Morgunblaðið - 12.06.1993, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JUNI 1993
13
Segulómun við greiningu á MS
eftir Kolbrúnu
Benediktsdóttur
Segulsjá (segulómun) er rann-
sóknartæki sem er nýtt af nálinni
í klínískri notkun hér á landi, en
hefur víða erlendis verið í notkun
allmörg ár. Tækjum af þessari gerð
hefur Qölgað mjög hratt erlendis á
allra síðustu árum, og hlutur þeirra
í almennri myndgreiningu orðið sí-
fellt stærri. Röntgen- og mynd-
greiningadeild Landspítalans fékk
slíkan tækjabúnað í febrúar á síð-
asta ári, en hann er bæði dýr og
flókinn.
Grunntæknin byggir á seglinum
sjálfum, sem er aðaluppistaða tæk-
isins, en innan þess eru einnig litlir
staðsetningarseglar, og við það er
tengt loftnet eða spólur, sem gefa
frá sér, og geta einnig numið, út-
varpsbylgjur, en þær hafa áhrif á
orkustig og þar með segulstefnu
vetniskjama í segulsviði. Mynd-
greiningin byggist á seguleiginleik-
um vetniskjarna mannslíkamans.
Með tölvubúnaði, sem tengdur er
seglinum, er fjöldi og staðsetning
vetniskjarna reiknaður út, og þann-
ig má greina vefja- eða líffærahluta.
Umhverfis og innan segulsins
myndast segulsvið. Þeir sem fara í
rannsókn þurfa því að • fjarlægja
alla málmhluti sem hugsanlega geta
haft segulmagnandi áhrif. Minni
hlutir geta valdið myndtruflunum;
stórir málmhlutir geta skemmt tæk-
ið eða jafnvel valdið slysum. Fyrir
rannsókn þarf að fjarlægja flesta
skartgripi, tæma vasa af lyklum,
pennum og slíku. Ganga þarf úr
skugga um að sjúklingar séu ekki
með segulmagnandi æðaklemmur,
gerviliði, beinspangir, pinna eða
skrúfur, en flest af framangreindu,
sem framleitt er nú til dags, er þó
í lagi. Ekki er hægt að rannsaka
fólk með hjartagangráð eða tauga-
örva vegna hættu á gangtruflunum
þeirra. Meðallengd hverrar rann-
sóknar er V2-I klst. Teknar eru
nokkrar myndaraðir, sem taka að
jafnaði 5-10 mín. hver. Segullinn
er þröngur, langur sívalningur, sem
ekki allir treysta sér til að liggja
í, og þess vegna verður í einstaka
tilvikum að hætta við rannsókn
vegna innilokunarkenndar, sem
sumir fá.
Læknar reiða sig æ meir á
segulómun
Tækið hefur þótt einkar hentugt
til skoðunar á miðtaugakerfinu og
tekur þar öðrum nokkuð sambæri-
legum tækjabúnaði fram, eins og
t.d. tölvusneiðmyndatækjum, við
rannsóknir á mörgum miðtauga-
kerfissjúkdómum. Þykir það eink-
um og sér í lagi mjög gott til grein-
ingar á mænusjúkdómum. Mönnum
lærðist fljótt ótvíræðir kostir þess
við greiningu á MS, og reynslan
hefur orðið sú að læknar sem ann-
ast MS-sjúklinga reiða sig æ meira
á þessa greiningaraðferð.
Ekki er vitað hver orsök þessa
sjúkdóms er, en vefjarhlutar eða
efni innan miðtaugakerfisins
skemmast. Niðurbrot verður á
myelini, sem er fituríkt efni er ligg-
ur umhverfis þræði taugafrumna
og þjónar sem stoðefni eða einangr-
unarefni þeirra. Við þetta myndast
staðbundið bólgusvar og síðan
koma til örvefsbreytingar (gliosis).
Þessar breytingar .eru á fagmáli
. kallaðar MS eða demyeliniserandi
blettir.
Þannig myndast svæði innan
miðtaugakerfisins með myelin-
skemmdum og eftir standa örvefs-
breytingar. Oftast eru þessar breyt-
ingar ekki stærri en nokkrir milli-
metrar, en geta orðið stærri, mjög
útbreiddar og myndað samfellda
fláka eða breiður. Ef svæðin eru
stærri (1 cm eða meira), myndast
oft mjög kröftug bólgusvörun með
verulegu niðurbroti á innbyggðri
flæðisvörn heilans,, („blood brain
barrier“ ). Þá er mögulegt að sjá í
nýjum breytingum skuggaefnisupp-
hleðslu, bæði á segulsneiðum og
einnig tölvusneiðum. Hins vegar er
sjaldnast gefið skuggaefni í slíkum
tilvikum nema vafi leiki á uppruna
breytinganna. Aldur breytinganna
hefur sjaldnast nokkra klíníska þýð-
ingu.
Þær breytingar, sem hér hefur
verið lýst, þ.e. demyeliniserandi
svæði, geta fræðilega sést alls stað-
ar þar sem myelin er, en eru þó
Auglýsingasamn-
ingur við Lotto
Grindavík.
Knattspyrnudeild UMFG hef-
ur gengið frá samningi við EG-
heildverslun, umboðsmenn
Lotto-íþróttavara á Islandi.
„Samningurinn felur í sér að
EG-heildverslun útvegar búninga-
sett og varamannasett og ýmsar
aðrar vörur tengdar knattspyrnu
sem við höfum áður þurft að kaupa
á liðið. Síðan fáum við bolta og
töskur sem eru merktar félaginu. A
móti fá umboðsmenn Lotto-vara
auglýsingaspjöld við knattspymu-
völlinn og merktan fána og þeir
mega nota menn félagsins í auglýs-
ingar," sagði Gunnar Vilbergsson,
formaður knattspyrnudeildar
UMFG, við Morgunblaðið.
Gunnar sagði að stjóm félagsins
telji þetta góðan samning fyrir fé-
lagið, hann sé viss viðurkenning
fyrir það og vörurnar séu góðar.
ANDRES SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22A-SÍMI 18250
Fyrir 17. júní:
Stakir jakkar nýkomnir á kr. 7.800
Sumarhattar í úrvali á kr. 1.900-4.900
Sumarbuxur á kr. 3.900
Flauelsbuxur á kr. 1.790-5.600
Vandaður fatnaður á hóflegu verði. Sendum í póstkröfu.
„Eins og fram hefur
komið hefur segulómun
haslað sér völl sem mik-
ilvæg rannsóknarað-
ferð á MS og verður á
komandi árum áreiðan-
lega þýðingarmikill
hlekkur í greiningu
þessa sjúkdóms.“
einkanlega staðsettar i hvítum
heilavef umhverfis heilahólfin.
Heilahólfín, eða vatnsrými heilans,
liggja miðsvæðis innan heilans,
umlukin hvítum heilavef. Umhverf-
is hvítan heilavef liggur grár heila-
vefur, sem myndar hið sérkennilega
fellda yfírborð. Heilahólfín tengjast
þunnu vökvarými sem liggur utan
heilans. Langalgengast er að sjá á
segulsneiðum skæra, nokkurra
millimetra stóra flekki innan hvíts
heilavefs stóra heilans, með sér-
stöku næmi fýrir aðgreiningu á
breytingum í vefjagerð (róteinda-
myndir og myndir með T2 vægi).
Einnig er algengt að sjá breytingar
innan litla heila, heilastofns og
mænu. Við skoðun á mænu geta
kyngingartruflanir sést á mynd og
eins truflanir vegna hjartsláttar.
Mænan er lítil um sig og oft á tíð-
um verra að túlka breytingar innan
hennar. Demyeliniserandi skellur
myndast gjarnan á sjóntaugum, en
vegna smæðar þeirra getur verið
erfitt að skoða þær með tilliti til
þessa sjúkdóms.
Nákvæmni frá 67 - 85%
Útlit MS-skemmdanna er ekki
sértækt á segulmyndum. Aðrir
sjaldgæfír sjúkdómar geta gefíð
svipað útlit eins og svokallaðar
leukoencephlopatiur eða leukod-
ystrofíur, sjúkdómaflokkar sem
meðaí annars eru tengdir veirusjúk-
dómum og efnaskiptasjúkdómum.
Breytingar innan heilans í kjölfar
geislunar á heilavef eru ekki ósvip-
aðar að útliti. Ef MS breytingar eru
óvenju stórar með áberandi upp-
hleðslu, eins og kemur fyrir, getur
þurft að greina milli heilaæxlis eða
heilakýlis (abscess-sýkingar).
Allmiklar rannsóknir tengdar
segulómun hafa verið gerðar á
breytingum innan heilans í MS.
Reynt hefur verið til dæmis að
flokka útlit og fjölda MS skella og
tengja við alvarleika sjúkdómsins.
Flestir eru á sama máli um að fjöldi
breytinga, sem sjást á segulsneið-
um, sé ekki tengdur brottfalisein-
kennum eða alvarleika sjúkdóms-
ins. Þannig geti sjúklingar með
sáralítil einkenni af sjúkdómi sínum
haft miklar breytingar, og einnig
geti sjúklingar með mikil einkenni
haft afar litlar breytingar í segul-
ómun.
Hafa allir MS-sjúklingar ein-
kenni sem sjást í segulómun? Gerð-
ar hafa verið úttektir á næmi segul-
rannsókna við greiningu sjúkdóms-
Kolbrún Benediktsdóttir
ins; höfundarnir Edelman og Hess-
elink (Clinical Magnetic Resonance
of Imaging) hafa talið nákvæmnina
vera 67% í mögulegum eða líklegum
MS-tilfellum og 85% í vissum.
Eins og fram hefur komið hefur
segulómun haslað sér völl sem mik-
ilvæg rannsóknaraðferð á MS og
verður á komandi árum áreiðanlega
þýðingarmikill hlekkur í greiningu
þessa sjúkdóms. Stöðugt er unnið
að nýjum rannsóknum til að freista
þess að skilja hegðun og þekkja
útlit MS-breytinganna betur. Von-
andi skilar það sér í betri skilningi
á eðli þessa oft erfiða sjúkdóms,
og gæti síðar meir orðið lyftistöng
í meðferð hans.
Höfundur er röntgenlæknir.
Weetab/x
Alpen morgunmatur er hollur og orkuríkur matur fyrir þá sem
skila löngu dagsverki. Trefjarnar fyrir meltinguna og
vítamínin bæta heilsuna.
ALPEN ER KRÖFTUGT OG GOTT MORGUNKORN.
Elías Guðmundsson, umboðsmaður
Lotto-vara, sagði að fyrirtækið
væri í sókn hér á landi og þeir
væru að gera samninga við stór
ítölsk félög sem léku í búningum
frá Lotto. Hann sagði að félagið í
Grindavík hefði gott orð á sér og
stjómin væri styrk, því væri fyrir-
tækinu hagur í að styrkja það með
þessum samningi. Lotto hefur
samninga við tvö félög í 1. deild,
ÍA og Þór, Akureyri, og nú Grinda-
vík.
Ekki fékkst upplýst um bónus
eða aukagreiðslur fyrir árangur í
deildinni en Gunnar sagði að það
kæmi í ljós ef svo væri. Knatt-
spymudeildin hefur hins vegar
greitt á aðra milljón fýrir búninga-
sett fyrir tímabilið þannig að um-
fang samningsins er umtalsvert að
því leyti.
FÓ
I