Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.06.1993, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993 Lögmenn telja fjár- námganga of seint ÝMIS ÞAU vandamál er spruttu upp eftir gildistöku nýrrar rétt- arfarslöggjafar fyrir tæpu ári síð- an eru enn ekki leyst að mati Marteins Mássonar framkvæmda- stjóra Lögmannafélagsins. Hann telur til að mynda að fjár- námsgerðir taki enn of langan tíma og gagnrýnir hann boðunar- kerfi sýslumanns- og lögreglu- stjóraembætta. Anna Mjöll Karls- dóttir deildarstjóri aðfarardeild- ar telur fyrirtökutímann eðlileg- an en upplýsir jafnframt að að- eins helmingi boðana embættisins og lögreglu sé sinnt. Marteinn staðfestir að nokkurar óánægju hafi gætt meðal lögmanna með seinagang við afgreiðslu fjárná- msgerða en tekur aftur á móti fram að ágætt samstarf hafí ríkt milli lögmanna og sýslumannsembættis- ins. „Það tekur alltaf vissan tíma að aðlagast breytingum á borð við réttarfarsbreytingarnar. Ástandið hefur eitthvað skánað en það er þó ekki viðunandi," sagði Marteinn. Flöskuháls í boðunarkerfi Að mati Marteins hefur skort á að boðunarkerfi sýslumannsembætt- isins virki sem skyldi en hann von- ast jafnframt til þess að úrbætur sem gerðar hafa verið að undanfömu svo sem fjölgun boðunarmanna muni losa um þann flöskuháls sem staðið hefur fjámámsgerðum fyrir þrifum. Marteinn gagnrýndi ennfremur þá tilhögun að gerðirnar færu nær ein- ungis fram á skrifstofum sýslu- manna. I tíð eldri laga hafi fulltrúar verið mikið á ferðinni í því skyni að ná í gerðarþola. Hið nýja kerfí leiðir að hans mati frekar til tafa en hið eldra vegna hættu á útivist gerðar- þola. Eðlilegur vinnsluhraði Aðspurð kvaðst Anna Mjöll Karls- dóttir deildarstjóri aðfarardeildar sýslumannsembættisins í Reykjavík telja deild sína hafa yfírstigið flest öll vandkvæði eftir breytingamar. Hún segir starfsmenn sína hafa unnið að því af kappi að ljúka málum fljótt og vel en líta verði á að nauð- synlegan tíma þarf til að taka á móti málum og rannsaka þau ann- ars vegar og við boðun gerðarþola hins vegar. „Vinnslutími mála hjá okkur getur vart orðið styttri en hann er nú þijár til fjórar vikur.“ Hún kveðst því ekki kannast við neinn sérstakan seinagang en einna helst tefjast mál í boðunaraðgerðum hjá lögreglustjóraembættinu. Al- mennt séu viðbrögð gerðarþola mjög slæm og um helmingur boðana beri árangur. Körfubolti heillar ungu kynslóðina sem fylgist vel með leikjum í Bandaríkjunum Hinrik Haraldsson. Þorleifur Jón Brynjarsson. Guðjón Pétursson. Vagga letilega um götumar og biðja iiiii broddaklippingu HVARVETNA sjást kornungir körfuboltastrákar með derhúfur sinna liða og öklaháa körfubolta- skó á fótum vagga um götur borgarinnar með sérkennilega letilegu körfuboltagöngulagi, skiptandi á myndum af átrúnað- argoðunum í NBA-deildinni. Uppgrip eru hjá hárskerum sem hafa varla undan að brodda- klippa körfuboltastrákana, sem biðja um Barkley-klippingu eða kiwi-klippingu. Það hefur vart farið fram hjá mörgum að gífurlegur áhugi fyrir körfuknattleik hefur stungið sér niður hér á landi og rekja margir þennan áhuga til útsendinga Stöðv- ár 2 frá bandarísku NBA-deildinni, og þáttöku „draumaliðs" bestu at- vinnumanna Bandaríkjanna á Ólympíuieikunum á síðasta ári. Þess verður vart langt að bíða að unga kynslóðin hér á landi fari að láta að sér kveða í þessari íþrótta- grein svo um munar. Við Austurbæjarskólann voru nokkrir körfuboltastrákar að leik og Morgunblaðinu lék hugur á að kynnast viðhorfum þeirra til þess- arar bandarísku þjóðaríþróttar. Fyrstur á vegi okkar varð Ingvi Sighvatsson. „Ég fer mikið í körfu, eða annan hvom dag að jafnaði. Svo horfi ég mikið á leiki í NBA- deildinni og ætla að horfa á annan úrslitaleikinn í nótt. Ég gafst hins vegar upp á biðinni í fyrsta leikn- um, því Stöð 2 gat ekki sent út fyrri hálfleikinn,“ sagði Ingvi. Þúsundkall á dag Hann sagði ekkert mæla á móti því að vaka til kl. 5 um nóttina um helgi til að horfa á úrslitaleikinn með félögunum. „Annars fara morgnarnir í að leita mér að vinnu,“ sagði Ingvi. Hann kvaðst telja að Morgunblaðið/Kristinn Undir körfunni I LEIK undir körfunni við Austurbæjarskólann. hinn mikli körfuboltaáhugi nú væri m.a. tilkominn vegna þátttöku bandaríska „draumaliðsins", á Ólypíuleikunum í Barcelona. „Svo hefur Stöð 2 náttúrulega sent út leiki í NBA-deildinni í nokkur ár. Ég horfi yfirleitt á það á sunnudög- um og hef mikið gaman af því. Svo spila ég líka tölvuspil niðri á Fredda sem heitir NBA og hef eytt um 1.000 kr. á hveijum degi frá því ég kynntist því spili. Það er því allt í fullurn gangi," sagði Ingvi. Guðjón Pétur^son var orðinn úti- tekinn, enda sagðist hann spila körfubolta við Austurbæjarskóla á hveijum degi. „Það er um eitt ár síðan ég fór að spila körfubolta af alvöru. Hann er skemmtileg íþrótt og þegar ég fór til Bandaríkjanna voru allir í körfu. Þar byijaði ég og hélt svo áfram,“ sagði Guðjón. Hann sagðist fylgjast grannt með sínu liði, Chicago Bulls, í úr- slitaleikjunum gegn Phoenix Suns í NBA-deildinni. „Fyrsti leikurinn var til kl. 4 um nóttina og byrjaði um kl. 1. Mömmu og pabba er al- veg sama þótt ég horfi svo lengi á sjónvarpið," sagði Guðjón. Hann sagði að það hefði verið dálítið erf- itt að vakna til vinnu en hann er í unglingavinnunni. Hann sagðist ætla að byrja að æfa körfubolta Ingvi Sighvatsson. fyrir alvöru með Val næsta vetur og hugsanlega myndi hann leggja íþróttina fyrir sig. „Rappstælar" Hinrik Haraldsson kvaðst ekki fylgjast með útsendingunum á Stöð 2 af þeirri einföldu ástæðu að á heimili hans væri ekki afruglari. „Ég er ekkert hrifinn af þessum „rappstælum" sem eru í kringum körfuboltann," sagði Hinrik og sýndi viðstöddum hvemig alvöru- körfuboltamenn ganga. Þorleifur Jón Brynjarsson hefur náð mikilli leikni í að snúa boltanum með gómunum. „Ég hef ekkert æft þetta að ráði, ég er bara að leika mér. Ég kem hingað stundum og spila körfu,“ sagði Þorleifur. Hann kvaðst fylgjast með úrslitaleikjun- um, og hans menn væru í Chicago Bulls. Þorleifur fékk sér frí úr ungl- ingavinnunni daginn eftir fyrsta úrslitaleikinn, enda stóð leikurinn langt fram á nótt. Kvartmíluklúbburinn Meistarar æfa í mótorhjólahermi Á SUNNUDAGINN fer fram fyrsta kvartmílukeppnin til ís- landsmeistara á braut Kvartmiluklúbbsins, sem heldur keppn- ina í samvinnu við Pizza 67. Nokkrir af fremstu mótorhjólaöku- mönnum landsins söfnuðust af því tilefni saman í Kringlunni á föstudag og æfðu sig í mótorhjólahermi, tæki sem líkir eftir akstri á þekktri kappakstursbraut í Japan. „Þetta var ótrúleg útrás og kemur okkur í rétta skapið fyrir kvartmíluna. Ég fékk dúndrandi hjartslátt og þessi mótorhjóla- hermir, Galaxy, líkist mjög því að vera í keppni. Við svitnuðum og tókum á taugakerfinu í þessi tæki,“ sagði Karl Gunnlaugsson, sem er fyrrum meistari í kvart- mílu, en einnig kepptu á tækinu moto-crossmeistarinn Helgi Ge- orgsson, Guðjón Karlsson kvartm- ílumeistari og fleiri. í bígerð er að halda íslandsmót í herminum, en tveir keppendur aka í einu á tækinu og þykir líkjast kappakstri á mótorhjólum. Er það notað er- lendis til þjálfunar ungra öku- manna, áður en þeir fara í öku- tíma. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Mótorhjólameistarar á æfingu ÖKUKAPPARNIR Helgi Georgsson og Karl Gunnlaugsson reyna með sér í mótorhjólahermi í gær á æfingu fyrir íslandsmótið í kvartmílu á sunnudaginn, þar sem Karl keppir. Tækið er hið fyrsta sinnar teg- undar hérlendis og líkir eftir kappakstri á þekktri braut í Japan. Kirkjugarðadeila Aðgerðir óþarfar SAMKEPPNISSTOFNUN hefur úrskurðað að ekki þurfi að aðhaf- ast í deilu Kirkjugarða Reykjavík- ur og samkeppnisfyrirtækja þeirra. Lög um kirkjugarða sem samþykkt voru 26. apríl taka að mati stofnunarinnar af tvímæli um hlutverk og starfsemi fyrirtækja sem se|ja þjónustu við útfarir. Að ósk tveggja fyrirtækja sem veita útfararþjónustu leitaði Sam- keppnisstofnun til dóms- og kirkju- málaráðuneytisen það taldi að nýju lögin um kirkjugarða innihéldu ákvæði þar sem skýrt væri kveðið á um skyldu kirkjugarðanna til að skilja á milli lögbundins hlutverks þeirra og starfsemi á samkeppnissviði. í ljósi þessa álits og þess að lögin hafí tekið gildi segir í úrskurði stofn- unarinnar að ekki sé þörf aðgerða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.