Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 45

Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 45 Þegar lögreglumaðurinn Powers var ráðinn í sérsveit lögreglunnar, vissi hann ekki að verkefni hans væri að framfylgja lögunum með aðferðum glæpamanna. Mynd, sem byggð er á sannsöguleg- um heimildum um SIS sérsveitina í L.A. lögreglunni. Sýnd í A-sal kl. 5, 7,9 og 11 Stranglega bönnuð innan 16 ára HELGARFRÍ MEÐ BERNIE II „WEEKEND AT BERNIE’S 11“ Frábær gamanmynd Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. HERRA FÓSTRI Hulk Hogan er Herra Fóstri Hann er stór. Hann er vondur. Hann er í vandræðum. Mynd fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 5 og 7. Bönnuð innan 12 ára. FEILSPOR ONE FALSE MOVE ★ ★★★ EMPIRE ★ ★ ★MBL. ★ ★ ★ /* DV Einstök sakamálamynd, sem hvarvotna hefur fengið dúndur aðsókn. Sýnd kl. 9 og 11. Bönnuð innan 16 óra. Ráðstefna um siðfræði náttúrunnar SIÐFRÆÐISTOFNUN Háskóla íslands gengst fyrir ráð- stefnu um siðfræði náttúrunnar helgina 18.-19. septem- ber nk. Á ráðstefnunni, sem ber heitið Náttúrusýn, verða flutt um tuttugu erindi sem öll tengjast samskiptum manns og náttúru á einn eða annan hátt. Ráðstefnan er þverfagleg en erindum er skipt í fjóra meginflokka: Náttúra og siðfræði, náttúra og skáldskapur, náttúra og vísindi og náttúra, trú og saga. Fyrirlesarar verða úr röðum heimspekinga, nátt- úrufræðinga, guðfræðinga og listfræðinga, auk ann- arra. Útgáfa á erindum og umræðum er fyrirhuguð að ráðstefnu lokinni. Ráðstefnan verður haldin í Háskólabíói laugardaginn 18. september og sunnudag- inn 19. september frá kl. níu til fjögur báða dagana. Öll- um er heimil þátttaka á með- an húsrúm leyfír. í tengslum við ráðstefn- una mun Framjois Terrasson við Franska náttúrusögu- safnið í París flytja erindi sem hann nefnir Óttinn við náttúruna og verður það flutt í stofu 101 í Odda föstudag- inn 17. september frá kl. fimm til sjö. Erindið verður haldið á ensku. Ein mesta spennumynd allra tíma Mynd um morð, atvinnuleysi, leigumorðingja og mikla peninga. Aðalhlutverk: Nicolas Cage og Dennis Hooper. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. - Stranglega bönnuð innan 16 ára. ÞRIHYRNINGURINN ★ ★ ★ ★ Presson ★ ★★ \/i DV Ellen hefur sagt upp kærustu sinni (Connie) og er farín að efast um kynhneigð sína sem lesbfu. Til að ná aftur í Ellen ræður Connie karlhóruna Casella til að tæla Ellen og koma svo illa fram við hana að hún hætti algjörlega við karímenn. Sýnd ki. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 12 ára. Fór beint á toppinn í Bretlandi SUPER MARIO BROS. Aðalhlutverk: Bob Hoskins, Dennis Hopper og John Leguizamo. „Algjört möst.“ ★ ★ ★ G.Ó. Pressan. Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. AMOS&ANDREW Aðalhlv.: Nicolas Cage og Samuel L. Jackson fcL Sýnd ki. 5,7,9 og 11. LOFTSKEYTAMAÐURINN ★ ★ ★GE-DY ★ ★ ★ Mbl. Sigurvegarinn á Norrœnu (Óskars) kvikmyndahátíðinni '93 Sýnd ki. 5,7, 9og11. SKEMMTANIR ■ Á HRESSÓ í kvöld, fimmtudaginn 2. sept. kl. 10.30, kemur fram í fyrsta skiptið rokkhljómsveitin Head. Hljómsveitina skipa Aðalsteinn Ólafsson, Sig- urður K. Lúðvíksson, Birgir Thorarensen og Steinar Gíslason. Einnig kemur fram _ hljómsveitin Dos Pilas. Á föstudags- kvöldinu er það svo Snigla- bandið sem heldur dans- leik. ■ GAUKUR Á STÖNG Á Gauknum í kvöld, fimmtu- dag, koma fram Borgard- ætur en þær eru Andrea Gylfadóttir, Berglind Björk og Ellen Kristjáns- dóttir. Um helgina, föstu- dags- og laugardagskvöld, leikur rokkhljómsveitin Dos Pilas. Á sunnudag er svo lokakvöld Bjórhátíðar Bylgjunnar og eru það Friðrik T. og félagar sem leika kráarstemmningarlög. ■ LA LUNA Hljómsveitin Blackout kemur fram á veitingahúsinu La Luna, Lækjargötu 2, í kvöld, föstu- dagskvöld. Hljómsveitina skipa Andri Hrannar, Leifur, Gummi, Stefán og Beggi Viðars. ■ TODMOBILE leikur laugardagskvöldið 4. sept. í veitingahúsinu Þotunni í Keflavík en þetta er fyrsti dansleikur hljómsveitarinn- ar í Keflavík í u.þ.b. tvo mánuði. ■ VINIR VORS OG BLÓMA leika föstudags- kvöld á veitingastaðnum Tveimur vinum. Á laugar- deginum verða þ§ir félagar í Inghóli á Selfossi. ■ PLÁHNETAN leikur fyrir Norðlendinga nú um helgina. Á föstudagskvöld- inu 3. sept. leikur hljóm- sveitin í Víkurröst á Dalvík en á laugardagskvöjdinu leikur hljómsveitin í Ýdöl- um í Aðaldal. ■ DANSBARINN Opinn míkrafónn heitir dagskrálið- ur á fimmtudags- og sunnu- dagskvöldun en þá geta gestir veitingastaðarins troðið upp á milli kl. 21 og 23 og t.d. lesið ljóð, sungið, sagt brandara o.fl. Á föstu- dags- og laugardagskvöld- inu 3. og 4. sept. er dansleik- ur með Þorvaldi Halldórs- syni og Gunna Tryggva. ■ HÓTEL SAGA. í Súlnasal Hótels Sögu verður dansleikur laugardaginn 4. sept. með hljómsveitinni Saga-Class með söngkon- una Berglindi Björk í far- arbroddi. Húsið verður opn- að kl. 22. ■ SSSÓL leikur á Búðum í kvöld, fimmtudagskvöld, en flutningur á lögum þeirra verður rafmagnslaus. Föstudagskvöld verður haldinn dansleikur fýrir æsku höfuðborgarinnar og nágrennis hennar að Hlöð- um á Hvalfjarðarströnd. Á laugardagskvöld verður haldinn dansleikur í Mið- garði í Skagafirði en sá dansleikur er sá síðasti í „Verð að fá það“ dagskrá SSSólar í sumar. ■ L.A. CAFÉ Félagarnir í Ríó Tríó skemmta gestum í kvöld, fimmtudagskvöld. Húsið verður opnað kl. 18. Nýr hópmatseðill er til boða. ■ CAFÉ AMSTERDAM Um helgina leikur hljóm- sveitin Orkin hans Nóa. Hljómsveitina skipa Steinar B. Helgason, trommur, Sigurður Ragnarsson, hljómborð, Sævar Árna- son, gítar, Kristinn Gal- lagher, bassi og Arnar Freyr Gunnarsson, söng- ur. ■ ET-BANDIÐ og BJARNI ARA skemmta í Vitanum, Sandgerði föstu- dags- og laugardagskvöld 3. og 4. sept. Þar munu þeir leika Presley-lög og ís- lenskt grásleppurokk í bland við annað. Á laugardag skemmtir ET-bandið ásamt leynigestunum Binna og Stebba. ■ PLÚSINN Um helgina, föstudags- og laugardags- kvöld, spilar rokkhljómsveit- in Langbrók. Hljómsveitin leikur hressileg rokklög en hefur tekið upp þá nýbreytni að fá til liðs við sig tvær söngkonur, þær Ásdísi og Önnu Karen, sem sjá um að flytja úrval þekktustu laga hljómsveitarinnar ABBA, en þær hafa báðar starfað í hljómsveitinni Kandís. Aðrir meðlimir eru Allir, Baldur, Alfreð og Halli. ■ TVEIR VINIR Hljóm- sveitin Vinir vors og blóma leika á veitingahúsinu föstu- dagskvöld en á laugardags- kvöldinu er það hljómsveitin KK en hún hefur ekki spilað í höfuðborginni í lengri tíma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.