Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 51

Morgunblaðið - 02.09.1993, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993 sr i i j j i I ! i I I § 3 9 i 9 + ÚRSLIT ÍA - Partizani 3:0 Akranesvöllur, Evrópukeppni meistaraliða — forkeppni, síðari leikur, 1. sept. 1993. Aðstæður: Völlurinn blautur eftir rigningu fyrr um daginn. Veður eins og best verður á kosið — logn og sólarlaust. Mörk IA: Alexander Högnason (70.), Þórð- ur Guðjónsson 2 (71. og 80.). Gult spjald: Myfthri Afrim (78.) - fyrir að brjóta á Þórði Guðjónssyni. Dómari: Aron Schmidhuhber frá Þýska- landi. Dæmdi hreint frábærlega. Línuverðir: Klaus Plettenberg og Herbert Eli frá Þýskalandi. Áhorfendur: 1.561 greiddu aðgangseyri. ÍA: Kristján Finnbogason — Sturlaugur Haraldsson, Ólafur Adólfsson, Lúkas Kostic, Sigursteinn Gíslason - Ólafur Þórð- arson, Sigurður Jónsson, Alexander Högna- son, Haraldur Ingólfsson - Mihajlo Bi- bercic, Þórður Guðjónsson. Partizani: Dhani Avenier — Nikolla Anton (Berberri Shahin 75.), Myfthri Afrim, Shulku Jlir, Silo Jlir, Bhno Arthn - Lili Gentian (Hoyhia Jritan 75.), Soelli Nikolla, Shtko Altin, Ruhi Nordik — Jsti Edmond. EVRÓPUKEPPNIN Síðari leikir I forkeppninni. Keppni meistaraliða Linfield, Irlandi: Linfield - Dynamo Tbilisi (Georgíu)..1:1 Cork, írlandi: Cork City - Cwmbran Town (Wales).....2:1 Vilnius, Litháen: Zalgiris - FC Kosice (Slóvakíu)......0:1 Keppni bikarhafa Minsk, Hvíta Rússlandi: Neman Grodno - Lugano (Sviss)........2:1 Haifa, fsrael: Maccabi Haifa - Dudelange (Lúx.).....6:1 Nikósíu, Kýpur: Apoel - Bangor (N-írl)...............2:1 Óðinsvéum, Danmörku: Odense - Pubikum (Slóveníu)..........0:0 Dublin, írlandi: Shelbourne - Karpaty Lvov (Úkraínu)....3:0 BFeitletruðu liðin fóru áfram. ENGLAND Úrvalsdeildin í gærkvöldi: Blackburn - Arsenal..................1:1 (Gallacher 36.) - (Campbell 75.) 14.051 Coventry - Liverpool.................1:0 (Babb 21.) 16.740 Manchester United - West Ham.........3:0 (Sharpe 7., Cantona 44. vsp., Bruce 88.) 44.613 QPR-Sheff.Utd....................2:1 (Sinclair 15., Wilson 63. vsp) - (Fio 10.) Sheff. Wedn. - Norwich...........3:3 (Bart Williams 51., Bright 59., Sinton 62.) - (Bowen 63., Ekoku 72., Sutton 76.) 25.175 Swindon - Man. City..............1:3 (Sumerbee 60.) - (Vonk 74., Quinn 79., Mike 89.) 14.300 T ottenham - Cheisea..............1:1 (Sheringham 85. vsp.) - (Cascarino 23.) ÞÝSKALAND Bayern Miinchen - Leipzig....3:0 (Neriinger 13., Matthaus 55., Schupp 88.) Borussia Dortmund - Dyn. Dresden.4:0 (Chapuisat 38., 71 og 89., Riedle 88.) Köln - Freiburg..............2:0 (Polster 12. og 52.) 22.000. Wattenscheid - VfB Stuttgart.2:4 (Loebe 38., Prinzen 63.) - (Walter 45. og 90., Brdaric 78., Knup 83.) 5.000. Hamburger - Bayer Leverkusen.....2:1 Átta liða úrslit 4. deildar: Njarðvík - Fjölnir...........2:4 Ingvar Georgsson 2 - Miroslav Nicolic 2, Börkur Edvardsson, sjálfsmark. BiFjölnir vann fyrri leikinn 3:2 og vann því samanlagt 7:4. KS-Ægir......................2:3 Hafþór Kolbeinsson, Agnar Þór Sveinsson - Halldór Páll Kjartansson, Þórarinn Jó- hannsson, Kjartan Helgason. BÆgir vann fyrri leikinn 4:2 og vann því samanlagt 6:4. Afturelding - Höttur.........4:2 BHöttur sigraði fyrri leikinn 3:1, bæði lið skoruðu því fimm mörk í leikjunum tveimur en Höttur kemst í undanúrslit þar sem liðið skoraði fleiri mörk á útivelli. Utúm FOLK ■ LÚKAS KOSTIC, fyrirliði Skagamanna, efaðist ekki um ágæti liðsins eftir sigurinn í gærkvöldi. „Allt bytjunarliðið er tilbúið að leika landsleikinn gegn Lúxemborg í næstu viku og varamennirnir líka.“ ■ BÚNINGAR albanska liðsins komu ekki með því til landsins. Skagamenn gengu í málið og redd- uðu búniningum á síðustu stundu. ■ ÞORBJORN Sveinsson gerði annað mark íslenska drengjaiandsl- iðsins gegn Litháen í Grindavík í gærkvöldi. Hann bjó í Grindavík til sjö ára aldurs og sagði við blaða- mann Morgunblaðsins eftir leikinn að hann hefði verið ákveðinn í því að skora mark, fyrir fjallið Þorbjörn sem stendur við Grindavík. Ástæð- an er sú að hann er skírður í höfuð- ið á fjallinu. KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA Morgunblaðið/RAX Markahrókur Skagamanna ÞÓRÐUR Guðjónsson fagnar hér síðara marki sínu og þriðja marki ÍA í leikn- um gegn Partizani Tirana á Skipaskaga í gærkvöldi. Með sigrinum tryggði ÍA sér áframhaldandi veru í Evrópukeppninni og mætir Feyenoord í næstu umferð. HANDKNATTLEIKUR Valsmenn meistarar skrifar frá Selfossi Góð markvarsla Guðmundar Hrafnkelssonar á réttum tíma í leiknum átti dijúgan þátt í sigri ^■■■■i íslands- og bikar- Sigurður meistara Valsmanna Jónsson yfir Selfyssingum á Selfossi í gærkvöldi í opnunarleik hand- boltatímabilsins. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 20:20 en í fram- iengingunni voru Valsmenn sterkari og sigruðu 24:26. Valsmenn hlutu því fyrstir nafnbótina meistarar meistaranna. Leikurinn bar þess nokkur merki að liðin eru ekki komin í nægilega góða æfingu. Sóknarleikur Vals- manna var afleitur framan af, Sel- fyssingar höfðu leikinn í hendi sér í fyrri hálfleik og gátu verið mun fleiri mörkum yfír en tveimur eins og raunin varð, 12:10. Gísli Felix Bjarnason varði eins og berserkur í leiknum, níu skot í fyrri hálfleik og sautján samtals. Valsmenn byrjuðu mun betur í seinni hálfleik og þá fór Guðmundur í gang í markinu og varði mjög vel, þar á meðal þijú vítaskot sem setti Selfyssinga út af laginu. Þeir náðu sér þó á strik og mikil spenna var í leiknum undir lok venjulegs leik- tíma en Selfyssingar jöfnuðu þegar 40 sekúndur voru eftir og Valsmenn fengu aukakast þegar fjórar sekúnd- ur lifðu en tókst ekki að skora. í framlengingunni voru Valsmenn sterkari og það reyndist Selfyssing- um dýrt að fá á sig þijú víti. Skagamenn áframíhá- tíðarskapi SKAGAMENN bættu enn einni rósinni í hnappagatið í gær er þeir unnu albanska liðið Pariz- ani frá Tírana sannfærandi 3:0 í síðari leik liðanna íforkeppni Evrópukeppni meistaraliða á heimavelli sínum á Akranesi. Skagamenn, sem allir voru snoðklipptir, réðu lögum og lofum á vellinum allan leikinn, en áttu erfitt með að skapa sér marktækifæri í fyrri hálfleik, en það kom í þeim síðari og settu þeir þá þrjú mörk á ellefu mín- útna kafla. ÍA mætir Feyenoord í næstu umferð og fer fyrri leik- ur liðanna fram á Laugardals- velli 15. september. Skagamenn voru lengi að þreifa fyrir sér og áttu erfitt með að finna glufu á albansaka vam- armúrnum í fyrri hálfleik. Eftir hlé Jónatansson var aldrei sP“rl?Íng skrífar um s'gur. heldur . aðeins um hversu stór hann yrði. Albanir komu greinilega í leikinn með það veganesti að veijast og freista þess að beita skyndisóknum. Þeir notðu leikaðferðina 5-4-1 og gekk hún vel upp í fyrri hálfleik enda náðu Skagamenn ekki að ógna marki Partizan að neinu gagni. En Skagastrákarnir voru þolinmóðir og uppskeran lét ekki á sér standa í seinni hálfleik eftir að Alexander Högnason náði að bijóta ísinn með glæsilegu marki af 20 metra færi. Tvö mörk fylgdu í kjölfarið frá Þórði Guðjónssyni og þar með var liðið komið áfram í keppninni. Skagamenn voru ekki mjög sann- færandi í fyrri hálfleik. Þeim gekk illa að skapa sér færi, náðu ekki að splundra albönsku vörninni því þeir gáfu sér of langan tíma. Eftir hlé fór Skagvélin í gang og lét ekki staðar numið fyrr en mörkin vora orðin þijú. Sigurður Jónsson var yfírburðarmaður á vellinum, stjóm- aði leiknum eins og herforingi og átti frábærar sendingar. Annars 1B#%Sigurður Jónsson hóf ■ \#snögga sókn á miðj^- unni er hann sendi á Alexander og eftir þríhymingsspil við Bi- bercic tók Álexander Högna- son boltann með sér — lék að vítateignum og lét skotið ríða af og boitinn hafnaði í hægra hominu á 70. mfn. Glæsilegt mark. »#\Einni mínútu eftir ■ \Jfyrra markið kom annað. Sigurður Jónsson vann boltann á miðjunni sendi út til vinstri á Bibercic sem fram- lengdi á Harald Ingólfsson sem sendi aftur á Bibercic sem lék upp að endamörkum og sendi út í markteiginn og þar vs*|| Þórður Guðjónsson mættur og þmmaði í netið. 3B Haraldur Ingólfsson ■ %#tók hornspymu frá hægri. Ólafur Adólfsson skallaði að marki og Þórður Guðjóns- son beið við fjærstöngina og stýrði boltanum upp í þaknetið á 80. mín. stóð allt liði sig vel og hvergi vejjkr ur hlekkur. Kristján hafði það ná'e'- ugt í markinu og þurfti aðeins einu sinni að taka fyrirgjöf og eitt lang- skot í öllum leiknum. Vörnin var öryggið uppmálað og miðjan öflug. Alexander fór í gang í seinni hálf- leik og eins nýttust kantmennirnir Ólafur Þórðarson og Haraldur þá betur eftir frekar brösótt gengi í þeim fyrri. Bibercic og Þórður ógn- uðu vel frammi, sérstaklega sá síð- arnefndi. Það er varla hægt að ganga fram hjá þessum mikla markahrók er landsliðið verður val- ið fyrir leikinn gegn Lúxemborg í næstu viku. Albanska liðið var ekki gott. Leikur þess var hugmyndasnauð**\ og ómarkviss enda var eins og þeir hafi komið til að halda hreinu og treysta á vítaspyrnukeppni. Dýriegir dagar - sagði Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA „ÞETTA hafa verið dýrlegir dagar hjá okkur að undan- förnu,“ sagðj Guðjón Þórðar- son, þjálfari ÍA, kampakátur eftir sigurinn. „Þetta gekk vel upp í síðari hálfleik, en það vantaði meira tempó í fyrri hálfleik. Það er alltaf erfitt að leika gegn svona fjölmennri vörn, en við vorum þolinmóðir og fyrsta markið var algjört rothögg fyrir þá.“ Guðjón sagðist ekki vera farinn að spá í næsta Evrópuleik sem verður gegn Feyenoord. „Við eigum tvo deildarleiki þangað til og svo getum við farið að skoða hollenska liðið.“ Vorum „klassa“ betri Sigurður Jónsson sem átti stjörnuleik sagði: „Við vorum „klassa“ betri. Við vissum að þeir myndu spila varnarleik og treysta á skyndisóknir og því kom leikur þeirra okkur ekkert á óvart. En við vorum þolinmóðir og það borgaði sig, enda voru þeir alveg búnir í lokin. Þetta var stórglæsilegt." Um leikina gegn Feyenoord sagði hann: „Það verður skemmtilegt að mæta Feyenoord. Við förum mjög af- slappaðir í þann leik og höfum allt að vinna. Það er engin pressa á okkur því við höfum staðið okkur betur en nokkur þorði að vona,“ sagði Sigurður. Skjóta fast „Ég hugsaði aðeins um það að skjóta eins fast og ég gæti,“ sagði Alexander Högnason um markið sem kom ÍA á bragðið. „Þetta var aðeins spurning um fyrsta markið og eftir það var sigurinn vís. Þeir voru nokkuð erfiðir í fyrri hálfleik og náðu þá að loka vel svæðum, en eftir hlé náðum við að rúlla yfir þá,“ sagði Alexander. Draumurinn rættist „Það hefur alltaf verið draumur- inn hjá mér að skora í Evrópuleik og ekki var verra að hafa þau tvö,“ sagði Þórður Guðjónsson. „Leikur- inn var nokkuð erfiður, sérstaklega í fyrri hálfleik en seinni var algjör einstefna. Það verður gaman að mæta Feyenoord og vonandi fær Amar að leika með,“ sagði marka- hrókurinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.