Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 22

Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 Ábyrgð bílasala engin gagnvart leyndum göllum eða fölsuðum pappírum ÁBYRGÐ bílasala gagnvart fölsuðum pappírum eða leyndum göllum er engin, samkvæmt núgild- andi lögum. Bílasalar þurfa ekki að uppfylla neinar faglegar kröfur og hver sem er getur opnað bílasölu án þess að þurfa að leggja fram tryggingar fyrir starfseminni. Bílasalar geta auk þess skammtað sjálfum sér umboðslaun eftir eig- in geðþótta þar sem enginn fastur taxti er til, en tvö til tvö og hálft prósent eru algengust sölulaun þegar verslað er með notaða bíla, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Söluloun bíla- sala eru al- geng tvö til tvö og hálfft prósent. ERTUIBILAHUGIEIDINGUM? „Athugið vel hvort víxlar eða skuldabréf séu þannig úr garði gerð að ekki hljótist vandræði. Hugið að því hvort kaupandi sé á „svörtum lista“ vegna alvarlegra vanskila. Takið ekki við ávísun- um án þess að kanna áður hvort að innistæða sé fyrir þeim. Margir hafa staðið uppi með verðlausa pappira af þessu tagi og tapað stórum fjárhæðum.“ Fram 'hefur komið að mikið sé um vafasöm viðskipti með notaða bíla þessa dagana og hefur fjöldi kærumála borist inn á borð til Fé- lags íslenskra bifreiðaeigenda. Dæmi eru um að kílómetramælar hafi verið færðir niður og mikið er um fölsuð skuldabréf í þessum við- skiptum. Auknar kröfur í viðskiptaráðuneytinu er nú til því sem næst fullmótað frumvarp, sem m.a. hefur verið unnið í sam- ráði við FÍB, og má búast við að það verði lagt fram á haustþingi. í því eru gerðar auknar lagalegar og faglegar kröfur til þeirra, sem fá leyfi til að stunda viðskipti með notaða bíla. „í frumvarpinu felst m.a. sú krafa á bflasala sem fag- menn að þeir kanni gildi pappíra svo langt sem það er hægt og að þeir, sem stunda slík viðskipti, hafi í það minnsta verslunarleyfi. Á hinn bóginn ber bfleigendunum sjálfum að taka alla pappíra með ákveðnum fyrirvara, kanna þá ofan í kjölinn áður en þeir sætta sig við þá. Það er enginn dónaskapur að sýna var- kárni í viðskiptum," segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. Dæmi eru um að bílasölur hafi opið um helgar án þess að vera beintengdar við bifreiðaskrár þar sem m.a. er hægt að fá upplýsingar um hvort veðbönd eru áhvílandi á bifreiðunum og hversu margir eig- endur hafa verið frá upphafi. „Það á auðvitað að gera þá lágmarks- kröfu að allir bílasalar séu tengdir bifreiðaskrám í gegnum Skýrsluvél- ar ríkisins. Því fer fjarri að verið sé að stimpla stéttina í heild. Það eru aðeins fáir svartir sauðir, sem koma óorði á bílasala," segir Run- ólfur. ■ JI Þetta kemur m.a. fram í ábend- ingapunktum frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda sem víti til varnaðar í bílaviðskiptum. Ennfremur segir: „í bifreiðaskrá kemur fram hvort einhverjar skuldir hvíli á bíl. Gang- ið úr skugga um að gengið hafi verið frá öllum veðskuldum áður en afsal er undirritað. Stundum er sagt að nýlega sé búið að taka upp vél eða gírkassa og í slíkum tilvikum er mikilvægt að óska eftir reikningum til vitnis um hvað gert hefur verið. Smurbók segir sitt um hvernig viðhaldi á bíln- um hefur verið háttað. Kaupandi bíls ber ábyrgð á að rannsaka ástand bflsins fyrir sölu. Með hlið- sjón af reynslunni getur komið sér vel að hafa samband við fyrri eig- endur, meðal annars til að vera viss um að kílómetrastaða á hraðamæli sé örugglega rétt.“ Eftirtalin atriði skal athuga áður en farið er að huga alvarlega að bílakaupum: - Mælið olíu á vélinni. Lítil eða óeðlilega þykk olía bendir til að vélin sé mjög slitin. Skoðið smur- þjónustubók. - Athugið hvort felgulykill, tjakkur og varahjól séu í bílnum. - Athugið að leiðbeininga- og þjón- ustubækur séu meðfylgjandi. - Athugið hjólbarða. Raufar í mynstri skulu vera a.m.k. 1,6 mm á dýpt þar sem þeir eru mest slitn- ir. Hjólbarðar skulu allir vera af sömu gerð. Ekki má vera hlaup í hjólum. Beyglur á felgum geta bent til að bílnum hafi verið ekið óvar- lega. - Ræsið vélina. Hlustið eftir óeðli- legum hljóðum. Athugið útblásturs- kerfi. - Stigið fast á hemlafetil. Fótstig á ekki að fara alveg í botn, heldur á að vera gott bil niður að gólfi. - Athugið höggdeyfa með því að ýta á aurbretti yfir hverju hjóli. Haldi bíll áfram að fjaðra geta höggdeyfar verið bilaðir eða ónýtir. - Athugið kílómetramæli. Berið álestur saman við almennt útlit og aldur bifreiðarinnar. Reikna má með að meðalársakstur sé um 15 þúsund km á ári. ■ JI HELGARTILBOÐIN Bónus Planters hnetusmjör. Kaupir eina dós og færð þá næstu fría.149 kr. Appelsínusafi..............69 kr. Hagver hrísgijón...........79 kr. KellogsCornpops379g.......167 kr. Bambolina bleiur 24 stk...399 kr. K&K svínaskinka...........959 kr. Fjölnota myndavél m/filmu...997 kr. Kjöt og fiskur Super appelsínusafí, 1 lítri.77 kr. Super Luxus kaffi, 500 g..179 kr. Townhousemaískom, 480g..64 kr. Nautahakk...............485 kr. kg Svínakótelettur.........945 kr. kg Svínaherðablöð..........398 kr. kg Svínalærisneiðar........495 kr. kg Svínarif................490 kr. kg Sneiddur svínabógur.....495 kr. kg Léttr.lambahryggur......698 kr. kg Hagkaup Ömmupizzur; 3 teg, 600 g...298 kr. Íslensk-kínv lakkr, 500 g..189 kr. súkkulaðikex,'300 g........119 kr. Outspan appelsínur......109 kr. kg utspan mandarínur.......139 kr. kg 1944 hrísgijónagrautur m/ blóðmörskepp...............199 kr. Ungnautagúllas og ungnautasnitsel samanípakka...........1.179 kr. kg F&A KP kartöfluflögur, 26 g........25 kr. Terrys konfekt, 227 g.........336 kr. Gulp eldhúsrúllur, 2 stk.......56 kr. Diet kók, 2 0,33 lítra dósir...49 kr. Agfa E180 mb. spólur.........374 kr. Agfa E240 mb. spólur.........447 kr. Nóatún Lambahamborgarhr....... 898 kr. kg Londonlamb.............799 kr. kg Saltkjöt, 2 fl.........349 kr. kg Saltaðar lambasíður....199 kr. kg Maryland karamellukex.......79 kr. Bolands Fig Roll, 200 g.....98 kr. Jarðarbeijagrautur, 1 lítri.129 kr. Prik þvottaefni, 70 dl.....299 kr. WC pappír, 12 rúllur.......239 kr. Wasataumýkir, 1,5 lítri...119 kr. Scan maxi bleiur, 22 stykki.,.599 kr. Fezzauppþvottalögur, 1 lítri...69 kr. Ryvita hrökkbrauð..........79 kr. Rúsínur, 250 g.............65 kr. Maling aspas, 430 g........59 kr. Fiber kst músli, 375 g....185 kr. Fiberhunangsmúsli, 500g...216 kr. Lambalifur og hjörtu..199 kr. kg Lambanýru...............99 kr. kg íslenskt blómkál........98 kr. kg Hollensk epli...........68 kr. kg Garðakaup Haust hafrakex...............99 kr. Java kaffi, 500 g...........175 kr. Epla- ogperusafi, 1,5 lítri.218 kr. Nopa þvottaefni, 1,5 kg.....198 kr. Nopa mýkingarefni, 2 lítrar ....89 kr. Svínabógsneiðar.........555 kr. kg Svínaragú...............695 kr. kg Söltuð rúllupylsa.......270 kr. kg Svínakótelettur.........945 kr. kg Bayonskinka m/til er....875 kr. kg Úrbeinað svínalæri......775 kr. kg Svínasteik .............375 kr. kg Marguise fr. kart, 1,5 kg..264 kr. Fjarðarkaup íslenskt blómkál..........99 kr. kg íslenskt hvítkál..........88 kr. kg íslenskt spergilkál......119 kr. kg Vatnsmelónur..............59 kr. kg Java kaffi, 500 g...........178 kr. Kryddlæri frá KB.........711 kr. kg Lasagne..................349 kr. kg Vanilluíspinnar..............229 kr. Kerti, 10 stk., 24 cm........119 kr. Samlokubrauð, gróf og fín...98 kr. Myllu skúffukaka.............159 kr. Hvítlauksbrauð...............149 kr. Annað kvöld, föstudag frá kl. 19.00 til 21.00, verður sértilboð á Ola Party pizzum og hálfum lítra af kók á 289 kr. Matvörumarkaðurinn á Akureyri Lambahamborgarahryggur .....................698 kr. kg Beikonskinka.........998 kr. kg Einars Músli-samlokubrauð....99 kr. Einars hunangsterta.....199 kr. 9íaustíitirnir fcgmnir JUVENA Hvernig er verð ákveðið? Verðmyndun mjólkur er flókið mál og eru hinir ýmsu sjóðir og gjöld notuð til þess að halda verði hennar jöfnu um land allt. Tölur þessa eru fengnar úr ritinu Hagtölum land- búnaðarins. Þar stóðust útreikningar að vísu ekki alveg þannig að búið er að leiðrétta það hérna. Afurðastöðvaverð til bóndans..........27,81 kr. Það verð sem bóndinn fær fyrir mjólkina frá mjólk- urbúinu. Auk þess fær bóndinn 24,77 kr. í formi beinnar greiðslu frá ríkinu, og samtals eru þetta 52,58 kr. sem hann fær. Vinnslu- og dreifingarkostnaður.......16,59 kr. Þetta er það sem kostar að vinna mjólkina í mjólkurbúinu og dreifa henni til neytenda. Sjóðagjöld..............................1,60 kr. Þetta skiptist í neytenda- og jöfnunargjald. Verðmiðlun og flutningar................1,77 kr. Kostnaður við að flytja mjólkina frá bændum í mjólkurbúin og tilfærsla fjárs milli mjólkurbúa til að draga úr tapi. Fé rennur til afskekktra búa til að minnka taprekstur. Um næstu áramót verður þetta gjald lækkað niður í 70 aura og ef einhvert mjólkurbú getur ekki starfað á þeim forsendum verður viðkomandi bú lagt niður. Verðtilfærsla...........................1,61 kr. Verðtilfærsla á milli vöruflokka til að jafna verð á milli vöruflokka. Til dæmis er verð á undan- rennu lækkað en verð á ijóma hækkað. Úr uppgjörssjóði.......................-3,81 kr. Um síðustu áramót voru gerða breytingar á verð- myndun landbúnaðarvara þegar niðurgreiðslum var hætt og í stað þess teknar upp beinar greiðsl- ur til bænda. Þessi sjóður er afsprengi þeirra breytinga og er stofnaður til þess að halda verð- hlutfalli milli mjólkurvara óbreyttu frá því fyrir breytingar. Mjólkurbúin greiða í sjóðinn og fá úr honum í samræmi við það sem þau framleiða. Mínus-merkið þýðir að greitt er úr sjóðnum til mjólkurbúanna til að jafna verðið út. Umbúðagjald.............................5,50 kr. Kostnaðurinn við umbúðirnar og vélar til pök- kunnar. Niðurgreiðsla umbúða og afrétting......-0,17 kr. Umbúðir eru niðurgreiddar og afréttingin er leið- rétting í verðmynduninni. Endurgreiðsla virðisaukaskatts.........-4,32 kr. Hluti virðisaukaskattsins er niðurgreiddur til að skattstigið á mjólkinni sé 14% í stað 24,5%. Heildsöluverð..........................46,58 kr. Verða á mjólk frá heildsölum til smásala. Smásöluálagning.........................6,43 kr. Smásöluálagning á mjólkurlítrann er ætíð það sama. Smásöluverð...........................53,01 kr. Virðisaukaskattur 24,5%................12,99 kr. Smásöluverð með Vsk.......................66 kr. Hagtölur landbúnaðarins ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.