Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 38

Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 Valgerður Gísla- dóttir - Minning Horfin, dáin, hvílík harmafregn. Við stóðum orðíaus, hnípin og stjörf. Þú sem varst fyrir nokkrum.dögum hress og kát á leið til útlanda, hafð- ir nú mætt manninum með ljáinn og það fer aldrei nema á einn veg. Eftir sitjum við og spyrjum, af hveiju þú, í blóma lífsins og ótal hlutir ógerðir. Það getur verið svo erfitt að skilja tilganginn í þessu lífi, en hann hlýtur að vera einhver, þó erfítt sé að greina hann á stundum. Við kynntumst Valgerði fyrir nokkrum árum og þau kynni voru góð og fóru vaxandi. Hún var skör- ungur í orði og æði. Glæsikona á velli og hvar sem hún fór, var tekið eftir henni. Dugnaðarforkur, ósér- hlífín og ætíð tilbúin til verka. Hest- ar áttu hug hennar allan og vann hún mikið að félagsmálum í þeim efnum, bæði fyrir Fák og Landssam- band hestamanna. Hún var mjög hvetjandi í starfí, jákvæð og skilaði sínu, fljótt og vel. Um tíma var hún formaður kvennadeildar Fáks með miklum sóma og vann mikið og gott starf í þágu bama og unglinga á vegum síns félags. Nú síðasta ár starfaði hún í aðalstjóm, sem gjald- keri. Þessi störf og íjölmörg önnur - verða seint fullþökkuð. Þegar komið er að leiðarlokum er margs að minnast, og hugurinn reikull. Það vantar svo mikið og erf- itt að trúa að hún sé um Gjallarbrú gengin. Við vottum eiginmanni, Gylfa Geirssyni, og einkasyni þeirra Gísla Geir, okkar dýpstu samúð í þeirra miklu sorg. Það er þó örlítil huggun harmi gegn, að Valgerður „átti sög- una stutta en göfuga“. Megi drottinn almáttugur blessa ykkur öll. Alda, Guðbrandur og Gunnar Örn. í dag kveðjum við vinkonu okkar, Valgerði Gísladóttur, sem alltof fljótt var hrifin á brott. Þegar við fréttum af veikindum hennar vorum við mjög slegnar en jafnframt bjartsýnar á að hún mundi rífa sig upp, þessi baráttukona. En enginn veit sinn næturstað og það kom eins og reiðarslag yfir okkur að hún hefði beðið lægri hlut. Vala, eins og hún var alltaf kölluð af kunningjum sínum, var mikil áhugamanneskja um hesta og var einmitt rétt ófarin á heimsmeistara- mót íslenskra hesta erlendis er hún veiktist svo skyndilega. Hún var mikil félagsmanneskja og hafði starfað að félagsmálum í Hesta- ERFIDRYKKJUR frá kr. 850- ími620200 P E R L A N mannafélaginu Fáki í mörg ár. Lengst af var hún formaður kvenna- deildar og stjómaði þar af röggsemi og hressileika eins og henni var lag- ið, hvort sem var í kvennareið hér áður fyrr á mósótta klárnum sínum eða í öllum gönguferðunum sem við Fákskonur förum í sl. haust. Einnig starfaði hún með unglingadeildinni og núna síðast í stjórn félagsins sem gjaldkeri. Hún var eins og áður hef- ur komið fram mikil baráttumann- eskja, ef hún ætlaði sér eitthvað lét hún ekkert stöðva sig. Ekki er ætlunin að gera hér ætt Völu skil, til þess skortir okkur þekk- ingu, en okkar langar að minnast hennar á því sviði sem við þekktum hana best, starfandi af fullum krafti í félagsmálum hestamanna. Vaia hafði allt til að bera til að ná til fólks, glæsileg, hláturmild, alltaf hress og kát, alveg einstaklega lífsglöð. Áhugamál hennar, hesta- mennskan, var hennar vítamín. Hún vildi veg kvenna sem mestan og að gera þær virkari. Til dæmis kom hún með þá hugmynd að konur færu ríðandi á fund forseta íslands og þegar Fákskonur fóru ríðandi til Bessastaða í tilefni af 70 ára af- mæli Fáks á síðasta ári var hún í þeim hópi. Við fráfall Völu hefur í röðum okkar myndast stórt skarð, sem seint verður brúað, en við trúum því að henni hafi verið ætlað annað og æðra hlutverk. Að leiðarlokum vilj- um við þakka henni allar góðu sam- verustundirnar í blíðu og stríðu og vottum Gylfa og Gísla Geir, sem svo mikið hafa misst, foreldrum, systkin- um og öðrum þeim sem eiga um sárt að binda á þessum erfíðu tímum dýpstu samúð okkar og biðjum al- góðan Guð um styrk þeim til handa. Fyrir hönd Kvennadeildar Fáks, Brynja J. Jónasdóttir, Gréta Guðmundsdóttir, Helga B. Helgadóttir. Miðvikudaginn 25. ágúst lést á Borgarspítalanum vinkona okkar, Valgerður Gísladóttir. Við vorum vinnufélagar í Landsbanka Islands, Vesturbæjarútibúi, en þar vann Vala um átján ára skeið, eða þar til fyrir fímm árum að hún hóf störf við út- gerð föður síns. Vala var fágætur persónuleiki og ógleymanleg öllum sem henni kynnt- ust. Það var ekki lognmollan þar sem Vala fór, hún hafði einstakt lag á að sjá skoplegu hliðarnar á tilver- unni enda var kaffítími með Völu á við margar vítamínsprautur. Vala var fæddur foringi, úrræða- góð og hafði jafnan frumkvæði þeg- ar gera átti skemmtilega hluti. Með- al annars kom hún því til leiðar að við fórum fjórar í danstíma, ásamt mökum, og af því tilefni var stofnað- ur félagsskapurinn Danssporið. Reglulega komum við saman, borð- uðum góðan mat og skemmtum okk- ur. Þar var Vala aðaldriffjöðrin, stjómaði leikjum og setti upp leikrit af miklum móð. Þetta voru ógleym- anlegar stundir. Vala var jafnan valin til forystu enda var henni ekkert óviðkomandi. Hún var kosin í íþróttanefnd bank- ans, einna fyrst kvenna. Helsta verk- svið nefndarinnar voru boltaíþróttir og dæmigert að með tilkomu Völu var fljótlega farið að bjóða starfs- mönnum upp á ýmislegt sem ekki hafði tíðkast áður, meðal annars reiðnámskeið, en hestamennskan átti hug hennar allan. Höfðingsskapur Völu átti sér lítil takmörk. Þegar starfsmaður hættir í bankanum eru honum oft rétt blóm eða annað smáræði í kveðjuskyni. Vala bætti hér um betur. Stuttu eftir að hún hætti störfum kom hún færandi hendi með lítið pottablóm á hvert einasta skrifborð í útibúinu, en starfsmenn voru um það bil 20! Hún var jafnan í hlutverki veit- anda, það var hennar eðli. í bankan- um fékk hún litla útrás fyrir sköp- unarkraft sinn, í raun var hún lista- maður í sér. Þeir voru til að mynda ófáir grímubúningarnir sem hún útbjó á son sinn Gísla Geir þegar hann var í barnaskóla, enda hreppti hann ósjaldan verðlaunin á öskudag- inn. Ríkur þáttur hjá Völu var áhugi og umhyggja fyrir öðrum, hún hélt virku sambandi við fjölda samferða- manna og lét sér raunverulega annt um aðra. Það eru líka margir sem nú sjá óviðjafnanlegum vini á bak, gegnheilli konu sem var stórveldi í jákvæðri merkingu orðsins. Gylfí og Gísli Geir voru henni allt og biðjum við góðan Guð að styrkja þá í sorginni, einnig foreldra, systk- ini og aðstandendur alla. Dísella, Sigrún og Metta. Heimsmeistaramóti íslenskra hesta í Hollandi er lokið. Aldrei hef- ur íslenska landsliðinu í hestaíþrótt- um gengið eins vel og það fengið eins mikið af verðlaunum. Það var samt skuggi yfír flestöllum íslend- ingum sem þar voru saman komnir, því að það vantaði þar eina fjöl- skyldu í hópinn. Það voru þau Vala, Gylfí og Gísli Geir. Þau ætluðu svo sannarlega að vera þar og þeir feðg- ar voru komnir á staðinn með bílinn, en Vala ætlaði að koma nokkrum dögum seinna. Þar átti heldur betur að skemmta sér. Ég heyrði í Völu daginn áður en ég og fjölskylda mín lögðum af stað og ætluðum við síðan að hittast eftir að hún kæmi út. Þegar við komum á staðinn fáum við þær fréttir að hringja heim og er Vala þá mikið veik. Hvernig gat á þessu staðið? Ekki hún Vala. Hún sem var svo hraust. Hún sem var hrókur alls fagnaðar og allir tóku eftir henni. Stór og glæsileg kona með mikið og fallegt hár, en það var eitt af því fyrsta sem ég tók eftir er ég hitti hana fyrst. En hún Vala fór aldrei á heimsmeistaramótið, heldur hefur hún eflaust farið á eitt- hvert annað og meira heimsmeist- aramót þar sem henni hefur verið ætlað meira hlutverk. Einhver hlýtur tilgangurinn að vera. Mín elskulega vinkona Valgerður Gísladóttir, eða Vala eins og hún var kölluð, er dáin. Við hjónin kynnt- umst þeim Völu og Gylfa stuttu eft- ir að við fluttum úr Borgamesi fyrir 12 árum, í gegnum sameiginlegt áhugamál sem er hestamennska. Við hjónin tókum fyrst eftir þeim á hest- baki í Víðidalnum. Það var tekið eftir þeim þar sem þau vom. Síðan hófust kynni í gegnum félagsmál Fáks. Við Vala störfuðum saman í stjórn kvennadeildarinnar í fjögur ár og var oft glatt á hjalla. Standa þurfti í fjáröflun og skorti þá Völu ekki hugmyndaflugið. Þegar einhver ný kona sást á hestbaki var Vala ekki lengi að drífa hana í kvenna- deildina með einhverjum ráðum. Kvennakvöldin hjá Fáki em mér líka mjög minnisstæð, en þar lá Vala ekki á liði sínu að útvega þetta og hitt. Alltaf til í allt. Við Vala stóðum fyrir gönguklúbbi ásamt öðmm kon- um í Fáki og gengið var einu sinni í viku frá hausti og fram að jólum þegar ekki var hægt að ríða út. Allan síðasta vetur stóðum við Vala saman í því að hanna nýjan búning fyrir Fák, en það getur verið erfitt þegar ákveða á eitthvað fyrir um eitt þúsund manns. Margir urðu til að gagnrýna okkur. Við vomm svolítið viðkvæmar fyrir því. Þá hringdi ég í Völu og hún í mig og við stöppuðum stálinu hvor í aðra. Við héldum okkar striki og nú em allir mjög ánægðir. Hennar síðasta verk í búningastússinu var að panta jakka fyrir sjálfa sig, en ekki fer hún í hann. Ekki má gleyma öllum þeim reið- túrum og ferðalögum í sambandi við hestamannamót út um allt land, þar sem grillað var saman og allir vom glaðir. Okkar síðasta ferð var fyrir um mánuði þegar fjölskyldan ætlaði að hittast hjá Helgu og Ragga að Fossi í Grímsnesi og auðvitað vom Vala og Gylfi með, því að þau vom hluti af fjölskyldunni. Það er erfitt að hugsa sér að lífið haldi áfram þegar svo elskuleg stúlka er dáin. Við verðum að ylja okkur við þær góðu og fallegu minn- ingar sem við eigum um Völu. Mað- ur vill helst að lífíð sé eilíft, að ekk- t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐSTEINN SIGURGEIRSSON húsgagnabólstrari, Álfheimum 12, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 3. september kl. 13.30. Ragnheiður Finnsdóttir, Geir A. Guðsteinsson, Sigurbjörg Gestsdóttir, Finnur J. Guðsteinsson, Fanney Sigurðardóttir, Guðlaug Guðsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Lokað Skrifstofa Hestamannafélagsins Fáks verður lokuð í dag vegna útfarar VALGERÐAR GÍSLADÓTTUR. t Eiginkona mín, ÁSTA HERMANNSDÓTTIR, Víkurbraut 14, Vík f Mýrdal, verður jarðsungin frá Víkurkirkju laugardaginn 4. september kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaöir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Árni Sigurjónsson. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN BALDVINSDÓTTIR, fyrrum húsfreyja í Ásbyrgi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju, föstudaginn 3. september kl. 13.30. Sigurveig Erlingsdóttir, Hulda Erlingsdóttir, Kristfn Erlingsdóttir, Baldvin J. Erlingsson, barnabörn og Jónas Jónsson, Jónas Hallgrfmsson, Hrafn Magnússon, Guórún H. Jónsdóttir, barnabarnabörn. ert breytist. Þannig hugsar maður ekki fyrr en maður stendur frammi fyrir dauðanum. En lífíð heldur áfram, hvort sem maður vill það eður ei. Við verðum því að standa saman í sorg okkar og styðja þá feðga Gylfa og Gísla Geir sem hafa ekki bara misst móður og eiginkonu heldur líka sinn besta vin. Ég vil biðja góðan Guð að styrkja þá í sorg þeirra. Edda Hinriksdóttir. Okkur systumar langar að kveðja hana Völu okkar sem alltaf var svo góð við okkur. Við munum fýrst eftir henni, hve góð hún var við okkur og hún var alltaf að kaupa gjafir handa okkur. Við höfðum hlakkað mikið til að fara saman til Hollands og eyða þar saman sumarfríinu okkar. En nú er hún farin frá okkur. Það er mikill missir að henni, en Guð tekur alltaf fyrst þá sem hann elskar mest. Við söknum hennar mikið, en vitum að hún fylgist með okkur. Guð gefí Gísla Geir og Gylfa styrk. Edda Rún og Jóna Margrét Ragnarsdætur. Allt er í heiminum hverfult. Þessi orð komu í hugann þegar við fregn- uðum lát samstarfskonu okkar Val- gerðar Gísladóttur, sem starfaði ásamt okkur að uppbyggingu ung- lingamála á vegum Landssambands hestamannafélaga og Hestaíþrótta- sambands íslands. Samstarfíð við Valgerði var einstaklega ánægju- legt, sérstæður persónuleiki hennar hafði góð áhrif á umhverfí sitt enda drift, jákvæð viðhorf og ákveðni hennar aðal, auk þess sem skipulögð og markviss vinnubrögð hennar gerðu okkur starfið auðveldara. Valgerður setti markið ávallt hátt og hennar háttur var að gera hlutina með glæsibrag eða sleppa þeim. Nú er skarð fyrir skildi, og ekki verður auðvelt að fylla það skarð. Við erum þakklátar fyrir að hafa fengið að njóta samvista við Val- gerði og fyrir allar þær ánægjulegu stundir sem lifandi og hressilegt við- mót hennar setti mark sitt á. Við viljum votta þeim feðgum Gylfa og Gísla Geir ásamt öðrum aðstandend- um Valgerðar, okkar innilegustu samúð. Elín G. Magnúsdóttir, Rosemarie Þorleifsdóttir, Kolbrún Kristjánsdóttir, Eydís Indriðadóttir, Ásdís Ingimarsdóttir. Horfin, dáin, harmafregn. Okkur í stjórn Fáks setti hljóða, þegar and- látsfregn Valgerðar bar að. Hún sem hafði fyrir nokkru verið alhress og kát með okkur á fundi, var nú öll. Stundum er bilið stutt milli lífs og dauða, en sjaldan hefur okkur fund- ist það jafnstutt og nú. Valgerður var mjög virk í félags- málum fyrir hestamannafélagið Fák um áraraðir. Hestar og þeirra mál- efni áttu hug hennar allan og vann hún mjög fómfúst starf í þágu þess- ara mála, m.a. verið formaður kvennadeildar með miklum glæsi- brag og nú starfað í aðalstjóm fé- lagsins í nokkur ár, síðast sem gjald- keri þess. Að auki starfaði hún í ýmsum nefndum fyrir félagið svo og nefndum hjá Landssambandi hestamannafélaga. Hún var glæsi- kona í orði og á borði. Hvar sem Erfidrykkjur Glæsileg kaifi- hlaðborð fiillegir salir og nijög góð þjónusta. llpplýsingar ísínra22322 * FLUCLEIDIR léTEL Ltrmmt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.