Morgunblaðið - 12.06.1993, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1993
27
SJONARHORN
Saga og minjar
eru þjóðarstolt
SENNILEGA hafa fáir sjón-
varpsþættir fengið jafn mikla
umræðu í þjóðfélaginu og
þættirnir „Þjóð í hlekkjum
hugarfarsins“ sem sýndir
voru í sjónvarpinu nú fyrir
skömmu. Þó að margt hafi
verið rætt og ritað um þessa
þáttaröð og þá söguskoðun
sem þar kom fram er málið
ekki útrætt, slíkur er skaðinn
sem þeir hafa valdið.
Þessir þættir voru settir upp á
furðulegan hátt og í raun vex reið-
in yfir þeim eftir því sem skaðinn
kemur betur í ljós. Það sem eftir
situr hjá þeim sem gjarnan vildu
fræðast um eigin sögu er að þeir
séu komnir af ómennum og hrott-
um sem lifað hafí hér við blóð-
skömm, kynvillu og vesaldóm. Er
að furða þó að ungu fólki þyki lít-
ið til forfeðranna koma!
Enginn ber á móti því að hin
dökka hlið á samfélaginu sem lýst
var í þáttunum var til hér á öldum
áður á sama hátt og hún er til stað-
ar hér í dag. Á það hefur verið
bent, að margir dómar sem gengið
hafa hér á landi að undanfomu
sýni að lægstu hvatir bærast enn
meðal þjóðarinnar, en menn verða
svo að dæma sjálfir hvort þar sé
um að ræða ríkjandi lífsmunstur
eða undantekningar.
Óblíð náttúruöfl hafa
mótað lífið í landinu
í upphafi vöktu' þættimir tals-
verðar væntingar, ekki síst hjá
yngri kynslóðinni sem yfirleitt hef-
ur fengið mjög litla kennslu í sögu
eigin þjóðar. Þama virtist líka-kjör-
ið tækifæri til þess að kynna sög-
una á þann hátt að uppbyggilegur
fróðleikur kæmi fram. En það fór
á annan veg. Saga okkar þjóðar
er þó engu ómerkari en saga ann-
arra þjóða. Hún hefur þó á margan
hátt þróast á annan veg sem kem-
ur til af því að hér hafa aðstæður
verið aðrar og erfiðari en víðast
annars staðar, þar sem óblíð nátt-
úmöfl og náttúruhamfarir hafa
reynst þjóðinni erfið og örlagarík.
Því til viðbótar var landið nýlenda
Sjóminjasafn íslands er til húsa í Bryde-pakkhúsi sem byggt var
1865 og er við Vesturgötu 8 í Hafnarfirði.
Fast þeir sóttu sjóinn. Land-
helgisbáturinn Ingjaldur, Mels-
húsabáturinn af Alftanesi og
Hallsteinsbáturinn úr Breiða-
fírði í sýningarsal á 1. hæð sjó-
minjasafnsins.
Vélaöldin gengur í garð. Úr
sýningarsal á 2. hæð.
Myndirnar eru teknar úr
kynningarbæklingi með leyfí
sjóminjasafnsins. Þær eru tekn-
ar af Jóhannesi Long.
erlendrar þjóðar um aldir með þeim
kvöðum sem því fylgdi. Þegar saga
lands og þjóðar er kynnt eiga þess-
ir þættir sem hafa mótað lífið í
landinu, að koma fram.
Jákvæð kynning
og sögufræðsla
Sögulegar heimildir er víða að
finna og þær má lesa á marga
vegu, fáum hefur tekist að gera
það á jafn aðdáunarverðan hátt og
Ónnu Sigurðardóttur tekst að gera
í bók sinni „Allt hafði annan róm,
áður í páfadóm" sem er saga
nunnuklaustra á íslandi. Einnig
má nefna „Sögu íslands" sem eru
mjög aðgengilegar bækur um sögu
lands og þjóðar og hafa verið gefn-
ar út af „Hinu islenska bókmennta-
félagi“. Einnig eru til eldri rit um
sögu ekki síður athyglisverð og
þeim verður ekki hafnað þó að ný
söguskoðun sé í burðarliðnum.
Sagan er „rætur “ þjóða
Flestar þjóðir leggja mikla rækt
við eigin sögu og setja hana fram
á mjög jákvæðan og uppbyggilegan
hátt. Þeim er ljóst að sagan eru
„rætur" sem halda þjóðum upprétt-
um og efla þrótt og reisn þegar
mæta þarf erfíðleikum. Þjóðir þríf-
ast ekki án róta því þær eru undir-
staða þjóðernisvitundar og metnað-
ar. Ef til vill var það söguvitundin
sem gaf forferðum okkar og for-
mærðrum þá reisn og þann styrk
sem nægði til að takast á við erfið-
leikana þegar þeir virtust nær óyf-
irstíganlegir.
Söguvitund eflir samstöðu
á erfiðleikatímum
Erfiðleikar hafa oft steðjað að
þessari þjóð og þeir hafa verið hér
miklu meiri en við sem nú lifum
höfum nokkurn tíma kynnst. Þeir
Skip, veiðarfæri og líkön mæta gestum á 1. hæð sjóminjasafns-
ins. Atvinnusagan skreytir veggi á myndrænan hátt.
erfiðleikar sem við teljum okkur
búa við í dag eru ekki óyfirstígan-
legir, þeir eru nánast hégómi miðað
við þá erfiðleika sem þjóðin hefur
þurft að glíma við á liðnum öldum.
I dag höfum við raunar allt sem
þarf til að yfirvinna aðsteðjandi
vanda. Við höfum þekkingu, vilja,
tæki og skipakost, það eina sem
skortir er samstaðan. Reynsla kyn-
slóðanna hefur leitt í ljós, að þekk-
ing þjóða á eigin sögu og baráttu
forvera fyrir tilverurétti sínum hef-
ur orðið sá aflgjafi sem þurfti til
að takast á við aðsetjandi erfið-
leika. Við erum engin undantekn-
ing, en við þurfum að efla virðingu
fyrir eigin sögu.
Saga í nútíð og fortíð
á Þjóðmiiyasafninu
Við vekjum hér athygli á tveim-
ur mjög góðum sýningum sem opn-
aðar voru um síðustu helgi. Þær
tengja sögu lands og þjóðar nútíð-
inni. Um er að ræða sýningu í Þjóð-
minjasafni íslands og ber heitið
„Nútíð við fortíð". A sýningunni
eru margir munir sem aldrei hafa
komið fyrir sjónir almennings áður,
þeir eru frá miðöldum fram til okk-
ar daga. Munimir eru mjög áhuga-
verðir og sýningin fallega uppsett.
Það ætti enginn að láta hana fram
hjá sér fara. Við munum gera henni
betri skil síðar.
Sjósókn og siglingar i
sjóminjasafninu í Hafnarfirði
í Sjóminjasafni íslands í Hafn-
arfirði var einnig opnuð sýning sem
nefnd hefur verið „Fiskur og fólk“.
Þessi sýning er ekki síður áhuga-
verð, hún er um sögu sjósóknar
og siglinga við ísland í aldanna
rás, eins og segir í kynningu. Þar
má sjá á palli veiðarfæri og opna
fiskibáta sem um aldir vom notað-
ir til veiða við landið. Þeir em eins
konar áminning til nútímans í þeirri
baráttu sem fiskimenn fyrri tíma
háðu við óblítt veðurfar. Þeir gáf-
ust ekki upp þó að þeir fengju
mótbyr og ættu allt sitt undir krafti
eigin vöðvaafls. Á sýningunni em
líkön era af stærri skipum úr for-
tíð og nútíð og myndir gamalla og
nútímalegri atvinnuhátta prýða
veggi. Sýningarmunum er einstak-
lega haganlega fyrir komið á safn-
inu. Á efstu hæð er m.a. myndband
sem sýnir hvalveiðar Norðmanna
við ísland um aldamótin og er þar
sögð saga sem draga má lærdóm
af.
Safnið sjálft er mjög skemmti-
legt, umhverfið fellur vel að þeim
munum sem þar eru sýndir. Um
leið og gengið er inn í bygginguna
er eins og stigið sé öld aftur í tím-
ann, veik angan af skreið mætir
gestum og magnar áhrifin.
Minjar tengja þjóð og sögu
Minjasöfn em tengsl okkar við
fortíð lands og atvinnusögu og þau
em staðsett víða um land. Nú þeg-
ar sumarleyfistíminn fer í hönd,
ætti fólk að gefa sér tíma til að
skoða þessi söfn þegar ferðast er
um landið. Á þann hátt geta menn
sjálfir metið fortíð og sögu lands
og þjóðar.
M. Þorv.
f -
iHtásíur V ST ■ MtJgii
r / t
ú
IIlUlgUH pililiSSl
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Aðalsafnaðarfundur eftir guðsþjón-
ustu. Venjuleg aðalfundarstörf.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 í lok sumarnámske-
iðs barna. Sr. María Ágústsdóttir
flytur hugleiðingu. Sr. Jakob Á.
Hjálmarsson þjónar fyrir altari.
Dómkórinn syngur. Organsti Mar-
teinn H. Friðriksson.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Auður Hafsteinsdóttir borgarlista-
maður leikur einleik á fiðlu. Dóm-
kórinn syngur. Organisti Marteinn
H. Friðriksson. Bátsferð úr Sunda-
höfn kl. 13.30. Sr. Þórir Stephen-
sen.
GRENSÁSKIRKJA: Safnaðarferð:
Hvalfjörður, Svínadalur, Saurbæjar-
kirkja. Brottför frá Grensáskirkju kl.
10. Tekið þátt í messu í Saurbaejar-
kirkju kl. 14. Sr. Jón Einarsson pró-
fastur og sr. Gylfi Jónsson messar.
Þriðjudag: Biblíulestur kl. 14. Sr.
Halldór S. Gröndal annast fræðsl-
una. Kaffiveitingar.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Sigurður Pálsson. Þriðjudag:
Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Sigurður Pálsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Hámessa kl. 11.
Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöldbænir
og fyrirbænir eru í kirkjunni á mið-
vikudögum kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Flóki Kristinsson.
Organisti Ólafur W. Finnsson. Kór
Langholtskirkju (hópur V) syngur.
Molasopi að lokinni guðsþjónustu.
Guðspjall dagsins:
(Lúk. 16.) Ríki maðurinn
og Lasarus.
Aftansöngur alla virka daga kl. 18.
LAUGARNESKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Ingólfur Guðmundsson.
Ræðuefni: Sá sem hefur tvö störf.
Organisti Ronald Turner.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Barnastund á sama tíma. Sr. Frank
M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Organisti Þóra Guðmunds-
dóttir. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Miðvikudag: Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimiiinu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Organisti Sigrún
Steingrímsdóttir. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Samkoma
ungs fólks með hlutverk kl. 20.30.
Sr. Gísli Jónasson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 20.30. Sönghópurinn
„Án skilyrða" sér um tónlist. Þor-
valdur Halldórsson prédikar. Prest-
arnir.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Kirkjukór og organisti Grafarvogs-
sóknar taka þátt í guðsþjónustu í
lok kóra- og organistamóts í Skál-
holtsdómkirkju. Vigfús Þór Árna-
son.
HJALLAPRESTAKALL: Messa kl.
11. Altarisganga. Kór Hjallakirkju
syngur. Organisti Kristín G. Jóns-
dóttir. Kristján Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta fellur niður í Kópavogs-
kirkju vegna þátttöku kirkjukórs og
organista í námskeiði í Skálholti.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta
kl. 20. Rangæingakórinn syngur
undir stjórn Elínar Óskarsdóttur.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Messað í Ból-
staðarhlíð 43, kl. 11. Safnaðar-
prestur.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugar-
daga messa kl. 14 og ensk messa
kl. 20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
KFUM/KFUK, SÍK:Almenn sam-
koma á Háaleitisbraut kl. 20.30. Þér
munuð öðlast kraft — í samfélag-
inu. Guðrún Gísladóttir og Gísli
Friðgeirsson. Lofgjörðarstund. Fyr-
irbænastund eftir samkomuna.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11. Alla rúmhelga daga messa
kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffladelfia:
Almenn samkoma kl. 20. Ræðu-
maður Sheila Fitzgerald. Allir hjart-
anlega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma kl. 17. Ræðumenn verða
Sigrid Andreasen, Louisa Fjalsbak
og Rósa Hansen.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Morg-
unsöngur kl. 11. Síðasta Guðsþjón-
usta fyrir sumarfrí.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kf'
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavik:
Messa kl. 16.
KÁLFATJARNARSÓKN: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 14. Biskup íslands
hr. Olafur Skúlason predikar.
Minnst 100 ára vígsluafmælis kirkj-
unnar. Organisti Farnk Herlufsen.
Bragi Friðriksson.
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa
í Lágafellskirkju kl. 14. Jón Þor-
steinsson.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL:
Guðsþjónusta verður í Ólafsvalla-
kirkju kl. 21. Helgistund verður- í
Stóra-Núpskirkju 17. júní nk. kl.
13.30.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Lesmessa með altarisgöngu kl. 11.
Þessa helgi sækir Kór Landakirkju
námskeið kór og organista í Skál-
holti og mun messan bera merki
þess. Kl. 20.30 KFUM og K ungl-
ingafundur.
AKRANESKIRKJA: Helgistund (les-
messa) kl. 11. Björn Jónsson.