Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 02.09.1993, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 IÞROTTIR UNGLINGA Morgunblaðið/Frosti Krappur dans stiginn inni í vítateig KA í úrslitaleik fjórða flokks. Aldrei séd jafn sterkt unglingalið — sagði Jóhannes Bjarnason þjálfari KA eftir 0:2 tap gegn Fram í 4. flokki „ÉG hef aldrei séð svona sterkt unglingalið. Sum lið eru með 1 -2 af burðaleikmenn en hjá Framliðinu eru þeir sex eða sjö,“ sagði Jóhannes Bjarnason, þjálfari fjórða flokks KA eftir að lið hans hafði tapað fyrir Fram 0:2 á Valbjarnarvelli á sunnudag. Sigur Fram var allan tímann öruggur. Andrés Jónsson, fyrirliði skoraði fyrra mark Fram snemma í leiknum með því að kasta sér fram og skalla í netið en annars olli fyrri hálfleikurinn vonbrigðum. Sóknir Fram voru markvissari í síðari hálfleiknum og átti liðið meðal annars skot í stöng og þverslá KA-marksins. Uppskeran Fram stendur vel að vígi Aðeins á eftir að ljúka kepgni í tveimur aldursflokkum á ís- landsmótinu í knattspyrnu en það er í 2. og 3. flokki karla. Baráttan í 2. flokki stendur á milli Fram og ÍA og stendur Fram betur að vígi en liðið hefur tveggja stiga forskot á ÍA þegár tveimur umferðum er ólokið í A-deildinni. Fram leikur gegn ÍBV á Fram- vellinum í kvöld og ÍA mætir KA á Skipaskaga og hefjast báðir leik- irnir kl. 18. í síðustu umferð A- deildarinnar sem fram fer 9. sept- ember mætir ÍA botnliði Víkings og Stjarnan tekur á móti Fram. I 3. flokki leika Valur og Fram til úrslita og fer leikur liðanna fram á Valbjamarvellinum á sunnudag. var hins vegar sú sama og í fyrri hálfleiknum, - eitt mark. Erlendur Sigurðsson skoraði það með skoti úr vítateignum eftir að hafa feng- ið sendingu frá Davíð Torfasyni. Fram varði því titilinn í þessum flokki og nokkrir pilta í liðinu sem eru af hinum sterka 1979 árgangi hafa krækt sér í þrjá gullpeninga á þremur árum því Fram varð meistari í fimmta flokki fyrir tveimur árum. „Við reyndum að taka fast á þeim en þeir skoruðu snemma og við sköpuðum okkur fá færi. Fæst- ir reiknuðu með því að við mundum vinna stóru sunnanliðin, KR og Víking í úrslitakeppninni. En við komum á óvart með því að keppa til úrslita og ættum að vera mun sterkari á næsta ári því helmingur- inn af liðinu er á yngra árinu,“ sagði Atli Þórarinsson, Ieikmaður KA. Fram: Daníel Bjarnason - Vilhelm Sigurðsson, Baldur Karlsson, Eggert. Stefánsson - Viðar Guðjónsson, Davíð Torfasón, Freyr Karlsson, Andrés Jóns- son, Erlendur Sigurðsson - Finnur Bjarnason, Haukur Hauksson. KA: Andri Magnússon - Jónatan Magnússon, Hilmar Stefánsson, Lárus Stefánsson (Hafþór Einarsson), Anton Þórarinsson - Ágúst Axelsson (Davíð Helgason), Atli Þórarinsson, Jóhann Hermannsson, Jóhann Traustason (Har- aldur Hringsson) - Heimir Árnason, Hlynur Erlingss.(Hákon Atlas.). NÁMSKEIÐAPAKKI á einstökom kiörum! Viltu margfalda lestrarhraðann og auka ánægju af öllum lestri? Viltu auka afköst í starfi og námi? Hraðlestrarskólinn býður nú tvö vinsæl námskeið, hraðlestr- arnámskeið sem kostar kr. 15.800 og námstækninámskeið sem kostar kr. 5.900, saman í „pakka" á frábærum kjörum, einungis kr. 15.800. Þú sparar kr. 5.900! Betra tilboð færðu ekki, enda skila námskeiðin þér auknum afköstum í námi og starfi alla ævi! Næsta námskeið hefst 9. september. Skráning alla daga í síma 641091. HRAÐLESTRARSKOLINIM ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! 23 1978- 1993 CS VI ItÚ' MM v ' • /- Við kennum alla samkvæmisdansana: Suðurameríska, standard og gömlu dansana. Svo kennum við líka barnadansa. Einkatímar fyrir þá sem vilja. Fjölskyldu- og systkinaafslattur. Innritun og upplýsingar 1. -10. september kl. 10-22 í síma 64 1111. Kennsla hefst mánudaginn 13. september. Kennsluönn lýkur með jólaballi í desember. "Opið hús" öll laugardagskvöld. Supadance skór á dömur og herra. DANSSKÓLI SIGURÐAR HAKONARSONAR AUÐBREKKU 17, KÓPAVOGI I LJOSASKORNIR ERU EINSTAKIR. PEIR ERU LJOSIÐ í MYRKRINU. PEIR ERU STERKIR OC STUÐLA AÐ ÖRYCCI PINU. VERTU I COÐUM CÍR I VETUR. Laugavegi 62 Sími 13508 STEINAR WAAGE portbúðAskars j Hafnargötu 23 Sími: 14922 ÚTILÍF', Glæsibæ. simi812922

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.