Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993
§0
Lyklar afhentir að 44
félagslegum íbúðum
Rúmlega 500 manns kynntu sér skipulag Kópavogsdals
RÚMLEGA 500 manns komu til
að kynna sér skipulag nýju
byggðarinnar í Kópavogsdal sl.
laugardag. 80 íbúðir í félagslega
íbúðakerfinu eru nú nær fullbún-
ar og voru afhentir iyklar að 44
þeirra á Iaugardaginn. I tjaldi
við Lautasmára fór fram sýning
á skipulagsúrdráttum yfir Kópa-
^ogsdal og útlitsteikningum af
byggingum þar. Almennings-
vagnar bs. óku með fólk um dal-
inn og boðið var upp á léttar
veitingar.
Fjölmenni var viðstatt er skipu-
lag Kópavogsdals var kynnt á laug-
ardag en jafnframt fór fram af-
hending lykla að 44 félagslegum
íbúðum.
íbúðir afhentar
Aðalsteinn Sigfússon félags-
málastjóri Kópavogs, Marta Jens-
dóttir formaður húsnæðisnefndar,
Sigurður Geirdal bæjarstjóri og
Gunnar Birgisson formaður bæjar-
ráðs tóku til máls áður en íbúðirnar
voru afhentar. Síðan afhentu full-
trúar verktakanna, Kambs hf. og
Viðars hf., Mörtu Jensdóttur lykla
að íbúðunum sem eru þriggja, fjög-
urra og fimm herbergja. Þá afhentu
Sigurður Geirdal og Gunnar Birgis-
son 44 nýjum íbúðareigendum
lykla. Þær 36 íbúðir sem eftir eru
verða afhentar í byijun september.
Brautarholti og Kringlunni sími 625200
Morgunblaðið/Svcrrir
Sýningargestir í Kópavogsdal
FJÖLMENNT var á skipulagssýningunni í Kópavogsdal á laugar-
dag. Á myndinni sjást sýningargestir fá sér léttar veitingar sem í
boði voru.
Að lokinni afhendingu lék hljóm-
sveitin Karnivala nokkur lög, skóla-
kór Kársness söng og boðið var upp
á léttar veitingar.
Skipulagssýning
í tjaldi við Lautasmára fór fram
sýning á skipulagi Kópavogsdals
og voru þar skipulagsuppdrættir og
útlitsteikningar af nokkrum helstu
byggingum í dalnum. Aðalíþrótta-
leikvangur bæjarins er í dalnum svo
og íþróttasvæði Breiðabliks en þar
er nú að rísa stórt íþróttahús. Þá
er einnig hafin bygging tennishallar
og þar verða stór og fjölbreytt úti-
vistarsvæði en gert er ráð fyrir að
samtals verði um 60 hektarar í
dalnum græn svæði.
Boðið var upp á ókeypis ökuferð-
ir um dalinn með Almenningsvögn-
um b.s. undir leiðsögn Birgis Sig-
urðssonar skipulagsstjóra Kópa-
vogs og Gunnars Birgissonar for-
manns bæjarráðs. Gafst gestum
einnig kostur á að skoða sig um í
sérstökum sýningaríbúðum eins og
þeim sem afhentar voru.
Brúarhlaup Sel-
foss 4. september
Fyrir alla sem vilja ganga, hlaupa eða hjóla
Selfossi.
BRÚARHLAUP Selfoss fer fram næstkomandi laugardag, 4. sept-
ember. Þátttakendum bjóðast þijár vegalengdir, hálfmaraþon, 10
kilómetrar og 5 kílómetra skemmtiskokk. Einnig býðst að taka þátt
i 10 kílómetra hjólreiðum. Skráning í hlaupið fer fram á Selfossi í
Vöruhúsi KÁ 3. september klukkan 16-19. I Reykjavík fer skráning
fram á skrifstofu Ungmennafélags Islands, Fellsmúla 26. Allar vega-
lengdir eru löggiltar.
Brúarhlaupið er árviss viðburður,
það hófst á hundraðasta afmælisári
Ólfusárbrúar árið 1991 og er kennt
við brúnna. Hlaupið fer nú fram
undir kjörorðinu í Líflegum miðbæ.
Tólf fyrirtæki sem flest starfa í
miðbæ Selfoss eru stuðningsaðilar
hlaupsins.
Allir þeir sem ljúka hlaupinu eða
hjólreiðunum fá verðlaunapening
sem viðurkenningu og við skrán-
ingu fá allir stuttermabol. Þátttöku-
gjald er 200 krónur fyrir 11 ára
og yngri og 500 krónur fyrir 12
ára og eldri.
í fyrra var 551 þátttakandi og
framkvæmdaaðilar hlaupsins von-
ast eftir meiri þátttöku í ár.
Sig. Jóns.
ErfraStarka
|karamellpojkarna| Beiskur brjóstsykur - einnig án sykurs
Ef þú ert á aldrinum 16-18 ára, átt þú möguleika á að
gerast skiptinemi á vegum AFS. Þú dvelur 11 mánuði í
viðkomandi landi, eykur þekkingu þína á umheiminum,
lærir nýtt og spennandi tungumál og kynnist skóla- og
fjölskyldulífi í viðkomandi landi. í janúar og febrúar 1994
fara íslenskir skiptinemar til Ástralíu, Argentínu, Costa
Rica, Paraguay og fleiri landa S-Ameríku.
Umsóknarfrestur fyrir Ástralíu er til 15. september, en
frestur til að sækja um S-Ameríku er til 20. október.
Upplýsingar og umsóknir fást á skrifstofu AFS, Laugavegi
59,3. hæð, milli kl. 10 og 16 virka daga. Sími 91-25450.
SKIPTINEMADVÖL í
OG S-AMERÍKU
AFSÁ ÍSL4NDI
Alþjóðleg fræðsla og samskipti