Morgunblaðið - 02.09.1993, Síða 32

Morgunblaðið - 02.09.1993, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 Góðir landsmenn! Gerist fastir styrktaraðilar og takið þannig virkan þátt í neyðarhjálp og þróunaraðstoð Œr. HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR - með þinni hjálp. Sími 624400. Keppnin um Bermúdaskálina og Feneyjabikarinn hafin Pólland og Kína leiða riðlana í opnum flokki __________Brids______________ Guðm. Sv. Hermannsson MIKIL barátta um úrslitasæti er í uppsiglingu á heimsmeist- aramótinu í brids í Santíagó i Chile, þegar riðlakeppnin var tæplega hálfnuð. Þó virðast Pól- verjar, Kínverjar og Bandaríkja- menn á góðri leið með að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum í keppninni um Bermúdaskálina og í keppninni um Feneyjabikar- inn í kvennaflokki sýnast Svíar ætla að sigla góðan byr í úrslitin en önnur sæti eru í járnum. Eftir 6 umferðir af 14 í riðla- keppninni var staðan í opna flokkn- um þessi: A-riðill. Pólland 124, Bandaríkin B 120, Holland 109, Brasilía 98, Mexíkó 77, Indónesía 75, Guadel- upe 54, Suður Afríka 51. B-riðill. Kína 120, Noregur 99, Ástralía 98, Danmörk 96, Indland 88, Venezúela 83, Bandaríkin A 75, Chile 54. Fjórar efstu þjóðirnar úr hvorum riðli komast í 8 liða úrslit sem verða með útsláttarfyrirkomulagi. í A- riðli er staðan eftir bókinni. Það gæti þó háð Brasilíumönnum að Marcelo Branco, spilafélagi Gabrí- els Chagas, forfallaðist og Chagas spilar þess í stað við Roberto Mello. Þeir Branco og Chagas hafa verið akkerispar brasilíska landsliðsins undanfarin ár og af mörgum taldir mynda eitt besta par í heimi enda núverandi heimsmeistarar í tví- menningi. í B-riðli er hins vegar allt opið enn. Frammistaða Kínverja kemur nokkuð á óvart en þeir fengu sam- tals 71 stig af 75 mögulegum á öðrum degi riðlakeppninnar. Þá vekur slakt gengi A-sveitar Banda- ríkjanna athygli. Sú sveit er skipuð Becker, Rubin, Levin, Weichsel, Sukonek og Ekeblad og var talin mjög sigurstrangleg á mótinu. Danir fóru vel af stað og voru efst- ir í riðlinum eftir fyrsta daginn en gáfu síðan eftir, töpuðu m.a. fyrir Indverjum, 6-24, í 6. umferð. Bæði Dönum og Norðmönnum hefur ver- ið spáð sæti í 8 liða úrslitum. I kvennaflokki eru Evrópumeist- arar Svía langefstir í öðrum riðlin- um með 130 stig en næstir koma Þjóðveijar með 99 stig, Bandaríkin B með 92 stig og Argentína með 86 stig. I hinum riðlinum leiða Bandaríkin A með 108 stig en næstir koma Tapei með 102 stig, ítalir með 97 stig og Kanada með 91 stig. Glötuð tækifæri Spilamennskan í Chile hefur verið fjörug ef marka má þetta spil úr leik Bandaríkjanna B og Brasilíu í 2. umferð. N/Enginn Norður ♦ Á ▼ 1093 ♦ KDG1092 + ÁD3 Vestur ♦ DG8 ▼ Á5 ♦ 74 ♦ K87542 Austur ♦ 10976532 ▼ KG8 ♦ Á ♦ G10 Suður ♦ K4 ▼ D7642 ♦ 8653 ♦ 96 Opinn salur Vestur Norður Austur Suður Mello Cohen Chagas Berk. 1 lauf 1 spaði dobl 2 spaðar 3 tíglar 3 spaðar 3 grönd pass pass 4 spaðar pass pass 4 grönd/ -50 Lokaður salur Vestur Norður Austur Suður Rodwell Branco Bergen Amaral 1 tígull 3 spaðar pass 4 spaðar/ -50 Við annað borðið tapaði Marty Bergen 4 spöðum þegar hann hreinsaði ekki upp rauðu litina áður en hann spilaði trompi. Þá hefði norður verið endaspilaður og neyðst til að gefa vestri slag á laufakóng eða spila tígli í tvöfalda eyðu. Við hitt borðið „fórnaði" Larry Cohen í 4 grönd yfír 4 spöðum eftir að hafa opnað á sterku laufi. Cohenn sagði 4 grönd raunar til vinnings en þar eru aðeins 9 slagir sjáanlegir. Chagas setti þó smá spennu í spilið. Ut kom spaði á ás en þegar Chagas komst inn á tígul- ás taldi hann að vörnin þyrfti að taka þrjá slagi í flýti og skipti því í hjartaáttuna. Chagas er þekktur refur við spilaborðið og Berkowitz leit því hjartaáttuna grunsemdaraugum. Á endanum ákvað hann að stinga upp hjartadrottninginni í þeirri von að Chagas væri að spila undan ÁK í hjarta, enda gat Mello skipt aftur í spaða þótt Berkowitz hefði látið lítið í blindum. Spilið fór því einn niður eftir sem áður. Ljósm.st. MYND HJÓNABAND. Gefin voru saman þann 7. ágúst sl. i Kópavogskirkju af sr. Kristjáni Einari Þorvarðarsyni Marta Þórunn Hilmarsdóttir og Vermundur Ágúst Þórðarson. Heimili þeirra er á Huldubraut 12, Kópavogi. Ljósm.st. MYND HJÓNABAND. Gefin voru saman þann 7. ágúst sl. í Stykkishólms- kirkju af sr. Gunnari Eiríki Hauks- syni Kristín Guðrún Ásgeirsdóttir og Sigurður Sigurþórsson. Heimili þeirra er á Hlíðarvegi 56, Kópavogi. U'ósm.st. MYND HJÓNABAND. Gefin voru saman þann 7. ágúst sl. í Bústaðakirkju af sr. Pálma Matthíassyni Erla Ósk Sigtryggsdóttir og Kalman Snæ- björnsson. Heimili þeirra er á Sel- vogsgötu 14, Hafnarfirði. MÁ BJÓÐA ÞÉR í DAIXIS? KENIUSLUSTAÐIR • Reykjavík Brautarholt 4, Ársel, Gerðuberg, Fjörgyn og Hólmasel. • Mosfellsbær • Hafnarfjörður • Innritun í síma 91-20345 frá kl. 15 til 22 að Brautarholti 4. • Suðurnes Keflavík, Sandgerði Grindavík og Garður. • Innritun í síma 92-67680 frá kl. 21.30 til 22.30. • KENNSLA HEFST ÞRIÐJUDAGINN 14. SEPT. • Kennum alla dansa Gjaldskrá óbreytt frá liðnum vetri Samkvœmisdansa, gömlu dansana, rock 'n 'roll, Ijútl og nýjuslu freestyle dansana. • Aukatímar/vrirþfl sem vilja taka þátl í íslandsmeistarukeppni. • Einkatímar Sértímar fyrir "prívathópa ". • Börn 3 - 4 ára Léttar hreyfingar og leikir sem örva hreyfiþroska. • Barnahópar - Unglingar - Fullorðnir - Hjón - Pör Systkinaafsláttur -fyrsta barn fullt gjald, annað barn hálft gjald, þriðja barn og þaryfir frítt. Aukaafsláttur efforeldrar eru einnig í dansnámi. Þrautþjálfaðir kennarar með mikla reynslu og þekkingu á dansi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.