Morgunblaðið - 14.07.1993, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐJÐ, KRMGLAM 1, 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SIMBREF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Heyskapur gengur þokkalega á Suður- og Vesturlandi
Morgunblaðið/Kristinn
Heyskapur í fullum gangi
HEYI pakkað í rúllubagga á Kiðafelli í Kjós í sól og sumri en þar gengur heyskapur ágætlega.
Spretta
er lítil
á Norð-
urlandi
ÓVENJU lági hitastig og
miklar rigningar á Norður-
landi hafa gert það að
verkum að lítil spretta er
í túnum og heyskapur hef-
ur gengið illa. Að sögn
Ólafs R. Dýrmundssonar,
landnýtingarráðunauts
Búnaðarfélags íslands, er
lítið byrjað að heyja á
Norðurlandi, en á Suður-
og Vesturlandi hefur hey-
skapur gengið þokkalega
það sem af er sumri.
Ólafur segir að nokkuð sé um
kal í túnum á Norðurlandi. Kuld-
ar og miklar rigningar hafa gert
það að verkum að heyskapur
hefur gengið illa. „Enn er mikill
tími eftir af sumrinu og við verð-
um að vona að það geti brugðið
til betri tíðar. Ef það verður
kalt áfram og minni spretta og
ef það verður einnig erfitt að
heyja verður lítill heyfengur í
ár,“ segir Ólafur.
Hann segir að töluvert sé búið
að heyja á Suðurlandi og á Vest-
urlandi og þar sé ástandið skást
en þrátt fyrir kulda hafi sprottið
ágætlega í þessum landshlutum
og auk þess hafí komið góður
þurrkur inn á milli.
Næg hey til
Ólafur segir að síðustu ár
hafi heyfengur yfirleitt verið
ágætur á landinu og í vor hafí
margir bændur átt nóg hey. Það
geti komið til góða ef bændur
heyi ekki sem skyldi í sumar.
Þorskafli gæti orðið 40
þús. tonn yfír afíamarki
Verðmæti afla upp úr sjó 26,5 milljarðar frá áramótum en var 27.5 milljarðar í fyrra
Aðgerðir flugvirkja
Flugvél til
New York
seinkaði
VÉL Flugleiða til New York í
gær seinkaði um tæpar sex
klukkustundir vegna yfirvinnu-
banns flugvirkja. Að sögn Guð-
mundar Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra tæknisviðs Flug-
leiða, tókst ekki að ljúka skoðun
á vélinni á dagvinnutíma, eins
og venja er.
Um 130 manns lentu í seinkun
frá íslandi vegna þessa. Þá koma
farþegar frá New York einnig til
með að lenda í einhverri seinkun.
-----» ♦ ♦---
Ungfrú Evrópa 1993
Svala Björk
hlaut 5. sæti
SVALA Björk Arnardóttir, feg-
urðardrottning Islands 1993,
lenti í fimmta sæti í fegurðar-
samkeppninni Ungfrú Evrópa
1993, sem fram fór í Istanbúl í
Tyrklandi í fyrrakvöld. Það var
hins vegar tyrkneska stúlkan
Arzun Oman sem lenti í fyrsta
sæti, í öðru sæti var Julia Alekse-
eva frá Rússlandi, í þriðja sæti
Dana Avrish frá ísrael og í fjórða
sæti stúlka frá Spáni.
í samtali við
Morgunblaðið í
gærmorgun kvaðst
Svala Björk vera
ákaflega ánægð
með úrslitin. Hún
hefði verið orðin
mjög spennt þegar
ljóst var að hún var
ein af fímm efstu
keppendunum.
„Þetta hefur verið langur og stremb-
inn undirbúningur og ég er orðin
ansi þreytt. En þetta hefur verið ákaf-
lega góður og skemmtilegur tími,“
Sjá nánar Fólk í fréttum bls. 33.
ÞORSKAFLI það sem af er þessu fiskveiðiári er tæplega
192.000 tonn eða um 20.000 tonnum minni en á sama tíma
í fyrra. Þorskveiði í júní var hins vegar með bezta móti
og fengust nú 22.346 tonn alls en 20.653 í fyrra. Aflabrögð
í júlí og ágúst í fyrra voru góð og náist eins mikið af þorski
nú, gæti heildarþorskaflinn þetta fiskveiðiár orðið allt að
244.000 tonnum. .
Ríkisframlag til
framkvæmda
Akvörðun
frestað
SKIPTING fjárveitingar að upp-
hæð einn milljarður króna, sem
renna á til atvinnuskapandi
framkvæmda á árinu, var ekki
afgreidd á ríkisstjórnarfundi í
gær eins og til stóð. Stefnt er
&ð því að afgreiða málið á ríkis-
stjórnarfundi næsta þriðjudag.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins munu nokkrir ráðherrar
ræða skiptingu fjárveitingarinnar
betur sín á milli fram að næsta ríkis-
stjómarfundi. Davíð Oddsson for-
sætisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið að eftir afgreiðslu
""ríkisstjómarinnar á málinu yrði það
rætt við aðila vinnumarkaðarins
áður en það yrði endanlega kynnt.
Heildaraflamark var ákveðið
205.000 tonn. Um 25.000 tonn
eru óveidd af úthlutuðu aflamarki
og samkvæmt því getur heildar-
þorskafli aðeins orðið um 217.000
tonn, en verður meiri vegna færslu
aflaheimilda af síðasta ári yfir á
þetta og vegna þess að krókabátar
auka sinn hlut, sem er utan heild-
araflamarks. Mögulegar veiðar
umfram heildaraflamarkið eru
heimilar lögum samkvæmt og
verður ekki komið í veg fyrir þær
nema með lagabreytingum.
Hlutur krókabáta vaxandi
Þorskafli í júlí á síðasta ári var
28.373 tonn og 23.560 í ágúst.
Náist svipaður afli, stefnir í að
tekin verði um 40.000 tonn um-
fram heildaraflamarkið, sem gefið
var út fyrir yfirstandandi fiskveiði-
ár. Það var 205.000 tonn, en af
því var 182.600 tonnum úthlutað
á skip, gert ráð fyrir 15.000 tonn-
um vegna línutvöföldunar og
7.400 tonn komu í hlut Hagræð-
ingarsjóðs. Leyfilegt er að flytja
allt að 20% af þorskkvóta viðkom-
andi fiskveiðiárs yfír á það næsta
og var mikið flutt yfir á þetta. Þá
fer hlutur krókabáta vaxandi, en
þessa tvo mánuði í fyrra tóku þeir
um 8.000 tonn af þorski. Loks
hefur minnkandi útflutningur á
ísuðum físki sín áhrif, því þá
minnkar það kvótaálag, sem út-
flytjendur hafa orðið að sæta, en
það er 20% af útfluttu magni.
Mikill loðnuafli
Heildarfiskafli þetta fiskveiðiár
var um síðustu mánaðamót orðinn
1.291.115 tonn samkvæmt bráða-
birgðatölum Fiskifélags íslands.
Það er rúmlega 50.000 tonnum
meira en á sama tíma í fyrra og
350.000 tonnum meira en 1991.
Munurinn liggur að mestu í mikl-
um loðnuafla. Botnfískafli nú er
453.000 tonn og þorskafli þar af
192.000. Árið 1991 var þorskafl-
inn 252.746 tonn eftir sama tíma-
bil. Rækjuafli er nú 38.228 tonn,
nærri 12.000 tonnum meiri en í
fyrra og tæplega tvöfalt meiri en
1991. Meira hefur nú einnig veiðzt
af hörpuskel og humri.
Verðmæti fískaflans frá ára-
mótum miðað við óslægðan físk
upp úr sjó er 26,5 milljarðar króna.
Verðmæti aflans nam 29,5 millj-
örðum á sama tíma 1991 og 27,5
í fyrra.
Sjá einnig í Úr verinu bls. 5
Dekkin spændust upp i Laugardal
Morgu n bl aðið/Gu nnl augur Rögn valdsson
Vinsælt hjá
unglingnm
UNGA fólkið hefur gripið go-
kart bílana traustataki, en tæp-
lega fimm hundruð prófuðu þá
fyrsta sólarhringinn, sem
brautin var opin.
Bílabraut
var lokað
EFTIRSPURNIN eftir því
að aka á nýju go-kart kapp-
akstursbrautinni í Laugar-
dal varð svo mikil utn sl.
helgi að aðstandendur
hennar neyddust til að loka
henni í gær. Dekkin undir
bílunum sex sem þar eru
leigðir spændust einfald-
lega upp.
„Það komu á fimmta hundrað
manns fyrsta daginn sem brautin
var opin og við pöntuðum ný dekk
með DHL-hraðsendingu, sem
koma í miðri viku. Það var því
lokað vegna vinsælda í gær,“
sagði Úlfar Hinriksson, sem er
einn af rekstraraðilum brautar-
innar.
Úlfar sagði að gróf steinsteyp-
an á brautinni eyddi dekkjunum
mjög hratt. „Við fengum því harð-
ari dekk, sem endast betur og
komumst því á fullt aftur í vik-
unni,“ sagði Úlfar.