Morgunblaðið - 02.09.1993, Page 52
HEWLETT
PACKARD
--------UMBOÐIÐ
HPÁ ÍSLANDI HF
Höfdabakka 9, Reykjavík, s(mi (91)671000
Frá möguleika til veruleika
MORGVNBLADIÐ, KRINGLAN I 103 REÝtijAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Hvítur lundakóngur
Uppstoppaður lundakóngur-
inn, sem veiddist í Ystakletti.
Lunda-
kóngur
Vestmannaeyjum.
LUNDAKÓNGUR, alhvítt af-
brigði lunda, veiddist í Ysta-
kletti í sumar. Þórður Hall-
grímsson veiddi fuglinn á
Lognflá austan í Klettinum og
sagðist hann ekki hafa verið
búinn að sjá fuglinn á flugi
fyrr en hann veiddi hann.
Algengasta sérafbrigði lunda
er kolapiltur, sem er með dekkri
haus en venjulegur lundi. Annað
afbrigði er prins sem er
hvítdoppóttur á bakinu. Sjald-
gæfari eru síðan drottning, sem
er móbrún á lit og kóngurinn
sem er alhvítur. ,
Gnmur
Arleg rannsókn á þorskstofninum á íslenska hafsvæðinu og Grænlandshafi
Ekki mælst jafnmikið
magn þorskseiða í 7 ár
EKKI hefur mælst jafnmikið magn þorskseiða á islenska hafsvæðinu
og í Grænlandshafi og við Austur-Grænland í sjö ár og vísbendingar
eru um að kominn sé efniviður í meðalárgang. Sveinn Sveinbjörns-
son, leiðangursstjóri á hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni, segir
að þetta sé langbesta útkoman í sjö ár og mikil breyting frá því sem
verið hefur. Því sé ástæða til nokkurrar bjartsýni varðandi uppgang
þorskstofnsins hér við land.
Sveinn segir að ekki sé beint sam-
band á milli stærðar seiðavísitölu og
þess árgangs sem upp úr henni komi.
Afföllin séu mikil. „Þarna höfum við
seiðavísitölu sem er í meðaltali og
þær hafa bæði gefið góða árganga
og lélega. En þetta er í fyrsta sinn
í langan tíma sem við höfum von
um að fá góðan árgang. Þegar við
segjum að þarna sé efniviður í með-
alárgang þá erum við að hugsa um
200 milljónir þriggja ára fiska eða
þar um bil, sem er meðaltalið frá
1970 til 1992,“ sagði Sveinn.
Verndun á hrygningarslóð
Hann kvaðst helst hallast að því
að ástæður mikils magns seiða nú
séu einfaldlega hinir tilviljana-
kenndu hlutir í náttúrunni sem alltaf
ráða miklu þar um. „Það var gert
töluvert átak í verndun á hrygning-
arslóðum á þessu ári. Þessar aðgerð-
ir hafa örugglega ekki skaðað og
ef til vill hjálpað til.“ Hann sagði
að þegar hrygningarstofninn væri
stór dreifðist hrygningin um lengri
tíma og yfir stærra svæði og þar
með væru meiri möguleikar á því
að einhver hluti seiðanna hitti á
hagkvæm skilyrði.
„Við vitum að lélegur hrygning-
arstofn getur gefið góðan árgang
en það er mun sjaldnar en þegar
hrygningarstofninn er heilbrigður
og í góðu standi. Hrygningarstofn-
inn er ekki sérlega sterkur núna
enda höfum við fengið langt tímabil
þar sem nýliðun er ákaflega lítil og
reyndar lengsta tímabil sem þekkist
í þorskrannsóknunum," sagði
Sveinn.
Þorskurinn veiðist ekki að ráði
fyrr en íjögurra ára gamall. Kyn-
þroska verður hann ekki fyrr en 6-8
ára gamall. Sveinn segir ekki vitur-
Morgunblaðið/Guðmundur Þórðarson
Stærð þorskarganga
1970-1992
Hvað er í pokanum?
STARFSMENN Hafrannsóknastofnunar á rannsóknaskipinu Árna
Friðrikssyni taka inn sýni í seiðaleiðangrinum.
legt að leggjast á hann af fullum
þunga þegar hann verður veiðanleg-
ur. Forsenda sterkari þorskstofns sé
að byggja upp stærri hrygningar-
stofn. „Ef það tekst þá held ég að
það fari að birta verulega til í sjávar-
útveginum. Við höfum þó altént eitt-
hvað í höndunum til að binda vonir
okkar við. Það höfum við ekki haft
í langan tíma.“
Morgunblaðið/RAX
Sigur á öllum vígstöðvum
ÍSLENSKIR knattspyrnumenn fögnuðu sigri á þrennum vígstöðvum í alþjóð-
legri keppni í gærkvöldi. ÍA og Valur komust bæði áfram í Evrópukeppn-
inni; Akurnesingar eftir 3:0 sigur á albanska liðinu Partizani á Akranesi,
en Valur vann Mypa 47 1:0 í Finnlandi. Þá lagði landslið 16 ára og yngri
það litháíska að velli, 2:1, í Grindavík og tryggði sér sæti í 16 liða úrslita-
keppni Evrópumóts þessa aldursflokks. A myndinni fagna Akurnesingar síð-
asta marki sínu í gærkvöldi, sem Þórður Guðjónsson (nr. 6) skoraði.
Nánar á bls. 50 og 51.
Tillögur dómsmálaráðuneytisins til lækkunar útgjalda
Sýslumannsembættum
verði fækkað um níu
Héraðsdómur Norðurlands vestra lagður niður
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra hefur lagt til að sýslu-
mannsembættum verði fækkað um níu og héraðsdómstólum um einn.
Þessar tillögur eru uppistaðan í sparnaðartillögum dómsmálaráðu-
neytisins vegna fjárlagagerðarinnar. Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins lýstu nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins andstöðu við
tillögurnar á þingflokksfundi í fyrrakvöld, einkum þingmenn frá
kjördæmum eða stöðum þar sem leggja á niður embætti. Samkvæmt
heimildum blaðsins getur sparnaður af sameiningunni numið yfir
100 milljónum króna á ári, þó minnst á fyrsta ári eftir lagabreytingu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er í tillögum þeim, sem
dómsmálaráðuneytið hefur sett
fram, gert ráð fyrir að sýslumanns-
embættum fækki um níu. Þannig
verði sýslumannsembættin í Hafn-
arfirði og Kópavogi lögð niður og
starfsemin flytjist til Reykjavíkur.
Embættið í Búðardal verði samein-
að Stykkishólmi, embættið á Bol-
ungarvík flytjist til ísafjarðar og
sýslumannsembættið á Akranesi
sameinist embættinu í Borgarnesi.
Embættið á Ólafsfirði verði samein-
að Akureyri og embættið í Vík í
Mýrdal flytjist til Hvolsvallar. Þá
er ráð fyrir því gert að embættin á
Austfjörðum, þ.e. á Eskifirði, Nes-
kaupstað og Seyðisfirði sameinist í
eitt. Berufjörður, sem er syðsti hluti
umdæmis sýslumannsins á Eski-
firði, verði hins vegar lagður undir
embættið á Höfn vegna betri sam-
gangna í suður en norður.
Einstakir þingmenn andvígir
I tillögum dómsmálaráðuneytis-
ins er einnig gert ráð fyrir að Hér-
aðsdómur Norðurlands vestra verði
lagður niður og embættið sameinað
Héraðsdómi á Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins lýstu þeir Pálmi Jónsson
og Vilhjálmur Egilsson af Norður-
landi vestra, Einar K. Guðfinnsson
af Vestfjörðum og Árni M. Mathies-
en úr Reykjaneskjördæmi yfir and-
stöðu við tillögurnar á þingflokks-
fundi sjálfstæðismanna.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra sagði að ekki væri óeðlilegt
að menn spyrðu spurninga, þegar
svona róttækar tillögur væru
kynntar. Hins vegar væri um heild-
stæða skipulagsbreytingu að ræða,
sem tæki bæði til landsbyggðar og
höfuðborgarsvæðis, og hann tryði
ekki öðru en tillögurnar fengju
stuðning er þær hefðu verið ræddar
betur. „Menn verða við aðstæður
eins og þessar að freista þess að
ná fram spamaði með skipulags-
breytingum og hagræðingu. Ef það
er ekki tími til þess að takast á við
slík verkefni við þessar aðstæður
verður það aldrei,“ sagði Þorsteinn.
Góð útkoma í Norð-
urá og Laxá á Asum
LAXVEIÐI er lokið í Laxá á Ásum og Norðurá í Borgarfirði. Í
Norðurá veiddust 2.016 laxar, sem er mesta veiði í ánni um árabil.
Laxá á Ásum gaf hins vegar 1.460 laxa, sem er einnig besta veiði
í ánni til nokkurra ára. Aðeins er veitt á tvær stangir í Laxá, þann-
ig að um er að ræða 730 laxa á stöng á 90 dögum, sem gerir rúmlega
8 laxa á stöng að jafnaði.
Líkur benda til, að Norðurá verði
efst í sumar, en þó gæti Laxá í
Aðaldal náð henni. Þar hafa veiðst
rúmlega 1.800 laxar, en veitt er
þar í um viku til viðbótar. Veiði er
einnig lokið á neðra veiðisvæði
Þverár í Borgarfirði og á morgun
lýkur veiðiskap á efra svæðinu, í
svokallaðri Kjarrá. Lokatölur þar
verða trúlega um eða eitthvað yfir
1.500 laxar. Slæm skilyrði hafa
öðru fremur sett mark sitt á þetta
veiðisumar, kuldar fyrir norðan og
þurrkar suðvestan- og vestanlands.
Sjá nánar „Eru þeir að fá ’ann?
á bls. 14.