Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 42

Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 !&> STJORNUSPA eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) V* Þú býrð yfir mikilli leikni í viðskiptum sem nýtur sín í dag og þér opnast nýjar leið- ir til tekjuöflunar. Vertu samstarfsfús. Naut (20. apríl - 20. maí) ífífá Þú færð áhuga á nýrri tóm- stundaiðju. Sátt og samlyndi ríkir hjá ástvinum, en sam- starfsmaður getur verið kenjóttur. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þér tekst að leysa vel af hendi áríðandi verkefni í vinnunni. Mikil samstaða næst innan fjölskyldunnar eftir fjölskyldufund. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Nú er rétti tíminn til að ræða málin og koma hug- myndum þínum á framfæri. Hagsmunir heimilis og fjöl- skyldu hafa forgang. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú hefur góða dómgreind í peningamálum og nú er hag- stætt að kaupa eða selja. Gættu þess að missa ekki þolinmæðina. Meyja (23. ágúst - 22. september) Félagar eru samhentir í dag og taka mikilvæga ákvörð- un. Fyrirhugað ferðalag lof- ar góðu, en hafðu hemil á eyðslunni. V°g (23. sept. - 22. október) Mikil undirbúningsvinna gerir þér kleift að leysa áríð- andi verkefni farsællega. Þér miðar vel að settu marki í vinnunni. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú átt árangursríkar við- ræður við gamlan vin í dag. Gættu þess að hafa hugann við það sem þú ert að gera. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Nú er rétti tíminn til að semja við ráðamenn. Þig gæti vantað hlut sem er í geymslu. Virtur er eitthvað afundinn í kvöld. Steingeit (22. des. - 19. janúar) m Fundur með sérfræðingi skiiar árangri, en nú er ekki rétt að beita of mikilli hörku í viðskiptum. Þú ferð á vina- fund í kvöld. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Hagur þinn vænkast í vinn- unni í dag og nú gefst tæki- færi til að taka mikilvæga ákvörðun varðandi íjármál- in. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Nú ætti að vera auðvelt fyr- ir þig að komast að sam- komulagi við aðra. Ferðalag gæti verið framundan. Eyddu ekki of miklu í kvöld. Stjörnuspána á að lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. — n OB£> <S~£r/t TIL. t-£/£>AF5. / mm. ( JÁ'ÞAV ER ANDSTVSSILE6 C JA. EG SÉ EFTlR. þvi' TOMMI OG JENNI £/ZTU I//SS U/M /)£> þó HAF/e T^t£/0 --------------' -------.......p LJÓSKA x < il w— irr FERDINAND SMAFOLK IVE PECIDEP ID RATWER 60 TO 5CW00L TWAN 5PENIP TEN VEAR5 IN A PUN6E0N.. y- Ég hef ákveðið að fara heldur í skólann en að eyða tíu árum í dýflissu. Þú munt líklega læra brot á þessu ári. Hvar nákvæmlega er þessi dýflissa? BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson ítalinn Pabis-Ticci missti af fallegri vörn gegn 6 gröndum suðurs. Þetta var á HM í Rio de Janeiro 1969 í leik ítala og Kínverja. Norður gefur, NS á hættu. Norður ♦ D105 ¥ D1083 ♦ Á62 *D104 Vestur ♦ 7432 ¥65 ♦ KG873 *K7 Austur ♦ 98 ¥742 ♦ 954 ♦ G9632 Suður ♦ ÁKG6 ¥ ÁKG9 ♦ D10 ♦ Á85 Vcstur Norður Austur Suður — Pass Pass 2 grönd Pass 4 lauf Pass 4 grönd Pass 6 grönd Allir pass Utspil: spaðaþristur. Frá bæjardyrum sagnhafa lít- ur slemman út fyrir að vera andvana fædd. Blankur lauf- kóngur í austur virðist vera besta vonin. Alltént lagði suður niður laufás í öðrum slag, en kóngurinn lét ekki sjá sig. Sem betur fer, kannski, eins og síðar átti eftir að koma í ljös. Suður tók slagina á hálitina og spilaði laufi að drottning- unni. Pabis-Ticci fékk slaginn á laufkóng, en varð að spila frá tígulkóng og gefa þar með 12. slaginn. Pabis-Ticci fékk þrjú tækifæri tl að losa sig við laufkónginn. Hann gat lagt hann undir ásinn eða hent honum í hjarta. Sú vörn lítur ekki út fyrir að vera mjög flókin, því auðvitað hlýtur austur að eiga gosann í laufi - ella myndi suður svína. En vörn af þessu tagi er alltaf auðveld- ari á pappír. Menn leika sér ekki að því að henda frá sér öruggum slag í slemmu. En Italir töpuðu ekki á spil- inu. Hinum megin varð Bella- donna sagnhafi í 6 hjörtum og vann slemmuna á sama innk- asti. Þar gat vestur ekki bjargað sér með því að henda laufkóngn- um undir ásinn, því þá fer eitt lauf niður í ljórða spaðann og sagnhafi gefur aðeins einn slag á tígul. SKAK Umsjón Margeir Pétursson í deildakeppni Skáksambands íslands í vor kom þessi staða upp í 1. deild í viðureign þeirra Stef- áns Þormars Guðmundssonar (1.860), Taflfélagi Garðabæjar, og Hrannars Baldurssonar (1.920), Taflfélagi Kópavogs. Hvítur virðist standa mjög vel að vígi með tveimur peðum meira, 29. - Dcx3 má svara með 30. Ref5 og 29. - Dbl + með 30. Rfl. Svartur á þó laglega leið ti) að tryggja sér a.m.k. jafna stöðu: 29. - Rf3+!, 30. Kg2 - Rxd4!, 31. Hxb2 - Rxe6, 32. Hxb7 - a5 (Svartur hefur unnið mann fyrir þijú peð og möguleikarnir eru hans megin, þótt jafntefli verði að teljast líklegasta niðurstaðan. Bráttan fékk þó snöggan endi): 33. Ha7? - Bxc3, 34. Rd5+? - Hxf2+!, 35. Kh3 - Bd2 og með manni meira fyrir aðeins eitt peð vann svartur örugglega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.