Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 21

Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 21 Morgunblaðið/Kristinn Kjarabót á framtíð fyrir sér AFSLÁTTARMIÐAR, eða svokölluð kjarabót, á neytendasíðum Morg- unblaðsins sl. tvo fimmtudaga hafa yfirleitt skilað sér vel til versl- ana og þjónustufyrirtækja. Flestir nýttu sér kjarabótarmiðana við kaup á gróðurmold, rauðum rósum, ís, bíómiðum, þriggja gíra kven- reiðhjólum og raftækjum. Einnig notfærðu margir sér 1.500 kr. af- slátt af tíu tíma ljósakorti og eins tíma partanuddi, 15% afslátt af smur- og hjólbarðaþjónustu og 20% afslátt af fatahreinsun. Gegn framvísun afsláttarmiða íshallarinnar frá 19. ágúst fá við- skiptavinir 50% afslátt af öllum ís til 13. þ.m. Eigandinn Sigrún Ólafs- dóttir segir að hátt í 200 miðar hafi skilað sér og séu enn að streyma inn, auk þess sem fjöldi nýrra viðskiptavina hafi bæst í hóp- inn. í Blómavali seldist gróðurmold svipað og að vori og viku síðar rauð- ar rósir í stórum stíl. „Viðbrögðin við þessum tveimur kjarabótaraug- lýsingum komu á óvart. Eflaust finnum við upp á einhverju öðru til að auglýsa síðar á sama hátt, enda eykur þetta jafnframt söluna á öðr- um vörutegundum,“ segir Kristinn Einarsson sölustjóri. Páll Halldór Dungal, verslunar- stjóri í Pennanum, segist undrandi á að ekki skiluðu sér fleiri miðar en raun bar vitni. „Við auglýstum 500 kr. afslátt af Scout-skólatösk- um. Þótt töskurnar hafi selst í stór- um stíl hafa tiltölulega fáir miðar skilað sér í kassann. Fólk á trúlega eftir að venjast því að hagnýta sér þennan nýja verslunarmáta, sem virðist vera að ryðja sér til rúms.“ Egill Einarsson, verslunarstjóri í Erninum, segir að hátt á fjórða tug þriggja gíra kvenreiðhjóla hafi selst þá viku sem kjarabótarmiðinn gilti.„Þetta er mikil aukning frá því sem verið hefur, því undanfarið hefur mest selst af 18 og 21 gírs hjólum.“ Forsvarsmenn verslana- og þjón- ustufyrirtækja, sem bjóða aflátt- armiða, eru yfirleitt ánægðir með viðbrögðin, segja byijunina lofa góðu og slík kjarabót eigi framtíð fyrir sér. Einn verslunareigandi sagði að núorðið væri vart hægt að bjóða upp á vöru öðruvísi en með tilboði af einhveiju tagi. Er- lendis séu neytendur vel vakandi fyrir kjarabót í formi afsláttarmiða og spari þannig miklar íjárhæðir árlega. ■ þjónusta heildsalans FJÖLSKYLDA nokkur keypti að venju hunangs- hnetucheerios á dögunum sem alla jafna væri ekki frásagnarvert nema hvað óbragð var af morgun- korninu. Eftir að fjölskyldan hafði gert misheppnaðar tilraunir til að koma þessum annars ágætu hringjum niður ákvað húsmóðirin að senda soninn með gallaða pakkann til heild- salans sem er Nathan og 01- sen. Sælubros Pilturinn lét sig hafa það og kom út með sælubros á ný hlaðinn eins mörgum pökkum af Cheeriosi og Cocoa Puffsi og hann gat borið. Af svipnum að dæma hafði starfsfólkið auðsjáanlega verið mjög al- mennilegt og fyrir bragðið verður áfram keypt hunangs- hnetumorgunkorn á þessu heimili. ■ Lipurð - Þjónustulund getur skipt sköpum í viðskiptum. Hraði, fjör og spenna. Veggtennis og skvass. Hreyfing sem um munar! Afitláttur fiyrir jkólufióllc. ff DANSSTÚ DÍÓ S P L EVJAR >__ >*!*■. - Káta /jrméefta/ Engjateigi 1 Stniar 687701 og 687801 HLBOÐ VIKUNNAR HAGKAUP - allt í einni ferb

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.