Morgunblaðið - 14.07.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993
17
Tryggingasamningur
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, og Axel
Gíslason, forstjóri VÍS, undirrita nýja tryggingasamninginn 8. júlí sl.
Dagsbrúnarmenn
verða nú tryggðir
allan sólarhiinginn
DAGSBRÚNARMENN eru nú tryggðir allan sólarhringinn, jafnt í
vinnu sem utan, samkvæmt nýjum samningum sem Styrktarsjóður
Dagsbrúnarmanna og Vátryggingafélag íslands hafa gert. Samning-
arnir tryggja Dagsbrúnarmönnum hærri bætur og meiri vernd en
félagsmönnum annarra stéttarfélaga með hliðstæða tryggingasamn-
inga, skv. skilmálum samningsins. Samningurinn nær til allra full-
gildra Dagsbrúnarmanna á aldrinum 16-75 ára, alls tæplega 4.000
félagsmanna.
í fréttatilkynningu frá Dagsbrún
segir: „Nýi tryggingasamningurinn
er í grundvallaratriðum endurnýjun
á hóplíftryggingarsamningi Dags-
brúnar og VIS, þar sem bótagreiðsl-
ur hafa verið hækkaðar verulega,
og til viðbótar kemur frítímatrygg-
ing sem tryggir Dagsbrúnarmönn-
um og/eða afkomendum þeirradán-
ar- og örorkubótarétt í frítíma en
samkvæmt kjarasamningum eru
þeir eingöngu tryggðir í vinnunni.
Eitt meginmarkmið félagsins
með þessum nýju tryggingasamn-
ingum er að treysta hag sinna fé-
lagsmanna eftir megni — á tímum
kaupmáttarhraps og kjaraskerðing-
ar, þegar kjarasamningar verða sí-
fellt minna virði.
Sem dæmi um tryggingabætur
samkvæmt nýja samningnum má
taka kvæntan Dagsbrúnarmann,
tveggja barna föður. Falli hann frá
vegna slyss, hvort heldur er í vinnu-
eða frítíma, eru dánarbætur hans
nú samtals tæplega 2,8 milljónir,
sem er um það bil milljón krónum
meira en hefðbundin slysatrygg-
ingaákvæði kjarasamninga gera
ráð fyrir.
Slasist Dagsbrúnarmaður það
alvarlega, hvort heldur er í vinnu
eða frítíma, að hann hljóti af varan-
lega örorku, tryggir nýi samningur-
inn honum einnig örorkubætur. Til
dæmis má nefna að 20% örorka
myndi færa honum tæplega 460
þúsund krónur — til viðbótar við
aðrar tryggingar sem hann kann
að hafa og tryggingabætur Trygg-
ingastofnunar ríkisins.
Það er Styrktarsjóður Dagsbrún-
armanna sem greiðir allan kostnað
af þessum tryggingum."
Doktor í
dýrafræði
ÞORLEIFUR Eiríksson hefur
lokið doktorsprófi (FD) í dýra-
fræði með áherslu á atferlis-
fræði. Titill ritgerðarinnar er
„Female response and male sing-
ing strategies in two Orthopter-
an species". Yfirumsjón með
verkefninu hafði dr. Tommy
Radesater prófessor en aðalleið-
beinandi var dr. Anthony Arak
dósent.
Vörnin fór fram við dýrafræði-
deild Stokkhólmsháskóla 27. nóv-
ember síðastliðinn og var öllum
opin. Andmælandi var dr. Carl Ger-
hardt prófessor frá Missouri-
háskóla í Bandaríkjunum. í dóm-
nefnd sátu dr. Ove Ericsson dós-
ent, dr. Jacob Höglund dósent og
dr. Christer Wiklund dósent.
Ritgerðin er byggð upp á sjö
tímaritsgreinum og fimm af þeim
hafa verið birtar í viðurkenndum
vísindatímaritum. Hún íjailar um
aðferðir beinvængja við að finna
sér maka. Karldýrin kalla á kven-
dýr með söng og ná betri árangri
eftir því sem þau syngja meira. Það
er þó mismunandi eftir tegundum
hvernig karldýrin haga söng sínum
og fer það eftir því hvernig kvendýr-
in bregðast við. Kvendýrin svara
með söng og karldýrin gera hlé á
meðan til að hlusta eftir kvendýryn-
Dr. Þorleifur Eiríksson.
um og syngja því marga sutta
söngva með smá hléi á milli. Þegar
kvendýrin leita karldýrin uppi er
það áhrifaríkast að syngja stöðugt.
Karldýrin verða að laga sig að at-
ferli kvendýranna og hinar mismun-
andi söngaðferðir mótast af því.
Þorleifur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1978 og BS-prófi í líffræði frá
Háskóla íslands 1982. Foreldrar
Þorleifs eru Eiríkur Jónas Gíslason
brúarsmiður og Þorgerður Þorleifs-
dóttir húsmóðir. Eiginkona Þorleifs
er Heiðveig Pétursdóttir ritari og
eiga þau eina dóttur.
Onýttur hluti íþrótta-
hússins í notkun fyrir FV
Morgunblaðið/Árni Helgason
Samningar undirritaðir um innréttingar í iþróttahúsinu.
Stykkishólmi.
HÉR í Stykkishólmi hefir um
fjölda ára verið rekin framhalds-
deild Fjölbrautaskóla Vestur-
Iands á Akranesi. Hefir starfsemi
hennar verið í sambandi við
grunnskólann hér og því hefir
verið mikil þörf að koma deild-
inni fyrir í heild í betra hús-
næði, enda nú svo komið að að-
sókn að henni hefir um árin allt-
af verið í aukningu og svo komið
að aldrei hefir verið meiri aðsókn
en nú.
Var því ekki undan því komist
að gera einhveijar ráðstafanir til
að þessi skóli yrði hér áfram og var
ákveðið að innrétta þann hluta
íþróttahússins hér sem ekki hefir
enn komist í not. Þar var hægt að
fá þijár góðar mátulegar skólastof-
ur sem gætu enst nokkur ár enn
og var það samþykkt og nú var
undirritað samkomulag um tilhög-
un og útbúnað og byggingu þessar-
ar deildar. Verktaki er Trésmiðjan
Nes hf. hér og framkvæmdastjóri
hennar Ríkarð Hrafnkelsson undir-
ritaði fyrir félagið sem verktaki og
Þórir Ólafsson skólastjóri fjöl-
brautaskólans á Akranesi af hálfu
verkkaupanda.
Þessum undirskriftum og áfanga
var fagnað við undirskriftina sem
var á Hótel Stykkishólmi 5. júlí sl.
þar sem fyrir var bæjarráð, ásamt
bæjarstjóranum Ólafi Sverrissyni
og Lúðvíg Halldórssyni skólastjóra.
Flutti bæjarstjóri ávarp og skýrði
hversu mikið væri í húfi fyrir Stykk-
ishólm að hafa getað komið þessu
máli í höfn og gat um hversu vel
að þessum áfanga væri staðið,
bæði tækni- og fjárhagslega. Einnig
ávarpaði skólastjóri viðstadda og
flutti fræðsluyfirvöldum þakkir og
kvað þetta átak ómetanlegt fyrir
grunnskólann.
Að lokum bauð bæjarstjórn
Stykkishólms viðstöddum að þiggja
kaffisopa. Allir voru á einu máli
um hvað þetta kæmi Stykkishólmi
vel til framtíðarinnar litið.
- Árni
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Yfir 30 tegundir
Stærðin 36-41
Litlr. Hvftur, drappaður og svart lakk
Ath. Brelðir og mjúkt leður
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTU R
Kringlunni,
Kringlunni 8-l 2, sími 689212
Domus Medica,
Egilsgötu 3, sími 18519 .
v -J
Stígamót gefa
út tvo bæklinga
ÚT ERU komnir á vegum Stígamóta tveir bæklingar, annar um
nauðgun og hinn um sifjaspell. Fræðslubæklinga þessa hefur dr.
Guðrún Jónsdóttir, starfsmaður Stígamóta, tekið saman. Bæklingarn-
ir eru ætlaðir jafnt almenningi og fagfólki svo sem kennurum, fóstr-
um, félagsráðgjöfum, hjúkrunarfræðingum og öðrum þeim sem þurfa
að fást við kynferðislegt ofbeldi og afleiðingar þess í starfi sínu.
í bæklingunum er fjallað um
afleiðingar sifjaspella og nauðg-
ana á þolendur þeirra. Þar er að
finna leiðbeiningar um hvernig
best er að bregðast við og aðstoða
þá sem verða fyrir slíku ofbeldi.
I bæklingnum um sifjaspell er sér-
staklega fjallað um hvernig best
sé að taka á sifjaspellsmálum þeg-
ar börn eiga hlut að máli. Jafn-
framt eru í bæklingnum rakin
ákvæði hegningarlaga um sifja-
spell og nauðganir og meðferð
réttarkerfisins á slíkum málum
þegar þau eru kærð.
Bæklingurinn um nauðgun er 32
bls. en sifjaspellsbæklingurinn er
52 bis. Bæklingarnar eru prentaðir
í Prisma. Dreifingu þeirra annast
Stígamót. Hægt er að panta þá
þar. Hvor bæklingur um sig kostar
kr. 500.
VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ
VIÐ FLYTJUM
Skrifstofur okkar verða lokaðar fimmtudaginn 15. júlí, föstu-
daginn 16. júlí og mánudaginn 19. júlí nk. vegna flutninga.
Við opnum þriðjudaginn 20. júlí nk. í Lágmúla 7, 6. hæð.
Vinsamlega athugið ný símanúmer.
Lögmannsstofa Arnmundar Backman sl.
Arnmundur Backman hrl.
Ástráður Haraldsson hdl.
Sími: 811160.
Fax: 811170.
Pósthólf: 8383, 128 Reykjavík.
Lagastoð ht.
Sigurmar K. Albertsson hrl.
Magnús H. Magnússon hdl.
Skúli E. Sigurz.
Sími: 811140.
Fax: 811170.
Pósthólf: 8383, 128 Reykjavík.
Lögmannsstofa Arnar Höskuldssonar
Örn Höskuldsson hrl.
Sími: 811150.
Fax: 811170.
Pósthólf: 8383, 128 Reykjavík.
\____________________________________________________________________________/