Morgunblaðið - 02.09.1993, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993
37
íslensk
_'SIEN,SK
Nc-
íslensk
ensk
orðabók
DÖPJS K
Uclandit-tnglish
Oi(»ionary
Aðalsteinn Guðmunds-
- Minning
son
Fæddur 15. október 1911
Dáinn 18. ágúst 1993
Þeim fækkar óðum vinunum sem
komnir voru til vits og þroska þegar
ég fer að muna. Vinum mínum sem
hjálpuðu til að skapa það skjól og
öryggi sem ungviði er svo nauðsyn-
legt. Einn þeirra var Aðalsteinn föð-
urbróðir minn sem er til moldar bor-
inn í dag.
Aðalsteinn var' næstyngsti sonur
hjónanna Sigríðar Sakaríasdóttur og
Guðmundar Guðmundssonar bónda
í Stakkadal við Aðalvík. Þau hjón
eignuðust átta stráka sem allir kom-
ust til fullorðins ára. Elstur var fað-
ir minn Guðmundur Kristján, og síð-
an komu í aldursröð: Sakarías Helgi,
Karl Leifur, Sigurður, Stefán Gunn-
ar, Sigurjón, Aðalsteinn og Jóhann.
Alli ólst upp í föðurgarði í glöðum
strákahóp og tókst á við þau verk
sem honum voru ætluð í sveitinni.
Þegar hann komst á unglingsár vann
hann hjá Látrabændum sem land-
maður á vertíðum.
Tæpra 15 ára missti hann föður
sinn og tveim árum seinna móður
sína. Bræðurnir urðu því ennþá mik-
ilvægari en ella. Þrír þeir elstu voru
að vísu við róðra frá ísafirði, en komu
heim í Stakkadal milli vertíða. Þeir
reyndu að halda saman búinu með
aldraðri móðursystur og hjálpuðust
að við að annast litla bróður sinn sem
alla tíð var veiklaður.
Einum bræðranna, Siguijóni, var
komið í fóstur kornungum og ólst
ekki upp með bræðrum sínum, en
var samt einn af hópnum alla tíð.
19. október 1929 varð mikið reið-
arslag þegar tveir bræðranna fórust
með sama bátnum, Gissuri hvíta. Það
voru þeir Stefán og Helgi. Stefán
var ólofaður, en Helgi átti unnustu
og litla dóttur og bam í vændum.
Þetta hörmulega slys hafði mikil
áhrif á alla bræðurna, kannski mest
á Alla, og hefur eflaust átt sinn þátt
í því hvað þeir tóku áföllum í lífinu
með miklu æðruleysi.
Haustið 1929 var Alli á ísafirði,
gekk í kvöldskóla og bjó hjá pabba
og mömmu ásamt Stefáni sem deildi
með honum herbergi. Frá þessu
hausti eru fyrstu minningar mínar
um Alla frænda. Það fylgdi ungu
mönnunum fleira ungt fólk og frá
herbergi þeirra bárust glaðværir
hlátrar sem lítilli hnátu fannst for-
vitnilegt að kanna nánar. Ein mynd
frá þessu hausti af unga fallega
frændanum er til í minninu. Hann
stendur með litlu systur mína úti-
klædda og vansæla í fanginu. Þau
eru á leið til læknis og Alli heldur á
henni fyrir mömmu, sem er komin
langt á leið. Milli Alla og mömmu
var alltaf vinarþel.
Alli átti sjálfur von á barni, sem
fæddist 17. janúar 1930. Það var
stúlka og var skírð Sigríður eftir
föðurömmu sinni. Arið 1931 hóf Alli
svo búskap í Stakkadal með unnustu
sinni, Jónu Friðriksdóttur. Hann brá
síðan búi árið 1933 eftir lát Jónu.
Sigríði litlu dóttur þeirra var komið
í fóstur og Alli fluttist til Reykjavík-
ur. Þar stundaði hann að mestu
smíðar, en það voru krepputímar og
erfitt um vinnu og m.a. fór hann á
síldveiðar haustið 1935 sem stóðu
fram yfir áramót.
Alli hafði þá kynnst konuefni sínu
Gyðu Guðmundsdóttur frá Kirkjuhóli
á Snæfellsnesi. þau giftu sig 7. ág-
úst 1937 og eignuðust fjögur mann-
vænleg börn, Ragnar, Stefán Helga,
Bjarnþór og Önnu Lóu. Öll studdu
þau foreldra sína af kærleika þegar
halla tók undan fæti og elli og veik-
indi sóttu að. Gyða var kyrrlát kona
en kímin. Hún flíkaði ekki tilfinning-
um sínum, en var trygg þeim sem
hún tók, og stóð með bónda sínum
í blíðu og stríðu. Gyða dó 13. nóvem-
ber 1984 eftir langvinn veikindi.
Alli var trésmiður að iðn og vann
að mestu einsamall. Hann átti lengi
verkstæði þar sem hann smíðaði
húsgögn og innréttingar. Hann var
hagleiksmaður sem vandaði vinnu
sína. Síðustu árin sem hann gat unn-
ið rak hann innrömmunarverkstæði
af smekkvísi og vandvirkni.
Heimili Alla og Gyðu stóð opið
ættingjum beggja. Það var nánast
aldrei svo brönert að ekki væri hægt
að bæta einum við til gistingar í
lengri eða skemmri tíma. Það var
t.d. alveg sjálfsagt að skjóta yfir
mig skjólshúsi í margar vikur, þegar
ég 19 ára gömpl kom suður á vit
ævintýranna. Áður hafði ég gist hjá
þeim í skólaferðalögum og fríum og
alltaf notið sömu velvildar. Lilja Páls-
dóttir, systurdóttir Gyðu, kom á
heimilið í bernsku og var þar meira
og minna til fullorðinsára. Eftir að
ég fór að búa sjálf hér í Reykjavík
átti ég margar góðar stundir með
þeim hjónum. Alli stríddi mér góðlát-
lega, Gyða brosti að og bæði voru
mér hlý.
Síðustu árin dvaldi Alli á Drop-
laugarstöðum og undi sér þar vel í
umönnun góðs fólks. Heilsan var
orðin léleg, en alltaf var jafn gott
að hitta hann og eiga með honum
stund.
Það er komið að leiðarlokum og
ekkert eftir nema að kveðja. Allir
synir Sigríðar og Guðmundar í
Stakkadal eru horfnir af sjónarsvið-
inu. Eg sé þá í anda saman í hóp,
glaða á svip, svolítið prakkaralega
með stríðnisglampa í augum. Ég finn
streyma frá þeim hlýjuna og elsk-
una. Þeir tókust á við þá ábyrgð sem
lífið lagði þeim á herðar, vildu vita
með sjálfum sér að þeir ynnu fyrir
hýrunni sinni og helst að skulda eng-
um neitt. Þetta voru vandaðir menn
sem gott var að þekkja.
Ég kveð Aðalstein föðurbróður
minn með virðingu og þökk og sendi
fjölskyldu hans hugheilar kveðjur.
Guðrún Sæmundsen.
ORÐABÆKURNAR
34.000 ensk uppfletiiord
Ensk
íslensk
orðabók
English-ltclandit
Ditfionary
w**-*”*
DSnsk
islensk
islensk
dönsk
orðobók
Frönsk
íslensk
íslensk
fiönsk
ordnbók
!s**sk
ls*ensk
*n$k
oröabók
ik
íslensk
þýsk
ordobók
Itöhk
íslenslt
úlensk
itölsk
orðobók
Spænsk
íslensk
islensk
orðabók
Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skólann,
á skrifstofuna og í ferðalagið
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
N|f Lada Sport kostar M 808.000
Flostir ieppar kosta yfir 2.000.000
MÍsmunarÍnBi or heiit
æwiiitfri Sfffli
fjélskyldana.
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLA 13,* REYMAVÍK
SÍMI: 68 12 00 • BEINN SIMI: 3 12 36