Morgunblaðið - 14.07.1993, Síða 41

Morgunblaðið - 14.07.1993, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993 í 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 41 Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir orðið „ýkt" » ■* ivt er í*að sem Sagt er ofmikið“ f „Við N bræðnrnir erum „ýkt“ . margir“ Hinrik „Máltæki hjá unglingum í dag sem þýðir eitthvað J ógeðslega / grúví“ f ( Ingibjörg Sveinn ,Sumarið‘ FRAMUNDAN Hólmasel: 14. júlí kl. 20 - Tenniskynning. Við fáum tenniskennara í heimsókn sem leyfir unglingun- um að spreyta sig í tennis og kennir þeim nokk- ur undirstöðuatriði. Vellimir verða settir upp á planinu við Seljakirlrju. Spaðar og boltar verða á staðnum. Ársel: Opið hús á mánudags- og miðvikudagskvöld- um kl. 20-23. Fellahellir: Opið hús á þriðjudags- og fimmtudagskvöld- um kl. 20-23. Tónabær: Opið hús á mánudags- og fimmtudagskvöld- um kl. 20-23. Þróttheimar: Opið hús á þriðjudags- og fímmtudagskvöld- um kl. 20-23. Siglingaklúbburinn: Opið starf á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum kl. 17-19, fímmtudögum kl. 17-22 og laugardögum kl. 13-16. M.a. eru leigðir út árabátar, kanóar og seglbátar. Gjald kr. 150 fyrir hvem mann. -„Í3 ára ,strákor óskarefth suinarvftV^ Þið getið líka sent okkur óskir um efni í blaðið, eða bara skemmtileg bréf um hvað sem er. Ath. rs Ollum bréfum þarf að fylgja fullt nafn, ^ heimilisfang k og simanúmer. Morgunblaðið Unglingar Kringlunni 1 103 Reykjavík STEYPA Augn sem glóa í myrkri Isíðustu Steypu sögðum við frá ótrúlegri röntgensjón Marks Smith. En augu nafna hans Marks Maracani eru ekki síður merki- leg, þau glóa í myrkri. Samkvæmt The Sun varð Mark fyrir öflugri geislun á vinnustað sín- um, með þeim afleiðingum að augu hans glampa í myrkri. Glampinn er svo sterkur að hann getur lýst upp herbergi að næturlagi. „Eg sé alveg ágætlega, en það er svolítið neyðarlegt að ganga úti á kvöldin," segir Mark. „Fólk horfír á mig eins og ég sé einhverskonar djö- full. í fyrstu var ég dauðhræddur við þetta, en núna fínnst mér bara gaman að hrekkja vini mína með þessu.“ Það var bilun í röntgenvél sem or- sakaði geislunina sem Mark varð fyr- 'ir. Hann var sendur beint í læknisskoð- un, en þar kom ekkert óeðlilegt fram. Mark fór því heim til sín og leið bara alveg ágætlega. Það var ekki fyrr en um kvöldið, þar sem hann lá í rúminu við hlið konu sinnar, að þessi undar- lega hliðarverkun kom í ljós. „Ég lá og horfði upp í loftið þegar ég tók eftir því að herbergið var bað- að í grænu ljósi. Það hvarflaði ekki að mér að þetta ljós kæmi frá mér sjálfum, en þegar ég hnippti í konuna mína, snéri hún sér við, leit á mig og gaf frá sér hræðilegt öskur.“ „Augun í þér! Augun í þér!“ veinaði hin skelfíngu lostna eiginkona. Mark stökk á fætur, leit í spegil og dauð- brá. Augu hans glóðu eins og græn framljós á bfl. Þau hjónin keyrðu í ofboði á næsta sjúkrahús, en læknamir þar fundu ekkert alvarlegt að Mark fyrir utan geislun á háu stigi frá höfði hans. „Þessi geislun eykur líkurnar á krabbameini í framtíðinni, en það er ékkert við þessu að gera,“ segir dr. Frederick Barletta. „Eina uppáskriftin sem ég get gefíð herra Maracani er tími og góð sólgleraugú." SAMVISKUSPURNINGIN Borgar þúalltaf fullt gjald í strætó? Harpa, 16 ára: Já, ég er með Græna kortið. Grímur, 15 ára: Ég er með Græna kortið núna, annars borga ég ekki allt- af fullt gjald. mmmmmmmmmm Aðalbjörn, 16 ára: Já, alltaf. HVAR ERU ÞAU OG HVAÐ ERU ÞAU AÐ GERA Hún burstar skó, hann afgreiðir í sjoppunni Unglingasíðan náði tali af tveimur krökkum norð- ur í Eyjafírði og forvitnaðist um hvað þau væru að gera. Við fundum þau þar sem Guð- rún var að bursta skó í göngu- götunni á Akureyri en Sindri að afgreiða í sjoppunni í blómaskálanum Vín í Eyja- fíarðarsveit. Guðrún Jóhanna Ólafsdótt- ir, 15 ára. Ég er atvinnulaus en er þó með smá vinnu núna við að pússa skó hjá fólki og fá það til að kaupa leðurnæringu. Ég er búin að vera að þessu í fjóra daga og ætla að hætta eftir daginn í dag, ég er búin að fá nóg af því að pússa skóna hjá fólki. Hingað til hafa flest- ir tekið því vel þegar ég býðst til að pússa hjá þeim skóna og sannfærast oft um ágæti vörunnar og kaupa krukku af leðumæringu. En eins og ég segi þá er ég bara búin að fá nóg af þessu. Ég er líka í smá dútli hjá vini mömmu minnar á svínabúi rétt við Selfoss. Þar geri ég upp ruslatunnur og mála þök. I júlí tek ég svo þátt í leiklistarverkefni. Ungl- ingaleikklúbbar frá öllum ÍMorðurlöndunum og Síberíu setja upp sýningu hérna á Akureyri. Það verður gaman. Sindri Bjöm Hreiðarsson, 15 ára. Ég vinn í sjoppunni og bens- íninu, en aðallega samt í sjoppunni. Ég er í Hrafnagils- skóla á vetuma og kem oft hingað eftir skóla og vinn smá, svo það má segja að þetta sé heilsársvinna. Ég byijaði héma þegar ég var ellefu ára, en ekki fyrir alvöru fyrr en ég var tólf ára og þá í bensíninu. Ég nota frítímann til að vera með vinum mínum í körfubolta og fótbolta og svo er ég líka mikið á skellinöðr- unni minni. Félagslífíð fyrir unglinga héma í sveitinni er allt í lagi, ekkert of mikið en ekki heldur of lítið. Ég er nú mest að vesenast héma í kring, en ég skrepp líka inn á Akureyri í bíó og svoleiðis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.