipti kýr í fjósi safnsins. Gætu safngestir fylgst með mjöltum og mjólkurvinnu með gamla laginu. Unnur var spurð um annað búíjárhald. Hún sagði að í Árbæjarsafni yrðu einnig ærnar, Hálfhyma og Mjallhvít, ennfremur hryssa með folald og ekki mætti gleyma hinum ágætu íslensku hænsum sem flestum þykir taka hvítfiðruðum erlendum hæsnum fram í fegurð og litadýrð. Hrosshár og roðskinnsskór Unnur sagði að áfram yrði hald- ið þeirri nýbreytni sem hefði hafist í fyrra, þ.e.a.a. að eldri borgarar hefðu verið ráðnir í þijú stöðugildi til að kynna gestkomandi foma lífs- hætti og atvinnuhætti. Nú væru í hlutastörfum, prentari, bókbindari, gullsmiður, sjómaður hnýtti net, bóndakona og bóndi sinntu skepn- Nemendum fækkar í Háskólanum NEMENDUM við Háskóla Is- lands fækkaði á þvi háskólaári sem er að ljúka ef miðað er við árið 1991-92. í vetur stunduðu rétt rúmlega fimm þúsund manns nám við Iláskólann en höfðu árið áður verið ríflega fjögur hundruð fleiri. Fækkun á sér jafnframt stað meðal kvenna sem stunda nám við skólann. Samkvæmt tölum nemenda- skráningar Háskólans fækkar nýskráðum nemum mest. Samkvæmt opinberum tölum nemendaskráningar voru nemendur í Háskólanum 5.034 í vetur. Af þeim fjölda voru nýnemar 1.999. Sömu tölur voru mun hærri í fyrra en þá voru nemar 5.478 og nýnem- ar 2.410 af því. Konum fækkar mikið í fyrra var hlutfall kvenna af heildarfjöldanum 57,9% en nú er sama hlutfall 56,5%. Fækkun kvenna í námi var meiri meðal ný- nema. Á síðasta ári voru konur aðeins 54,6% nýskráðra en háskóla- árið 1991-92 voru konur 58,6% af fjölda nýskráðra. Fjöldi nemenda í H.l 5.478 1991-93 5.034 57,9% 42,1% Uj 2 3 § 2 1991-92 Fjöldi nýnema í H.í. 1991-93 43,5% 2.410 1.999 58,6% S § 3 § 41,4% 54,6% ! 11 1 § 45,4% 1992-93 1991-92 1992-93 Lánasjóðskerfið orsökin? Brynhildur Brynjólfsdóttir deild- arstjóri nemendaskráningar Há- skólans telur breytingar á náms- lánakerfinu eina helstu ástæðu þessarar fækkunar. Vissulega séu orsakirnar margþættar en hún gagnrýnir ennfremur þau sterku áhrif sem Lánasjóðurinn hefur á nám og námskröfur í Háskólanum. „Stundum fer það á milli mála hvort við hér á nemendaskráningunni er- um starfsmenn Háskólans eða lána- sjóðsins,“ sagði Brynhildur í sam- tali við Morgunblaðið. Staðarfellshátíð ’93 2. - 4. júlí Ollum alþ ingismönnum boðið til hátíðarinnar Vilja fá fjöldann til þess að mótmæla lok- un meðferðarheimilisins á Staðarfelli STAÐARFELLSHÁTÍÐ ’93 verður haldin 2. - 4. júlí í sumar. Formað- ur SÁÁ, Þórarinn Tyrfingsson, nefnir hátíðina hátíð fjölskyldunnar í bréfi sem hann ritar félögum í SÁÁ, þar sem hann bendir á að nú sé mikilvægara en nokkru sinni fyrr að félagar mæti á hátíðina, þar sem stjórnmálamenn hafi skorið niður fjárframlög til áfengis- og vímuefnameðferðar SÁÁ og að óbreyttri fjárveitingastefnu blasi lokun Staðarfells við. Kristinn T. Haraldsson, formaður Styrktarfélags Staðarfells hefur rit- að öllum alþingismönnum bréf og boðið þýim að vera gestir hátíðar- innar. í bréfi sínu segir Kristinn m.a.: „Við óttumst að starfsemin að Staðarfelli verði lögð niður í framtíðinni og tilgangur þessarar hátíðar er m.a. sá að sýna samstöðu okkar, svo að svo verði ekki.“ Bein- ir Kristinn því til þingmanna að þeir og fjölskyldur þeirra komi til hátíðarinnar, svo þeir megi öðlast innsýn í og skilning á þeirri starf- semi sem fram fer á vegum SÁÁ. „Það mun væntanlega auðvelda þér að skilja starfsemina betur, þegar næstu íjárlög verða rædd á hinu unum, góður maður spinni úr hross- hárum og þess yrði að geta að kona að vestan settist þrisvar uppi á baðstofuloftið og gerði roðskinns- skó. Unnur sagði að hinir öldnu borg- ararnir myndu sinna sínum störfum alla opnunardaga en þar að auki væru alltaf sérstakir viðburðir á sunnudögum. Síðasta sunnudag, sjómannadaginn hefðu gömul sjó- klæði verið til sýnis. Næsta sunnu- dag yrði fyrirlestur með kaffi og vöflum um gönguleiðina til Reykja- víkur og síðan yrði gengið niðri bæ. Af öðrum atburðum má nefna að 18. júlí kynnir glímudeild Ármanns íslenska glímu. Nú í sumar verður Árbæjarsafn opið alla daga vikunnar nema mánudaga frá kl 10 til kl 18. örorkulífeyrisþegar fengið greidda tekjutryggingarauka á upphæð tekjutryggingar, heimilisuppbótar og sérstakrar heimilisuppbótar. Tekjutrygginaraukar þessir hafa tengst eingreiðslum vegna kjara- samninga um ýmsar uppbætur. Heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytið kunngerir að í júlí og desember 1993 verði greiddur 28% tekjutryggingarauki á upphæð tekjutryggingar, heimilisuppbótar og sérstakrar heimilsuppbótar vegna launabóta. í ágúst 1993 verður greiddur 20% tekjutryggingarauki á upp- hæð tekjutryggingar, heimilisupp- bótar og sérstakrar heimilisupp- bótar vegna orlofsuppbótar eða kr. 7.140. í desember 1993 verður greidd- ur 30% tekjutryggingarauki á upp- hæð tekjutryggingar, heimilisupp- bótar og sérstakrar heimilisupp- bótar vegna desemberuppbótar eða kr. 10.710. Uppbót á atvinnuleysisbætur Nýlega setti heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra reglugerð um greiðslu uppbótar á atvinnu- leysisbætur á árinu 1993. Sam- kvæmt reglugerðinni skal uppbót greiðast í júní og desember 1993. Uppbótin verður fundin með sama hætti. og íjárhæð láglaunabóta samkvæmt kjarasamningum. Uppbót þessi greiðist einungis þeim sem við lok viðmiðnartima- bils hafa notið bóta í 87 bótadaga eða lengur á síðustu 12 mánuðum. háa Alþingi á komandi hausti," seg- ir bréfritari einnig. Þórarinn Tyrfíngsson segir m.a. i bréfi sínu: „Þegar á þessu ári verð- um við að loka Vík frá 1. júlí og fram á haustið. Ef stjórnmálamenn- irnir og Alþingi halda óbreyttri stefnu og ætla ekki meiri peninga til meðferðarstarfsins á árinu 1994 er ljóst að SÁÁ getur ekki haldið áfram meðferðarstarfinu á Staðar- felli... Með þetta í huga hefur Styrktar- félag Staðarfells boðað til Staðar- fellshátíðar 2. - 4. júlí nk. og ætlar í tengslum við hátíðina að vekja sérstaka athygli á því hversu rekst- ur Staðarfells er ótryggur. Það er því mikið í húfi fyrir okkur öll hjá SÁÁ að fjölmenni verði á Staðar- fellshátíðinni.“ Tónleikar í Kaplakrika 18. júní kl. 20:30 gMlírWMt/ Ghena Dimitrova og Sinfóníuhljómsveit íslands. Gena Dimitrova er heimsfræg söngkona, ættuð frá Búlgaríu. Tónleikar hennar nú, eru einstæður listviðburður hér á landi, sem tónlistarunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. ALÞJÓÐLEC rAHÁTH LI5TAHATIP I hafnareirði 4.-50. JUNI LISTIN ERFYRIRALLA! Pantið miða tímanlega! Upplýsingar og miðapantanir í síma 65 49 86. Aðgöngumiðasala: Bókaverslun Eymundsson í Borgarkringlunni og við Austurvöll. Hafnarborg, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Myndlistarskólinn í Hafnarfirði, Strandgötu 50.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.