Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 20

Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 Nýmeti hjá Hagkaup UNDANFARIÐ hafa nýjar vörutegundir verið að birtast í hillum Hagkaups og er þar til dæmis um að ræða græn- metisrétti, brauð, kökur og austurlenska rétti. Pizzur Frá vörumerkinu McVities eru komnar grillpizzur, fjórar í pakka, með ýmsum áleggstegundum. Einnig er um að ræða millistærð af pizzum. Einnig eru til pizzu- botnar baðaðir í hvítlauksolíu og kryddaðir. Þessi botn er borðaður í staðinn fyrir hvítlauksbrauð. Austurlenskir réttir Réttir þessir eru seldir undir merkinu Ross Oriental express. Til er kínverskur kjúklingaréttur, indverskur kjúklingaréttur og vorrúllur. Kjötlausír réttir fyrir grænmetisætur Þessir réttir eru frá Lindu McCartney, konu bítilsins Paul McCartney. Uppskriftirnar eru samdar af henni en þau hjón eru bæði grænmetisætur. Hægt er til dæmis að fá kjötlausa hamborg- ara, spaghettí og kjötlausa böku. Eftirréttir Að lokum er farið að selja í Hagkaup fitulitlar ostakökur með ávaxtabragði. Þá eru til nýjar súkkulaðikökur með þykku súkku- laðikremi og fylltar bökur með apríkósu-ferskju-fyllingu. ■ 33 B TTTl VIKUNNAR Mismikið innifalið í verði hárgreiðslustofa í REYKJAVÍK eru starfandi um 250 hárgreiðslustofur og þá eru ekki taldar með allar rakara- stofurnar né þeir aðilar sem taka fólk heim til sín og vinna eins og kallað er á svörtu. Þegar landið allt er tekið þá eru hárgreiðslustofurnar nálægt 400. Að sögn Lovísu Jónsdóttur, for- manns hárgreiðslumeistarafélagsins, komast nú færri að en vilja í faginu og erfitt er fyrir hárgreiðslunema að komast að á stofum. Þetta stafar af því að núna bæta stofur ekki lengur við sig fólki, markaðurinn er mettaður og það eru dæmi um að verið sé að fækka starfsfólki. í vikunni var gerð könnun á verði á nokkrum hárgreiðslustof- um og haft samband við ellefu stofur sem valdar voru af handa- hófi, átta í Reykjavík, tvær á Akureyri og eina á ísafirði. Það kom á daginn að það er hægara sagt en gert að gera verðkönnun á þeirri þjónustu sem stendur til boða eins og permanenti eða klippingu. Það er ákaflega mis- munandi hvað er innifalið í því verði sem gefið er upp. Til að byija með var ætlunin að hafa með verð á djúpnæringu sem reyndist vera frá 500 krónum og upp í 2.400 krónur. Það var hins- vegar illmögulegt því bæði eru vörumerki mismunandi, sumir bjóða upp á hárnudd með, þvott og sérstakan hita. Olíur, rúllur og spólur Þetta á að sumu leyti við um permanentið líka því mismunandi olíur eru notaðar, rúllur eða spól- ur og verðið fer líka eftir vinnu við hár viðkomandi, hversu sítt það er og svo framvegis. Það var því einungis beðið um staðlað verð á permanenti í sítt hár og ekkert tillit tekið til efna eða vinnuaðferða. Hvað snertir verð á lagningu og blæstri er hér yfir- leitt um lágmarksverð að ræða og ef að hárið er sett upp eða er frekar sítt þá hækkar upphæðin oft til muna. Klippt og krullað! Herraklipping með þurrkun, froðu/geii Lagning Blástur Hárþvottur og næríng Jói og félagar, Rauðarárstíq 41 2.000 1.500 1.560 640 5.600-7.0001 2.700 Hár og snyrting, Hverfisgötu 105 1.980 1.450 1.490 440 4.8252 2.500 Hárgreiðslustofan Hársýn, Revnimel 34 1.850 1.250 1.400 600 3.700 1.890 Kompanflð, Ármúla15 1.900 1.900 1.900 380 5.400-6.500 3 2.650 Hárgreiðslustofan Lótus, Áiftamýri7 1.720 1.480 1.630 340 5.180 3.030 Hárgr.stofan Valhöll, Óðinsqötu 2 1.420 1.420 1.490 315 4.250 2.370 Salon Nes, Austurströnd 1.400-1.590 1.220 1.280 400 3.850 2.050 Hárgreiðslustofan Krísta, Kringlunni 1.5204 1.520 1.610 510 5.600 2.600 Hárgreiðslustofan Eva, Ráðhústorgi 1, Akureyri 1.500 1.100 1.370 300 4.000-4.500 1.900 Hárgreiðslustofan Salon Hlíð, Bakkahlið 41, Akureyri 1.500 1.180 5 1.300 300 3.800 2.200 Hárgreiðslustofan Topphár, Aðalstrseti 24, Isafiröi 1.510 1.360 1.310 260 5.455 2.340 l.fereftiroliutsldd 2. með keratfni 3.olla+vinna 4. meistarataxtar Krtstu.en sveinataxtar þar eru lægrt S.stutthár Mlsmunandi aðstæður Verðið reyndist yfirleitt mjög misjafnt enda er ekki lengur til neinn samræmdur taxti eftir að samkeppnislögin tóku gildi. Sum- ar hárgreiðslustofur borga 100.000 krónur í leigu á meðan aðrar borga kannski 30.000. á mánuði og einhverjir kaupa inn dýr vörumerki á meðan aðrir leggja áherslu á ódýrar hársnyrti- vörur. Þessa liði geta eigendur hárgreiðslustofa nú tekið með í reikninginn þegar þeir búa til sína verðskrá. ■ grg €éi barnaföt + B%tm verd = Bestu kaupin Berið saman verð og gæði. Útkoman er einföla - kaupin gerast ekki betri! Vindjakki kr. 1.490 Nokkur dæmí um verð: Gallabuxur Gallaúlpur Leggings Náttföt Regnföt Úlpur kr. kr. kr. kr. kr. kr. 990 1.990 890 790 1.890 2.990 Fóðraðar galla-smekkbuxur kr. 1.690 Fóðraðar gallabuxur kr. 1.590 Sokkarkr. 180 Hrn Laugavegi 20, sími 25040. Opið kl. 10-18 virka daga, kl. 10-19 föstudaga, kl. 10-16 laugardaga. PO REIAI Suöurlandsbraut 52 v/Fákafen, sími 683919. Ungbamafatnaður (100% bómull) kr. 390-790 i. ■X 5 O Utseldur tími rafvirkja á 1.000 -1.700 kr. HINN 1. júní síðastliðinn gengu í gildi samkeppnislög og þar með féllu allir viðmiðunartaxtar raf- virkja úr gildi. Þetta er strax farið að segja til sin því rafvirkj- ar hafa margir hverjir lækkað taxta sína og öfugt og taka þeir allt frá þúsund krónum á tímann og upp í sextán, sautján hundr- uð. Það ber að hafa í huga að þetta tímakaup á við um við- haldsvinnu og sé um stærri verk- efni að ræða lækkar timakaupið. Þegar rafvirkjar vinna á svörtu eins og þeir kalla það lækkar taxt- inn að sjálfsögðu enn meira. Það er markaðurinn sem ræður ferðinni og þar sem minna er um nýbygging- ar núna og kreppa í öllum fram- kvæmdum þá skortir marga raf- virkja verkefni. Þeir rafvirkjar sem haft var samband við gáfu upp afar mismunandi verð þegar spurt var um taxta. Sett var upp dæmi. Hjón voru að gera upp gamalt baðher- bergi og vantaði rafvirkja til að taka niður tvö ljós og setja upp ný í staðinn. Rafvirkjamir sögðust næstum allir taka fyrir akstur um 400-600 krónur og síðan var tíma- vinnan frá einum og hálfum tíma og upp í fimm klukkustundir. Menn- irnir sögðust síðan taka frá ríflega þúsund krónum á tímann og upp í liðlega sextán hundruð. Virðisauka- skattur bættist síðan ofan á þessar tölur í flestum tilfellum. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.