Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 1
72 SIÐURB/C 197. tbl. 81.árg. FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Shimon Peres um áhrif gagnkvæmrar viðurkenningar Israela og PLO Gæti stuðlað að allsherj- arfriði í Mðausturlöndum í kurteisisheimsókn YITZHAK Rabin forsætisráð- herra Israels var viðstaddur er barnaskóli var settur í austurhluta Jerúsalem í gær. Fór hann inn í bekkjardeildir og var myndin tekin er hann beygði sig til að heyra hvað palestínskur piltur vildi við hann segja. Jerúsalem. Reuter, Daily Telegraph. SHIMON Peres utanríkisráðherra ísraels sagði er hann tók á móti egypskum starfsbróður sínum, Amr Moussa, í Jerúsalem í gær, að gagnkvæm viðurkenning Israela og Palestínumanna gæti orðið arabaríkjum hvatning til þess að aflýsa hernaðará- standi gagnvart ísrael og stuðlað að allsherjarfriði í Miðaustur- löndum. I gærkvöldi bárust fregnir af því úr friðarviðræðum ísraela og grannríkja þeirra í Washington, höfuðborg Banda- ríkjanna, að undirritun samkomulags Israela og PLO kynni að tefjast vegna ágreinings um forsendur gagnkvæmrar viður- kenningar. Peres sagði að hægt væri að undirrita samkomulag við Frelsis- samtök Palestínumanna (PLO) um takmarkaða sjálfstjórn þeirra á Gazasvæðinu og í Jeríkó nú þegar en sagði að viðurkenning á PLO væri annað mál. Hennar yrði þó ekki langt að bíða. Hanan As- hrawi, talsmaður Palestínumanna í friðarviðræðum araba við Israela, sagðist í gær allt eins eiga von á því að gagnkvæm viðurkenning Israela og PLO gæti átt sér stað samdægurs. Reyndar bárust fregnir af því úr samningaviðræðunum í Washing- ton, að undirritun samkomulags ísraela og PLO kynni að tefjast vegna ágreinings um forsendur gagnkvæmrar viðurkenningar. Hermdu heimildir að samkomulagið yrði ekki undirritað fyrr en sam- komulag hefði náðst um það efni. Norður- lönd ryðja brautina Stokkhólmi, Jerúsalem. Daily Telegraph. Reuter. Utanrikisráðherrar Norður- landanna fimm tilkynntu í gær að ríkin fimm hefðu samþykkt að greiða fyrir samkomulagi um pólitiska Iausn á deilum ísraela og Palestínumanna með því að veita allt að einum milljarði sæn- skra króna, jafnvirði 8,7 millj- arða islenskra króna, til upp- byggingarstarfs á hernumdu svæðunum. Helle Degn, ráðherra þróunar- mála í Danmörku, sagði að Danir væru tilbúnir að leggja til aðstoð sem svaraði 250 milljónum' sænskra króna. Sænska fréttastofan TT sagði að framlag Norðmanna yrði ámóta og Finnar myndu leggja fram 60-70 milljónir. Hlutdeild Svía væri enn óljós. Fulltrúar bæði ísraela og Palest- ínumanna létu í ljós von um að þessi aðstoð yrði til þess að ryðja brautina fyrir aðstoð frá fleiri ríkj- um. Ráðgjafanefnd Palestínu- manna hefur dregið upp sjö ára áætlun um efnahagslega endurreisn á hernumdu svæðunum sem talin er munu kosta jafnvirði átta millj- arða sterlingspunda, 850 milljarða íslenskra króna. Israelar segjast viðurkenna PLO að því tilskildu að samtökin láti af hryðjuverkum og lýsi afdráttarlaust yfir því að ákvæði í stofnskrá PLO um tortímingu ísraels séu úr gildi numin. Sögðust samningamenn í Washington vonast til þess að sam- komulag tækist á næstu dögum og samkomulag ísraela og PLO yrði undirritað í næstu viku. I aðalstöðvum PLO í Túnis sagði Yasser Abed-Rabbo, háttsettur leið- togi samtakanna, að gagnkvæm viðurkenning myndi að líkindum eiga sér stað á allra næstu dögum. Leynifundur á Spáni? Annar PLO-leiðtogi sagði í gær að Sýrlendingar, Líbanir og Israelar hefðu átt í leynilegum samningavið- ræðum á Spáni að undanförnu. Væri samkomulag um að ísraelar skili Sýrlendingum Gólanhæðum og hverfi frá sjálfskipuðu öryggissvæði sínu í suðurhluta Líbanons nokkurn veginn í höfn. Yrði það liður í vin- áttusamningum ríkjanna þriggja. Fulltrúar ísraela og Sýrlendinga í friðarviðræðunum í Washington neituðu í gær að leyniviðræður hefðu átt sér stað á Spáni. Itamar Rabinovich, aðalsamningamaður ísraela, sagði að eftir atburði síð- ustu daga yrði líklega ekki mark tekið á þessari neitun. Hann sagði að líklega kæmust ísraelar og Sýr- lendingar að rammasamkomulagi um gagnkvæma vináttu í þeirri við- ræðulotu sem nú stæði yfir í Wash- ington eða þeirri næstu. Reuter Clinton Bandaríkjaforseti boðar niðurskurð í landvömum Mínni fækkun í Evrópu og Asíu en búist var við Washington. Reuter. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hafa skýrt frá nýrri áætlun í varnar- málum þar sem gert er ráð fyrir miklum niðurskurði næstu árin en jafnframt að innlend vopnaframleiðsla verði treyst og Bandarík- in hafi áfram öflugt lið í Evrópu og Asíu. Áætlunin var unnin í varnarmálaráðuneytinu síðustu fimm mánuði og samþykkt af Bill Clinton forseta. Slitnar upp úr Bosníuviðræðum Genf. llcuter. OWEN lávarður sáttasemjari í Bosníudeilunni sagði í gærkvöldi að tillaga þeirra Thorvalds Stoltenberg um frið í Bosníu væri enn til umræðu þó leiðtoga þjóðarbrotanna þriggja greindi enn á um kort að þrískiptingu landsins. Sú viðræðulota sem hófst í Genf á þriðjudag fór út um þúfur í gær. Fulltrúar Bosníu-Króata sök- uðu múslima um hvernig farið hefði og Franjo Tudjman forseti Króatíu sagði ekkert annað en áframhaldandi stríðsátök blasa við. Owen lávarður gaf hins vegar aðra mynd af átökunum við samninga- borðið. „Það slitnaði upp úr vegna ósamkomulags um skiptingu Bosn- íu. Það vilja allir fá meira land og enginn er tilbúinn að gefa nógu mikið eftir,“ sagði Owen. Bosníu-Serbar komu til móts við kröfur múslima og buðust til að láta af hendi þriggja kílómetra breiða ræmu sem tengdi svæði múslima við borgina Gorazde og vegatengingu við bæina Zepa og Srebrenica en neituðu að skila borgum í héraðinu Bihac í vestur- hluta landsins. Króatar neituðu hins vegar að láta múslimum eftir hafnarborgina Neum við Adríahaf. Vonsvikinn ALIJA Izetbegovic vonsvikinn eftir að upp úr friðarviðræðum slitnaði í Genf í gær. Búist er við hörðum deilum um áætlunina á þingi. Clinton hyggst ganga talsvert lengra í niður- skurði en forveri hans, repúblikan- inn George Bush, ætlaði sér. Á næstu þrem árum verður fækkað í herliðinu, úr 1,7 milljón í 1,4 milljón manna en mjög lítil fækkun verður í liðsafla landgöng- uliða flotans. -Athygli vekur að mælt er með því að Bandaríkin hafi 100.000 manna lið og rúmlega 150 orrustu- þotur í Evrópu og jafnmikið lið í Austur-Asíu, þ. á m. Suður-Kóreu og Japan. Áður hafði verið talið að Clinton vildi fækka enn meira í bandaríska liðinu í Evrópu. Herstöðvum í Bandaríkjunum sjálfum verður fækkað verulega. Dregið úr hergagnasmíði Dregið verður úr smíði nýrra herskipa og flugvéla, samt bætt við árásarkafbáti af Seawolf-gerð en slíkt skip kostar um 70 millj- arða króna. Flugvélamóðurskip verða alls 12, tveim fleiri en Bush hafði ráðgert. Stefnt er að því að í flotanum verði alls 340 skip um aldamótin; þau eru nú um 450.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.