Morgunblaðið - 25.07.1993, Síða 8
J
8 B
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1993
ÍDAG
25. júií
1241 Andlát Hallveigar Orms-
dóttur, konu Bjarnar Þorvaldssonar
og slðar Snorra Sturlusonar.
1510 Heklugos hefst.
1808 Enskt víkingaskip rænir
fjárhirzlu landsins 37.000 dölum.
1875 HjálmarJónsson skáld frá
Bólu deyr.
1902 Dáinn síra Þorkell Bjarna-
son á Reynivöllum, sem skrifaði
Um siðbótina (1878) og ýmsar
tímaritsgreinar, m.a. um síldveið-
ar í Andvara', sat á þingi 1881-
1885 og 1893-1899.
1912 Hannes Hafstein verður
ráðherra íslands í annað sinn.
1942 Dáinn Magnús Stefáns-
son skáld (Örn Arnarson).
1946 Alþingi samþykkir að
æskja inngöngu í Sameinuðu
þjóðirnar.
1956 Vestur-íslenzka skáidið
Guttormur Guttormsson deyr.
1959 Átök sjómanna af síld-
veiðiskipum og lögreglu á Siglu-
firði= Táragas berst inn um aðal-
dyr hótelsins á grátandi dansend-
ur.
1974 Alþjóðadómstóllinn úr-
skurðar útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar í 50 sjómílur ólöglega.
1979 Þórarinn Guðmundsson
tónskáld deyr.
Erlent
1581 Utrecht-sambandið, banda-
lag kalvfnista í sjö nyrztu héruðum
Hollands, afneitar með eiði hollustu
við Filippus II og lýsir i raun yfir sjálf-
stæði Niðurlanda frá Spánverjum.
1593 Hinrik IV af Navarre
Frakkakonungur afneitar mót-
mælendatrú og gerist kaþólsk-
ur með þeim orðum að „París
sé einnar messu virði".
1689 Loðvik XIV segir Eng-
lendingum stríð á hendur eftir
flótta Jakobs II hins kaþóiska
til Frakklands, þar sem hann
undirbýr innrás í írland.
1799 Napóleon sigrar Tyrki
við Aboukir skammt frá Alex-
andríu.
1830 Karl X Frakkakonungur
tekur sér vald til að stjórna með
tilskipunum.
1898 Bandaríkjamenn taka
Puerto Rico herskildi.
1920 Þjóðhátíð á Dybböl
Banke í tilefni endursameining-
ar Norður-Slésvíkur og Dan-
merkur= Grikkir taka Adríanóp-
el (Edirne) af Tyrkjum= Frakkar
taka völdin í Damaskus.
1948 Brussel-sáttmálinn um
Vestur-Evrópubandaiagið tek-
ur gildi.
1952 Kola- og stálsam-
steypa Evrópu tekur til starfa.
1977 Vopnahlé í styrjöld
Egypta og Líbýumanna.
1978 Fyrsta tilraunaglasa-
barnið fæðist í Bristol á Eng-
landi.
1979 ísraelsmenn skila
Egyptum 6.500 ferkílómetrum
lands á Sinaiskaga.
AFMÆLISDAGAR
Stolt
ítalska
flotans
sekkur
1956 Árekstur varð í nótt
skammt fyrir utan höfnina í
New York milli sænska far-
þegaskipsins Stockholm og
ítalska skipsins Andrea Dor-
ia, sem sökk skömmu eftir
hádegi. Flestum farþegun-
um, á annað þúsund manns,
var bjargað, en þó er óttazt
að 55 hafi farizt af skipun-
um. Sænska skipið laskaðist
töluvert, en komst hjálpar-
laust til hafnar. Andrea Dor-
ia var 23.000 smálestir að
stærð, eitt af stærstu far-
þegaskipum heims og stolt
ítalska flotans.
Arthur J. Balfour 1 868. Forsæt-
isróðherra Breta 1902-1905; utan-
ríkisráðherra frá 1916 og höfundur
kenningar, sem við hann er kennd,
um stofnun Gyðingaríkis í Palestínu.
Elísabet Belgíudrottning
1876. Kona Alberts I og hlaut
lof fyrir sjúkrahússtörf í fyrri
heimsstyrjöldinni; seinna köll-
uð „rauða drottningin" vegna
áhuga á þjóðfélagsmálum.
Björn Emilsson 1948. Fram-
leiðandi sjónvarpsefnis hjá
RÚV.
Kolbrún Bergþórsdóttir-
1957. Bökmenntagagnrýn-
andi.
Tamílskir fangar myrtir á Sri Lanka
1983 Átökin á Sri Lanka hörðnuðu í dag þegar fangar í Colombo
myrtu 37 tamílska samfanga sína. Fyrir tveimur dögum felldu skærulið-
ar Tamíla 13 stjórnarhermenn í bænum Jaffa á Norður-Sri Lanka.
Tamílar, sem upphaflega fluttust frá Indlandi, eru um 17,5% íbúanna.
Átök Tamíla og meirihluta Sinhala, sem eru 74% landsmanna, hafa
farið síharðnandi síðan 1975. Aðskilnaðarhreyfing Tamíla, sem var sett
á fót 1965, hefur gripið til sífellt harðari ofbeldisaðgerða til þess að
ná fram pólitískum markmiðum sínum. Skilnaðarstefna Tamíla hefur
spillt sambúð ríkisstjórna Indlands og Sri Lanka og ítrekaðar tilraunir
hafa verið gerðar til þess að koma í veg fyrir að samskiptin versni
enriþá meir.
Dauðadans Mötu Hari
1917 Fögur dansmær og gleðikona hefur verið ákærð fyrir að fá franska
liðsforingja til þess að ljóstra upp ríkisleyndarmálum. Hún kallar sig Mata
Hari, sem er heiti úr máli Malajamanna og merkir „dagsauga." Hún er 41
árs gömul, af hollenzkum ættum og heitir Margaretha Gertruida MacLeod
(fædd Zelle). Mata Hari fékkst til að njósna fyrir Frakka þegar Þjóðveijar
höfðu hernumið Belgíu, þótt hún starfaði þá fyrir þýzka ræðismanninn í
Haag. Hún hefur aðeins játað að hafa útvegað Þjóðverjum úreltar upplýs-
ingar einu sinni. Sækjendur í máli hennar gátu ekki lagt fram órækar sannanir
fyrir því að hún hefði stundað njósnir.
Dollfuss myrtur í
nazistauppreisn
1934 Engelbert Dollfuss,
kanzlari Austurríkis úr flokki
kristilegra hægrimanna,
særðist lífshættulega þegar
vopnaðir menn ruddust inn í
skrifstofu hans í dag. Annar
hópur náði útvarpsstöðinni í
Vín á sitt vald og tilkynnti að
nazistinn Rintelen hefði verið
skipaður kanzlari. Austur-
rískir nazistar beijast fyrir
sameiningu við Þýzkaland
-Anschluss - og umsvif
þeirra hafa aukizt svo mjög
að undanfömu að valdaráns-
tilraun þeirra kemur ekki á
óvart. taða Dollfuss hefur
veikzt síðan hann fyrirskipaði
stórskotaárás á verkamanna-
bústaði í Vín í febrúar vegna
mótmælaaðgerða sósíalista.
Harðir bardagar geisuðu í
nokkra daga og sárin eru ekki
gróin. I vor kunngerði Dollf-
uss nýja stjórnarskrá, sem
þykir einræðiskennd og nýtur
ekki stuðnings út fyrir raðir
kaþólskra fylgismanna hans.
Yfirvöld i Austurríki hafa
brugðizt skjótt við uppreisn
nazista í dag og virðast ráða
við ástandið. Mussolini, sem
Dollfuss studdist við í utanrík-
ismálum, heitir austurrískum
ráðamönnum fullum stuðningi
í baráttu þeirra fyrir því að
varðveita sjálfstæði Austur-
ríkis.
Kol flutt meö
eimreiö
Mussolini
kollvarpað
Flaug yfir Ermarsund
1909 Frakkinn Louis Blériot flaug í dag fyrstur manna yfir
Ermarsund frá Calais í Frakklandi til Dover í Englandi í lítilli 24
hestafla einþekju. Vegalengdin er rúmlega 23 mílur og ferðin tók
36'/2 mínútu. Engin siglingatæki voru um borð, en Blériot hafði
hækjur meðferðis því að hann lenti í slysi fyrir skömmu. Fyrir ferð-
ina hlýtur Blériot 1.000 punda verðlaun, sem brezka blaðið Daily
Mail hafði heitið hveijum þeim sem flygi fyrstur manna yfir Ermar-
sund. „Bretland er ekki lengur eyja,“ sagði Blériot við tíðindamann
blaðsins skömmu eftir að hann lenti hjá Doverkastala.
1814 Síðasta náman í Bret-
landi, þar sem tilraunir hafa
verið gerðar til að flytja kol með
eimreiðum, er í Killingworth.
Aðalvélamaðurinn þar, George
Stephenson, hefur smíðað
eimreið, sem getur dregið
átta hlaðna vagna með 6,4
km hraða á klukkustund.
Stephenson kallar eim-
reiðina „Blúcher" og fékk
hugmyndina að henni þeg-
ar hann sá „gufuketil á
hjólum,“ sem Matthew
Murray smíðaði fyrir John
Blenkinsop til þess að nota
1943 Stórráð ítalskra fasista
hefur steypt Mussolini einræðis-
herra af stóli. Fall hans er eðli-
leg afleiðing hrakfara ítala í
stríðinu. Her
þeirra á austur-
vígstöðvunum
hefur goldið mikið
afhroð í orr-
ustunni um Stal-
íngrad, Þjóðveijar
hafa þrengt póli-
tískt svigrúm
þeirra og Banda-
menn hafa gert
innrás í Sikiley
eftir hrun ítalska
heimsveldisins í
Afríku. Á fundi
stórráðsins lýsti
mikill meirihluti
yfir vantrausti á
Mussolini, sem
sagði reiður: „Þið
hafið valdið
stjórnarkreppu.“
Síðan gekk hann
á fund konungs
og sagði: „Stórr-
áðið ber ekki
lengur traust til
mín. Ég segi af
mér sem æðsti
maður heraflans
— einhver annar verður að halda
stríðinu áfram.“ Hann hélt að
hann yrði áfram leiðtogi flokks-
ins og þjóðarinnar — Duce —
en konungurinn hafði undirbúið
valdarán. Lögregla stöðvaði Mus-
solini þegar hann kom út úr höll
inni og flutti hann á öruggan stað
Ný stjórn Badoglios marskálks mui
semja frið við Bandamenn eftir fal
20 ára stjórnar fasista. Fasisminr
hefur hrunið á einni nóttu eins og
spilaborg.
í nálægri námu. Stephenson er
sannfærður um hægt verði að
auka afl Blúchers ennþá meir
og heldur áfram tilraunum með
eimreiðina.