Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 11

Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 11 Inga Sigríður Ragnarsdóttir Ur málmsmiðju Myndlist Bragi Ásgeirsson Myndlistarkonan Inga S. Ragnarsdóttir vinnur með sanni á öðrum nótum í skúlptúrum sín- um en faðir hennar Ragnar Kjartansson gerði. Á ég hér ekki einasta við inn- takið heldur líka aðferðirnar, en Inga sótti menntun til fagurlista- skólans í Múnchen, þar sem læri- meistarinn opnaði augu hennar fyrir formrænni fegurð þess sem finna má á ruslhaugum t.d. bíl- hræjum. Þetta er ekkert nýtt í skúlptúrlistinni, og hefur í meira og minna mæli verið iðkað frá fyrstu áratugum aldarinnar. En á seinni tímum hefur sköpunar- ferlið verið hafið til meiri vegs en áður, og hlotið'almennari út- breiðslu meðal listamanna og þá einkum yngri kynslóða. Er það mikið til komið vegna þess að hinir eldri áhangendur aðferðar- innar hafa komist í lykilstöður í skólum og hafa útbreitt kenning- ar sínar og þá gjarnan með nýrri heimspeki og á öðrum forsend- um. Þetta með nýju forsendurnar getur stundum verið æði frum- legt sé leitað undir yfirborðið, og á dögunum las ég t.d. í blaði, að Súmmerarnir hafi komið rýminu inn í íslenzka list. Hvernig í ósköpunum fóru þá fyrri lista- menn að, ef þeir unnu ekki í rým- inu, og minna má á að rýmið hefur verið ein af grundvallar- kenningum skúlptúrlistarinnar allt frá antíkinni. Rýmið í kring- um styttur Forn-Grikkja þótti ekki hafa minna vægi en fyrir- ferðin; „massinn". Fleiri og fleiri listamenn hafna hinum fornu aðferðum, stein- og marmarahögginu, svo og mótun í leir, en taka upp fijótvirkari aðferðir með aðstoð nútímatækn- innar. Jafnframt því sem þessi iðja helgast af hinu meinta ný- yrði „skúlptúr“, sem er þó ein- faldlega skilgreining á mynd- höggi og list rúmtaksins og hefur verið um árþúsundir. Að menn hagnýti sér nýja tækni er mjög svo eðlilegt og jafnvel lofsvert, en það úreldir alls ekki fyrri vinnubrögð. Þannig sá ég ferkantaða stein- blokk eftir myndhöggvarann Ulrich Rúckriem á safni í Bonn sl. sumar, sem geislaði af innri krafti og virtist mér hann mun frekar hogginn með gömlum verkfærum en sagaður með áteinsög, þau hafa a.m.k. komið við sögu í ferlinu. Núlistir helgast þannig engan veginn af nýtækni heldur meira en nokkru sinni af andlegri orku og hugkvæmni við útfærslu lista- verkanna, og sjaldan hafði mér verið ljósara, en frammi fyrir steinblokk Rúckriems, að eitt er kubbur og annað listrænn kub- bur. Vinnustofa Ingu S. Ragnars- dóttur er mun frekar nútíma málmsmiðja eða blikkverkstæði, en mótunaraðstaða upp á gamla skólann og auðvitað er nákvæm- lega ekkert við því að segja. Mik- ið er þó aðkoman önnur og hrárri á slík verkstæði, en það er svo auðvitað allt annað mál. Menn verða líka að nálgast verk Ingu og samheija hennar í listinni með nokkru öðru hugar- fari en verk myndhöggvara sí- gildu miðlanna og er farsælast að gera sér það ljóst í upphafi. Verk Ingu í fremri sal listhúss- ins einn einn, eru unnin í stúkk- marmara, stál og blikk. Má orða það svo, að hún rammi inn marm- arann með blikkinu og að mínu mati ferst henni það mjög vel úr hendi í tveimur tilvikum, sem eru aflangt verk á endavegg og lítið í háklassísku rammaformi á hægri vegg. Hér er smíðin mjög traust og yfirveguð og formið hreinna og klárara en í öðrum myndunum í salnum, en í sumum þeirra er smíðin ónákvæm og myndverkin undin. í innra her- berginu eru minni skúlptúrar og hér hefur listakonan iogsoðið í sundur einstaka hluta úr bifreið- um og mótað úr þeim sértæk form. Leikurinn gtur verið í seinn spennandi og hrifmikill, en verkin njóta sín einhvern veginn ekki í salnum. Má það í og með vera vegna þess að fallegi gamli kol- svarti ofninn, og hlaðni múrvegg- urinn í bakgrunninum eins og öðlast nýtt líf í nágrenni skúlptúrverkanna, og sjálft rýmið yfirgnæfir þarmeð myndverkin á veggjunum. Sýningunni í Gallerí 1 1 lýkur í dag, fimmtudag. Píanóleikur Tónlist Jón Ásgeirsson Þriðjudagstónleikunum í Lista- safni Siguijóns Olafssonar lauk með tónleikum píanóleikarans Pet- er Máté. Á efnisskránni voru verk eftir Debussy, Janácek, Martinu, Rakhmanínov, Liszt og Chopin. Tónleikarnir hófust með Gleðieyj- unni eftir Debussy, glæsilegu píanóverki, sem var að mörgu leyti vel leikið en það var í Sónötunni 1. oktöber, 1905, eftir Leos Janác- ek, sem leikur Máté var stórkost- lega vel útfærður, sérstaklega fyrri þátturinn, sem nefnist Fyrir- boði en sá seinni, er ber yfirskrift- ina Dauði er hins vegar sérkenni- lega lífvana og það er í anda þessa sérkennilega tónskálds, að túlka dauðann með þeim hætti. Tveir leikandi léttir og skemmti- lega alvörulitlir tékkneskir dansar eftir Martinu, voru aldeilis glæsi- lega leiknir. Prelúdía í gís-moll, op. 32 nr. 12, eftir Rakhmanínov er fallegt verk. Léttleikinn á að vera í fyrirrúmi og einmitt þannig var leikur Máté. Ástardraumurinn, eftir Liszt er að sönnu fallegt verk en frekar lítil nýnæmni í að heyra þetta gamla glansnúmer, jafnvel þó það væri flutt af þokka og „múskaliteti". Ijjögur verk eftir Chopin voru næst á efnisskránni allt frægar kanónur, Impromtu í As-dúr, op. 29, Scherzo í b-moll, op. 31, Es- dúr Næturljóðið, op. 9 nr. 2 og tónleikunum lauk með Polonaise í As-dúr, op. 53. Peter Máté er „brilliant" píanóleikari og var leik- ur hans í „skersóinu“ og „pólónes- unni“ stórkostlegur og smá feil- skot í því seinna var aðéins til að undirstrika mannlega þáttinn. Leikur hans var hárómantískur og víða lék hann mjög fallega með hraða og styrkleikabreytingar og náði að undirstrika öll kaflaskil einstaklega vel. Máté er bráðfær píanóleikari og ekki aðeins að tækni hans sé mikil heldur liggur honum ýmislegt á hjarta, er leitar fram í tónmáli verkanna, sterkum andstæðum í hljómblæ, hæglátum leik með viðkvæmt lagferli og eld- ingahröðum tónlínum, sem glitra í öruggu tóntaki hans, m.ö.o., Pet- er Máté er frábær listamaður. HASKOLABIO SÍMI 22140 l>U III I UH GAMAN AÐ l>VI AÐ GÆGJASl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.