Morgunblaðið - 02.09.1993, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.09.1993, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 Fimm leikrit verða sýnd hjá Leikfélagi Akureyrar á tuttugasta afmælisári atvinnuleikhúss Tekist á við lífið af öllu afli á afmælinu FIMM leikrit verða sýnd hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur þegar þess verður minnst að 20 ár eru liðin frá því stofnað var atvinnuleik- hús á Akureyri. Leikárið hófst formlega í gær og við það tækifæri kynnti Viðar Eggertsson leikhússtjóri þau verkefni sem tekin verða til sýninga í vetur. Hann sagði að nú þegar leikhúsið stæði á tvítugu yrði tekist á við lífið af öllu afli, blásið yrði í lúðra og þess minnst með stolti að atvinnuleikhús hefði starfað í bænum í tvo áratugi. Ferðin til Panama Fyrsta verkefni vetrarins er leik- ritið Ferðin til Panama eftir Janosch Aðalfundur Eyþings Rætt um H A og atvinnulíf EYÞING, samtök sveitarfélaga í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslum, heldur sinn fyrsta aðalfund á Ak- ureyri í dag, fimmtudag og á morgun föstudag. Háskólinn á Akureyri og tengsl hans við at- vinnulífið verður aðalmál þings- ins, en einnig verður kynnt tillaga Umdæmanefndar um sameiningu sveitarfélaga. Þingið verður haldið á Hótel KEA. Síðdegis í dag verður ’rætt um tengsl Háskólans á Akureyri við atvinnulífið og starfsemi skólans kynnt. Nýsköpun í sjávarútvegi Á morgun, föstudag, flytur Krist- ján Kristjánsson fyrirlestur um Háskólann á Akureyri og eflingu atvinnulífsins, þá flytur Jón Þórðar- son fyrirlestur um Háskólann á Akureyri og nýsköpun í sjávarút- vegi og loks flytja þeir Valtýr Sigur- bjarnarson og Ari Teitsson fyrirlest- ur um áhrif samdráttar í landbún- aði á tekjur sveitarfélaga. í leikgerð leikhóps LA sem Ingunn Jensdóttir leikstýrir. Þarna er um að ræða ævintýrasýningu fyrir börn og verður frumsýning í Grímsey 19. september næstkomandi. Síðan verður haldið í leikför um Norður- land og lokasýningin verður í Hrís- ey. Viðar sagði að ósérhlífni starfs- fólks gerði kleift að unnt væri að ferðast um með sýninguna og gefa þannig sem flestum kost á að sjá hana. Hann sagði félagið hafa sið- ferðilegum skyldum að gegna við alla Norðiendinga, þær væru ekki í lögum þess heldur siðferðilegar. Afturgöngurnar Liðin eru 46 ár frá því LA sýndi síðast verk eftir Henrik Ibsen þegar Brúðuheimilið' var sýnt á fjölum Samkomuhússins, en annað verkefni LA í vetur verður sýning á Aftur- göngum Ibsens sem frumsýnt verður 15. október. Leikstjóri er Sveinn Einarsson, en hann setti verkið upp í Kaupmannahöfn síðastliðinn vetur við góðar undirtektir. Sigurður Karlsson er gestaleikari frá Borgar- leikhúsinu og þau Kristján Franklín Magnús og Rósa Guðný Þórsdóttir leika einnig í verkinu, en þau eru öll að leika í fyrsta sinn hjá LA. Auk þeirra leika þau Sunna Borg og Þrá- inn Karlsson í Afturgöngunum, en fyrsta æfing verksins var í gær. Ekkert sem heitir - átakasaga Jólaleikritið í ár er splunkunýr íslenskur skemmtileikur, sem ber heitið Ekkert sem heitir, átakasaga og streymir um þessar mundir úr penna höfundar sem kallaður er „Heiðursfélagi" en nafn hans verður ekki gefið upp strax að sögn leikhús- stjóra. Leiknum er ætlað að létta lund fólks um miðbik vetrar. Leik- stjóri verður Hlín Agnarsdóttir. Par á bar í janúar verður frumsýnt leikritið Par á bar eftir Jim Cartwright í þýðingu Guðrúnar Bachmann og leikstjórn Hávars Siguijónssonar, en hann leikstýrir í fyrsta sinn hjá LA. Hinir gamalreyndu leikarar Þráinn Karlsson og Sunna Borg leika hjón- in sem eiga barinn og þau leika líka alla gestina sem rekast þar inn, alls 14 hlutverk. Leikritið er, að sögn Viðars, hnyttið, áleitið og óvenjulegt en um venjulegt fólk, en höfundur þess Jim Cartwright einn athyglis- verðasti leiritahöfundur Breta um þessar mundir, hann er einnig höf- undur Strætis sem sýnt var í Þjóð- leikhúsinu á síðasta ári. Óperudraugurinn „Það er hefð hér hjá Leikfélagi Akureyrar að enda leikárið með músíkleik og við væntum þess að verkið sem frumsýnt verður í vor verði enginn eftirbátur þeirra sem áður hafa verið sýnd,“ sagði Viðar, en seinnipartinn í mars verður Óperudraugurinn (Phantom of the Opera“ eftir Ken Hill frumsýnt hjá LA í leikstjórn Þórhildar Þorleifs- dóttur. Hún leikstýrir aftur hjá fé- laginu eftir 10 ára hlé; en síðast setti hún upp metaðsóknarsýning- una My Fair Lady. Tónlistin í verk- inu er eftir þekkt tónskáld, Mozart, Verdi og Offenbach, þekktar aríur úr verkum þeirra eru fléttaðar inn í verkið. Viðar sagði að ekki yrði gert opinskátt um hveijir yrðu á sviðinu strax, en leit stæði yfir að leikurum og söngvurum. Strýta bauð í eiguir þrotabús K. Jónssonar EITT tilboð barst í eignir þrotabús Niðursuðuverksmiðju K. Jónsson- ar, en frestur til að skila inn tilboðum rann út um miðnætti í fyrrinótt. Tilboðið var frá Strýtu hf. fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags, en Strýta hefur leigt rekstur þrotabús- ins síðustu mánuði eða frá því skömmu eftir að Niðursuðuverk- smiðja K. Jónssonar var lýst gjald- þrota. Tilboð Strýtu hljóðaði upp á 103 milljónir króna og er bæði í fasteignir og vélar þrotabúsins. Áður hafði borist tilboð frá Lands- banka íslands að upphæð 75 millj- ónir króna en það var einungis í fasteign búsins. Veðhafafundur Ólafur Birgir Árnason, skipta- stjóri þrotabús Niðursuðuverk- smiðju K. Jónssonar, sagði að á morgun, föstudag, yrði fundur með veðhöfum þar sem rætt yrði um tilboðið en að honum loknum ætti að liggja ljóst fyrir hvort því yrði tekið eða hafnað. Tilboð Strýtu stendur fram á laugardag. Eigendur Strýtu eru Rekstrarfélag Landsbanka íslands, Samheiji og Kaupfélag Eyfirðinga. p i i * Morgunblaðið/Golli Vofflur í upphafi leikars STARFSFÓLK Leikfélags Akureyrar kom saman í gær í upphafi nýs leikárs en þess verður í vetur minnst að 20 ár eru liðin frá því atvinnu- leikhús tók til starfa i bænum. í tilefni dagsins var boðið upp á vöfflur og rjóma sem þeir Aðalsteinn Bergdal og Kristján Franklín Magnús eru í óða önn að fá sér, en til vinstri við þá bíða þau Þórey Árnadóttir, Dofri Hermannsson og Ingvar Björnsson eftir að komast að. Innritun í Tónlistarskólann að ljúka Óperudeild verður við skólann í vetur ÓPERUDEILD verður starfandi við Tónlistarskólann á Akureyri í vet- ur og er það í fyrsta sinn sem íslenskur tónlistarskóli starfrækir slíka deild. Þá verður í vetur starfandi við skólann sinfóníuldjómsveit með þátttöku nemenda úr öðrum norðlenskum tónlistarskólum. Kennsla hefst við skólann 20. september næstkomandi, en innritun lýkur á morgun, föstudag. Tónlistarskólinn á Akureyri hefur fengið til liðs við sig hollenskan söng- þjálfara, Gerrit Schuil, sem m._a. mun starfa við óperudeildina. Áhersla verður lögð á að þjálfa samhæfingu leiklistar og söngs. Æfð verða atriði úr óperum sem sýnd verða næsta vor. Rós í hnappagatið Guðmundur Óli Gunnarsson skóla- stjóri Tónlistarskólans á Akureyri sagði óperudeildina vera nýja rós í hnappagat söngdeildar, en deildin hefði vaxið mjög á undanförnum árum og væru nú um 70 nemendur þar við nám. Skýringin á öflugri starfsemi söngdeildar væri m.a. að hæft fólk starfaði þar við kennslu og eins hefði starf kóranna eflst mjög síðustu ár, gerðar væru meiri kröfur til kórfélaga þannig að þeir sækja sér í síauknum mæli menntun- ar. Söngdeild skólans sýndi Ástar- drykkinn við miklar vinsældir síðasta vor, en áður hafði deildin flutt kafla úr þekktum óperum. Innritun í skólann lýkur á morg- un, föstudag, en þegar hafa um 520 skráð sig til náms við skólann, sem er heldur færra en á síðasta ári, að sögn Gunnars Frímannssonar rekstr- arstjóra. Hann sagði greinilegt að þar gætti áhrifa samdráttar í at- vinnulífi og þar með tekjum fólks. Sinfóníuhljómsveit Forskóli verður með svipuðu sniði og áður, en til að öiva aðsókn í hann hafa skólagjöld verið lækkuð. Þá verður í vetur starfandi sinfóníu- hljómsveit innan skólans með þátt- töku nemenda úr öðrum tónlistar- skólum á Norðurlandi og er áætlað að hljómsveitin haldi tónleika í nóv- ember næstkomandi. ------♦ ------- Haustþing kennara að Laugiim HAUSTÞING Bandalags kennara á Norðurlandi eystra, BKNE og Fræðsluskrifstofu hefst í Lauga- skóla í dag, fimmtudaginn 2. sept- ember, en það stendur yfir þar til síðdegis á morgun. Áðalfundur BKNE verður síðan haldinn síð- degis í dag. Þingið hefst með ávarpi fræðslu- stjóra, Trausta Þorsteinssonar. Aðrir, sem flytja erindi, eru Þröstur Guð- mundsson aðstoðarskólastjóri Garða- skóla, Rósa Eggertsdóttir kennari, Eiríkur Jónsson varaformaður og Ámi Þór Sigurðsson félagsmálafull- trúi, starfsmenn Kennarasambands- ins, og Ólafur B. Thoroddsen fulltrúi BKNE í skólamálaráði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.