Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 40
40------ MÖRGÚNBLÁÐTÐ FÍMMTUDÁGÚR 2. SEPÍÉMBER 1993 fclk f fréttum HULISHJALMUR Hver er maki Bobs Hope? Bob Hope, hinn gamalkunni spéfugl, hélt upp á níræðisaf- mæli sitt fyrir skemmstu og að því tilefni rifjaðist upp að huliðshjálm- ur hvílir yfír hjónabandsmálum hans. Ward Grant, sem er talsmað- ur Hopes gagnvart fjölmiðlum, sagðist ekki geta leyst málið og það myndi enn um sinn vera hulinn leyndardómur. Þannig er mál vexti, að Bob Hope og kona hans Dolores, segj- ast hafa gengið í það heilaga 19. febrúar 1934 og samkvæmt því ætti að vera stutt í 60 ára brúð- kaupsafmæli þeirra. Það hefur hins vegar verið bent á, að engir pappír- ar eru til um giftinguna sem á að hafa farið fram í Erie Court í Pennsylvaníu. Þvert á móti eru til pappírar sem segja að Bob hafi gengið að eiga samstarfskonu sína Grace Troxell í janúar 1933, eða aðeins rúmu ári áður en hann seg- ist hafa gifst Dolores. Aðspurður hefur Bob ævinlega bandað frá sér orðrómnum um Grace og sagt að giftingarpappír- arnir hljóti að vera falsaðir eða tilraun einhvers mislukkaðs húm- orista til að sprella með einkamál sín. Hann hafí einungis gifst einu sinni á ævinni og þar hafi verið á ferðinni núverandi eiginkona hans Dolores. Það er í sjálfu sér ekkert laun- ungarmál, að Bob og Grace áttu í ástarsambandi sem hófst árið 1929 og stóð að minnsta kosti þar til þau fóru fyrst að vinna saman á Broadway en það var árið 1933. Bob segir að þá hafí slitnað upp úr sambandi þeirra eftir að hann sá Dolores söngleik. Hreifst hann svo að Dolores að hann eirði sér ekki fyrr en hann náði athygli hennar. Að sögn Bobs giftu þau sig síðan í Erie árið 1934 sem áður sagði. Bob og Dolores. M ódelsamtökin sími 687480 Fjölbreytt námskeiö fyrir allar ungar stúlkur og konur ^ öllum aldri, í framkomu, snyrtingu, förðun, Frárgreiðslu, tjáningu, göngu og mannlegum samskiptum. Kennsla hefst nk. sunnudag. Skírteinaafhending á morgun föstud. frá kl. 16.00 - 19.00. Nýtt á íslandi Undraprjónninn Hárhnýtirinn" sem getur breytt hárgreiðslunni á faglega greiðslu með einu handtaki fæst hjá okkur. Upplýsingar í síma 643340. Unnur Arngrímsdóttir, Faxafeni 14. Ronald krýndur konungur Kabaka í Kampala. En á innfelldu mynd- inni sést Ronald máta aðra kórónu íbygginn á svip... KONGAFOLK Umskipti í lífí fátæks blaðamanns Fyrir skömmu urðu heldur betur umskipti í lífí Ronalds Mutebi, ungs manns sem bjó fyrir skemmstu í sárri fátækt í suðurhluta Lundúna. Viðurværi sitt hafði hann af því að rita greinar í afrísk tímarit og er hann þó með lögfræðimenntun frá Cambridge. Ronald er sonur Freddie, Úgandakonungs, sem var steypt af stóli árið 1966. Freddie hrökklaðist mðð’fjölskyldu sína í útlegð til Lund- úná. Þar dó Freddie árið 1969. Nú hefur ríkisarfinn Ronald haldið heim til Úganda og hefur verið krýndur kóngur. Það verður þó að segjast eins og er, að Ronald er vita valdalaus og sumir myndu segja hann strengja- brúðu Yoweri Museveni forseta, sem komst til valda fyrir sjö árum með fulltingi skæruliðahers sins. Muse- veni var meðal þeirra sem mættu á krýninguna. Skýringanna að þessari uppákomu er að leita til þess, að Ronald er kóngur"„Kabaka“-flokks- ins, sem telur sex milljónir þegna. Það var Museveni mikilvægt að eiga vísan stuðning Kabaka-flokksins ef til einhverra vandræða kæmi sem alltaf má reikna með í þessum heims- hluta. Leiðin til að njóta hylli Kabaka var að leyfa þeim að kalla heim kóng sinn úr útlegð og hefur það nú geng- ið eftir og mikil gleði ríkir meðal Kabaka. "Nú er það svo, að alltaf skjóta einhver vandamál upp kollinum. Þar sem er kóngur skal einnig vera rík- isarfi. Ronald á vissulega son með sinni sambýliskonu, en hún er frá Ruanda og getur því ekki orðið drottning. Og sonurinn því ekki kóngur. Sambýliskonan og sonurinn eru þó engu að síður fiutt til Kamp- ala með Ronald, en öldungarnir með- al Kabaka eru þegar farnir að leita logandi ljósum að „alvöru’ drottingu sem gæti alið „alvöru” prins. Er það hlutskipti sem sambýliskona Ronalds verður að sætta sig við, en kóngalíf i Úganda þykir þó í tilviki þessa fólks vera betri kostur heldur en fátækt í Lundúnum. Það beri því að færa ein- hverjar fómir til að liðka fyrir hlutun- um. með ONE TOUCH háreyðingarkremunum losar þú þig við óæskileg hár á þægilegan og sársaukalausan hátt —-Regular - fyrir venjulega húð. V;' 'U&jíWí,...:,. ifi. .,f J Bikini - fyrir "bikini" svæði. o kreminu er einfaldlega rúllað á hársvæðið og skolað af í sturtu eða baði eftir tiltekinn tíma (sjá leiðb.) o húðin verður mjúk - ekki hrjúf o ofnæmisprófað - fyrir viðkvæma húð. Útsölustaðir: Flestar snyrtivöru- verslanir, apótek og snyrtivörudeidir stórmarkaða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.